Þjóðviljinn - 20.03.1984, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 20.03.1984, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 20. mars 1984’ ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Orkuframkvæmdir minnka um þriðjung Orkusóunin mikla er runnin út í sandinn Parf að fara 20 ár aftur í tímann til þess að sjá lægri tölur, sagði Hjör- leifur Guttormsson á Alþingi Kjósendur þeirra flokka sem styöja núverandi ríkisstjórn hafa líklega vænst þess aö sprett yröi úr spori í orku- og iönaöarframkvæmdum eftir alla þá gagnrýni sem núverandi stjórnarflokkar höföu uppi um sleifarlag og seinagang á þessu svið í tíð Hjörleifs Gutt- ormssonar sem iðnaðarráð- herra. í staö þess er nú farið í hina áttina og þaö býsna rösk- lega eins og Hjörleifur benti á í umræðum um lánsfjárlög 1984 á Alþingi. „Þegar litið er á hlut- fall orkuframkvæmda af þjóö- artekjum kemur í Ijós, aö þær hafa aldrei verið minni síðan 1963-64. Þaö þarf aö fara 20 ár aftur í tímann til þess aö sjá lægri tölur í sambandi viö virkj- unarframkvæmdir og aörar orkuframkvæmdir í landinu, heil 20 ár aftur ítímann. Þetta er nú sóknin mikla á orkusviöinu - sú mikla sókn sem boöuð var fyrir síðustu kosningar." Samanburður tveggja tímabila Samkvæmt upplýsingum iðnað- arráðuneytisins eru þessi áform uppi varðandi næstu fjögur ár: „Helstu framkvæmdir verða við Kvíslaveitur, Blönduvirkjun, stækkun Þórisvatnsmiðlunar og undirbúning nýrra virkjana, en næst í röð virkjana er Fljótsdals- virkjun skv. ályktun Alþingis. Fjárfestingar án vaxta í þessa liði eru áætlaðar: 1985: 1.000 millj. kr., 1986: 1.100 millj. kr., 1987: 1.100 millj. kr. og 1988: 600-1.100 millj. kr. (háð byrjun á næstu vir- kjun).“ Hjörleifur Guttormsson: Þriðjungi minna varið til orkuframkvæmda næstu fjögur ár heldur en sl. fjögur ár. Til samanburðar eru svo raun- tölur áranna 1979-1983; en þá eru framlögin öll árin nema 1979 langt yfir einn milljarð króna. 1980: 1.421 millj. kr., 1981: 1.561 millj. kr., 1982 1.340 millj. kr„ 1983 1.286 millj. kr. En á þessu ári, eins og fram kentur í frumvarpi til láns- fjárlaga, eru áætlaðar 900 þúsund krónur. „Þetta eru svör iðnaðarráðherra og hans ráðuneytis", sagði Hjör- leifur Guttormsson. „Hér kemur fram ekki aðeins sá gífurlegi sant- dráttur upp á 37.2% í raforkufram- kvæmdum á þessu ári frá því sem var á síðasta ári, heldur eru áætlan- ir ríkisstjórnarinnar og iðnaðarráð- herra að þær verði sent neniur ná- lægt þriðjungi minni en verið hefur sl. fjögur ár á komandi fjórum árum. Þetta er tölulega útfærð sóknin mikla á orkusviðinu eins og hún nú blasir við frá ríkisstjórn- inni." Hvar er vaxtarbroddurinn ? I máli Hjörleifs kom fram að ekki væri af neinu að taka í lánsf- járáætlun sem snerti orkunýtingu og iðnaðarframkvæmdir. Kísilmálmverksmiðjan á Reyðar- firði væri ekki á bíaði. Af meiri- háttar framkvæmdum væri ekki annað að hafa samkvæmt fjárfestingar- og lánsfjáráætlun