Þjóðviljinn - 13.03.1984, Qupperneq 15
Þriðjudagur 13. mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
RUV 1
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Ávirkum
degi. 7.25 Leikfimi. 7.55 Daglegt mál.
Endurt. þáttur Sigurðar Jónssonar frá
kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð Bernharður Guðmundsson
talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Undra-
regnhlífin“ eftir Enid Blyton; fyrri hluti
Þýðandi: Sverrir Páll Erlendsson. Heið-
dís Norðfjörð les (RÚVAK)
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleik-
ar. 9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. Forust-
ugr. dagbl. (úrdr.)
10.45 „Man ég það sem löngu leið“
Ragnheiður Viggósdóttir sér um þáttinn.
11.15 Við Pollinn Ingimar Eydal velur og
kynnir létta tónlist (RÚVAK)
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurlregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 Sjómannalög íslenskir flytjendur.
14.00 „Klettarnir hjá Brighton" eftir Gra-
ham Greene Haukur Sigurðsson les
þýðingu sína (20).
.14.30 Upptaktur Guðmundur Benedikts-
son.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 íslensk tónlist Manuela Wiesler og
Sinfóníuhljómsveit danska úfvarpsins
leika „Euridice" fyrir Manuelu og hljóm-
sveit eftir Þorkel Sigurbjörnsson; Gunnar
Staern stj. Elísabet Erlingsdóttir syngur
„Lög handa litlu fólki" eftir Þorkel Sigur-
björnsson. Kristinn Gestsson leikur á
píanó, Lúðrasveit Reykjavíkur leikur
Konsert fyrir blásara og ásláttarhljóðfæri
og Konsertpolka eftir Pál P. Pálsson;
höfundurinn stj.
17.10 Síðdegisvakan
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnandi: Heiðdís
Norðfjörð (RÚVAK)
20.00 Barna- og unglingaleikrit: „Milljón-
asnáðinn“ Gert eftir sögu Walters
Christmas (Fyrst útv. 1960). I. þáttur af
þremur Þýðandi: Aðalsteinn Sigmunds-
son. Leikgerð og leikstjóm: Jónas Jónas-
son. Leikendur: Steindór Hjörleifsson,
Ævar R. Kvaran, Guðmundur Pálsson,
Emilía Jónasdóttir, Sigurður Grétar
Guðmundsson, Bjarni Steingrímsson,
Sævar Helgason og Jón Einarsson.
20.40 Kvöldvaka. Almennt spjall um
þjóðfræði. Dr. Jón Hnefill Aðalsteinsson
tekur saman og flytur. Að þessu sinni er
fanga leitað í þjóðsagnasöfnum, nokkrar
sögur lesnar og rætt um efni þeirra.
Umsjón: Helga Agústsdóttir.
21.15 Skákþáttur. Stjórnandi: Jón Þ. Þór.
21.40 Útvarpssagan: „Könnuður i fimm
heimsálfum“ effir Marie Hammer Gísli
H. Kolbeins les þýðingu sína (21).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Lestur Passíusálma (20).
22.40 Kvöldtónleikar Itzhak Perlman
leikur tónverk eftir Paganini, Brahms,
Ravel, Joplin o.fl. Ýrr Bertelsdóttir kynnir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
RUV 2
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Páll
Þorsteinsson, Ásgeir Tómasson og Jón Ól-
afsson.
14.00-16.00 Vagg og velta Stjórnandi: Gisli
Sveinn Loftsson.
16.00-17.00 Þjóðlagaþáttur Stjórnandi: Krist-
ján Sigurjónsson.
17.00-18.00 Frísfund Stjórnandi: Eðvarð Ing-
ólfsson.
RUV0
19.35 Hnátur (Little Miss) - Nýr flokkur
Breskur teiknimyndaflokkur i 13 þáttum í
stíl við „Herramennina" sem sýndir hafa
verið i Sjónvarpinu. Þýöandi Þrándur
Thoroddsen.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Rétt tannhirða Fræðsluþáttur gerður
í samvinnu Sjónvarpsins og fræðslu-
nefndarTannlæknafélags íslands. Texta
samdi Börkur Thoroddsen tannlæknir.
