Þjóðviljinn - 03.04.1984, Síða 5
Þriðjudagur 3. aprfl 1984 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Prófkjör demókrata í Bandaríkjunum:
Fylgi blökkumannsins
Jesse Jackson eykst
Frá morði Martins Lúter King
hafa bandarískir blökkumenn
ekki átt miklum forystumönnum
að fagna, og þátttaka þeirra í
bandarískum kosningum hefur
frekað minnkað en hitt á
síðustu árum. Þátttaka
blökkumannsins Jesse
Jackson hefur hins vegar
gjörbreyttþessu, fyrir tilstilli
hans hafa blökkumenn þyrþst
til að láta skrá sig á kjörskrá og
eru nú taldirgeta ráðið úrslitum
íforsetakosningunum sem
fram fara í Bandaríkjunum síðar
á þessu ári. í sumum ríkjum
hefur þátttaka þeirra
margfaldast í prófkjörum og
Jesse Jackson hefursjálfur
bent á, að hann hefur þegar
fengið fleiri atkvæði en nemur
muninum á Carter og Ronnie
Reagan ísíðustu
forsetakosningum, og telurað
þau atkvæði fari yfir á hvern
þann sem verðurframþjóðandi
demókrata síðar á árinu.
Jesse Jackson hefur um árabil
verið litríkasti leiðtogi meðal
bandarískra blökkumanna, og
starfaði meðal annars með Martin
Lúter King áður fyrri. Um nokk-
urra ára skeið hefur hann haldið
því fram að mál sé komið til að
blökkumenn reyni að koma manni
úr sínum. röðum í æðstu stjórn
Bandaríkjanna, en ekki hlotið
hljómgrunn meðal annarra
blökkumannaleiðtoga, sem hafa
gjarnan sakað Jackson um eigin-
hagsmunapot. Þegar svo Jackson
bauð sjálfan sig fram í prófkjörun-
um sem nú standa yfir um fram-
bjóðanda demókrata til banda-
rísku forsetakosninganna, þá hlaut
hann litla þökk fyrir, og var af fé-
lögum sínum úr flokki demókrata
ásakaður um að kljúfa flokkinn.
Engum datt heldur í hug að hann
hlyti mikið fylgi meðal blakkra, því
Mondale, fyrrum varaforseti, hafði
tryggt sér stuðning velflestra ann-
arra leiðtoga þeirra.
Ástandið gjörbreyttist þó eftir
að Jackson tókst að fá Sýrlendinga
til að leysa úr haldi þeldökkan sam-
landa sinn, sem skotinn var niður á
flugi yfir Sýrlandi. Jackson hlaut
fyrir mikla athygli, og Regan for-
seti varð að fallast á að hann hefði
að líkindum framkvæmd hálfgert
kraftaverk.
í sjónvarpsumræðum hefur
Jackson sýnt að hann hefur meira
en í fullu tré við þá Mondale og
Gary Hart, og fundir hans eru lang-
best sóttir af fundum þeirra
þriggja. Upphafleganáði stuðning-
ur við hann ekki út fyrir raðir
blökkufólks, en á síðustu vikum
hefur ungt hvítt fólk í auknum mæli
snúist til fylgis við hann.
Aukin kosningaþátt-
taka blökkufólks
Hópurinn sem vinnur með Jesse
Jackson hefur fyrst og fremst beitt
sér að því að fá svart fólk til að skrá
sig á kjörskrá, til að geta tekið þátt
í prófkjörunum sem nú standa yfir
og síðar forsetakosningunum.
Kosningaþátttaka þess hefur dalað
á síðustu árum, því litlu virðist
skipta hver er í stjórn, hlutskipti
þess batnar Iítt. Búist er við, að
Jackson og hans liði muni áður en
yfir lýkur bæta við um tveimur
miljónum blakkra á kjörskrá. Til
dæmis um áhrif hans má nefna að í
prófkjörunum í Alabama og Ge-
orgía óx þátttaka í kosningum um
74% og var fyrst og fremst rakið til
mikilla skráningarherferða stuðn-
ingsmanna Jackson í þessum ríkj-
um.
í suðurríkjunum er um
fimmtungur kjósenda þeldökkur,
og talið er að demókratar muni
tæpast geta sigrað Ronald Reagan
nema blökkufólk þar taki ríkari
þátt í kosningum en áður. Jackson
fer ekki í neinar grafgötur með að
hann mun ekki vinna útnefningu
flokksins. Hins vegar er nú barátt-
an svo jöfn milli Harts og Monda-
Ies, að ekki er ólíklegt að stuðn-
ingsfólk Jacksons kunni að ráða
úrslitum á flokksþinginu sem mun
Nýjar aðferðir gegn vændi
Viðskiptavinir
handteknir
Vændi er fylgifiskur stórborga
og á síðustu árum hefur þeim
konum fjölgað sem af einhverjum
orsökum hafa neyðst til að drýgja
tekjur sínar með blíðusölu. Lög-
regluliðum stórborganna hefur
yfirleitt verið legið á hálsi fyrir að
berjast gegn þessum vanda með
því að handtaka einungis vænd-
iskonurnar en iáta viðskiptavin-
ina sleppa órefsaða. Afsökun lög-
reglunnar er sú, að engin lög
banni mönnum að kaupa sér
stundargaman, en lög mæli á hinn
bóginn skýrt um að konum sé
bannað að selja það. Þarsem lög-
. gjafarsamkundur flestra þjóða
eru að mestu leyti samansettar af
körlum, sem sumir væntanlega
notfæra sér þessa þjónustu göt-
unnar, þá er nokkuð augljóst af
hverju lög gegn blíðukaupum eru
ekki til.
