Þjóðviljinn - 03.04.1984, Blaðsíða 12
16 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN| Þriðjudagur 3. aprfl 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Vorhappdrætti
VORHAPPDRÆTTI
’ÉT' ; Alþýðubandalagsins í Reykjavík
Verð kr, 100.- VlNNiNCAR: Dregið , 10.MAI
f -3- feföövifintogaf i leigufUigt nwö Samvinnufcröum •Ixindsvn að veföimmi20 000kf. hver 60000.
4.-6. Köfftavtnningar! leiguflugi rneö Saffivinnuliírftum • Linrfsýn ;tð vcrðfnaili 15.000 kr.hver . 45.000. ■ Vinninflaf aiis KR.OOO.- f joldi mifte 6 325
Alfeýiubamiaiagið i Beyttjavik: Hverfisööhj 105.101 ftuykjavik. Simi: (51)17500
Alþýðubandalagið í Reykjavík gengst fyrir glæsilegu vorhappdrætti.
Vinningar eru 6 ferðavinningar í leiguflugi með Samvinnuferðum -
Landsýn að heildarverðmæti 105.000,- krónur.
Dregið verður ( happdrættinu 10. maí.
Þess er vænst að félagar og stuðningsmenn Alþýðubandalagsins í
Reykjavík bregði skjótt við og greiði heimsenda miða hið fyrsta í næsta
banka/pósthúsi eða á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Hverfisgötu
105.
Sláum saman!
Stöndum saman í slagnum!
Styrkjum baráttu Alþýðubandalagsins!
Stjórn ABR
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Spilakvöld
, Næst verður spilað þriðjudagskvöldið 3. apríl kl.
20.00 í Flokksmiðstöðinni Hverfisgötu 105. Guð-
rún Ágústsdóttir kemur í heimsókn og fjallar um
félagsmál í borginni. Þetta er 2. kvöld í þriggja
kvölda keppni. Spilað er bæði um heildarverðlaun
og sérstök kvöldverðlaun og því er ekki nauðsyn-
legt að hafa mætt á síðasta spilakvöldi. - Spila-
hópurinn.
Alþýðubandalagið í Kópavogi:
Bæjarmálaráð
Bæjarmálaráð heldurfund í Þinghóli, miðvikudaginn 4. apríl kl. 17.30.
Dagskrá: 1. Framkvæmdir bæjarfélagsins 1984,2. Lista- og menning-
arsjóður.
Alþýðubandalagið á Selfossi
og nágrenni
Fundur verður haldinn um atvinnumál á Selfossi laugardaginn 7. apríl
kl. 14 að Kirkjuvegi 7, Selfossi. Framsögumaður verður Þorsteinn
Garðarson iðnráðgjafi. - Stjórnin.
Alþýðubandalagið á Selfossi
og í nágrenni
Garðar Sigurðsson alþingismaður hefur viðtals-
tíma í húsinu að Kirkjuvegi 7 á Selfossi laugardag-
inn 7. apríl að loknum félagsfundi um atvinnumál.
Æskulyösfylking Alþýðubandalagsins
Æskulýðsfylkingin:
Félagsmálanefnd ÆFAB
Allsherjarfundur félagsmálanefndar verður haldinn miðvikudaginn 4.
apríl að Hverfisgötu 105, kl. 20.30. Tekin verður fyrir undirbúningur
afmælisveislu ÆFAB. - Eiki, Halli, Óli.
Vinsamlega sendið eða hringið inn auglýsingar í þennan
dálk fyrir klukkan 16 daginn áður en þær eiga að birtast og
talið við Einar Karl eða Álfheiði. - Ritstjórn.
Útför eiginmanns míns <pg föður okkar
Guðmundar Jóhannessonar
frá Vfk i Mýrdal
ferframfrá Fossvogskirkju miðvikudaginn 4. apríl kl. 13.30.
Sigríður Þormar
og synir
Fundur á Hvammstanga
Krefst ráðstafana
til verndar atvinnulífi við Húnaflóa
Þann 21 mars sl. var haldinn
fundur á Hvammstanga þar sem
fjallað var um rækjuveiðar og
-vinnslu við Húnaflóa. Að fundin-
um stóðu sveitarstjórnirnar á
Hólmavík, Draganesi, Hvamms-
tanga, Blönduósi og Skagaströnd,
verkalýðsfélög og fulltrúar sjó-
manna, útgerðarmanna og flsk-
verkenda á þessum stöðum. Fund-
urinn samþykkti eftirfarandi álykt-
un:
Fundur hagsmunaaðila um
rækjuveiðar- og vinnslu við Hún-
aflóa, haldinn á Hvammstanga 21.
mars 1984, skornar á sjávarútvegs-
ráðherra að gera nú þegar ráðstaf-
anir til verndar atvinnulífi á þétt-
býlisstöðunum við Húnaflóa, þeg-
ar ljóst er að miklum flota stórra
veiðiskipa hefur verið og verður
stefnt á hefðbundin djúpurækjum-
ið fyrir Norðurlandi.
