Þjóðviljinn - 15.06.1984, Blaðsíða 16
\þjoðviuinn\ Aöalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt aö ná í blaðamenn og aöra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er haegt aö ná í afgreiðslu blaösins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81663
Föstudagur 15. júní 1984 81333 81348
Listahátíð
Halliiin um þrjár miljónir
Kostnaður listekkra hjóna á níunda þúsund
Hallinn á Listahátíð 1984 verður varla
undir þremur milljónum króna að sögn fram-
kvæmdastjórans, Bjarna Ólafssonar. í viðtali
við hann í Þjóðviljanum í dag koma fram
vonbrigði yfir aðsókn nema að helstu at-
riðum. Af orðum Bjarna má einnig ráða að
flaustursleg viðbrögð ráðamanna við væntan-
legum halla hafi hamlað nauðsynlegu
kynningar- og auglýsingastarfi kringum há-
tíðaratriði. Rokkþáttur hátíðarinnar, sem oft
hefur fært björg í bú, Norrokkið, var „eyði-
lagt með beinu útsendingunni á rás 2“.
í blaðinu í dag er ennfremur greint frá
hátíðarferli ímyndaðra hjóna, Jóns og
Gunnu, sem eru sæmilega duglegt listáhuga-
fólk. Þau borga 8660 krónur fyrir aðgöngu-
miða sína.
Sjá bls. 2
Ólympíuleikar fatlaðra 1984
—s---------------------
Atján fara
frá íslandi
Eins og áður hefur komið fram áttu Olymípuleikar fatlaðra að fara fram
í New York og Illinois í Bandaríkjunum. Mótshöldurum í Illinois tókstekki
að afla nægs fjármagns til að halda sinn hluta leikanna og voru þeir því
fluttir til Englands, nánar tiltekið til Stoke - Mandeville í Aylsbury.
Ólympíunefnd íþróttasambands
fatlaðra hefur valið 18 þátttakendur
á leikana sem fara fram 16.-30.
júní. Þau eru: Jónas Óskarsson,
Snæbjörn Þórðarson. Eysteinn
Guðmundsson, Oddný Óttarsdótt-
ir og Sigrún Pétursdóttir sem munu
keppa ísundi, HaukurGunnarsson
og Guðjón Skúlason í frjálsíþrótt-
um og Hafdís Gunnarsdóttir, Haf-
dís Asgeirsdóttir og Sævar Guð-
jónsson í borðtennis. Allir þessir
einstaklingar hafa náð þeim lág-
mörkum sem alþjóða Ólymípu-
nefnd fatlaðra hefur sett.
Á Ólymípuleika mænuskaðaðra
sem verða haldnir á sama stað dag-
ana 21. júlí til 2. ágúst hafa verið
valin Elsa Stefánsdóttir, Guðný
Guðnadóttir og Viðar Guðnason í
borðtennis, Baldur Guðnason,
Reynir Kristófersson í frjálsíþrótt-
um og Edda Bergmann og Anna
Geirsdóttir í sundi.
í tilefni af ferðinni á Ólympíu-
leikana vill ólympíunefndin koma
á framfæri þakklæti til allra þeirra
sem lagt hafa henni lið fjárhagslega
og við annan undirbúning að þátt-
töku íslands í VII. Ólympíuleikum
fatlaðra 1984. Auk þessa vill ólym-
píunefndin þakka Ingólfi Ósk-
arssyni umboðsmanni Puma alveg
sérstaklega, en íþróttagallar og
annar fatnaður þátttakenda er frá
Puma. —ss
íslensku þátttakendurnir voru að ferðbúast er blaðamenn Þjóðviljans litu við í gær. Ljósm. eík.
WBi 6A
Útgerðarmenn
á Norðurlandi
Olíufélögin
taki á sig
hækkunina
Þjónustufyrirtæki útger'ð-
arinnar verði látin bera sinn
toll, var álit fundar útvegs-
manna á Norðurlandi þar sem
m.a. var lagt til að boðuð
hækkun á oliuverði komi ekki
út í verðlagið, heldur verði
olíufélögin látin bera hana
sjálf með sínu eigin fé.
„Menn eru frekar fram-
lágir. Staðan hér fyrir norðan
er mjög erfið en menn ætla að
reyna að þrauka eitthvað
áfram. En það liggur alveg
ljóst fyrir að ef stjórnvöld gera
ekkert í þessum málum alveg
á næstunni, þá munu skip hér
stöðvast", sagði Sverrir
Leósson formaður útvegs-
mannafélags Norðurlands.
Á fjórða tug togara eru
gerðir út frá Norðurlandi og
sagði Sverrir að ástandið væri
almennt mjög siæmt, en
nokkuð mismikil teygja væri
hjá einstökum útgerðaraðii-
um.
