Þjóðviljinn - 13.06.1984, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 13. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
K Wifémk ^ M Mpffn
I
Margir bæjarbúar komu niður á bryggju til að fagna veiðimönnunum eftir
velheppnaða keppni Sjóstangaveiðifélags Vestmannaeyja. Ljósm. Guðm.
Sigf.
Kvennabókakynning í London
Sjóstangveiðikeppni í Vestmannaeyjum:
Sveinn Jónsson og
sveit hans sigraði
Það var mikið líf og fjör í
Vestmannaeyjum um helgina þegar
Sjóstangaveiðifélag Vestmanna-
eyja gekkst fyrir árlegri sjóstanga-
veiðikeppni sinni. Var þetta fjöl-
mennasta keppnin til þessa, en 75
veiðimenn hvaðan að af landinu
komu til leiks.
Heildaraflinn í þessari keppni,
sem stóð í tvo daga varð 7.449 kg.
eða 99.32 kg að jafnaði á stöng.
Aflahæst varð sveit Sveins Jóns-
sonar Vestmannaeyjum með 543
kg samtals. Hæst í kvennaflokki
varð sveit Aðalbjargar Bernódus-
dóttur Vestmannaeyjum með
368.8 kg. Aðalbjörg varð einnig
aflahæsti einstaklingurinn í
kvennaflokki með 182.5 kg en í
karlaflokki varð aflahæstur Kon-
ráð Jónsson frá Hafnarfirði með
213.7 kg.
Aflinn sem kom á land var af
margvísulegum toga. Stærsti fisk-
urinn var lúða sem vó 23.8 kg og
dró Konráð Árnason Akureyri
hana upp á þurrt. -v.
Alþjóðleg kvenna-
bókakynning í London
Um helgina fór fram alþjóðleg
kvennabókakynning í Jubilee Hall,
Covent Garden í London. Kynn-
ingin er sú fyrsta sinnar tegundar
og að henni stóðu kvennabókafor-
lög og kvennabókabúðir alls staðar
að úr heiminum.
Markmiðið með kynningunni
var fyrst og fremst að vekja athygli
á verkum kvenna, framlagi þeirra á
sviði bókmennta, stjómmála og
fræðimennsku. Sameiginlegt
vandamál kvenna um allan heim,
sé að þær eigi erfitt uppdráttar þeg-
ar þær reyni að gefa verk sín út.
Stóm bókaforlögin neiti að gefa út
verk eftir fræga höfunda og fræði-
menn, þar sem öll útgáfa þeirra
miði að sem mestri sölu. Ennfrem-
ur sé þessum forlögum nær undan-
tekningarlaust stjórnað af karl-
mönnum, sem meti verk kvenna
ekki út frá gæðum heldur sölu-
möguleikum.
í öðm lagi vildu kvennabók-
aútgefendur vekja athygli á því að
hjá fjölmiðlum séu það yfirleitt
karlmenn sem gagnrýni verk
kvenna, karlmenn sem ekki skilji
reynsluheim þeirra og finnist því
konur oft ekki vera að segja neitt
með skrifum sínum, eða eins og
algengt er að komi fram í umfjöllun
karlmanna um kvennaverk: „Það
gerist ekkert í þessari bók“.
Kynningin, sem stóð í þrjá daga
var sótt af tugþúsundum kvenna og
þó nokkuð var um að karlmenn
kæmu á bókamarkaðinn, þar sem
til sölu vom bækur eftir konur um
allan heim, bæði á frummálinu og í
enskri þýðingu. Fjöldi fyrirlestra
og umræðufunda var haldinn út um
alla borg í tengslum við kynning-
una og verða þeir og fleiri fyrir-
lestrar víðs vegar um Bretland á
næstu viku.
ss.
ELLI
Að hitta hinn eina sanna Ella,
látandi fara.vel um sig á kvenna-
bókamarkaði í London, er eitthvað
sem maður á ekki von á. En þar var
samt kauði, alsæll með sig í þeirri
kvennamergð sem var í Jubilee
Hall í London um helgina. Alltaf
samur við sig, kauðinn sá, og
höfðum við því samband við þær
Helgu Thorberg og Eddu Björg-
vinsdóttur, höfunda Ella, til að
spyrjast fyrir um þennan flæking
hans.
„Hann Elli, heldurðu ekki að
hann hafi endilega þurft að hafa
einhvern pata af þessari alheims-
kvennabókakynningu, ekki vitum
við hvemig. En allt um það, það
var ekki heimilisfriður fyrr en við
vomm búnar að lofa honum að fara
með hann til London. Við fengum
tvo kafla þýdda á ensku úr bókinni,
því Elli vill fá að koma sér í mjúk-
inn hjá konum „internationally"
eins og hann segir.
Þegar á sjálfan bókamarkaðinn
kom máttum við ganga með hann
milli bása sem forlögin höfðu þarna
í Jubilee Hall og kynna hann, og
það undarlega gerðist að honum
var geysilega vel tekið hjá flestum.
