Þjóðviljinn - 13.06.1984, Síða 8

Þjóðviljinn - 13.06.1984, Síða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINNI Miðvikudagur 13. júní 1984 Gæsahúð í Laugardal Áriö 1974 kom hér stór sinfóníuhljómsveit á Listahátíö og lék tvisvar í Laugardalshöll. Þaðvar London Sinfony Orchestra undirstjórn Andrey Previn. Ég fór þá bæði kvöldin og fyrra kvöldið náði ég sæti frekar aftarlega niðri, og það verður að segjast eins og er að það var á mörkum að þessi fræga og mikla hljómsveit næði eyrum mínum sökum slæms hljómburðar í Höliinni. Seinna kvöldið ætlaði ég ekki að brenna mig á þessu sama og varkominnklukkutímaáður en hljómleikarnir áttu að byrja og stillti mér upp við dyrnar. Um leið og hleypt var inn tók ég til fótanna og hlammaði mér beintfyriraftan leikkonunaMiu Farrowsem þá var gift Previn. Hún sat á fremsta bekk fyrir miðju. Og þarna naut ég Fimmtu sinfóníu Prokoffiefs og annarra verka þannig að þau fóru beint í æð. Sjaldan hef ég orðið jafn uppnumin á hljómleikum. Með þessa reynslu í huga var ég mættur þremur korterum fyrir byrjun á tónleika Fflharmoníu- híjómsveitarinnar í London á laugardaginn var og náði að setj- ast nokkuð framarlega en fjórir fyrstu og bestu bekkirnir voru að þessu sinni uppteknir fyrir vini, vandamenn og aðra, og ekki varð Askenasí spllar og stjórnar um lelð maður fyrir vonbrigðum. Strax í fyrsta verkinu, Gæsamömmu- svítu eftir Ravel, kom í Ijós hin undurþýði tónn Fflharmoníu- hljómsveitarinnar. Þegar strengir fiðlanna voru stroknir var eins og einn maður væri að vekri, svo hámákvæmt og ómþýtt var strok- ið. Annað verkið á efnisskránni var þekktur píanókonsert eftir Mozart eða nánar tiltekið K 456. Og þar lék sjálfur meistarinn Vla- dimir Askenasí einíeik ásamt því að stjóma hljómsveitinni. Þeir sem fylgst hafa með ferli Asken- asís segja að stfll hans hafi breyst mikið hin síðari ár. Snillingurinn hafi breyst úr fullkomnum „tekn- iker“ (kannski dálítið vélrænum á köflum) í tilfinningaríkan túlk- anda. Þessi konsert Mozarts er harmsár á köflum og stundum er eins og kveinin heyrist í gegnum tónana og allt kom það frábær- lega vel til skila svo að ekki sé meira sagt. Síðasta verkið á efnisskránni var ein af helstu sinfóníum finns- ka snillingsins Sibelíusar, nánar tiltekið sú fimmta. Þama keyrði hljómsveitin fyrst á fullu og ands- tæðurnar í verki Síbelíusar hleyptu á köflum hömndinu upp í gæsahúð. Það væri ómetanlegt ef hægt væri oftar að fá bestu sinfóníu- hljómsveitir heimsins til að staldra hér við á leið sinni yfir hafið og hollt fyrir Sinfóníu- hljómsveit íslands að fá svolítinn samanburð öðm hverju og er það alls ekki sagt henni til lasts. -GFr Hornfirðingar á Listahátíð: Heimurinn á hvolfi Leikfélag Hornafjarðar Elliærisplanið eftir Gottskálk leikstjóri Bryiya Benediktsdótt- ir. Hornfirðingar og Borgnesingar vom fulltrúar áhugamannaleik- húss á Listahátíð. Borgnesingar komu með Dú&iaveisluna, um margt vandaða sýningu, sem gerð vom nokkur skil í blaðinu fyrr í vetur. Homfirðingar komu svo með spánýjan gamanleik eða ærslaleik eftir Gottskálk sem er maður franskur, en hefur þetta glögga gestsauga á furður íslensks mannlífs, sem hefur dugað honum til margra skemmtilegra verka. Elliærisplanið hefur mörg ágæt einkenni tegundarinnar: þar er