Þjóðviljinn - 15.06.1984, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. júní 1984
ALÞYÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið, Vestfjörðum
Sumarferð
Sumarferðin verður 30. júní og 1. júlí. Farið verður í Inn-Djúpið og gist
við Dalbæ á Snæfjallaströnd. Kvöldvökustjóri verður Finnbogi Her-
mannsson. Verð kr. 900 fyrir fullorðna, hálft gjald fyrir yngri en 12 ára
og frítt fyrir yngri en 5 ára.
Þátttaka tilkynnist til umboðsmanna sem veita nánari upplýsingar:
Hólmavík: Rut Bjarnadóttir sími 3123,
Bæjarhreppur: Björgvin Skúlason, Ljótunnarstöðum,
A-Barð: Gísella Halldórsdóttir, Hríshóli, sími 4745,
Barðaströnd: Einar Pálsson, Laugarholti, sími 2027,
Patreksfjörður: Gróa Bjarnadóttir, sími 1484,
Tálknafjörður: Steindór Halldórsson, sími 2586,
Bíldudalur: Halldór Jónsson, sími 2212,
Þingeyri: Davíð Kristjánsson, sími 8117,
Flateyri: Jón Guðjónsson, sími 7764,
Súgandafjörður: Þóra Þórðardóttir, sími 6167,
ísafjörður: Elín Magnfreðsdóttir sími 3938, Hallgrímur Axelsson, sími
3816 og Þuríður Pétursdóttir sími 4082,
Bolungarvík: Gunnar Sigurðsson, sími 7389,
Súðavík: Ingibjörg Björnsdóttir, sími 6957,
Djúp: Ástþór Ágústsson, Múla,
Reykjavík: Guðrún Guðvarðardóttir, sími 81333.
Kjördæmisráð.
Alþýðubandalagið Hafnarfirði
Bæjarmálaráðsfundur
ABH boðar til bæjarmálaráðsfundar mánudaginn 18. júní kl. 20.30 í
Skálanum, Strandgötu 41.
Undirbúningur fyrir síðasta bæjarstjórnarfund fyrir sumarleyfi.
Nefndarmenn hvattir til að mæta. Fundurinn opinn öllum félögum.
Stjórnin.
Almennir fundir
á Austuriandi
Alþingismennirnir Helgi Selj-
an og Hjörleifur Guttormsson
verða á almennum fundum
sem hér segir:
Hjörleifur Helgi
Höfn í Hornafirði fimmtudaginn 14. júní kl. 20.30.
Djúpavogi föstudaginn 15. júní kl. 20.30.
Fundirnir eru öllum opnir. - Alþýðubandalagið
i Æskulyösfylking Alþyöubandalagsins
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra:
Sumarhátíð
Sumarhátíð verður haldin 6.-8. júlí á bökkum Smjörhólsár í Öxarfirði,
N-Þingeyjarsýslu. Þeir sem hyggja á þátttöku, láti skrá sig sem fyrst
hjá: Guðbjörgu Vignisdóttur, Kópaskeri s. 52128, örlygi H. Jónssyni,
Húsavík, s. 41305 og 41803 eða Heimi Ingimarssyni, Akureyri, s. i
24886 eða 26621.
Nánari upplýsingar um mótsstað og tilhögun hátíðarinnar verða birtar
síðar. Stjórn Kjördæmisráðs.
Stefnuumræðan
Til allra Alþýðubandalagsfélaga: Munið spurningalistann. Svarið og
sendið til flokksmiðstöðvarinnar Hverfisgötu 105 sem fyrst. - (síðasta
lagi 15. júní. - Nefndin
Vinningsnúmer í
Vorhappdrætti ABR
Vinningar nr. 1-3 sem voru ferðavinningar í leiguflugi með
Samvinnuferðum/Landsýn að verðmæti kr. 20 þús. hver, komu á miða
nr. 64, 2610 og 5090.
Vinningar nr. 4-6 sem eru ferðavinningar í leiguflugi með
Samvinnuferðum/Landsýn að verðmæti kr. 15 þús. hver, komu á miða
nr. 33, 163 og 3436.
Vinninga skal vitja á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Hverfisgötu
105.
Alþýðubandalagið í Kópavogi:
Jónsmessuhátíð
Sumarferð ABK í Veiðivötn verður farin 23.-24. júní. Gist verður í
skála Ferðafélags íslands og í tjöldum. Gjald 500-800 krónur.
Upplýsingar gefa Friðgeir sími 45306, Sigurður Hjartar sími 43294
og Sigurður Flosa sími 40163.
Nánar auglýst síðar. - Stjórn ABK.
Alþýðubandalagið á Akureyri:
Aðalfundur bæjarmálaráðs
Aðalfundur bæjarmálaráðs verður haldinn mánudaginn 18. júní kl.
20.30 í Lárusarhúsi. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Um-
ræður um meirihlutasamstarfið og stöðuna í bæjarmálunum. 3. Dag-
skrá bæjarstjórnar 19. júní. .
Félagar, mætið vel og stundvíslega. btjornin.
Verkalýðsmálanefnd
Stjórn Verkalýðsmálanefndar /EfAb er boðuð til fundar á laugardag,
16. júní kl. 14 að Hverfisgötu 105.
Dagskrá: 1. Fundur um skipulagsmál ASÍ. 2. Blað verkalýðsmála-
nefndar. 3. Önnur mál. Formaður.
Höfrungurinn lék listir sínar meö miklum buslugangi og við fagnaðarlæti áhorfenda. (Ljósm. Loftur)
Unaður í Sædýrasafninu
Leikskólinn Arnarborg
í Reykjavík gerði sér ferð
suður í Hafnarfjörð á
miðvikudaginn til að
skoða öll dýrin. Mikill
spenningur ríkti fyrir
skoðunarferðina, enda
höfðu fæst barnanna séð
svona dýr nema kannski á
mynd.
Á leiðinni suðureftir
var mikið skrafað og
skeggrætt um dýrin og velt
litlum vöngum yfir því
hvaða dýr væru góð og
hvaða dýr vond. Voru
ísbirnir til dæmis vondir
eða góðir? Eða aparnir?
Einhver úr hópnum hafði
heyrt um geit, sem át ekki
bara poppkorn - heldur
gleypti hún í sig pokann
líka. Skyldi hún vera góð?
Leiðsögumaður
safnsins lóðsaði hópinn
um safnið og gaf dýrunum
að éta, svo þau hreyfðu sig
nú eitthvað fyrir gestina.
Og gestirnir tóku nær öllu
af jafn miklum fögnuði.
Ljónin hreyfðu sig ekki
neitt og því ríkti lítill áhugi
í hópnum á þeim. En
kengúruunginn fékk
Ætll hún bíti nokkuð þótt ég teygi fram fingurinn? (Ljósm. Loftur)
óspart lof í lófa og margir
fengu að klappa og finna
hvað hann væri mjúkur,
og sömuleiðis kanínurnar
Sum voru svolítið hrædd,
en vekur ekki allt nýtt
hræðslu með okkur?
Eftir ferðina eru öll
dýrin góð í hugum litlu
gestanna - ekki nokkur
vafi. Eða fengum við ekki
að klappa þeim - án þess
að þau bitu? Og lék ekki
höfrungurinn við hvorn
sinn hreifa?
ast
„Skyldi þetta vera selurinn Snorri?" Einhver upplýsti, að selirnir í safninu
hefðu verið fjórir en nú væru þrír dauðir og bara einn á tffi. Þetta vakti að
vonum mikla sorg. (Ljósm. Loftur)