Þjóðviljinn - 04.04.1984, Blaðsíða 16
pjðÐV/m
m
Miðvikudagur 4. apríl 1984
Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins i þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umþrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í sima 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
400 fulltrúar frá þjóðþingum, ríkisstjórnum, al-
þjóðastofnunum og ríkjum þriðja heimsins á ráð-
stefnu í Lissabon í næstu viku
Norður-Suður:
Hlutverk Evrópu
Willy Brandt og Mario Soares meðal rœðu-
manna. Ólafur Ragnar Grímsson hefur
stjórnað undirbúningi ráðstefnunnar
í næstu viku hefst í Lissabon ráð-
stefnan: Norður - Suður: Hlutverk
Evrópu“ og verður þar fjallað um
öll helstu vandamálin, sem setja
svip á samskipti iðnríkja Norður-
sins og þróunarlanda Suðursins,
svo sem endurbætur á hinu alþjóð-
lega hagkerfi og baráttuna gegn
hungri og fólksfjölgun. Ráðstefnan
er haldin á vegum Evrópuráðsins
og munu sækja hana rúmlega 400
fulltrúar frá þjóðþingum og ríkis-
stjórnum Evrópu, samtökum ríkja
þriðja heimsins, Sameinuðu þjóð-
unum, Alþjóðabankanum, Efna-
hagsbandalaginu, OECD og ýms-
um öðrum alþjóðasamtökum.
Meöal framsögumanna á ráð-
stefnunni verða Willy Brandt,
fyrrum kanslari Vestur-
Þýskalands, og Mario Soares, for-
sætisráðherra Portúgal, utanríkis-
ráðherra Indlands Narashima Rao,
formaður samstarfssamtaka þró-
unarlanda Munoz Ledo, fram-
kvæmdastjóri OECD Emile van
Lennep, Sridath Ramphall fram-
kvæmdastjóri Sambands bresku
samveldisríkjanna og einnig utan-
ríkisráðherra Danmerkur, Uffe
Elleman-Jensen, sem er formaður
ráðherranefndar Evrópuráðsins.
Forstöðumenn ýmissa stofnana
Sameinuðu þjóðanna verða einnig
meðal ræðumanna. Ráðstefnan er
haldin í boði ríkisstjórnarinnar og
þjóðþingsins í Portúgal og verða
fundirnir í þinghöllinni í Lissabon.
Hugmyndina að þessari ráð-
Fundarsalurinn í þinghöilinni í Lissabon þar sem ráðstefnan verður haldin.
stefnu setti Ólafur Ragnar Gríms-
son fram á þingi Evrópuráðsins
árið 1981. Síðan flutti hann tillögu
um efni ráðstefnunnar, tilgang og
skipulag og var sú tillaga samþykkt
sumarið 1982. Um haustið var sett
á stofn skipulagsnefnd ráðstefn-
unnar og hefur Ólafur Ragnar
Grímsson verið formaður þeirrar
nefndar. Ráðstefnan hefur verið í
undirbúningi í l'/2 ár. Auk fulltrúa
frá öllum helstu nefndum Evrópur-
áðsins hafa fulltrúar frá Þróunar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna,
Mannfjöldasjóði Sameinuðu þjóð-
anna, Alþjóðabankanum, Efna-
hagsbandalaginu, OECD, Al-
þjóðavinnumálastofnuninni og
samtökum ríkja þriðja heimsins
tekið þátt í starfi skipulagsnefndar-
innar.
Enn góð þorskveiði í Breiðafirði
en þorskurinn áberandi minni
Nær allir smærri bátar
eru að klára kvótann
Kannski aðsóknin aukist þegar hægt er að fá bílinn þveginn og bónaðan í
Kolaporti. Ljósm.: Atli.
Kolaportið stendur autt allan daginn:
Aðeins 30% nýting
eftir gjaldtökuna
Hœgt að fá bílinn þveginn og bónaðan
á staðnum
Frá því gjaidtaka var tekin upp í
„Kolaportinu“, bílastæðahúsi
borgarinnar í Arnarhóli, hefur nýt-
ing stæðanna þar aðeins verið um
30%. Bflageymslan hefur því ekki
létt á miðbænum eins og vonir
stóðu til.
Engar ráðagerðir eru þó uppi um
að hætta gjaldtöku í Kolaporti en
stæðið kostar 40 krónur á dag, 20
krónur fyrir hálfan daginn. f gær
veitti borgarráð Trausta Bergssyni
heimild til að stunda bílaþvott og
bflabónun í portinu. Fær hann eitt
stæði til umráða gegn leigugjaldi og
geta bíleigendur fengið honum
lyklana af bílnum sínum og látið
þvo þá og bóna meðan þeir sinna
bæjarerindum.
-ÁI.
