Þjóðviljinn - 13.06.1984, Blaðsíða 10
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. júní 1984
ÚTBOÐ
Háskóli íslands
Skólahús við Hjarðarhaga
Tilboð óskast í að steypa upp og fullgera að utan hluta
af nýbyggingu fyrir verkfræði- og raunvísindadeild H I.
Þessi hluti er kjallari og ein hæð, 800 m2 að grunnfleti
auk milligólfa í hluta hæðarinnar. Þegar hefur verið
grafið fyrir húsinu öllu.
Verkinu skal að fullu lokið 1. febrúar 1985.
Útboðsgögn verða afhent í skrifstofu vorri, Borgartúni
7, gegn 3.000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á
sama stað þriðjudaginn 3. júlí 1984, kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKpRBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Vinnueftirlit ríkisins,
Síðumúla 13, sími 82970.
Deildarverk-
fræðingur
íefnaverkfræðingur)
Laus er til umsóknar staða deildarverkfræð-
ings hjá stofnuninni.
Starfið er m.a. fólgið í því að fjalla um öryggis-
þætti vegna geymslu, flutnings og notkunar
eiturefna og hættulegra efna á vinnustöðum
og áætlanir um ný iðnfyrirtæki á sviði stóriðju
og efnaiðnaðar m.t.t. öryggis- og hollustu-
hátta á vinnustöðum. Ennfremur að vinna að
ráðgjöf og leiðbeiningum um varnir gegn
mengun, hávaða, titringi o.fl. á vinnustöðum.
Gert er ráð fyrir að viðkomandi fái sérstaka
starfsþjálfun á vegum stofnunarinnar.
Laun skv. kjarasamningi ríkisstarfsmanna.
Umsóknir um aldur, menntun og fyrri störf
skilist til Vinnueftirlits ríkisins fyrir 29. júní n.k.
FJÓRÐUNGSSJÚKRA-
HÚSIÐ Á AKUREYRI
Lausar stöður hjúkrunarfræðinga:
Deildarstjóri á gjörgæsiudeild frá 1. september, 100%
starf.
Deildarstjóri á speglunardeild (rannsóknir) frá 1. sept-
ember, 50% starf.
Hjúkrunarfræðingar á gjörgæsludeild, skurðdeild, svæf-
ingadeild, öldrunardeildir og handlækningadeild frá
september. Heil störf eða hlutastörf.
Umsóknarfrestur um stöður deildastjóranna er til 14. júlí.
Umsóknir sendist hjúkrunarforstjóra F.S.A., sem einnig
veitir aðrar upplýsingar í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
KENNARA VANTAR
að Hafnar- og Heppuskóla Höfn.
1. Tvo sérkennara, kennsla í 1. til 9. bekk.
2. Smíðakennara, kennsla í 1. til 8. bekk.
Einn kennara í ensku og íslensku í 7. til 9.
bekk.
Húsnæði til staðar. Upplýsingar veitir skóla-
stjóri Heppuskóla í síma 97-8321.
22 stúdentar útskrlfuðust í vor í framhaldsdeild Samvinnuskólans í Reykjavík. Þetta er 10. árgangur skólans og
náði Llnda Hrönn Arnardóttir frá Siglufirði besta árangrinum.
Eigendur og starfslið íshallarinnar við Hjarðarhaga.
íshöll við Hjarðarhaga
Eigendaskipti hafa orðiö á Isbúðinni við Hjarðarhaga og munu systurn-
ar Sigrún og Alda Magnúsdætur reka staðinn undir nafninu íshöllin.
Á boðstólum er Dairy Queen ís, pizzur, mexíkanski rétturinn Taco,
fjölbreyttur ísréttarseðill og sex bragðtegundir af kaffi sem hrært er út í
mjólkurhristing.
Tónlistarskólinn í Reykjavík:
Fyrstu nemendur
úr tónfræðadeild
Tónlistarskólanum í Reykjavík
var slitið þriðjudaginn 29. maí sl.
Fór skólauppsögnin fram í Há-
teigskirkju að viðstöddum kennur-
Nýtt
fyrirtæki
Bílvangur
Nýtt fyrirtæki, Bílvangur sf., hóf
rekstur fimmtudaginn 7. júní.
Stofnendur eru Jötunn hf. og Sam-
band íslenskra samvinnufélaga.
