Þjóðviljinn - 20.03.1984, Qupperneq 7
Þriðjudagur 20, mars 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
Björn Þórhallsson: Feginn því ef unglingataxtinn veröur tekinn út.
Meiri hækkun en
okkur óraði fyrir
v*
segir Björn Þórhallsson varaforseti ASI
„Ég man ekki betur en að ríkis-
stjórnín hafi gert ráð fyrir nýjum
kjarasamningum á árinu og það er
meira en okkur óraði fyrir ef skattar
eru hækkaðír núna“ sagði Björn
Þórhallsson við Þjóðviljann í gær.
„Ég er andvígur öllum skattahækk-
unum og sérstaklega hækkun á
beinum sköttum."
Aðspurður um þá kjarasamningaþar
sem unglingataxtinn hefur verið felidur
niður sagði Björn Þórhallsson: „Ég er
mjög feginn því ef ákvæðið um ungling-
ataxtann er ekki framkvæmt og vil helst
að það verði sem víðast sem því er ekki
framfylgt", sagði Björn Þórhallsson að
lokum.
RAÞ
Vor í lofti hjá Samhygð
Árshátíð annað kvöld
Árstíðarfundur Samhygðar
verður haldinn á Hótel Borg n.k.
miðvikudagskvöld kl. 20.30. Á
fundinum verða haldnar ræður og
einnig verður revía og leikrit og
fjöldasöngur. Veitingar verða á
staðnum. Að sögn Kristínar Sæ-
varsdóttur leiðbeinanda eru allir
þeir hvattir til að koma sem hafa
fengið sig full-sadda á siðlausum
valdhöfum sem líta á fólk sem hluti
en ekki manneskjur.
„Við viljum prófa nýjar leiðir
þar sem maðurinn er ofar kerfinu
og vekja fólk til umhugsunar um
atriði eins og andofbeldi, góð sam-
skipti og virkni fjöldans," sagði
Kristín að lokum.
Bjarni Jakobsson: Ut í hött að rýra samningana með þessu.
„Þetta er tillaga
um skattahækkun44
Ólafur Jóhannesson: Skollaleikur að segja að þetta sé bara leiðrétting.
Ólafur Jóhannesson á Alþingi:
Fj ár málapólitíkin
þarfnast skýringa
Yfirdráturinn í Seðlabankanum hefur
aukist um 200 milljónir á einum mánuði
„Það er kominn tími til þess að fara að ræða fjármálapólitík hæstvirtrar
ríkisstjórnar og fá á henni ýmsar skýringar“, sagði Olafur Jóhannesson
m.a. í umræðunum um skattahækkanirnar á Alþingi í gær. Olafur kvaðst
þó ekki ætla að gera ríkisfjármálin að umræðuefni að þessu sinni.
Ríkisfjármálin voru hinsvegar til
umræðu í neðri deild í gær og þar
kom fram af þeim þremur yfirlýs-
ingum sem Albert Guðmundsson
gaf á Alþingi 15. febrúar er tvær
þegar orðnar ómerkar nú mánuði
síðar.
Albert sagði fyrir mánuði að er-
lendar skuldir yrðu ekki auknar.
Hann sagði í öðru lagi að yfirdrátt-
ur í Seðlabankanum yrði ekki
aukinn. í þriðja lagi sagði Albert
að skattar yrðu ekki hækkaðir í
hans tíð.
í umræðunum á Alþingi kom
fram að yfirdráttur ríkissjóðs hjá
Seðlabankanum hefði verið 2.564
milljarðar króna 15. febr. sl., en
væri orðinn 2.759 milljarðar 15.
þessa mánðar. Á einum mánuði
hefur yfirdrátturinn því vaxið um
200 milljónir króna. Stjórnarliðar
eru nú að keyra í gengum þingið
skattahækkanir.
Þá stendur aðeins eftir hin mán-
aðargamla yfirlýsing um enga
aukningu erlendra skulda. Við af-
greiðslu lánsfjárlaga hefur konúð í
ljós að allt stefnir í aukningu á er-
lendum skuldum. Hugsanlegt er
því að afdrif þessara yfirlýsinga Al-
berts Guðmundssonar hafi m.a.
verið tilefni ummæla Ólafs Jóhann-
sagði Tómas Arnason í umrœðum
um hœkkun skattprósentunnar
Við aðra umræðu um frum-
varp ríkisstjórnarinnar til
breytinga á skattaiögum í efri
deild Alþingis í gær lýsti Ólafur
Jóhannesson yfir því að hann
myndi greiða atkvæði á móti
þeim skattahækkunum sem það
felur í sér, eftir að stjórnarliðar
beittu sér fyrir því í síðustu viku
að skattprósenta yrði hækkuð á
ný vegna þess að kauphækkanir
hefðu verið lítillega meiri í ASÍ/
VSÍ samningunum en gert hefði
verið ráð fyrir.