en áframhald við þau fyrirtæki sent grunnur hefði verið lagður að laga- lega og byrjað sumpart á fram- kvæmdum við á síðasta ári. Al- mennar iðnaðarframkvæmdir ættu að dragast saman um 6%, þannig að ekki væri að sjá vaxtarbroddinn á sviði iðnaðar, hvorki almenns né stóriðnaðar, í lánsfjáráætlun. Frestun á frestun ofan Hjörleifur sagði að lítið hefði verið um annað að ræða en frestan- ir í virkjana- og raforkufram- kvæmdum hjá ríkisstjórninni, og nefndi þar til Blönduvirkjun, Suð- urlínu og Kísilmálmverksmiðjuna, sem enn væri spurningarmerki við. Þá hefði ekkert heyrst unt stækkun álverksmiðjunnar í Straumsvík. í því samhengi sagði Hjörleifur: „Það líður nú ntjög á marsmánuð og stutt í það að upp renni 1. apríl, en það er sá dagur sem iðnaðarráðherra samkvæmt samningi gerir ráð fyrir og stefnir að hafa lokið samningunt við Alus- uisse vegna endurskoðunar á raf- orkuverkið og öðrum þáttum að- alsamnings. Við skulum sjá hvað þeir dagar marsmánaðar sent eftir lifa færa okkur í þeint efnum, eftir því verður beðið." -ekh BÚSETI: Niðurstöður húsnæðiskönnunar Ungt fólk fjölmennast í félaginu Athugun á húsnæðisaðstöðu og húsnæðisóskum Búseta lauk þann 15. febr. sl. og liggja nú fyrir ýmsar athyglisverðar niðurstöður. Alls bárust 570 svör. Úrvinnslu úr könnuninni og skýrslu um hana annaðist Elías J. Héðinsson, lektor. Unga fólkið fjölmennast Könnunin sýnir að æskufólk fylkir sér mest um félagið, (sjá meðfylgjandi stólparit). Þannig reyndust 52% þeirra, sem í könn- uninnitókuþátt, áaldrinum 16-29 ára. Síðan kemur nokkur lægð en fjölgar svo aftur í eldri aldurshópn- um. Fjölmennasti aldurshópurinn er 22 ára gamalt fólk, sá fámennasti 44 ára. Úr þvífjölgar aftur í hópun- um, sem sýnir að margt eldra fólk þarfnast hentugra húsnæðis og tel- ur búseturéttarformið henta sér. Tölur um aldurssskiptingu þjóð- arinnar sýna að stærstu árgangar landsmanna eru fólk, sem fætt er á árunum 1957-1964, nú 20-27 ára. Það er nú sem óðast að stofna heimili eða gerir það á næstu árum. Fæst af þessu fólki hefur komið sér upp húsnæði og þetta eru þeir aldurshópar, sent fjölmennastir eru í Búseta. Meiri hlutinn verkafólk Samkvæmt könnuninni er verka- fólk í miklum meiri hluta í félaginu, eða 58% (sjá stólparit). Séu ein- göngu taldir þeir félagsmenn, sem stunda launaða vinnu, hækkar hlutfall verkafólks upp í 77%. (Sjá línurit 1). Stærstur hluti félagsmanna er láglaunafólk í framleiðslu- og þjón- ustugreinum. í síðast nefnda hópn- um eru konur í miklunt meiri hluta. Þá er mikill fjöldi nema í félaginu, einkum iðnnema eða nema í verk- legum greinum. Aðeins einn smá- atvinnurekandi tók þátt í könnun- inni. Enginn bankastjóri hefur enn gerst félagsmaður. Algengast er að fólk kjósi 3ja herbergja íbúðir (sjá töflu 2). Með- alstærð þeirra íbúða, sem óskað var eftir, var 3,12 herbergi. Þetta er lág tala þegar þess er gætt, að með- al stærð íbúða hérlendis er komin yfir 4 