Þjóðviljinn - 29.03.1984, Page 1
uoanum
Breskar baráttukonur
hafa vakið athygli um
heim allan fyrir tveggja
ára mótmælastöðu við
Greenham Common her-
stöðina. Tvær þeirra eru í
viðtali við Þjóðviljann í
dag.
Opna
mars
fimmtudagur
75. tbl.
49. árgangur
Samningur við sérfræðinga í læknastéttinni liggur fyrir
Nýr sjúklingaskattur!
• Tilvísunarkerfið lagt
niður
• Greiðslur sjúklinga fyrir
sérfrœðiaðstoð margfaldast
• Leggjast þyngst á aldraða
• Launahækkanir til heim-
ilislœkna allt að 60%
Gengið hefur verið frá samningi við læknasérfræðinga í Reykjavík, sem
hefur í för með sér stórhækkun útgjalda hjá þeim sjúkiingum sem þurfa að
leita sérfræðiaðstoðar utan sjúkrahúsa. Þá er í burðarliðnum samningur
við heimilislækna sem á að gilda fram til næstu áramóta og kveður á um
talsverðar hækkanir á launum lækna eftir fjölda viðskiptavina þeirra.
Meginbreytingin á samningnum við sérfræðingana er fólgin í því að hið
svokallaða tilvísunarkerfi er lagt niður, þ.e. ekki þarf lengur tilvísun frá
heimilislækni til að komast til sérfræðings. Til að þessi breyting nái fram
að ganga þarf lagabreytingu og mun heilbrigðisráðherra tilbúinn að mæla
fyrir henni á alþingi. Læknafélag Reykjavíkur hefur samninginn til athug-
unar og Tryggingaráð Tryggingarstofnunar ríkisins fjallar um hann innan
tíðar.
í dag greiðir sjúklingur 100 krónur í hvert sinn sem hann leitar læknis-
þjónustu sérfræðings en ellilífeyrisþegar og öryrkjar 50 krónur. Sam-
kvæmt heimildum Þj óðvilj ans felst breytingin nú m. a. í því að sj úklingur
greiðir 1/4 hluta kostnaðarins sem yrði frá 250 krónum og þaðan af meira
fyrir hverja heimsókn. Mun samningurinn við sérfræðingana vera með
öllu útgj aldalaus fyrir T ryggingastofnun ríkisins en kj arabætur sérf ræð-
inganna koma úr vasa sjúklinganna. Samningurinn er til bráðabirgðaeins
og það hefur verið orðað og í tilraunaskyni.
Búist er við því að samningur við heimilislækna verði afgreiddur innan
viku. Á hann að gilda fram til næstu áramóta, en þá er búist við því að
heilsugæslukerfi komist áf Reykjavík. Kjarabætur læknannaeru afar
mismunandi eða allt frá því að vera litlar sem engar upp í það að vera um
60%. Hið nýja kerfi á að stuðla að því að heimilislæknar hafi um 1750
númer, þ.e. viðskiptavini. Samningurinn nær til um það bil 20 heimilis-
lækna í Reykjavík svo og nokkurra kollega þeirra í Hafnarfirði, Keflavík
ogAkureyri.
Formaður Stéttarsambands bænda:
Ríkisstjórnin dregur
úr niðurgreiðslum
Ingi Tryggvason formaður
Stéttarsambands bænda tilkynnti
á bændafundi í Aðaldal sl. mánu-
dag að ríkisstjórnin hefði ákveðið
að draga úr niðurgreiðslum á bú-
vöru til að afla fjár i félags-
málapakka. Kvað Ingi Stéttar-
sambandið hafa mótmælt þessari
ákvörðun. Ingi Tryggvason
kvaðst fá að ráða einhverju um
hvernig niðurgreiðslurnar skipt-
ust á cinstaka vöruflokka. Þor-
grímur Starri greinir frá bænda-
fundinum á bls. 2. - óg.
k myndirm sest vel hvar girðingin ofan við
Íbjarnargryfjuna hefur failið niður 'á storum kafla.
annig hefur þetta vérið frá þvi um sl. aramót.
iðrii gryfjýrvniuna þjmirnir gláðirviðsitt. Mynd:-eik
i
sm
Afleiðing frjálsrar álagningar:
Kindakjöt hækkar
um rúm 10%
Nokkrar
verslanir
hafa ekki
hœkkað
kjötið ennþá
Sem kunnugt er var álagning á
matvöru gefin frjáls um síðustu
mánaðamót og er þess nú farið að
gæta í mjög hækkuðu vöruverði.
Sem dæmi má nefna að margar
matvöruverslanir hafa hækkað
álagningu á kindakjöti og hefur
verð á kjötinu hækkað um 6-
10,3% vegna hækkaðrar álagn-
ingar.
Enn hafa nokkrar verslanir
ekki hækkað kjötið, svo sem
Hagkaup og Vörumarkaðurinn,
JL og SS-verslanirnar, aftur á
móti hefur Mikligarður hækkað
verðið um 10,3%. Má sem dæmi
nefna að eitt kíló af hrygg kostar
nú í Miklagarði 158,05 kr. en
kostaði 145,50 kr. 1. marssl. Kfló
af lærissneiðum kostar 192,20 kr.
en kostaði 1. mars 169,45 kr.
Ekki er um sömu prósentuhækk-
un að ræða á allan kjötskrokkinn,
þeir hlutar hans sem mest er
keypt af hækka mest, en jafnað-
arhækkunin hjá Miklagarði nem-
ur 10,31%. Af þeim verslunum,
sem Þjóðviljinn hefur haft sam-
band við og hafa hækkað álagn-
inguna á kindakjötið er hækkun-
in minnst í KRON við Snorra-
braut 5,65%.
Verðlagseftirlitið mun fylgjast
með þessum hækkunum og því
fara verslanir hægt í sakirnar til
að byrja með, en ætlunin mun að
smá hækka álagninguna svo að
sem minnst beri á henni en þar
sem hækkunin er misjöfn milli
verslana, þarf fólk að kynna sér
verð betur en áður. Ljóst er þó að
veruleg hækkun verður á mat-
vöru á næstunni vegna frjálsar
álagningar.
- S.dór.
KRON f Kópavogi hef-
ur á fundi sínum sam-
þykkt ályktun varð-
and aðild Sambands
islenskra samvinnufé-
laga að fjölmiðlunar-
risanum ísfilm.