Þjóðviljinn - 13.03.1984, Qupperneq 12
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 13. mars 1984
Opið hús Akureyri
Opiö hús veröur haldið í Lárusarhúsi Eiðsvallagötu 18 sunnudaginn
11. mars nk. kl. 15.00. Veitingar og skemmtiatriði. Mætið vei. - Stjórn
Alþýðubandalagsins Akureyrl.
ABR
Taflkvöld
Alþýðubandalagið í Reykjavík efnir til taflkvölds þriðjudaginn 13. mars
kl. 20.00 í Flokksmiðstöðinni, Hverfisgötu 105. Áformað er að tefla 7
umferðir eftir Monrad-kerfi. Umhugsunartími verður 15 mínútur á
hverja skák fyrir hvorn keppanda. Þátttakendur taki með sér tafl og
klukku.______________________________________Nefndin
Alþýðubandalagið á Egilsstöðum:
Góðir félagar - Hreppsmálaráð
Fundur hjá Hreppsmálaráði Alþýðubandalagsins á Egilsstöðum
verða sem hér segir fram á vor:
Mánudagur 19. mars. Umræðuefni: Staða mála, Dagheimili og Safna-
stofnun.
Mánudagur 2. apríl. Umræðuefni: Skipulagsmál.
Mánudagur 16. apríl, Umræðuefni: Samstarf hreppa á Héraði og
sameiningarmál.
Fundirnir verða haldnir að Dynskógum 3 (kjallara), og hefjast kl. 20.30
stundvíslega.
Hreppsmálaráð hvetur alla félagsmenn til að mæta og láta Ijós sitt
skína. -Stjórnin.
Hvar kreppir skórinn helst hjá konum?
Ásdís Skúladóttir kemur á rabbfund kvennahóps Alþýðubandalags-
ins í Kópavogi miðvikudaginn 14. mars. kl. 20. 30. í Þinghól. Allar
konur velkomnar. -Hópurinn
Almennur fundur
á Djúpavogi
Hjörleifur Guttormsson alþingismaður verður á
stjórnmálafundi í skólanum á Djúpavogi laugar-
daginn 17. mars kl. 13.30. Fundurinn er öllum
opinn.
- Alþýðubandalagið. Hjörleifur
Alþýðubandalagið Selfossi
Bæjarmálaráðsfundur
verður haldinn þriðjudaginn 13. mars að Kirkjuvegi 7 kl. 20. 30. -
Stjórnin
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
Taflkvöld í kvöld
Alþýðubandalagið í Reykjavík
efnir til taflkvölds í kvöld, þriðju-
daginn 13. mars kl. 20 í flokks-
miðstöðinni, Hverfisgötu 105.
Áformað er að tefla 7 umferðir
eftir Monrad-kerfi. Umhugsunar-
tími verður 15 mínútur á hverja
skák fyrir hvorn keppanda. Þátt-
takendur taki með sér tafl og
klukku. - Nefndin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Söfnum fyrir leikföngum
Félagiö okkar í Reykjavík er nú komið í nýja og glæsilega aðstöðu að
Hverfisgötu 105. Stórátak meðal félaganna hefur gert drauminn um
gott húsnæði að veruleika og skapað góða aðstöðu til starfs og leikja.
En ennþá vantarfé. Meðal þess sem foreldr-
ar hafa rekið sig á að sárlega vanhagar um er
leikaðstaða barna. Leikföng eru fá til í
flokksmiðstöðinni enn sem komið er.
Nú er hafin söfnun meðal flokksfólks og vel-
unnara Alþýðubandalagsins til að bæta úr
þessu. Allt verður vel þegið hvort sem það
eru fjárframlög eða gömul nothæf leikföng.
Ef þið lúrið á einhverju vinsamlegast látið Kristján Valdimarsson vita í
síma 17500 eða Auði Styrkársdóttur í síma 81333 (heimasími 79017).
Framlög verða sótt heim ef óskað er.
Æskulýðsfylking Alþyðubandalagsins
Fræðslufundur
um Kúbu
verður haldinn fimmtudaginn 15. mars kl. 20. 30
að Hverfisgötu 105. Dagskrá: 1) Kúba - land og
þjóð. Ingibjörg Haraldsdóttir hefur framsögu. 2)
Sagt frá Kúbuferð í máli og myndum. 3) Fyrir-
spurnir og umræður.
Vinsamlega sendið eða hringið inn auglýsingar í þennan
dálk fyrir klukkan 16 daginn áður en þær eiga að birtast og
talið við Álfheiði. Ritstj.
Frá Akranesi
V esturlandspistlar
Hér verður sagt frá nýju hafnar-
húsi á Akranesi, vernduðum vinnu-
stað á Vesturlandi, deild iðnverka-
fólks á Akranesi, Kaupfélagsritinu
í Borgarnesi og nýjum kaupfélags-
stjóra í Ólafsvík.
Nýtt hafnarhús
Okkur hefur víst alveg láðst að
segja frá hinu nýja hafnarhúsi á
Akranesi. Skal nú úr því bætt þótt í
Iitlu verði.
Flutt var inn í húsið í byrjun des.
Það er á tveimur hæðum og gólf-
flötur um 100 ferm. Ágæt aðstaða
þykir á efri hæðinni fyrir hafnar-
verðina, en þeir eru jafnframt
hafnsögumenn. Á efri hæðinni er
einnig skrifstofa tollvarðar, hafn-
arverkstjóra og kaffistofa fyrir
starfsmenn. Á neðri hæðinni er
vinnusalur fyrir hafnarvinnuflokk-
inn, auk þess kaffistofa. Húsið
stendur á horni Akursbrautar og
Faxabrautar. Sér þaðan vel yfir
höfnina og auðvelt, með aðstoð
talstöðvar, að stjórna umferð um
höfnina.