„Þetta var skársti dagurinn á
vertíðinni á mánudag. Þá var
landað hér um 300 tonnum og
gátum ekki tekið við öllu því
sem bátarnir voru með“, sagði
Leifur Jónsson hafnarstjóri á
Rifi í gær. Sömu sögu var að
frétta í Óiafsvík þar lönduðu
bátar á mánudag rúmiega 300
tonnum sem er einn af betri dög-
unum á vertíðinni en aflinn var
töluvert minni á báðum stöðum
í gær. Fremur dræmur afli hef-
ur verið hjá Grundarfjarðar-
bátum og í Stykkishólmi liggur
skelfiskveiði niðri og lítil
atvinna, meðan íbúar ná-
grannabyggðanna vinna jafnt
dag sem nótt í fískvinnslunni.
Ljóst er að nær allir smærri bát-
arnir frá Rifi og Ólafsvík munu
klára þorskkvóta sinn í þessari
viku. Þegar hafa um 10 bátar klár-
að kvótann auk nokkurra aðkomu-
báta og flestir eru við að fylla kvót-
ann.
„Það er klárt að eftir þessa viku
verða aðeins stærstu bátarnir eftir.
Ég held að menn séu rétt byrjaðir
að átta sig á þessari staðreynd
núna. Einhverjir ætla á djúprækju
en annars vita menn ekki hvað
tekur við“, sagði Rafn Þórðarson á
hafnarvigtinni í Ólafsvík. Þaðan
eru nú gerðir út 20 bátar en voru
flestir á vertíðinni 31. í síðasta
mánuði var landað 5.467 tonnum
af þorski í Ólafsvík en alls hefur
verið landað þar 8.100 tonnum af
þorski frá sl. áramótum. Unnið
hefur verið allan sólarhringinn og
allar helgar í frystihúsinu á staðn-
um og öðrum fiskverkunarstöðv-
um undanfarnar vikur. Sömu sögu
er að segja frá Rifi en þar heftrr
verið landað um 4000 tonnum af
þorski frá áramótum sem er
nokkru meiri afli en á sama tíma í
fyrra.
Að sögn sjómanna hefur verið
góð þorskveiði um allan Breiða-
fjörð en áberandi er hversu þorsk-
urinn er orðinn minni nú en fyrr á
vertíðinni. Þá er einnig mikil loðna
í þorskinum og hann því vandmeð-
farnari í geymslu og því afla verið
miðlað á milli verstöðva og bátar
jafnvel siglt með aflann á suður-
nesjahafnir í mestu hrotunum.
-'g-
Áskriftarherferð á Austurlandi_____
,J>arf ekki að
kvíöa árangrinum“
segir Kristín Ólafsdóttir útbreiðslustjóri Þjóðviljans
„Það er ætlunin að gcra átak í
söfnun áskrifta að Þjóðviljanum
eystra síðar í þessari viku í tengsl-
um við fundaherferð framá-
manna í Alþýðubandalaginu um
Austurland sem hefst í dag, mið-
vikudag. Ef áskriftasöfnunin sem
við munum vinna að i samvinnu
við heimamenn gengur jafn vel og
hún hefur gert annars staðar í
landinu hingað til þarf ekki að
kvíða árangrinum“, sagði Kristín
Á. Ólafsdóttir útbreiðslustjóri
Þjóðviljans í samtali í gær.
„Ég mun hafa aðsetur í Nés-
kaupstað og ásamt félögum
eystra hringja í fólk um allt kjör-
dæmið og bjóða því kynningará-
skrift að Þjóðviljanum. Hér er
um að ræða áskrift á sérstöku af-
sláttarverði sem gildir í aprfl ög
maí. Við munum vinna að þessu
verkefni með svipuðum hætti og
gert var á Akureyri um miðjan
janúar og vonandi verður árang-
urinn með svipuðum hætti einnig
því þar nálægt því tvöfölduðum
Krlsttn Á. Ólafsdóttir útbreiöslu-
stjórl Þjóðviljans: höfum bætt viö
okkur 1200 nýjum áskrifendum frá
áramótum. Ljósm.: Atli.
við áskrifendafjölda Þjóðvilj-
ans“, sagði Kristín ennfremur.
Kristín sagði að það væri
greinilegt á viðbrögðum þeirra
sem starfsfólk Þjóðviljans hefði
haft samband við í vetur að fólk
vildi gjarnan kynnast Þjóðviljan-
um af eigin raun og teldi sig þurfa
að lesa þetta helsta málgagn
stjórnarandstöðunnar sem mót-
vægi við málflutningi fjölmiðl-
anna Morgunblaðsins, Tímans,
DV ög ekki síst ríkisfjölmiðlanna
tveggja. Hún sagði að frá síðustu
áramótum hefðu bæst við um
1200 nýir áskrifendur að blaðinu.
„Mig hlakkar mikið til að hitta
félagana fyrir austan en eins og ég
sagði er þetta í annað skipti sem
við förum svona leiðangra út á
land. Ef móttökur verða
jafngóðar og á Akureyri þarf
maður engu að kvíða", sagði
Kristín Á. Olafsdóttir útbreiðslu-
stjóri Þjóðviljans að lokum.
- V.