20.55 Skarpsýn skötuhjú 6. Svínað fyrir
kónginn Breskur sakamálamyndaflokk-
ur í ellefu þáttum gerður eftir sögum
Agöthu Christie. Forvitnin beinir Tommy
og Tuppence í næturklúbb þar sem þau
veröa vitni að morði. Þýðandi Jón O.
Edwald.
21.50 Skiptar skoðanir - Um björbann og
hundabann Enn á ný eru þessi tvö
deilumál ofarlega á baugi. Þjóðarat-
kvæðagreiðsla um bjórinn er til umræðu
á Alþingi og verið er að íhuga afnám
hundabanns í Reykjavik. Umsjón Guð-
jón Einarsson fréttamaður.
22.50 Fréttir í dagskráriok
Frá aðgerðum á baráttudegi kvenna 8. mars í Fteykjavík.
Er ekki kominn
tími til?
„Fortíðin ól konuna upp sem
kynferðisveru eingöngu, - þann-
ig að hún yrði sem útgengilegust
barneignavél; þegar maðurinn
stofnaði heimili sitt, þá var konan
húsgagn húsgagnanna." Svo segir
Halldór K. Laxness orðrétt í
grein sem birtist í Morgunblaðinu
árið 1925. Þar fjallar hann um hið
nýja lífsviðhorf kvenna, þ.e.a.s.
nýjan skilning á stöðu konunnar
og lífshlutverki hennar.
Nú, 59 árum síðar eru konur
enn að berjast fyrir jöfnum rétti
karla og kvenna, þó að alþjóða-
lög kveði svo á um að ekki skuli
mismuna neinum vegna skoðana
hans, þjóðernis, litarháttar, trú-
arbragða eða kynferðis.
í tilefni af baráttudegi kvenna
þann 8. mars gripu konur til að-
gerða sem sýndu glöggt að þolin-
mæði þeirra er senn á þrotum.
Nánar tiltekið hugðust þær kaupa
hráefni í svokallaðan Ríkisstjórn-
argraut, og greiða fyrir það með
þeirri upphæð sem samræmdist
því að konur bera að meðaltali
aðejns 2/3 af launum karla úr být
um fyrir vinnu sína. Sem gefur
að skilja varð uppi fótur og fit í
versluninni, lögregla kvödd á
staðinn, og búðinni lokað. En
inni voru konurnar að þjarka við
afgreiðsludömur og verslunar-
stjóra.
Þegar ég spurði einn af við-
skiptavinunum sem ekki tók
neinn þátt í aðgerðunum heldur
var aðeins að kaupa kjöt til
kvöldverðar, hvað henni fyndist
um þessi mótmæli, sagði hún orð-
rétt; „Ja svei mér ef maður
skammast sín ekki fyrir það að
vera kvenmaður." Sú kona þarf
greinilega ekki að láta Sóknar-
taxta duga fyrir allra nauðsynleg-
ustu vörum, svo sem mat, klæð-
um svo og mannsæmandi hús-
næði. (Eða hvað haldið þið?)
En hvað er þá til ráða ef svo illa
stendur á? Hvað annað en að
grípa til örþrifaráða? Gera upp-
reisn gegn misréttinu, því
reynslan sýnir að það dugar ekk-
ert annað. En þá reynir líka á
samhug og samstöðu fólksins. Því
vil ég enda þetta með kjörorðinu:
Öreigar allra landa sameinist, því
það er komið nóg af misrétti.
P.S. Ef þú lesandi góður ert á
grænni grein í lífinu, ætti þú að sjá
sóma þinn í því að styðja við
bakið á þeim sem ekki eru jafn
heppnir.
Reykjavík 8. mars,
Ásdís Þórhallsdóttir.
Hvað gerist
með sænskum?
Núna, þegar mars er u.þ.b.
hálfnaður er leitin að hinum
óþekkta kafbát við strendur Sví-
þjóðar búin að standa yfir í tutt-
ugu og sex daga samfleytt. Eng-
inn árangur er sýnilegur af þess-
ari umfangsmiklu leit nema ef
það skyldi vera skotárás á nokkra
vesæla sjófugla sem gerð var af
hinum vel þjálfuðu sænsku her-
mönnum. „Maður skyldi nú ætla
að heræfingar væru fólgnar í því
að þekkja skotmörk en ekki til
þess að drita á nokkra sjófugla".
