Þjóðviljinn - 04.04.1984, Side 1
UÚBVIUINN
Borgarstjóri hefur
lagttil að hunda-
haldverði heim-
ilað í Reykjavík
næstu tvö árin en
þá fari f ram kosn-
ing í borginni um
málið.
Sjá bls. 5
apríl
miðvikudagur
79. tbl.
49. árgangur
Nýjar radarstöðvar á íslandi og Grænlandi
Liður í undirbúningi
„takmarkaðs stríðs“
segir danskur sérfrœðingur um öryggismál
Áform um nýjar radarstöðvar á íslandi og Grænlandi eru
liður í heildarenduruppbyggingu á radar- og fjarskiptakerfi
Bandaríkjahers frá Álaska um norðurströnd Kanada yfir
Grænland til íslands. Enduruppbygging þessi er gerð sam-
fara því að bandarísk stjórnvöld hafa horfið frá kenning-
unni um ógnarjafnvægið og miða varnir sínar í æ ríkari mæli
við möguleikann á að heyja takmarkað stríð við Sovétríkin,
sem þá yrði háð í Evrópu en ekki Bandaríkjunum.
Hinar nýju stöðvar eiga að vera þannig búnar að þær geti
staðið af sér átök um leið og hin nýja herstjórnarlist miðar
öll að því að gera vopn og stjórnstöðvar Sovétríkjanna
óvirk í „fyrsta höggi“.
Þessar upplýsingar koma fram í grein sem danskur sér-
fræðingur um öryggis- og varnarmál skrifar í nýjasta hefti
danska tímaritsins Forsvar.
_____________________________________________________ólg.
Sjá bls. 7
Ríkið brýtur lög á fötluðum börnum:
Sumardvölin
„gleymdist“
í fj árlögum
„Ef félagsmálaráöherra leiöréttir
þetta ekki sýnist mér aö foreldrar í
Öskjuhlíöarskóla verði aö borga upp-
undir 30 þúsund krónur fyrir 5-6 vikna
sumardvöl barnanna í Aöaldal", sagöi
Baldur Jónasson í gær, en hann á barn
í Öskjuhlíðarskóla. Á síðari árum hefur
börnunum gefist kostur á sumardvöl í
Hafralækjarskóla í Aðaldal og hafa for-
eldrar greitt þriöjung kostnaöar á móti
ríki og borg. Eftirgildistöku laganna um
aöstoö við fatlaða telur borgin sig ekki
eiga að taka þátt í þessum kostnaði
lengur og ríkiö hefur ekki áætlað fyrir
sínum hluta á fjárlögum.
Baldur sagði að í 7. grein laganna væri
skýrt tekið fram að það væri skylda ríkisins
að greiða fyrir sumardvölina, en hins vegar
hefði „gleymst" að áætla fyrir því, þrátt
fyrir að fjárveitinganefnd hefði ítrekað ver-
ið bent á þetta ákvæði. Foreldrafélagið
leitaði þá til borgarinnar, sem greiddi 360
þúsund í sumardvölina í fyrra, en á þeim bæ
er vísað yfir á ríkið með tilvísun í lögin.
„Þessi sumardvöl er ákaflega brýn fyrir
bömin og reyndr heimilin líka“, sagði Bald-
ur. „Þegar skólanum lýkur í vor verður
a.m.k. annað foreldrið að vera heima og
hætta að vinna og ég veit að börnunum
finnst ekkert sumar nema þau komist
norður".
í fyrra kostaði 6 vikna dvöl 12 þúsund
krónur og ef foreldrar borga áfram þriðj-
ung sagði Baldur að upphæðin í sumar yrði
um 16 þúsund. „Hins vegar fer það upp
undir 30 þúsund ef ríkið ætlar að koma sér
undan lagaskyldum sínum“, sagði hann.
Hún valdi frekar ávaxtasafann en kókið. Neytendasamtökin hafa mótmælt þeirri furðulegu ákvörð-
un fjármálaráðherra að lækka verð á gosdrykkjum en stórhækka það á ávaxtadrykkjum. Er nú svo
komið að hægt er að fá tvær kók fyrir eina fernu af ávaxtadrykk og kemur sú verðlagning á
hollustudrykkjum mönnum spánskt fyrir sjónir. Ljósm. Atli.
Láglaunasvæðið lokkar auðhringa
„ísland er Singapore norðursins“ segir Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra • Hvergi í
Vestur-Evrópu jafn lág laun, segir ráðherrann • Ummœli Sverris vekja athygli í Finnlandi
Frá fréttaritara Þjóðviljans í Hels- síðustu viku. Samkvæmt frásögnum Sverrir Hermannsson sagði í við- Helsingin Sanomatsum Íslandí gæren
ingfors, Sigurdóri Sigurdórssyni: finnsku blaðanna Helsingin Sanomat tölum við hina finnsku blaðamenn að í opnu blaðsins Socialdemokraten var
- Það eru hvergi í Vestur-Evrópu og Socialdemokratan í gær sagði iðnað- ríkisstjórnin bindi vonir við að þetta sömu ummæli að finna. Að sögn blaða-
jafn lág laun og á íslandi og þess vegna arráðherra: „Island er í dag Singapore freistaði erlendra auðhringa að koma manns Þjóðviljans í Helsingfors vöktu
eiga íslendingar mikla möguleika á að eða Japan norðursins með lág laun og til íslands. þessi ummæli ráðherrans mikla athygli
fá erlent fjármagn inn í stóriðju, sagði þess vegna ætti það að freista erlendra og umtal um íslenska þjóðfélagið.
Sverrir Hermannsson við finnska stórfyrirtækja að sækja eftir að stofna Fréttin af þessum ummælum iðnað-
blaðamenn sem voru á ferð á íslandi í fyrirtæki á Islandi“. arráðherra var á forsíðu aukablaðs - S.dór/óg