Þjóðviljinn - 22.06.1984, Side 3
FRÉTTIR
Hjónaskilnaðarbörnin
Efnahagurinn skiptir
Þessi frétt Þjóðviljans frá 14.
júní, sem tekin er úr grein
landlæknis í Heilbrigðismálum,
minnti mig á það hvernig nota má
tölfræðina á marga og mismun-
andi vegu. Það má t.d. sýna fram
á, að þegar fólk borðar mikinn ís
fjölgi þeim sem fá sólsting og
álykta, að ísát leiði til sólstings.
Þannig er það hins vegar ekki,
heldur hefur veðrið áhrif á hvort
tveggja.
Þetta sagði Hugo Þórisson, sál-
fræðingur hjá Sálfræðideild
skóla, er við leituðum álits hans á
þeim ummælum landlæknis, að
hjónaskilnaðarbörnum sé hætt-
ara við andlegum sjúkleika og
ýmsu öðru válegu en öðrum
bömum landsins.
„Dæmi af svipuðu tagi og ég
nefndi hér að ofan um misnotkun
tölfræðinnar er það atriði í grein
landlæknis, að góð fylgni sé á
milli vaxandi framlaga til félags-
mála og fjölgunar hjónaskilnaða.
Þessi ummæli má skilja sem svo,
að þegar framlög vaxa til félags-
mála hlaupi fólk út í hjónaskiln-
aði. Hvort tveggja er auðvitað af-
sprengi þess velferðarþjóðfélags,
sem við búum í, og hvomgt hefur
áhrif á hitt“.
Hugo bendir einnig á, að í
grein landlæknis, og þar með
frétt Þjóðviljans, sé hvergi bent á
hugsanlegan orsakavald þess, að
hjónaskiinaðarbörn eigi erfiðara
uppdráttar en börn, sem alast
upp hjá báðum foreldrum.
„Landlæknir vitnar í könnun Sig-
urjóns Bjömssonar, en að mínu
mati greinir hann ekki frá því sem
mestu máli skiptir. Sigurjón
komst að þeirri niðurstöðu, að
forsenda þess að athuga uppeld-
isskilyrði barna væri stéttarlegur
bakgmnnur þeirra - ekki það
hvort þau alast upp hjá einum
eða tveimur. Efnahagurinn
hlýtur auðvitað að setja mark sitt
á uppeldisskilyrði bama - og ein-
stæðir foreldrar, sem í flestum til-
fellum em konur, búa oft við
mestu
mjög bágan efnahag hér á landi. í
því liggur mergurinn málsins.
Það má einnig nefna hinn langa
vinnutíma, sem hér viðgengst, og
setur mjög mark sitt á heimilislíf
landsmanna - og það em börnin
sem tapa. Varhugavert er að út-
hrópa svona einn hóp þjóðfélags-
ins og stimpla hann sem lélega
foreldra. Hér er verið að fjalla
um lifandi fólk með tilfinningar. í
þessu tilfelli er um að ræða alvar-
legt mál, bæði fyrir einstæða for-
eldra og ekki síst bömin þeirra.
Svona skrif em þeim ekki til góðs
- ekki ef við emm í raun að hugsa
um velferð þeirra".
Hugo Þórlsson, sátfræðlngur:
„Hér á í hlut llfandl fólk með tilfinn-
ingar". (Ljósm. Atli)
TORGIÐ
Virkjanasamningar
Mér finnst Davíð ætti að fá orðu
fyrlr að veiða „kúkalaxlnn" - alla-
vega fyrir að borða hann
Rangæingar ganga út
VSÍ segir Tungnársamninga enn í gildi eftir ASÍ/VSÍ samkomulagið.
Rangœingar segja slíkt hreina ósvífni.
Ólíklegt að takist heildarsamningar fyrir virkjanir
G. Ólafsson
Svarafátt
Lyfja-
eftirlit
„Ég get nú ekki tilkynnt blöð-
unum úrslit minnar könnunar
áður en ég tilkynni heilbrigðis-
ráðuneytinu það“ sagði Sigurjón
Jónsson hjá Lyfjaeftirlitinu, þeg-
ar Þjóðviljinn spurði hann um úr-
slit rannsóknar Lyfjaeftirlitsins á
lyfjaheildversluninni G. Ólafs-
son hf. En ráðuneytið fól því að
gera slfka könnun í kjölfar
tveggja kæra sem því bárust á
hendur lyfjaheildsölunni fyrir
skömmu.
Sigurjón var jafnframt spurður
hvort margar kæmr hefðu borist
á hendur G. Ólafsson. Hann
svaraði því á eftirfarandi hátt:
„Ég vil ekkert um það segja“.
- En geturðu sagt hvort margar
kærur berist yfirleitt á hendur
lyfjafyrirtækjum?