orðheppni, misskilningur, manna- villt, feluleikir, ótímabærir mann- fundir og aðrar slíkar uppákomur fyrir nú utan það, að eiginlega er búið að steypa heiminum á hvolf og hin aldraða sveit er orðin hálfu meira sósíalt próblem en ungling- arnir. Og eins og höfundur segir sjálfur „Persónur... koma á sviðið þegar enginn þarf á þeim að halda. Höfundurinn ýtir þeim inn, áhorf- andinn fangar því að sjá þær og þær sjálfar bjarga sér eftir bestu getu - því verr, því betra“. Brynja Benediktsdóttir hefur í samvinnu við áhugasama Hornfirðinga gert úr þessu efni skemmtilega sýningu. Bömin í plássinu hafa lagt til hugmyndir sem Brynja hefur unnið úr við gerð leiktjalda sem héldu prýðisvel lífs- gleði barnateikninga. Að vísu get- ur hún ekki yfirstigið þann þrö- skuld sem erfiðastur er: að ná „jafnstöðu“ í leik áhugafólks. Og af þeim sökum kom það fyrir stundum í hópsenum, að vand- ræðin á sviðinu urðu líka að vand- Árnl Bergmann skrifar um leikhús ræðum Ieikendanna. En allt um það: vanir og öruggir leikendur hafa yfirhöndina og tryggðu það að „vandræðin“ urðu bara stund milli skemmtistríða. Ingunn Jensdóttir er í aðalhlutverkinu, hún leikur Rósu sem þarf að láta margt yfir sig ganga, á eiginmann á Hrauninu, ef hann hefur ekki lagst í strok, og viðhaldið endurfundna orðinn náttúrulítill - kemur þetta allt hennar stríð til skila með ágætum Rósa (Ingunn Jensdóttlr) og Finnur (Haukur Þorvaldsson) eins og til stóð. Gísli Arason er faðir hennar, gamalmenni með unglingaveiki, og átti greiðar leiðir að hláturtaugunum. Ekki síst er appalegur og sjálfumglaður í senn ástæða til að lofa Hauk Þorvalds- - small margt ljómandi vel saman í son sem var elskhuginn Finnur, ál- þeirri persónusmíð. Selló- og gítarhljómleikar í Bústaðakirkju í kvöld Hafliði og Pétur í kvöld eru hljómleikar í Bústaðakirkju á vegum Listahátíðarog leika þeir Hafliöi Hallgrímsson sellóleikari og Pétur Jónasson gítarleikari. Á efnisskrá eru m.a. tvö verk eftir Hafliða sjálfan: annars vegar „Five Studiesfor Jakob’s Ladder”, frumflutningur hérá landi á verki fyrir einleiksgítar, hins vegar T ristía fyrir gítar og selló, einnig frumflutningurhér. Þá eru á efnisskrá sónata fyrir gítar og selló frá barokktímanum, Tilbrigði við Folía de Espana og fúga eftir Manuel Ponce fýrir ein- leiksgitar og Prjár bagatellur tynr einleiksgítar eftir William Walton. Hafliði Hallgrímsson er búsettur í Edinborg og er nú fyrsti sellóisti skosku kammerhljómsveitarinnar. Hann stundaði nám hér heima, á Ítalíu og í London og vann til verð- launa á námsárum sínum. Hann hefur víða komið fram sem ein- leikari og m.a. leikið með ensku kammerhljómsveitinni, Menuhin hátíðarhljómsveitinni og Haýdn strengjatríóinu. Hafliði hefur verið útnefndur félagi Konunglegu tón- listarakademíunnar í London. Hafllði Hallgrímsson Pétur Jónasson er aðeins 25 ára að aldri og starfar nú í Reykjavík sem einkakennari og einleikari. Hann lagði stund á gítarnám hjá Eyþóri Þorlákssyni en fór síðan í framhaldsnám til Castres í Frakk- landi þar sem Joséx Luis Gonzáles var kennari hans. Síðan var hann Pétur Jónasson tvö ár í námi hjá Manuel L Ramos við gítarskólann í Me: borg og aftur í hitteðfyrra. I hefur haldið einleikstónleil Norðurlöndum, í Kanada, Bí ríkjunum, Skotlandi og Mexí

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.