Þessu hefur verið mótmælt
harðlega í Bretlandi af ýmsum
kvenfrelsissamtökum, en án ár-
angurs. Hið eina sem lögreglan
fæst til að gera er að taka vænd-
iskonurnar af götunni, sekta þær,
og þar sem flestar þeirra eru
snauðar neyðast þær til að fara
strax aftur í viðskiptin til að afla
sektarfjársins. Aðgerðir lögregl-
unnar hafa því litlu máli skipt.
í ýmsum borgum Bretlands þar
sem Verkamannaflokkurinn fer
með völd hefur lögreglan hins
vegar orðið fyrir þrýstingi um að
breyta þessum aðferðum. Bent
var á lög frá árinu 1361 sem túlka
mátti þannig að fölun blíðu á göt-
um úti væri ekki leyfileg. Þetta
var reynt í Nottingham og í Sheff-
ield, þarsem menn, sem voru á
höttunum eftir vændiskonum,
voru handteknir og kærðir. Nöfn
þeirra komu síðan í blöðunum,
og eftir þetta stórminnkuðu götu-
viðskipti vændiskvennanna!
Þess má að lokum geta, að
meðal þeirra sem handteknir
voru í Nottingham var yfirmaður
lögregludeildar sem sá um barátt-
una gegn götuvændi! _ös
Fulltrúar Jesse Jackson eru taldir
geta ráðið úrslitum um hvort Gary
Hart eða Walter Mondale muni verða
forsetaframbjóðandi demókrata síð-
ar á árlnu.
velja frambjóðandann þegar próf-
kjörum lýkur. Bæði Hart og Mond-
ale eru hlynntir réttindabaráttu
svertingja, og því er líklegt að þeir
muni bjóða gull og græna skóga
fyrir liðsinni hans.
Réttindabarátta
Stuðningsmenn hans telja enn-
fremur að velgengni Jacksons muni
hvetja annað blökkufólk til að
bjóða sig fram til embætta, eða
selja hvítum frambjóðendum
stuðning sinn gegn auknum rétt-
indum fyrir blakka. Jarðvegurinn
er frjór, segja þeir, og benda á ríkið
Alabama máli sínu til stuðnings.
Þar var áður mestur foringi George
Wallace, sem var einn þekktasti
andófsmaður gegn ýmsum réttind-
um sem svertingjar börðust fyrir,
og var t.a.m. á móti því að þel-
dökkt fólk fengi að vera í sömu
skólum og hvítt. Nú hefur hann
gersamlega snúið við blaðinu, styð-
ur ýmsar kröfur hinna svörtu sam-
landa sinna, og var með atkvæðum
þeirra endurkjörinn ríkisstjóri í Al-
abama 1984.
Fyrir stuðning blökkumanna
hefur Wallace þakkað með því að
stórauka tölu blakkra í þjónustu
Alabama ríkis. Árið 1970 voru
t.a.m. ekki nema um tvö prósent af
starfsmönnum þess svartir, nú eru
þeir nærfellt 25 prósent. Þessari
breytingu er vel lýst með orðum
blökkumannsins Hezekíah Wag-
staff, sem Wallace hefur nýlega
ráðið sem blaðafulltrúa sinn:
„Fyrir tíu til fimmtán árum hefði ég
líklega murkað líftóruna úr Wall-
ace hefði ég fengið færi á því. Nú
vinn ég fyrir hann".
Ef við getum þetta í Alabama
með forhertum gaur einsog Wall-
ace, segja stuðningsmenn Jesse
Jackson, þá ættum við að geta
fengið enn meira fyrir okkar snúð
hjá Mondale eða Hart.
Regnbogasamtök
minnihlutans
Ýmsir úr hópi leiðtoga blökku-
manna hafa á síðustu dögum látið
uppi þá skoðun, að vera kunni að
Jackson ætti erfitt með að standast
þá freistingu að bjóða sig fram sem
óháður frambjóðandi til forseta-
kosninganna, ef hann nær ekki
a.m.k. útnefningu sem varaforset-
aefni demókrata. Sjálfur hefur
hann harðneitað því, og kveðst
ekki einu sinni hafa áhuga á vara-
forsetaembættinu. Áhugamál hans
sé fyrst og fremst að efla regnboga-
samtök minnihlutahópa, en svo
nefnir Jackson kosningabandalag
sem hann vill koma á fót milli gyð-
inga, kvenna og þeldökkra, hinna
undirokuðu^ Bandaríkjamanna að
hans mati.