„Ég treysti mér ekki til að ræða
það. Ég er sosum búinn að lesa
Þjóðviljann bæði í gær og í fyrra-
dag og geri mér grein fyrir því
sem lyfjafræðingamir hafa sagt á
þessum stöðum, og stefnir að
einu marki...“
-Sem er hvað?
„Ja, það ættir þú að vita betur
en ég“.
Aðrar upplýsingar vildi þessi
fámáli starfsmaður Lyfjaeftirlits-
ins, sem á að fylgja fram hags-
munum almennings í landinu og
er launaður af þessum sama al-
menningi, ekki láta uppi um kær-
ur á hendur lyfjaheildsölum.
-ÖS
Vinnuveitendasambandið lýsti
því yfir á samningafundi um
nýja virkjunarsamninga hjá sátt-
asemjara í gærmorgun að samn-
ingar fyrir Tungnársvæðið væru í
fullu gildi, þar sem með
samkomulagi ASÍ og VSÍ frá 21.
febrúar sl. hefðu fyrri samningar
verið framlengdir fram á mitt
næsta ár. Fulltrúar verkalýðsfé-
lagsins Rangæings telja hins veg-
ar að engir samningar séu í gUdi á
svæðinu, þeim hafí verið sagt upg
í fyrrahaust. Eftir yfírlýsingu VSI
í gær tUkynntu forráðamenn
Rangæings að þeir tækju ekki
lengur þátt í samningaviðræðum
um virkjunarsamninga.
„Mér finnst þetta hrein ósvífni
og Vinnuveitendasambandið er
hreinlega að draga dár að okkur.
Eftir að hafa staðið í fimm mán-
aða samningaviðræðum lýsa þeir
því yfir að fyrri samningur sé enn
í fullu gildi. Það er greinilegt að
þeir hafa aldrei ætlað sér að
semja við okkur“, sagði Hilmar
Jónsson formaður verkalýðsfé-
lagsins Rangæings í gær. Hann
taldi að VSÍ hafi óttast að verka-
lýðsfélögin myndu ná lykilbarátt-
ustöðu inni á Tungnársvæðinu
með nýjum samningum og því
væri gripið til þessa ráðs til að
tefja málin fram á haustið.
Samninganefndarmönnum
verkalýðsfélaganna í virkjunars-
amningum sem Þjóðviljinn ræddi
við í gær bar saman um að þetta
útspil VSÍ yrði til þess að engir
heildarsamningar yrðu gerðir
fyrir virkjunarframkvæmdir eins
og verkalýðsfélögin og Lands-
virkjun höfðu lýst áhuga sínum á.
Ásmundur Hilmarsson formaður
félags Byggingarmanna sagði að
vonandi tækist stjórn Landsvirkj-
unar sem kemur saman til fundar
í dag að höggva á þennan hnút,
en VSÍ fer með samningaumboð
fyrir hönd Landsvirkjunar. Þá
sagði Ásmundur að verkalýðsfé-
lögin þyrftu að kynna sér stöðu
mála betur áður en til frekari
samningaviðræðna kæmi og þá
m.a. fá álit og útskýringar forseta
ASÍ sem kemur til landsins í dag á
þeirri túlkun VSÍ á samningum
frá í febrúar að Tungnársamning-
ar séu enn í gildi.
Framkvæmdir við Blöndu hafa
tafist vegna samningagerðar og
sagði Sigríður Friðriksdóttir for-
maður Verkalýðsfélags A-
Húnvetninga að vel kæmi til
greina að gengið yrði til sérsamn-
inga um framkvæmdir á Blöndu-
svæðinu. -lg-
Álafoss
Nýl vefstóllinn á Álafossl er þegar farlnn að slnna sinu hlutverkl. Helmuth Groiss, verkstjórl í Vefna&ardelld,
fylgist með vinnubrögðum og sýnist ánæg&ur með þau. Mynd: Atli.
Ull
í fat
Ný prjónavél,
tvinningavél
og vefstóll
tekin í notkun
Við heyrðum undir væng að í
verksmiðjunni á Álafossi væri
verið að taka í notkun nokkrar
nýjar vélar, af ýmsum þjóðern-
um. Eru það prjónavél, tvinning-
arvél og vefstóll. Tvær eru þegar
teknar að „vinna ull í fat“, prjón-
avélin og vefstóllinn, en unnið er
að uppsetningu tvinningarvélar-
innar.
Blaðamaður og ljósmyndari
frá Þjóðviljanum brugðu sér upp
að Álafossi til þess að Iíta með
eigin augum þennan nýja véla-
kost, og hitta menn að máli.
Verður nánar greint hér í blaðinu
frá þeirri för, nú á næstunni.
-mhg
Föstudagur 22. júní 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 3