Lárus Jónsson (Sj.) formaður
fjárhags- og viðskiptanefndar
deildarinnar og Albert Guðmunds-
son (Sj.) fjármálaráðherra sögðu
báðir að hér væri aðeins um leiðrétt-
ingar að ræða í kjölfar samning-
anna og skattbyrðin myndi ekki
aukast milli ára. Af því tilefni sagði
Ólafur Jóhannesson: „Þó verið sé
að tala um, að þetta séu leiðrétting-
ar, þá er það auðvitað skollaleikur,
sem hvert barn sér í gegnum."
Eiður Guðnason (A) fagnaði
Tómas Árnason: Auðvitaö er þetta
tillaga um skattahækkun og ég
stend með henni.
yfirlýsingu Ólafs Jóhannessonar
(F) og kvað það ekki einasta óvið-
felldið heldur hreint kjaftshögg á
launafólk að ríkisstjórnin skyldi
ætla að ná aftur því litla sem það
fékk umfram ríkisstjómarramm-
ann í samningunum. Stefán Bene-
diktsson (BJ) sagði að með
ákvörðun stjórnarinnar að elta
uppi þessa fáu aura sem fólk hefði
fengið í kjarasamningunum væri
seilst lengra en góðu hófi gegndi.
Ragnar Arnalds (Ab) sagði að
verulegur hluti launafólks fengi
skattíþyngingum samkvæmt þeim
tillögum er nú lægju fyrir. Fólk
með meðaltekjur og rúmar meðal-
tekjur fengi skattíþyngingu. Aðeins
létti á þeim lægri í tekjustiganum
og þessvegna mætti hugsanlega
halda því fram að skattbyrðin yrði
að meðaltali hin sama og í fyrra.
Hinsvegar yrði á það að líta að út-
svarsbyrðin yrði verulega þyngri á
þessu ári heldur en í fyrra. Heildar-
skattbyrðin myndi því aukast veru-
lega. „Ég er hræddur um að ýmsir
stuðningsmenn þessarar ríkis-
stjórnar hrökkvi illilega við þegar á
að fara að hækka skatta við fyrsta
tækifæri er þeir fá ögn betri niður-
stöðu í samningum en stjórnin
gerði ráð fyrir.
Nokkrar umræður urðu um hlut
stjórnarflokkanna í þessari
ákvörðun. Fram kom að Sjálfstæð-
isflokkurinn hafði samþykkt skatt-
ahækkunina í þingflokki sínum,
Tómas Arnason sagði að engin
samþykkt hefði verið gerð hjá
Framsóknarflokknum, en þing-
menn hans styddu tillögurnar
nema Ólafur Jóhannesson. „Þetta
er tillaga um skattahækkun og ég
stend að henni“, sagði Tómas.
„Þetta er tillaga ríkisstjórnarinnar
og fjármálaráðherra sérstaklega“.
Hann sagði það svo fara eftir ýms-
um hagstærðum hvort skattbyrði
breyttist við þetta eða ekki.
Yfirlýsingar fjármálaráðherra
voru einnig til umræðu og kvað
Ólafur Jóhannesson illt til að vita
um svo góðan dreng sem fjármála-
ráðherra að hann gæti ekki staðið
við yfirlýsingar sínar um að ekki
kæmi til skattahækkana í hans tíð.
Frumvarpið um breytingu á
skattalögunum var samþykkt til
þriðju umræðu í efri deild með
prósentuhækkunum á skattstigun-
um með atkvæðum stjórnarliða
nema Ólafs Jóhannessonar sem
greiddi atkvæði gegn þeim ásamt
stjórnarandstæðingum.
-ekh
Bjarni Jakobsson
form. Iðju:
„Ég átti
ekki von
á þessu“
„Samningarnir eru rýrðir með
þessari skattahækkun og við áttum
ekki von á því að þetta myndi ger-
ast“, sagði Bjarni Jakobsson að-
spurður um nýjustu skattahækk-
anirnar. Það er alveg útí hött að
rýra nýgerða samninga með þess-
um hætti en samkomulagið hefur
verið samþykkt og ég tel það miður
að þetta skuli gerast núna“.
Aðspurður um þá kjarasamn-
inga þar sent unglingataxtinn er
felldur niður sagði Bjarni Jakobs-
son að hann hafi aldrei verið
ánægður með unglingataxtann en
samninganefndin hafi ekki talið sig
komast lengra. „Við bárum fullt
traust til samninganefndar ASÍ og
samþykktum samningana á for-
mannaráðstefnunni, en það kann vel
að vera að mat þeirra stóru appar-
ata hér í Reykjavík sé annað en þar
sem aðrir samningar hafa verið
gerðir,“ sagði Bjarni Jakobsson.
-RAÞ