„Við þykjumst vita að
stjórnvöld geri sér grein fyrir
stöðu mála og reiknum með
að þetta skýrist á næstunni og
við munum þá funda fljótlega
aftur“, sagði Sverrir. -|g.
Á að svíkja gamla fólkið?
Engin 2% hœkkun greidd á elli- og örorkulífeyrinn
„Þó þetta sé ekki há upphæð, eða
um 200 krónur í mínu tilfelli, þá er
óþolandi að ríkið skuli svíkja þenn-
an stóra hóp um 2% hækkun sem
launþegar fengu allir 1. júní. Það
veitir síst af þessum aurum, eða
hvernig á að borga allar hækkan-
irnar sem þeir eru að samþykkja á
matvöru og öðru?“ Þetta sagði ör-
orkulífeyrisþegi úti á landi í samtali
við Þjóðviljann í gær. Hinn 10.
þessa mánaðar hófst greiðsla líf-
eyrisbóta hjá Tryggingastofnun
ríkisins og fær fólk sömu upphæð
og í maí, þrátt fyrir umsamda 2%
hækkun launa 1. júni sl.
„Nei, það var ekkert rætt um
hækkun á lífeyrinum", sagði
Ólafur Björgólfsson, skrifstofu-
stjóri Tryggingastofnunar um
tryggingaráðsfund, sem haldinn
var í gærmorgun. „Menn hafa bara
verið að tala um þetta sín í milli,
ekki formlega í ráðinu. Þú verður
að snúa þér til ráðuneytisins, það
er ráðherra sem gefur út reglugerð
um hækkun á bótum. Trygginga-
stofnunin hefur ekkert með það að
gera“.
Þjóðviljinn reyndi árangurslaust
að ná tali af Matthíasi Bjarnasyni,
heilbrigðis- og tryggingaráðherra í
gær, en hann var þá á leið úr bæn-
um til fundahalda vestur á landi.
Þess má geta að þegar laun hækk-
uðu síðast, 1. mars sl., fengu líf-
eyrisþegar hækkunina ekki fyrr en
10. apríl.
Ellilífeyrir og örorkulífeyrir er
Álfundi í London lokið
Gengur ekkert hratt
segir Jóhannes
Nordal
„Þetta er alitaf að þokast en
gengur ekkert mjög hratt", sagði
Jóhannes Nordal formaður ál-
nefndar ríkisstjórnarinnar eftir að
síðustu viðræðulotu lauk í London
um fjögurleytið í gær. Engin niður-
staða fékkst á fundunum. Rætt var
um verðtryggingakerfi og skatta-
mál, en ekkert um hækkun á
grunnverði raforkunnar til Alusu-
isse.
Jóhannes sagði að ekki væru lík-
indi til að Alusuisse-menn segðu
upp bráðabirgðasamkomulaginu
nú í júní einsog þeir hafa rétt til, en
slík uppsögn hefði í för með sér
lækkun raforkuverðs til álversins
að þremur mánuðum liðnum.
„Þeir nota sér þetta ekki“, sagði
Jóhannes, „þetta hefur dregist
vegna veikinda hjá þeim“. Næsta
fund á að halda í Reykjavík, senni-
lega 18.-19. júlí. Verður þá fram
haldið umræðu um verðtryggingar
og skattamál og jafnvel minnst á
grunnverð raforku, að sögn Jó-
hannesar.
íslensku nefndarmennirnir eru
væntanlegir heim um og eftir helgi.
-m
nú 3.378 krónur á mánuði, full
tekjutrygging 4.728 krónur og
heimilisuppbót 1.422 krónur á
mánuði. Ef einstaklingur hefur
einnig sjúkrauppbót fær hann
10.342 krónur til að lifa af á mán-
uði. _ÁI
Ný rækjuvinnsla
Veitir 40
manns
atvinnu
Ný rækjuverksmiðja tók til
starfa á Árskógssandi um síð-
ustu helgi. Þar vinna um 40
manns við vinnsluna og er
tekið við afla 8-9 báta. Hér er
um hlutafélög að ræða og vek-
ur athygli að 178 sveitungar úr
byggðinni í kringum Ár-
skógssand eiga hlutabréf í
hinni nýju verksmiðju, en það
lætur nærri að nánast hver
fullorðinn maður eigi hlut í
rækjuvinnslunni!
Þar sem hin nýja rækju-
verksmiðja er til húsa var rek-
in saltfiskverkun áður. Hlut-
afé er 8 miljónir króna sem
skiptist þannig að Kaupfé-
lagið á 2>/2rniljón, xh miljón er
í eigu sveitarfélagsins og af-
ganginneiga 178einstaklingar
úr hreppnum. -v./EP.