Þjóðviljinn - 13.06.1984, Blaðsíða 1
DIOBVIUINN
Enrico Berlinguer, for-
maður Kommúnistaflokks
Ítalíu, lést á mánudag.
Með honum er genginn
einn atkvæðamesti og hug-
myndaríkasti fulltrúi
endurnýjunar evrópskrar
vinstrihreyfmgar
Sjá bls 6
júní 1984
Miðvikudagur
131 tbl.
49. árgangur
Sofíð á
verðinum?
Erlent herskip í Hvalfirði • Könn-
umst ekki við það, segja Land-
helgisgœslan og utanríkisráðuneytið
Hollenskafreigátan Evertsen
F-815 sigldi aðfaranótt mánu-
dagsins inn Hvalfjörðinn og
lagðist við Natóbryggjuna í
botni Hvalfjarðar. Skipið lá þar
örfáar klukkustundir meðan
olía vartekin um borð úrolíu-
birgðum Nató, sem þareru
geymdar í tönkum ofan jarðar
og neðan. Skipið er búið afar
sterkum radar einsog má sjá af
meðfylgjandi mynd og er að lík-
indum hluti af hlustunarkeðju
Natóríkjanna.
Engar upplýsingar fengust hins
vegar hjá íslenskum stjórnvöldum.
Ráðuneytisstjóri utanríkisráðu-
neytisins sagði að einhVer hollensk
skip hefðu verið á ferðinni fyrir
tveimur þremur vikum en sér væri
ekki kunnugt um neitt skip sem
væri hér við land núna.
Aðspurður hvort eitthvert erlent
herskip hefði komið til Hvalfjarðar
nýlega til að taka olíu kvað Ingvi
nei við og bætti síðan við: „Við
myndum ábyggilega vita af því hér í
utanríkisráðuneytinu, því öll her-
skip þurfa heimild til að koma inn í
landhelgina". Hann kvaðst heldur
ekkert kannast við herskipið
Evertsen.
Hjá stjómstöð Landhelgisgæsl-
unnar komu menn einnig af fjöll-
um þegar spurt var um freigátuna
Evertsen, og töldu ólíklegt að hún
eða önnur Natóherskip gætu farið
inn í Hvalfjörð án þeirra vitundar.
Ámi Kristjánsson aðalræðis-
maður Hollands vissi hins vegar af
því að freigátan kom inn til Hval-
fjarðar að taka olíu og kvað hana
hafa komið hingað til lands fyrir
nokkmm vikum í slagtorgi við kaf-
bát og rannsóknarskip og hefði öll
tilskilin leyfi.
Fer nú heldur að smækka hlutur
utanríkisráðuneytis og Landhelgis-
gæslu ef erlend herskip geta vaðið
hér inn og út firði án þeirra vitund-
ar. Hefur einhverjum mnnið í
brjóst á verðinum?
-ÖS
Hollenska frelgátan Evertsen F-815 á lelð út Hvalfjörðlnn á mánudagsmorgun. - Ljósm. - ÖS
Ragnhildur með símann á lofti:
Rak þrjá símleiðis!
• Rak námsstjóra klukkan ellefu - bauð endurráðn-
ingu klukkan tólf • Boðaði forföll á skólaslit KHI
til að reka námsstjóra í samfélagsfrœðum.
Pólitískar hreinsanir
Á föstudag og laugardag til-
kynnti Ragnhildur Helgadóttir
þremur námsstjórum hjáskóla-
rannsóknardeild með einfaldri
símhringingu að hún vildi ekki
hafa þá í starfi hjá
menntamálaráðuneytinu eftir
1. september. í einn hringdi
hún klukkan ellefu á laugar-
dagsmorgni, en klukkan tólf
hringdi hún aftur og spurði
hvort hann vildi ekki gamla
starfið aftur. Ragnhildurhafði
nefnilega gleymt að athuga
hvort vonarlamb hennar í við-
komandi embætti vildi stöðuna,
og sá afþakkaði um leið og hún
bauð honum starfann! Jafn-
framt boðaði Ragnhildurforföll
við skólaslit Kennarahá-
skólans, en notaði tímann þess
í stað til að firingja og reka
þriðja námsstjórann!
Einsog Þjóðviljinn hefur áður
greint frá voru stöður ellefu nárns-
stjóra af tólf auglýstar til umsókn-
ar, en áður hafði venjan verið sú að
stöðumar vom ekki auglýstar ef
viðkomandi námsstjóri óskaði að
sitja áfram. Um fimm embættanna
sóttu fleiri en sá sem fyrir var í
stöðunni.
Á föstudag byrjaði svo símtala-
mna menntamálaráðherra. Þá
fékk Jóna Björg Sætran námsstjóri
í dönsku upphringingu frá Ragn-
hildi Helgadóttur, þar sem henni
var tjáð að hún fengi ekki að gegna
sínu gamla starfi næsta ár.
Um ellefuleytið á laugardag var
Ragnhildur enn við símann. Næst-
ur á listanum var Þorvaldur Örn
Árnason námsstjóri í líffræði.
