Þjóðviljinn - 15.06.1984, Side 15

Þjóðviljinn - 15.06.1984, Side 15
RUV 1 7.00. Veðurfregnir. Fréttir. Bæn í bitið. 7.25 Leikfimi. 7.55 Dagiegt mál. Endurt. þáttur Marðar Ámasonar frá kvöldinu áður. 8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgunorð - Þórtiildur Ólafs talar. 9.05 Morgunstund barnanna: „Gimbrín hennar Grýlu“, smásaga eftir Bergþóru Pálsdóttur. Anna Sigríður Jóhannsdóttir les. 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. Þulur velur og kynnir. 10.45 „Mér eru fornu minnin kær“ Einar Krist- jánsson frá Hermundarfelii sér um þáttinn (RÚVAK). 11.15 Tónleikar. 11.30 Möttuls saga - seinni hluti. Edingur E Halldórsson les. 14.00 „Endurfæðingin“ eftir Max Ehrlich. Þorsteinn Antonsson les þýðingu sína (12). 14.30 Miðdegistónleikar. Nýja filhormóniu- sveitin leikur þætti úr Spænskrí svitu eftir Isaac Albéniz; Rafael Frúbeck de Burgos stj. 14.45 Nýtt undir nálinni. Hildur Eiríksdóttir kynnir nýútkomnar hljómplðtur. 15.30 Tilkynningar. Tónleikar. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Siðdegistónleikar. Ruggiero Ricci leikur á fiðlu með Sinfóníuhljómsveit Lundúna „Carmen-fantasíu” ettir Bizet- Sarasate; Pierino Gamba stj. / Christina Ort- iz leikur á píanó með Filharmóníusveiit • Lundúna „Momoprecóce", fantasiu eftir Heitor Villa-Lobos; Vladimir Ashkenazy stj. 17.00 Fréttir á ensku. 19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar. 19.50 Við stokkinn. Stjómandi: Gunnvör Braga. 20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thoro- ddsen kynnir. 20.40 Kvöldvaka. a. Ferskeytlan er Frónbú- ans. Sigurður Jónsson frá Haukagili flytur visnaþátt. b. Karíakórinn Þrymur syngur. Stjómandi:. Sigurður Sigurjónsson. c. Dal- amannarabb. Ragnar Ingi Aðalsteinsson raeðir við Elínu Guðmundsdóttur. 21.10 Samleikur i útvarpssal. Lárus Sveins- son, Jón Sigurðsson, Joseph Ognibene, William Gregory og Bjami Guðmundsson leika verk fyrir málmblásarakvintett eftir Jo- han Pezel, Samuel Scheidt, Jón Ásgeirs- son, Johann Sebastian Bach og Calvert. 21.35 Framhaldslelkrít: „Hinn mannlegi þáttur" eftir Graham Greene. Endurtek- inn VI. og síðasti þáttur: „Flóttinn". 22.35 Risinn hvitl eftir Peter Boardman. Ari Trausti Guðmundsson les þýðingu sína (7). Lesarar með honum: Ásgeir Sigurgests- son og Hreinn Magnússon. 23.00 Listahátíð 1984: Einar Jóhannesson og Músikhópurinn. Hljóðritun frá tón- leikum í Bústaðakirkju fyrr um kvöldið; fyrri hluti. - Kynnir: Sigurður Einarsson. 23.50 Fréttir. Dagskráriok. Næturútvarp frá RÁS 2 til kl. 03.00. ruv e 10.00-12.00 Morgunþáttur. Kl. 10.00; (s- lensk dæguriög frá ýmsum tímum, Kl. 10.25-11.00: Viðtöl við fólk úr skemmtanalífinu og víðar að. Kl. 11.00- 12.00: Vinsældariisti Rásar-2 kynntur í fyrsta skipti eftir val hans', sem á sér stað á fimmtudögum kl. 12.00-14.00. 14.00-16.00 Pósthólfið. Lesin bréf frá hlust- endum og spiluð óskalög þeirra ásamt ann- arri léttri tónlist. Stjómandi: Valdís Gunnars- dóttir. 