Fundurinn bendir á, að djúp-
rækjuveiðarnar og vinnsla aflans
hafa verið undirstaða atvinnulífs á
þéttbýlisstöðunum við Húnaflóa
yfir sumartímann og verði ekkert
að gert er mikil hætta á að djúp-
rækjumiðin verði uppurin vegna
ásóknar stærri skipa þegar minni
bátar hefja veiðar á hefðbundnum
tíma í vor. Hvatt er til stóraukinna
rannsókna á rækjustofninum allt
umhverfis landið og jafnframt var-
að við að óheft sókn geti fljótt leitt
til ofveiði og fiskifræðingar hafa
m.a. bennt á þá staðreynd.
Fundurinn telur því að nauðsyn-
legt sé að grípa nú þegar til aðgerða
til að tryggja atvinnulíf á stöðunum
og afkomu bátaflotans, sem ekki
getur horfið að neinum öðrum
veiðum vegna kvótaskiptingarinn-
ar. Bent er á að eðlilegt sé að
ákveðnum, hefðbundum rækju-
veiðisvæðum fyrir Norðurlandi
verði lokað fyrir stærri skipum og
þeim beint á önnur mið.
Fundurinn varar við öllum hug-
myndum um flutning rækju af mið-
unum úti fyrir Norðurlandi til ánn-
ara landshluta vegna þess að hér er
um viðkvæmt hráefni að ræða og
mikið í húfi fyrir þjóðarhag að
þessi útflutningsgrein njóti áfram
þess álits kaupenda erlendis sem
hingað til. Einnig má benda á lélegt
atvinnuástand á Norðurlandi og
lágar tekjur. Þoli miðin aukna
veiði er eðlilegast að þær byggðir,
er að miðunum liggja, fái að njóta
aukningarinnar. ere/mhg
1 | ÆSŒ&s&æ&ksÆr'' 'WW y* %JÉÍÍÉ
Svavar Vilborg Sveinn Margrét
' kV tÉI c E { 1
Helgl Hjörlelfur Lára Jóna Óttar Magnl Alþýðubandalagið
Forystumenn ferðast
um Austurland
Dagana 4.-8. apríl munu Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins, Vil-
borg Harðardóttir varaformaður og Margrét Frímannsdóttir gjaldkeri flokksins
svo og alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson og Sveinn Jóns-
son varaþingmaður ferðast til átta byggðarlaga á Austurlandi, halda þar almenna
og opna fundi og hitta fólk, m.a. á vinnustöðum.
Einnig verða með í ferðinnifulltrúar úr stjórn Æskulýðsfylkingar Alþýðubanda-
lagsins, þau Lára Jóna Þorsteinsdóttir og Óttar Magni Jóhannsson og ræða þau við
ungt fólk á stöðunum.
Opnir fundir verða sem hér segir:
Egilsstaðir: miðvikudag4. apríl kl. 21 (Hús Slysavarnarfélagsins) Helgi, Vilborg
og Sveinn verða á fundinum.
Seyðisfjörður: fimmtudag 5. apríl kl. 20.30 (Herðubreið) Helgi, Vilborg og
Sveinn.
Neskaupstaður: fimmtudag 5. apríl kl. 20.30 (Egilsbúð) Svavar, Margrét, Hjör-
leifur.
Fáskrúðsfjörður: föstudag 6. apríl kl. 20.30 (Skrúður), Svavar, Margrét, Hjör-
leifur.
Stöðvarfjörður: föstudag 6. apríl kl. 20.30 (Samkomuhúsið) Helgi, Vilborg,
Sveinn.
Breiðdalur: laugardag 7. apríl kl. 14.00 (Staðarborg) Helgi, Vilborg, Sveinn.
Eskifjörður: laugardag7. apríl kl. 14.00 (Valhöll) Svavar, Margrét, Hjörleifur.
Borgarfjörður eystri: sunnudag 8. apríl kl. 14 (Fjarðarborg) Helgi, Vilborg,
Sveinn.
Reyðarfjörður: sunnudag 8. apríl kl. 16.00 (Hús verkalýðsfélagsins) Svavar
Margrét, Hjörleifur.
Ein framsöguræða verður á hverjum fundi.
Almennar umræður.
Fundarboðendur sitja fyrir svörum.
Fundirnir eru öllum opnir. AipyOUDanaalagiO