herbergi. Meðalstærð þess húsnæðis, sem félagsmenn búa við nú er hinsvegar, samkvæmt könn- uninni, 2,67 herbergi. Mikill meiri hluti þeirra sem svöruðu, eða 78,9%, vilja búa í fjölbýli. Einnig voru flestir, eða 80%, hlynntir því, að við hönnun húsnæðis, væri lögð áhersla á sam- eignina. Þjóðfélagshópar °/ /o Verkafóik 27.8 Verkafólk í þjónustustörfum 23.5 Iðnaðarmcnn 7.4 Miðhópar 17.6 Atvin nurekendur 0.2 Nemar 18.7 Aðrir 5.0 Samtals 100.0 Orsakir óska eftir oúsetuíbúö. O/ /o Ekki iáð á að byggja eöa kaupa 74.0 Vi'.ja tá örvggt húsnæði 62.7 Vilja stærra lúsnæöi Búa hjá forchirum. 25.4 viija búa . t af fvrir sig Vegnd léiegs ástands 22 7 núverandi húsnæðis 20.5 Missa i.iiverandi leiguibuð 18.9 Eru húsnæðislausir 14.9 Hversvegna Búseti? Tafla 3 sýnir hvaða orsakir liggja til þess að fólk hefur gengið í Bú- seta. (Samanlagðar prósentur eru meiri en 100 þar sem hver svarandi gat merkt við fleiri en eitt svar). Þrír fjórðu félagsmanna telja sig alls ekki ráða við að byggja eða kaupa og telja því húsnæðissam- vinnuna heppilegasta fyrir sig. Þetta tengist því, að meðaltals- greiðslugeta svarenda reyndist 5057 kr. á mánuði, langt undir því sem nauðsynlegt er til þess að standa í byggingum eða húsa- kaupum. Óskin unt öruggt húsn- æði er rík í hugunt rúntlega 70% svarenda. Stór hópur félagsntanna býr nú heima hjá foreldrum sínum en vill geta búið út af fyrir sig. Fiinmti hver svarandi telur sig búa í svo lélegu húsnæði að illviðunandi sé, og fimmti ltver telur sig standa frammi fyrir því að missa núver- andi leiguíbúð. Loks kemur í ljós að 15% svarenda eru húsnæðis- laus. Aðstaða leigjenda 58% svarendaeru leigjendur. Af þeim leigðu 3/i á frjálsum markaði, um 15% hjá ættingjum og um 10% hjá opinberum aðilunt. Húsaleiga reyndist vera að meðaltali 5350 kr. hjá leigjendum á frjálsunt mark- aði. Tafla 4 sýnir annarsvegar nteðalleigu eftir herbergjafjölda en hinsvegar allra hæstu leigu fyrir mismunandi herbergjastærðir. Meðalleiga er eðlilega hæst á íbúðum sem eru 4 herbergja eða stærri, 7190 kr. á mánuði. Hús- gjöld ekki meðtalin, sem víða nema verulegri upphæð. Hámarks- leiga sem krafist er, reyndist hins- vegar vera mun hærri en meðalleig- an. Hún er einnig tiltölulega hærri fyrir minni íbúðir, einkurn tveggja herbergja. Og sá sem um þessar rnundir neyðist til að leita sér að íbúð í húsaleigufrumskóginum, finnur oftast íbúðir, sem liggja nærri hámarkinu. Meðalleigan lækkar vegna þess að sá leigjenda- hópur, sent lengst hefur búið á sarna stað, greiðir yfirleitt mun lægri leigu en krafist er í nýleigu hverju sinni. Niðurstaða könnunarinnar sýnir ljóslega að leigan virðist öðru fremur fara eftir herbergjafjölda. Leiga pr. herbergi virðist þannig vera svipuð eða jafnvel hærri í gamla bænum í Reykjavík en í nýju hverfunum þó að íbúðir í gantla bænum séu bæði minni og yfirleitt í miklu lélegra ásigkomulagi. -mhg

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.