Þjóðviljinn - 24.05.1984, Page 1
mai
fimmtudagur
116. tölublað
49. árgangur
Akranes
í efsta
sætinu
Akurnesingar tóku í gærkvöldi
forystuna í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu er þeir sigruðu Þórs-
ara 3-0 á Akureyri. Þeir eru einir í
efsta sæti með 6 stig. Guðbjörn
Tryggvason, Sveinbjörn Hákonar-
son og Sigurður Halldórsson
skoruðu mörkin.
Tveir aðrir leikir fóru fram í 1.
deildinni í gærkvöldi og enduðu
báðir með jafntefli, 1-1, þannig að
illa gengur liðunum að hagnýta sér
þriggja stiga regluna. Báðir voru
þó hörkuspennandi og jöfnunar-
mark í hvorum um sig kom fimm
mínútum fyrir leikslok. Benedikt
Guðmundsson skoraði jöfnunar-
mark Breiðabliks gegn KR á ná-
kvæmlega sömu mínútu og Sigurður
Björgvinsson jafnaði fyrir IBK
gegn KA í Keflavík, 85. mínútu.
Hannes Jóhannsson kom KR yfir
gegn Breiðabliki og Steingrímur
Birgisson færði KA forystuna í
Keflavík.
Arnóri brást
bogalistin!
Amór Guðjohnsen tók mikil-
væga vítaspymu fyrir Anderlecht í
úrslitaleik UEFA-bikarsins í
London í gærkvöldi. Markvörður
Tottenham varði og þar með varð
enska liðið UEFA-meistari!
Allt um leikina á bls. 11 -VS
Viðræður út um þúfur
Gátum ekki gengið að tilboði fjármála-
ráðherra, segir einn meirihlutamanna
Samninganefnd Kennarasam-'
bands íslands klofnaði á fundi sín-
um í gær og hefur sérkjaravið-
ræðum kennara því vcrið slitið.
Meirihluti nefndarinnar taldi sig
Gullna
hliðið
ekki geta gengið að tilboði fjármál-
aráðherra til lausnar og að til-
gangslaust væri að halda við-
ræðum áfram. Þessa ákvörðun
tóku 15 manns í samninganefndinni
en 9 vildu hins vegar halda samn-
ingaumleitunum áfram. Deilunni
verður nú vísað til Kjaranefndar
BSRB.
Elín Ólafsdóttir kennari og einn
þeirra sem ekki vildi halda við-
ræðum við fulltrúa ríkisins áfram,
sagði í samtali við Þjóðviljann í gær
að nú væri ekkert annað fyrir kenn-
ara að gera en að rísa upp. Hún
sagði vilja kennarastéttarinnar
hafa komið glöggt í ljós fyrr í vetur
og að tilboð fjármálaráðherra nú
hefði gengið mun skemur en kenn-
arar gætu sætt sig við. „Kennarar
hafa á undanfömum ámm verið að
dragast verulega aftur úr í launum
og við emm þeirrar skoðunar að nú
verði að spyrna við fótum. Ef til-
boð fjármálaráðherra hefði verið
bitastæðara er enginn vafi á að við
hefðum haft jákvæðari afstöðu en
innihald þess gaf ekki tilefni til
annarrar en þeirrar sem við
tókum“, sagði Elín Olafsdóttir í
gærkvöldi.
Samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans voru einkum þrjú efnisatriði í
samkomulagsdrögum þeim sem
hafnað var í gær. Kennsluskylda á
lægri skólastigum átti að styttast
um VSrn'ma, byrjunarlaun kennara
hækkuðu um eitt þrep innan launa-
flokks og meiri hröðun átti að
verða í aldurshækkunum.
Þess má geta að forystusveit
Kennarasambands íslands lenti í
minnihluta í atkvæðagreiðslunni i
gær, þar á meðal þeir Valgeir
Gestsson formaður KI, Guðmund-
ur Árnason framkvæmdastjóri KÍ
og Haukur Helgason stjórnarmað-
ur í BSRB.
- v.
Spilling á kreiki við Hamarshúsið OPNA
Samninganefnd Kennarasambands íslands klofnaði í gær
Arnór Guðjohnsen.
Ásmundarsafn verður opnað fyrir almenning á sunnudag eftir
gagngerar breytingar og umbætur. Hefst þá jafnframt athyglisverð
sýning sem nefnist Vinnan í list Ásmundar Sveinssonar. Þar verður
annars vegar sýnt hvernig Ásmundur sjálfur vann með tæki og efni og
hins vegar myndir hans af vinnandi fólki. Þessa mynd tók Atli í gæi
þegar verið var að undirbúa opnunina og er Leó Þórhallsson málari i
pásu.
Sjá bls. 7.
með nýrri
tækni
Upptökur á næsta jóia-
leikriti sjónvarpsins hafa
staðið yfir í maímánuði.
Gullna hliðið varð fyrir val-
inu. Við upptökur er notuð
tækni sem þeir hjá sjón-
varpinu kalla króma. Þjóð-
viljinn fór í heimsókn í upp-
tökusal og ræddi við ýmsa
aðstandendur verksins. Á
myndinni er Róbert
Arnfinnsson í hlutverki
Lykla-Péturs. Mynd: Atli.
UÚBVIUINM
Nú flykkjast
unglingarnir
út á vinnu-
markaðinn.
Vita þeir hvað
lágmarkstíma-
kaupið er?
Sjá3
Frumkvæði Gandhi, Palme, Papandreou, Alfonsín,
Nyerere og de la Madrid
Páfínn tilkynnir stuðning
Jákvœðar undirtektir víða um heim
- Ég sendi í bæn góðar óskir til
allra þeirra sem sameinast hafa um
það verðuga átak sem felst í
,JFriðarfrumkvæði í fjórum
heimsálfum“. Ég vona að þetta
frumkvæði hljóti góðar undirtektir
og örlátan stuðning þeirra sem bera
þá ábyrgð að efla málstað friðar.
Um leið og ég tek undir þetta frum-
kvæði bið ég þess einnig að Almátt-
ugur Guð blessi rfkulega viðleitni
allra þeirra sem vinna fyrir sönnum
og traustum friði milli þjóða og
ríkja. - Á þennan hátt lýsti Jóhann-
es Páll páfl yflr stuðningi sínum í
orðsendingu sem Ólafi Ragnari
Grímssyni og öðrum forystu-
mönnum þeirra samtaka sem
undirbjuggu Friðarfrumkvæðið
barst í gær frá Páfagarði.
Mikill fjöldi leiðtoga víða um
veröld lýstu í gær yfir eindregnum
stuðningi við yfirlýsinguna sem
Indira Gandhi, Palme, Papandre-
ou, Alfonsín, Nyerere og de la Ma-
drid gáfu út í gær. Má þar m.a.
nefna Trudeau forsætisráðherra
Kanada og Conzalez forsætisráð-
herra Spánar.
Heimskirkjuráðið sem íslenska
þjóðkirkjan er aðili að gaf einnig út
yfirlýsingu þar sem segir að
„Heimskirkjuráðið taki sterklega
undir áskorun þessa leiðtogahóps
til Bandaríkjanna, Sovétríkjanna,
Bretlands, Frakklands og Kína“ og
síðan eru þjóðkirkjur víða um
heim hvattar til að styðja þetta
frumkvæði. - óg.
Bls. 5