Þjóðviljinn - 22.06.1984, Blaðsíða 13
U-SIÐAN
Þátttakendurnir á fyrsta námskeiðinu ásamt leiðbeinendum sínum.
Við fáum mjólk úr kúnum og súpu úr uxunum
KÆRLEIKSHEIMILIÐ
Frjálsíþróttadeild
UMF
Aftureldingar
í Mosfellssveit
stendur fyrir
námskeiðum
sem byggð eru á
íþróttum og
leikjastarfsemi
Hver og einn hópur fær
einn sundtíma. Hjá eldri
hópnum höfum við æft bring-
usund, bak- og skriðsund og
höfum tímann hjá þeim.
Sundtímarnir hafa verið mjög
skemmtilegir, sérstaklega hjá
þeim yngri. Mörg þeirra voru
hrædd við vatnið og við höfum
farið hægt af stað með þau og
leikið við þau í vatninu, frekar
en að reyna að láta þau synda.
í dag er svo síðasti dagurinn
á þessu námskeiði. Næsta
námskeið hefst svo 25. júní og
lýkur 12. júlí. Þriðja og síð-
asta námskeiðið hefst 16. júlí
og lýkur 2. ágúst. Það er
kannski allt í lagi að geta þess
að nú þegar hafa 20 krakkar
látið skrá sig á annað nám-
skeiðið, þótt innritun sé ekki
fyrr en í dag. Nú, við getum
tekið 20-30 krakka í viðbót á
það námskeið og fyrir þá sem
vilja vera með, þá er bara að
hringja í síma 666254 og láta
innrita sig. Það er líka allt í
lagi að koma á mánudaginn,
eða hringja fyrir þá sem ekki
ná að láta innrita sig í dag. Það
eru líka nokkrir krakkar af
þessu fyrsta námskeiði sem
ætla að vera með aftur. Varla
er hægt að fá betri meðmæli.
ss
höfum við farið í fótbolta,
handbolta, aðeins í körfu-
bolta. Nú við höfum æft lang-
stökk, spretthlaup, þar sem
við höfum aðallega verið að
æfa start. Hástökk og grind-
ahlaup höfum við tekið með,
en ekki langlaup. Yngri
krakkana höfum við látið hita
upp með skokki og teygjuæ-
fingum. Helmingurinn af
þeirra tíma fer svo í leiki, hjá
þeim yngstu eru það eltinga-
og dýraleikir. Seinni hluta
tímans hjá þeim fer svo í
íþróttir, t.d. fótbolta o.fl.
Á föstudögum förum við í
einhverjar ferðir. Fyrsta
föstudaginn fórum við niður
að Köldukvísl og krakkarnir
fengu að busla í ánni, það var
mikið fjör. Við vorum líka
einkar heppin með veður
fyrstu vikuna. S.l. föstudag
fórum við út í Viðey. Við fór-
Tíkin Kapí kennir hundakúnstir.
Iþróttir og útilíf meira
en leikjanámskeið
í rigningu og sudda stóðu
þau, 25 stykki af börnum í
beinni röð og síðan var
skokkað af stað. Sumir ákafír
og fullir metnaðar, vildu vera
fyrstir, aðrir löturhægt og
vildu frekar vanda sig. Þetta
voru krakkar í Mosfellssveit
að hita upp fyrir átök dagsins
á íþróttanámskeiði sem fram
fer við Varmalaug þessa dag-
ana. Leiðbeinendur á náms-
keiðinu eru Ólafur Gíslason
íþróttakennari og Alfa R. Jó-
hannsdóttir íþróttaþjálfari.
Aukaleiðbeinandi er tíkin
Kapítóla, kölluð Kapí.
Aðspurður kvað Olafur um
fjörutíu krakka taka þátt í
þessu námskeiði. Þeim væri
skipt í þrjá aldurshópa, 5-7
ára, 8-9 ára og 10-12 ára.
Hvað eru margir í hverjum
hóp?
Upphaflega var meiningin
að hafa átta hópa og skipta því
niður þannig að í einum hópn-
um væru bara 5 ára krakkar, í
öðrum bara sex ára, o.s.frv.
Hugmyndin var að hafa tíu
krakka í hverjum aldurshóp.
Nú, svo var þátttakan ekki
meiri, svo við breyttum þessu
í þrjá hópa og þá settum við
hámark 15 í hóp. Það er alveg
yfirdrifið, sérstaklega í yngri
hópunum.
Ánnars verður að segja eins
og er að þetta hefur gengið
vonum framar. í upphafi voru
þetta frekar ómótaðar hug-
myndir. Við reyndum að
passa okkur að hafa þetta ekki
of yfirgripsmikið, reyndum að
sníða námskeiðunum þröng-
an ramma svo ekki færi allt út í
vitleysu. Það er alltaf betra að
bæta við.
Hvaða íþróttir hafíð þið
æft?
Hjá þeim eldri, 10-12 ára,
um um hádegi, grilluðum úti
og fórum í leiki. Það var sextíu
manna hópur sem tók þátt í
ferðinni. Það sem var
skemmtilegast var að í ferð-
inni voru foreldrar. Ekki til að
passa börnin, heldur til þess
að leika sér líka. Við vorum
gífurlega ánægð með ferðina,
þátttaka foreldranna gaf
henni alveg sérstakt gildi.
Norrœna húsið
„Landið mitt IslantT
íslensk skólabörn lýsa landinu sínu með teikningum
Sumarsýning Norræna hússins
að þessu sinni fjallar um ísland,
land og þjóð, séð með augum ís-
lenskra grunnskólanemenda.
Aðdragandi sýningarinnar er sá,
að veturinn 1983 óskaði Norræna
húsið samstarfs við Félag ís-
lenskra myndmenntakennara um
sumarsýningu hússins 1984.
Skyldi viðfangsefni sýningarinn-
ar vera, hvernig íslensk börn
skynja landið sitt, náttúruna og
fólkið. Var öllum aldurshópum
grunnskólans boðin þátttaka.
Á sumarsýningunni eru 140
verk, unnin af 4-14 ára börnum úr
16 grunnskólum alls staðar að af
landinu. Sýningin stendur frá 23.
júní og er opin daglega frá 14-19.
Föstudagur 22. júní 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13