Njög skiptir nú um til hins betra
með tilkomu hins nýja húss hvað
snertir alla aðstöðu hafnarvarða en
hún hefur sannast sagna verið
fremur bágborin hin síðari árin,
eða allt frá 1976. En nú hefur bless-
unarlega úr því greiðst.
Verndaður
vinnustaður
Stofnað hefur verið á Akranesi
félag um verndaðan vinnustað á
Vesturlandi. Markmið félagsins er
að reka verndaðan vinnustað í
þeim tilgangi að:
a) Veita fötluðum þjálfun og
endurhæfinu til starfa á almennum
vinnumarkaði.
b) Veita þeim, sem ekki eiga
kost á að starfa á almennum vinn-
umarkaði, atvinnu við sitt hæfi.
Undirbúningur málsins á sér
nokkurn aðdraganda. Var fyrst
unnið að því á vegum ALFA-
nefndar og svo á vegum atvinnu-
málanefndar Akranesskaupstaðar
en auk þess hefur iðnfulltrúi Vest-
urlands unnið að málinu.
Hugleitt hefur verið að koma
upp pappabakkaverksmiðju í sam-
bandi við vinnustaðinn, sem fram-
leiddi umbúðir úr úrgangspappír.
Allar slíkar umbúðir eru nú flutttar
inn. Áhugi er á því að koma upp
svona viúnnustöðum víðar á Vest-
urlandi.
Deild iönverkafólks
Stofnuð hefur verið deild iðn-
verkafólks innan verkalýðsfélags-
ins á Akranesi.
- Málið er einfaldlega þannig
vaxið, sagði Guðlaug Birgisdóttir
formaður deildarinnar, að Lands-
sambandi iðnverkafólks hefur með
að gera samningsrétt fyrir okkar
hönd og þessi leið var farin til þess
að styrkja tengslin við okkar
landssamband. Við, sem teljumst
iðnverkafólk, höfum ekki verið að-
ilar að Verkamannasambandinu.
Stofnun þessarrar deildar breytir
þó engu um aðild okkar að Verka-
lýðsfélagiAkraness. Deildin er
opin öllu iðnverkafólki.
Guðlaug telur að 30 - 40 konur á
Akranesi vinni eftir Iðjutaxta.
Kaupfélgsritið
f síðasta hefti Kaupfélagsritsins,
sem gefið er út af Kaupfélgi Bor-
gfirðinga í Borgarnesi, kennir ým-
issa grasa. Sagt er frá haustfundi
kaupfélagsins 1983 og greint frá
ýmsum þáttum í rekstri félagsins.
Birt er ávarp, sem Jón Finnsson frá
Geirmundarstöðum flutti við
hátíðahöld stéttarfélaganna í Borg-
arnesi 1. maí sl. Þórður Gíslason,
bóndi í Ölkeldu, minnist sr. Þor-
gríms V. Sigurðssonar á Staðastað,
en hann andaðist þann 10. ágúst sl.
sumar. „Flotinn í höfn“, nefnist
viðtal við Guðmund Sverrisson frá
Hvammi, en hann veitir forstöðu
Bifreiðastöð K.B. „Skip vorra
drauma", ræða sem Guðmundur
Sigurðsson flutti á aldarafmæli
Borgarness 22. maí 1967.
Þá er sagt fá fundi „um félags-
lega þróun samvinnustarfs“ sem
Vinnumálasamband samvinnu-
manna gekkst fyrir með stjórn og
nokkrum starfsmönnum K. B. í
haust. Ingibjörg Magnúsdóttir
segir fréttir af Sambandi borg-
firskra kvenna. Birt er ávarp sr.
Þorbjörns Hlyns Árnasonar,
„Óbrotgjörn sköpun“, sem hann
flutti í tilefni afhendingar Sonart-
orreks Ásmundar Sveinssonar á
áttræðisafmæli Hallsteins bróður
Ásmundar. „Sá kjarkur, sem þolir
rnótbyr", ræða Guðrúnar Eggerts-
dóttur á þjóðhátíð Borgnesinga 17.
júní sl. „Frjáls og hreinn andi“
nefnist frásögn Eiríks Helgasonar
af vígslu félagsheimilis Hvítsíðinga
og Hálssveitunga 17. júní 1982.
Loks er að nefna ljóð Bjarna
Bjarnasonar læknis frá Geitabergi
er hann flutti vini sínum, Þorbirni
Péturssyni fár Draghálsi á átt-
ræðisafmæli hans 22. júní 1963.
Nýr kaupfélagsstjóri
í Ólafsvík
Einar H. Björnsson hefur nú
verið ráðinn kaupfélagsstjóri hjá
Kaupfélagi Ólafsvíkur. Tók hann
við starfinu 1. febrúar sl.
Einar H. Björnsson hefur lengi
starfað við verslun hjá kaupfélög-
unum. Hann vann hjá KRON 1968
- 1976 og var verslunarstjóri í búð-
um þess við Skólavörðustíg og Álf-
hólsveg. Verslunarstjóri hjá Kf.
Vopnfirðinga var hann árin 1976 -
1978. Síðan verslunarstjóri hjá Kf.
Fram á Neskaupstað. Fór í Sam-
vinnuskólann haustið 1979 og lauk
þaðan prófi vorið 1981. Einar er
kvæntur Valgerði B. Einarsdóttur
og eiga þau tvö börn. -mhg
DIOBVIUIHN
Breikkar
sjóndeödarhringinn