16.00-17.00 Bylgjur. Framsækin rokktónlisf. Stjórnandi: Asmundur Jónsson. 17.00-18.00 í föstudagsskapi. Þægilegur músíkþáttur i lok vikunnar. Stjórnandi: Helgi Már Barðason. 23.15-03.00 Næturvakt á Rás-2. Létt lög leikin af hljómplötum, í seinni parti nætur- vaktarinnar verður svo vinsældarlistinn endurtekinn. Stjórnandi: Ólafur Þórðarson. (Rásir 1 og 2 samtengdar með veðurfregnum kl. 01.00 og heyrist þá í Rás-2 um allt land) RUV 2 Föstudagur 15. júní 19.35 Umhverfis jörðina á áttatfu dögum. Sjötti þáttur. Þýskur brúðumyndaflokkur. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. Sögumaður Tinna Gunnlaugsdóttir. 19.45 Fréttaágríp á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.40 Myndllstarmenn. Helgi Gíslason, myndhöggvari. 20.45 Á döfinni. Umsjónarmaður Kari Sig- tryggsson. Kynnir Bima Hrólfsdóttir. 20.55 Grfnmyndasafnið. Skopmyndasyrpa frá árum þöglu myndarina með Chariie Chaplin, Larry Semon o.fl. 21.10 Þögla olíustrfðlð. Sænsk fróttamynd um togstreitu Norðmanna og Sovétríkjanna um skiptingu Barentshafsins þar sem báðar þjóðir kanna nú möguleika á olíu- og gas- vinnslu. Þýðandi Jóhanna Þráinsdóttir. (Nordvision - Sænska sjónvarpið). 21.45 Vesalingarnir. (Les Miserables). Bresk kvikmynd frá 1978 gerð eftir samnefndri sögu eftir Victor Hugo. 00.10 Fréttlr f dagskrárlok. Föstudagur 15. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Kveðskapur litla mannsins“ „Litli maðurinn" sendi okkur þennan ágæta kveðskap fyrir allnokkru, en fyrir gleymsku sak- ir hefur dregist að birta hann. Vonum við að ekki komi að sök, þótt nokkuð sé liðið síðan ort var. Góð vísa er aldrei of oft kveðin - o.s.frv. Fjárlagagatið er feikilegt og friðurinn stöðugt í hœttu, leitað er hér og leitað er þar - að laununum þínum gœttu! Stormurinn nœðir um byggð og ból og birgðirnar þrotnar af vínum. En litli maðurinn leitar í skjól hjá langþráðum vini sínum. AUstaðar þar sem augað sér er útlitið dökkt fyrir landann. Lántaka eina lausnin er þó leysi hún engan vandann. Gengisfelling er gróðalind ef gœtilega er farið. Ef til vill vœri hún engin synd, það cetti að taka af skarið. Ráðleysið magnast og líður að nótt, leynast hcettur við boða. Komi nú ekki krónurnar fljótt er koppurinn sjálfur í voða. Og aðal-maðurinn ekur sér með ógreitt á höfðinu stríið. „Ég leiður á gatinu löngu er og langar að komast í fríið.“ Lagið „I Want to Break Free“ með Queen var komið niður í 6. sæti í síðustu viku á Rás 2. Rás 2 kl. 10-12: Vinsældalistinn kynntur Morgunþátturinn á Rás 2 er býsna fjölbreyttur í dag sem aðra daga og að auki bætist nú við spenningurinn yfir vinsældalista Sakamaðurinn og biskupinn í myndinni „Vesalingarnir". Vesalingarnir Sjónvarpið sýnir í kvöld kl. 21.45 breska kvikmynd, sem gerð var 1978 eftir sögu Victors Hug- os: „Vesalingarnir“ (Les Miser- ables). Mynd þessi fær þokkalega dóma í kvikmyndahandbókum okkar, tvær og þrjár