Þjóðviljinn - 05.06.1984, Blaðsíða 1
DJOmiUINN
Listahátíðin á
fullu. Umsagnir
og frásagnir.
Bls. 6
júní 1984
Þriðjudagur
125. tbl.
49. árgangur
um helgina
Við verðum mjög vör við
ofbeldi gegn börnum,
bæði andlegt og líkam-
legt ofbeldi. Það er mjög
erfittaðgerasérgrein '
fyrir umfangi þessa en
hugsanlega gætu hér
verið um 500 - 4000 til-
felli á ári; kynferðislegt,
andlegt, líkamlegt eða
hrein vanhirða“, sagði
Aðalsteinn Sigfússon
félagsfræðingur hjá Fél-
agsmálastofnun
Reykjavíkurborgar í
samtali við Þjóðviljann.
í gær héldu starfsmenn Fél-
agsmálastofnunar ásamt starfsfólki
á borgarstofnunum sem hafa með
afskipti af börnum að gera ráð-
stefnu í Gerðubergi um barnamis-
þyrmingar.
Á ráðstefnunni fluttu erindi þau
Pétur Lúðvíksson læknir á Barna-
spítala Hringsins og Hulda Guð-
mundsdóttir yfirfélagsráðgjafi
spítalans. Pétur vitnaði í erindi sínu
til bandarískrar könnunar á ofbeldi
gegn börnum en þar kemur m.a.
fram að ofbeldið beinist einkum
gegn börnum undir þriggja ára
aldri og þá einkum gagnvart
veikburða bömum eða þeim sem á
einhvern hátt minna mega sín og
ættu mæður þar stærri hlut að máli
en feður.
Séu skráð tilfelli í Bandaríkjun-
um hlutfallslega yfirfærð hingað
væri hér um að ræða 52 slík tilfelli á
ári.
Aðalsteinn Sigfússon benti hins
vegar á á hér væri um mjög villandi
tölu að ræða því skráningu væri
mjög illa sinnt og menn álitu að
umfangið hérlendis væri um 500 -
4000 tilfelli á hverju ári og þá væri
átt við ofbeldi gangvart börnum á
einn eða annan máta.
„Petta er falið vandamál, enginn
vill láta vita af þessu. Við erum
ekki í neinum vafa um að ein af-
leiðingin af þessu barnaofbeldi er
það sem kallað er hegðunarvanda-
mál unglinga. Orsakirnar oft á tíð-
um liggja í slæmri meðferð á þess-
um börnum í æsku“.
Fók var mjög ánægt með þá um-
ræðu sem fram fór um þessi mál á
ráðstefnunni. Þetta er í fyrsta skipti
sem allir þessir aðilar eru kallaðir
saman og ekki vanþörf á að slíkt
ætti sér stað. Það er mín von að
þetta hafi aðeins verið byrjunin,
því hér vantar alveg samhæfðar ingu og samstillingu og ekki síst
reglur fyrir fólk til að starfa eftir farið að huga að fyrirbyggjandi að-
sem þarf að taka á þessu vanda- gerðum", sagði Aðalsteinn Sigfús-
máli, sjá til að bætt verði úr skrán- son. -Jg.
Mikill baráttuhugur í kennurum:
íprorar
á 8 síðum
Bqrnum misþyrmt
á Islandi!
500-4000 tilfelli árlega
segja sérfróðir menn
um þetta dulda ofbeldi
Samningum verði sagt upp!
• Vilja að BSRB boði til verkfalls 1. september
• Fjöldauppsagnir eru fyrirhugaðar
Kennarar vilja að BSRB segi
skilyrðislaust upp kjarasamn-
ingum sínum og boði til ver-
kfalls hinn fyrsta september
næstkomandi. Þetta kom fram í
mjög harðorðri ályktun um
kjaramál sem var samþykkt á
fulltrúaþingi Kennarasamb-
andsins nú um helgina. Jafn-
framt skoraði þingið á stjórn
sambandsins að skipuleggja
fjöldauppsagnir kennara takist
ekki að fá leiðréttingu á kjörum
þeirra.
Formaður Kennarasambands-
ins, Valgeir Gestsson, sagði að
„mjög greinileg samstaða ríkti á
þinginu um uppsögn samninganna.
Það er alveg ljóst að fólk er tilbúið í
veruleg átök, og mun ekki veigra
sér við verkföllum ef því er að
skipta. Kennarar vilja standa að
sinni kjarabáráttu með öðrum fé-
lögum ef átök verða fyrsta sept-
ember, bæði utan BSRB og innan,
Og það er ljóst að menn eru tilbún-
ir í fjöldauppsagnir ef ekki fæst
leiðrétting".
í sama streng tóku aðrir þing-
fulltrúar sem rætt var við og mikils
baráttuhugs virtist gæta meðal
þeirra. Til dæmis sagði Hjálmfríð-
ur Sveinsdóttir úr
Vestmannaeyjum að kennarar
væru mjög fúsir til aðgerða til að
rétta stéttina við. „Menn eru hættir
að tala um einn eða tvo launa-
flokka, þeir vilja almennilegar
kjarabætur. Og ég sé fyrir langt
verkfall ef lagt verður út í aðgerðir.
Við eigum hreinlega ekki um ann-
að að velja“.
-ÖS
Sjá bls. 3