Hið nýja fyrirtæki yfirtekur alla
starfsemi á sviði bifreiðasölu og
-þjónustu sem Bifreiðadeild Sam-
bandsins annaðist áður, en hún
hefur nú verið lögð niður í sam-
ræmi við nýtt skipulag, sem nú er
að ganga í gildi innan Sambands-
ins.
Bílvangur rekur bifreiðasölu,
varahlutaverslun, hjólbarðasölu,
viðgerðarverkstæði og smurstöð -
allt á einum stað, að Höfðabakka
9.
um og nemendum. Þar voru braut-
skráðir 29 nemendur sem er stærsti
hópur sem lokið hefur burtfarar-
prófi í einu frá skólanum. Meðal
þeirra voru 6 nemendur úr tón-
fræðadeild, þeir fyrstu sem ljúka
þaðan námi, en deildin tók til
starfa haustið 1981. Nám í
deildinni miðast við nám til B.A.
prófs við erlenda tónlistarháskóla.
Er þetta merkur áfangi í sögu
skólans, en þar er stefnt að því að
veita æðri menntun á sem flestum
sviðum tónlistar. Aðrir nemendur
sem luku burtfararprófi að þessu
sinni voru einleikarar, einsöngvar-
ar og nemendur úr hinum ýmsu
kennaradeildum skólans.
Skólastarfið hefur verið afar
fjölbreytt og blómlegt í vetur. Op-
inberir tónleikar voru yfir 20 auk
fjölmargra tónleika innan skólans
og mörg námskeið haldin með er-
lendum kennurum.
í skólaslitaræðu sinni minntist
Jón Nordal, skólastjóri, Björns Ól-
afssonar konsertmeistara sem lést í
mars sl., en Björn var yfirkennari í
strengjadeild skólans í áratugi og
stjórnandi Hljómsveitar Tónlistar-
skólans.
Nýtt blað
um bygg-
ingariðnað-
inn
Fyrsta tölublað BYGGINGA-
MANNSINS, nýs tímarits um
byggingaiðnaðinn á íslandi, er
komið út. Ritið er 104 blaðsíður að
stærð, og flytur fjölbreytilegt efni
um málefni byggingaiðnaðarins,
svo sem um útboð verklegra fram-
kvæmda, byggingarannsóknir,
tryggingamál, félagsmál bygginga-
manna, þróun fasteignamarkaðar-
ins, lánamál húsbyggjenda, fram-
leiðslu einingahúsa, íslenska ofna-
framleiðslu, skrifstofuhúsgögn á
markaði hérlendis, nýjungar í ork-
usparnaði og margt fleira. Stuttar
fréttir eru úr ýmsum áttum, sagt frá
sumarleyfismöguleikum í sumar,
fjallað um heppilega bíla fyrir
byggingamenn og þá sem eru að
byggja, og fleira mætti nefna.
Utgefandi Byggingamannsins er
útgáfufélagið Fjölnir hf. sem með-
al annars gefur út tímaritið
BÓNDANN. Samkomulag hefur
tekist um það milli Fjölnis hf. ann-
ars vegar og Sambands bygginga-
manna og Meistarasambands
byggingamanna hins vegar, að rit-
inu verði dreift endurgjaldslaust til
félaga sambandanna tveggja, sem
eru um 4 þúsund talsins. Auk þess
er Byggingamaðurinn seldur í á-
skrift til einstaklinga, félaga, fyrir-
tækja og stofnana, og ritið er selt í
blaðsölum og byggingavöruversl-
unum víða um land.
Hjördís
Hákonar-
dóttir
formaður
Amnesty
Aðalfundur íslandsdeildar
AMNESTY INTERNATIONAL
var haldinn 30. apríl sl. Séra Bern-
harður Guðmundsson sem verið
hafði formaður sl. starfsár gaf ekki
kost á sér til endurkjörs, og var
Hjördís Hákonardóttir, borgar-
dómari, kjörin í hans stað. Aðrir í
stjórn eru: Bergljót Guðmunds-
dóttir, læknaritari, Sigríður Ing-
varsdóttir, lögfræðingur, Ævar
Kjartansson, dagskrárfulltrúi,
Haraldur Ólafsson, lektor og vara-
menn séra Bernharður Guð-
mundsson og Jóhanna Jóhannes-
dóttir tæknifræðingur.
íslandsdeildin hefur haldið uppi
öflugu starfi í vetur og má t.d.
nefna „Herferð gegn pyntingum“
sem mun standa yfir allt árið.
Margir nýir félagar hafa bæst í hóp-
inn á starfsárinu og ýmislegt er á
döfinni.