störnur, og ætti því að vera ásjáleg. Sagan gerist í Frakklandi á síðari hluta 18. aldar. Harð- lyndur strokufangi tekur sinna- skiptum fyrir atbeina góðhjart- aðs biskups, byrjar nýtt líf undir nýju nafni og vegnar vel. En rétt- vísin hefur engan veginn sleppt hendinni af þessum sakamanni. Leikstjóri myndarinnar er Glenn Jordan og aðalhlutverkin eru í höndum Richard Jordan og Anthony Perkins. Þýðandi myndarinnar er Jón O. Edwald. Rásarinnar. Vinsældalistinn var í fyrsta skipti valinn af hlustendum í gær milli kl. 12.00 og 14.00 í gegnum síma og verður spenn- andi að heyra hver smekkur hlustenda fyrir tónlist var á þeim tíma í gær. Vikuna 8.-14. júní var vinsæl- asta lagið í þættinum „Wake Me Up Before Yo Go Go“ með hljómsveitinni Wham og hafði það þá skotist upp úr 7. sæti. í öðru sæti var lagið „Footlose" með Kenny Loggins og í þriðja sæti lagið „The Reflex“ með Dur- an Duran. Lagið „I Want to Break Free“ með Queen er nú komið niður í 6. sæti eftir nokkuð langa vist í efstu sætum. En svona er poppið: stutt gaman en skemmtilegt. í Morgunþættinum verða fyrst leikin íslensk dægurlög frá ýms- um tímum en milli 10.25 og 11.00 eru flutt viðtöl við fólk úr skemmtanalífinu og víðar að. Vinsældalistinn verður svo kynntur milli 11 og 12 og þar er um 10 lög að ræða. Það skal tekið fram, að vin- sældalistinn verður kynntur aftur á Næturvaktinni á Rás 2, en sú vakt hefst kl. 23.15 og stendur yfir til kl. 03.00 í nótt. Skrifið eða hringið Lesendaþjónusta Þjóðvilj- ans stendur öllum landsins konum og mönnum til boða, er vilja tjá sig í stuttu máli um hvaðeina sem liggur á hjarta. Nöfn þurfa að fylgja bréfi, en nafnleyndar er gætt sé þess óskað. Utanáskriftin er: Les- endaþjónusta Þjóðviljans, Síðumúla 6, 105 Reykjavík. Þá geta lesendur einnig hringt í síma 81333 alla virka daga milli klukkan 10 og 6. bridge Tvær af sterkustu sveitum landsins, sveitir Úrvals og Ólafs Lárussonr lentu saman I fyrstu umferð Bikarkeppni Bridge- sambandsins. Sveit Úrvals sigraði meö 30 impa mun. í síðustu lotunni kom þetta spil fyrir: x ÁK9 ÁKDx Á9xxx ÁGxxx G8x xx KGx Á öðru borðinu spiluðu Úr- vals menn 3 grönd og fengu einhverja slagi í því. Á hinu borðinu lentu Ólafs menn I 6 laufum, spiluöum í Noröur. Út- spil Austurs var smátt hjarta, gosi og drottning. Hvað viltu gerra næst? Taka laufás og kóng, tígulás og kóng og trompa tígul og svína svo fyrir hjartatíu? Eða hreyfa ekki laufið, taka ás og kóng í tígli og trompa svo þriðja tígulinn? Sagnhafi valdi síðari „kost- inn“, með þeim afleiðingum að Suður trompaði tígulkónginn og spiliö endaði svo 2 niður. Fyrri leiðin „virðist" blasa við, auk þess sem trompdrottningin lá þriðja rétt fyrir framan kóng- gosa. Þarna skiptu 26 ipmar um eigendur, sem er að vísu ekki alveg nóg, en samt... í við- kvæmum leik. Tikkanen Væri ekki hægt að skipta stjórnarfarinu og tíðarfar inu?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.