Honum tilkynnti Ragnhildur að
annar maður yrði ráðinn sem
námsstjóri í líffræði að loknu ráðn-
ingartímabili Þorvaldar. Þegar
Þorvaldur var rétt búinn að jafna
sig á þessum válegu tíðindum
hringdi síminn aftur, réttri stundu
síðar. Enn var þar komin Ragn-
hildur ráðherra. Hún hafði þá
hringt í Ágúst H. Bjarnason líff-
ræðing og boðið honum stöðuna en
Ágúst afþakkaði að bragði. Erind-
ið núna var að bjóða Þorvaldi
stöðuna aftur. Nú var það hins veg-
ar Þorvaldur sem tók ráðherra fá-
lega og kvaðst skyldu „hugsa mál-
ið“.
Næsta dag átti Ragnhildur ráð-
herra að vera við skólaslit Kennar-
aháskólans en boðaði forföll. Um
tvöleytið, þegar skólaslitin áttu að
hefjast var hún enn komin í símann
og nú var það Erla Kristjánsdóttir
námsstjóri í samfélagsfræðum sem
fékk reisupassann.
Þegar námsstjórastöðurnar voru
auglýstar lausar til umsóknar
kviknaði sá grunur meðal kennara
að þetta bragð ætti að nota til pó-
litískra hreinsana. í því sambandi
má geta þess að Erla Kristjánsdótt-
ir hefur verið sérlegur sícotspónn
Morgunblaðsins og hægri aflanna í
allan vetur, í tengslum við umræðu
um samfélagsfræðina, og Þorvald-
ur Örn Ámason er vel þekktur
vinstri sinni.
-ÖS
Niðurskurður á Bæklunardeild Landspítalans:
Þriðjungi rúma
í 4 vikur
lokao
Vegna niðurskurðar í heil-
brigðiskerfinu verður að loka
þriðjungi þeirra rúma sem Bækl-
unardeild Landspítalans hefur tU
umráða í 4 vikur nú í sumar.
Þetta er í fyrsta sinn sem dregið er
úr starfsemi deUdarinnar þau 12
ár sem hún hefur starfað, en á
sjötta hundrað manns bíða eftir
bæklunaraðgerðum. Biðtíminn
getur verið 2 - 3 ár og lengist nú
enn vegna þessara aðgerða ríkis-
stjórnarinnar.
Dr. Stefán Haraldsson, yfir-
læknir deildarinnar sagði í gær að
þetta væri vafasamur sparnaður
fyrir þjóðfélagið í heild. „Á öllu
landinu bíður fólk eftir lækningu,
fólk, sem komið er í kör eða
bundið við hjólastól og verður að
þiggja tryggingabætur frá ríkinu.
Það er hægt að lina þjáningar
þessa fólks og um leið breyta því í
vinnuhæfa einstaklinga og
skattborgara“, sagði hann.
„Þessar aðgerðir spara ríkinu
mikið fé“.
Á þeim 12 árum sem bæklunar-
deildin hefur verið starfrækt hef-
ur verið skipt um á annað þúsund
mjaðmaliði í íslendingum og á
annað hundrað hnjáliði auk ann-
ara liða, svo sem fingur- og axlar-
liða. Á iandinu öllu eru 74 rúm
fyrir bæklunarlækningar, þar af
33 á Landspítalanum og verður
13 þeirra lokað í sumar.
Slys og gigt eru megin orsakir
skentmdra liða, en bæklunar-
lækningar eru nú um þriðjungur
allra skurðaðgerða og sífellt
lengjast biðlistarnir. Að sögn dr.
Stefáns eru ástæðumar hærri
meðalaldur, vaxandi slysahætta í
umferðinni og atvinnusjúkdómar
af völdum vaxandi iðnvæðingar.
Þá hefur tækniþróun í greininni
verið ákaflega ör, lækningalíkur
aukist stórlega og aðgerðum
að þess vegna.
fimmtudag hefst í Reykjavík
Norrænt þing bæklunarlækna og
sækja það yfir 350 sérfræðingar
frá 10 löndum. Þetta er í fyrsta
sinn sem slíkt þing er haldið hér á
landi. - ÁI
Stutt
í hrun
á landsbyggðinni
„Nú er svo komið að rekstrar-
stöðvun blasir við í flestum fyrir-
tækjum í sjávarútvegi með
ógnvænlegum afleiðingum fyrir
landshlutann. Sveitarfélögin em
hvert af öðru að komast I greiðslu-
þrot því burðarásar atvinnulífs
þeirra, útgerðar- og fiskvinnslufyr-
irtækin geta ekki greitt til sveitar-
sjóðanna.“
Svo segir í ályktun sem stjórn
Sambands sveitarfélaga á Austur-
landi hefur sent ríkisstjórninni.
Ennfremur segir að verði ekki hart
brugðist við þessum vanda og
sjávarútvegnum sköpuð rekstrar-
skilyrði sé stutt í hrun á lands-
byggðinni. - Ig.
Sjá bls. 3.