Við kynntum hann fyrir þrjátíu for-
lögum, frá Bretlandi, Bandaríkj-
unum, Frakklandi, Þýskalandi,
Norðurlöndum og Kanada. Bókin
heitir í enskri þýðingu „Laugh your
way to liberation“ og við dreifðum
þessum tveimur köflum sem höfðu
verið þýddir, ásamt bókinni á ís-
lensku. Það sem vakti mesta at-
hygli á bókinni, var að hún skyldi
vera fyndin. Það fannst útgefend-
um mjög sérstakur og nýr flötur í
baráttunni. Þeim þótti þetta öðru-
vísi bók og mjög óvenjuleg.
Nú, Elli sjálfur er alsæll, hann
skemmti sér ógurlega vel í London,
fannst hann vera aðalmaðurinn,
„fflaði sig“ ofsalega vel að vera eini
karlmaðurinn innan um allan
þennan kvennaskara og fannst
hann vera mestur og bestur á kynn-
ingunni. Hann er alveg á því að
London sé sko hans borg.
Núna er bara að bíða og sj á hvort
ÞAR
konurnar sem stóðu fyrir kynning-
unni og hittu Ella, hafi verið á sama
máli og hann. Eins og við sögðum
þá kynntum við hann fyrir um
þrjátíu forlögum og bíðum nú
spenntar eftir að fá að heyra við-
brögðin frá þeim. Vonum bara að
allt fari vel fyrir Ella“.
Til gamans má geta þess, að
undirrituð hitti Nancy Berano frá
Crossing Press, New York, á fyrir-
lestri og átti hún ekki orð yfir hrifn-
ingu sinni á Ella, sem henni fannst
eitt það fyndnasta fyrirbæri sem
hún hafði hitt og er því aldrei að
vita nema Elli eigi eftir að verða
næsti draumaprins bandarískra
kvenna. SS.
Beðið eftir Halldóri
Sjávarútvegsráðherra á nœsta leik, segir Ólafur Gunnarsson í Neskaupstað
,J>að kom svo sem ekki mjög
mikið út úr þessum fundi. Menn
ræddu hreinskilnislega málin og
ráðherrarnir segjast eitthvað ætla
að taka til hendinni og athuga hvað
sé til ráða. Ætlunin er að Halldór
Ásgrímsson hafi samband við okk-
ur og komi með tillögur hvað sé
framundan og leiði þetta verk.
Hann á því næsta leik“, sagði
Ólafur Gunnarsson framkvæmda-
stjóri Sfldarvinnslunnar i Neskaup-
stað í samtali við Þjóðviljann í gær.
Forráðamenn útgerðarfyrir-
tækja á Austurlandi áttu í gær-
morgun viðræður við forsætis- og
sjávarútvegsráðherra í Reykjavík
um rekstrarstöðu sjávarútvegsins,
en eins og kunnugt er hafa útgerð-
arfyrirtæki fyrir austan ákveðið að
leggja öllum togurum sínum síðar í
þessum mánuði, tryggi stjórnvöld
ekki sjávarútveginum viðeigandi
rekstrargrundvöll, en að mati út-
gerðarmanna er togaraflotinn rek-
inn með um 20% tapi um þessar
mundir.
„Ráðherramir lýstu því báðir
yfir að þeir teldu mikinn vanda á
ferðinni og voru ekki að tortryggja
okkur með það að okkur sýnist
þetta ekki ganga svona lengur,
þetta ætti heldur ekki að koma
neinum á óvart og menn haft
langan tíma til að búa sig undir
þessa hluti“, sagði Ólafur.
Fundinn í gærmorgun sátu auk
ráðherra og Austfirðinga, Kristján
Ragnarsson formaður LÍÚ, Árni
Benediktsson frá sjávarafurða-
deild SÍS og Eyjólfur ísfeld
Eyjólfsson forstjóri SH, en þessir
menn auk fleiri eiga sæti í sérstakri
samráðsnefnd sem skipuð var í síð-
ustu viku á vegum hagsmunaaðila
sjávarútvegsins að fmmkvæði
útgerðar- og fiskvinnsluaðila á
Austfjörðum.
-lg-
Breska fílharmonían leikur til styrktar tónleikahúsi
Höfðinglegt
„Þetta er höfðinglegt tilboð frá
Lundúnafilliarmóníunni og er að
sjálfsögðu þegið með þökkum,“
sagði Ai mann Örn Ármannsson,
einn fo.svarsmanna samtakanna
um tónleikahús í Reykjavík, um
væntanlega hljómleika í Londun í
þágu málefnisins. „Þetta er mikil
lyftistöng“.
Áður en breska hljómsveitin
hvarf af landi brott var tilkynnt
að hún mundi halda hljómleika í
London til styrktar tónleikahúsi í
Reykjavík og mun frumkvæðið
komið frá hljómsveitarmönnum
sjálfum.
Samtökin um tónleikahús hafa
óskað eftir lóð á Sigtúnssvæðinu
milli Suðurlandsbrautar og
Reykjavegar. Borgarskipulag
hefur þá ósk nú til umsagnar.
Ármann sagði enn ekki full-
ljóst hver kostnaður yrði við
byggingu tónleikahússins en
nefndar væru tölur kringum 200
milljónir. „Hvað við eigum? Það
verður nú ekki talið í mörgum
milljónum. En það stendur von-
andi til bóta. Við höfum ekki far-
ið fram á neina styrki frá opinber-
um aðilum. Fólkið í landinu verð-
ur að sýna það fyrst, að það vilji
þetta hús“. -m