Af þeim tuttugu fylkjuni Banda-
ríkjanna sem erfitt er að telja ann-
aðhvort á bandi repúblíkana eða
demókrata. þá er u.þ.b. 16 með
mikinn fjölda blökkumanna, sem
kynnu að skipta sköpum um hvort
kjörmenn ríkisins styðja Reagan
eða frambjóðanda demókrata í
forsetakosningunum. Jesse Jack-
son hefur bent á, að sá fjöldi
blökkumanna sem þegar hefur lýst
yfir fylgi við hann muni nægja til að
sveifla þessum ríkjum yfir á dem-
ókrata. Þetta óttast stuðningsmenn
Reagans, en geta þó ekki hamið
Þórðargleði sína yfir frambóði
Jacksons í prófkjörunum, sem þeir
telja valda því að Mondale á nú
undir högg að sækja í keppni sinni
við Hart.
Jesse Jackson lætur sér þó fátt
finnast um slíkar vangaveltur, og
segir kotroskinn: „Þegar Mondale
var kosinn varaforsetaefni dem-
ókrata þurfti ég næstum að slást til
þess eins að fá bara sæti á ráðstefn-
unni. Nú er Mondale skíthræddur
við mig. Ég er inaður framtíðarinn-
ar".
-ÖS
Auglýsing um áburðar-
\fSulJ verð sumarið 1984
Heildsöluverö fyrir hverja smálest eftirtalinna áburöartegunda er ákveðið þannig:
Við skipshlið á Afgreitt á bíla I
ymsum hofnum um- i Gufunesi
hverfis landið
KJARNI 33%N Kr. 7.400,- Kr. 7.540,-
MAGNI 1 25%N+9%Ca ” 6.100.- 6.240,-
MAGNI 2 20%N + 15%CA ” 5.300,- 5.440.-
GRÆÐIR 1 14%-i 8% p2o5-i 8%K20+6%s ” 8.980,- 9.120,-
samsvarar 14%N-8%P -15%K +6%S
GRÆÐIR 1A 12%N-19% P205-19%K2Ö+6%S ” 8.840.-. 8.980,-
samsvarar 12%N- 8,4%P -15,8%K+6%S
GRÆÐIR 2 23% N-11 % P2O5-11 % K2O ” 8.440.- 8.580,-
samsvarar 23%N- 4,8% P - 9,2% K
GRÆÐIR 3 20% N-14% P2Os-14% K?0 ” 8.500,- 8.640.-
samsvarar 20%N- 6%P -11,7%K
GRÆÐIR 4 23%N-14%P205- 9%K20 ” 8.840,- 8.980,-
samsvarar 23%N- 6%P -7,5%K
GRÆÐIR 4A 23%N-14%P205 - 9%K20+2%S ” 8.980,- 9.120,-
samsvarar 23%N- 6%P - 7,5%K+2%S
GRÆÐIR 5 17% N-17% P205-17% kó? ” 8.700.- 8.840,-
samsvarar 17%N- 7,4% P -14%K
GRÆÐIR 6 20% N-10% P205-10% K20+4%Ca+1 %S ” 8.300,- 8.440,-
samsvarar 20%N- 4,3%P - 8,2%K+4%Ca+1 %S
GRÆÐIR 7 20%N-12%P2O5- 8%KzO+4%Ca+1 %S ” 8.440.- 8.580,-
samsvarar 20%N- 5,2%P - 6,6%K+4%Ca+1 %S
GRÆÐIR 8 18%N- 9%P205-14%K20+4%Ca+1 %S ” 8.100.- 8.240,-
samsvarar 18%N- 3,9%P -11,7%K+4%Ca + 1 %S
NP 26-14 26%N-14%P20s ” 8.700,- 8.840,-
samsvarar 26%N- 6,1 %P
NP 23-23 23%N-23%P205 ” 9.660,- 9.800.-
samsvarar 23%N-10%P
Þrífosfat 45%P205 ” 7.560,- 7.700.-
samsvarar 19,6%P
Kalíklóríð 60% K.0 ” 5.220,- 5.360.-
samsvarar 50 %K
Kalísúlfat 50% IGO ” 6.480,- 6.620,-
samsvarar 41,7%K+17,5%S
Uppskipunar- og afhendingargjald er ekki innifalið í ofangreindu verði fyrir áburð kominn á ýmsar
hafnir. Uppskipunar- og afhendingargjald er hinsvegar innifalið í ofangreindu verði fyrir áburð, sem
afgreiddur er á bíla í Gufunesi.
ÁBURÐARVERKSMIÐJA RÍKISINS