Meira að segja var leitað í líkkistu
en líkfylgd átti leið framhjá
leitarsvæði hersins.
En hvernig í ósköpunum má
það vera að sænski herinn þekki
ekki sjófugla frá köfurum? Ef
þetta hefði skeð á stríðstímum þá
hefði þetta verið mjög mikið
ábyrgðarleysi.
Nú telja þjóðirnar sem eru í
Nató að þessi eða þessir kafbátar
séu frá hinu stóra ríki í austri og
hafa Nató-þjóðirnar aukið eftirlit
í kringum herstöðvar sínar og
segja fólki að þetta sé til þess að
vernda þjóðirnar fyrir ágangi
óviðkomandi þjóð, eins og er að
gerast hjá sænskinum.
En hvað er að gerast hjá sæn-
skinum í raun? Er óþekktur kaf-
bátur þar eða er því haldið fram
til þess að Nató-ríkin geti aukið
eftirlit í kringum herstöðvar
sínar?
Þeim spurningum ætla ég að
láta öðrum eftir að svara og því er
mál til komið að hætta þessum
skrifum og segi ég þessu hér með
lokið.
J.Þ.Ó.
Sjónvarp í kvöld kl. 21.50
Á hundahald í borgum rétt á sér? Bjórahugamaður. (Verða íslend-
ingar nútímans svona útlítandi?)
Um bjórbann og hundabann
Guðjón Einarsson fréttamaður ætlar að taka fyrir tvö alvarleg deilu-
mál í þætti sínum sem verður fluttur í sjónvarpinu kl. 21.50 í kvöld.
Þættinum verður skipt í tvo hluta. Verður bjórmálið tekið fyrir í fyrri
hlutanum og svo hundamálið í hinum. í hvorum hluta fyrir sig verður
einn á móti, og einn með. Tekin verða viðtöl við aðila úti í bæ og svo
verðs sýndar myndir sem varða bæði málin.
Sjónvarp
kl. 19.35:
Barna-
efni
Þetta er ein af Hnátunum, og á
svipnum mætti ætla að hún héti
ungfrú Glaðværð.
Kl. 19.35 í kvöld hefst nýr
breskur 13 mynda framhalds-
flokkur fyrir börn. Nefnist hann
Hnáturnar (Litle Miss) og er í
stíl við Herramennina sem
sýndir voru í Stundinni okkar
fyrir nokkru síðan. Þýðandi er
Þrándur Thoroddsen.
bridge
Spil 14 í Barometer bridge-
hátíðar var stubbabarningur,
eins og mikill hluti spilanna. Á
flestum borðum varð Norður
sagnhafi í 2 eða 3 spöðum, eftir
að A/V höfðu barist í hjörtum:
Norður
S D108753
H G
T10743
LA10
Vestur Austur
S KG S 964
H AK982 H 765
TD865 T K92
LK9 L D543
Suður
S A2
H D1043
TAG
L G8762
Á einu borðinu voru
Forrester-Calderwood í vörn-
inni gegn 3 spöðum og byrjuðu
vel þegar vestur kom út með
tromp. Vestur átti slaginn og
skilaði trompi til baka. Lítið
hjarta úr blindum og nú lagðist
Calderwood í þunga þanka,
langaði greinilega ekki að vera
inni í spilinu, og lét loks lítið.
Sagnhafi þáði slaginn á gosa.
Tók trompið sem úti var, þá
laufás og meira lauf. Vestur átti
slaginn og spilaði hjartaás sem
var trompaður. Nú var eina von
sagnhafa að austur ætti tígul-
hjón eða háspil þriðja. Tígull á
gosa og drottningu og tígull til
baka. Hjarta drottning, sem
vestur lagði á, trompað og lítill
tígull frá noröur. Þegar kóngur
kom í borðið var spilið heima.
140 gaf aðeins meðalskor,
enda besta vörn vandfundin.
Byrjunin er eins og að framan
greinir, en í 3. slag fer vestur
upp með hjarta kóng og skiptir í
tígul. Samgangur er nú í molum
og sagnhafi hlýtur að gefa 5
slagi; tvo á tígul og einn á hvern
hinna litanna.
Vörnin er iðulega erfiðust í
bútunum.
Tikkanen
Frelsuns lands er oft greidd
með persónulegu frelsi ein-
staklinganna.