Þjóðviljinn - 22.06.1984, Page 5
Bókmenntaverðlaun
Engin
bókmenntaverð-
laun
Jóns Sigurðs-
sonar í ár
Þessi sjóðsstofnun er
enn í mótun, sagði Halldór
Reynisson forsetaritari um
stofnun bókmenntaverð-
launa Jóns Sigurðssonar,
sem forseti íslands lagði til
á Hrafnseyri í fyrrasumar.
Halldór kvaö ekki enn
gengið frá stofnskrá fyrir bók-
menntaverðlaunin og því
hefði ekki verið veitt nein
verðlaun á fertugsafmæli lýð-
veldisins. Enn hefurekki verið
gengið endanlega frá málinu
svo bókmenntaverðlaunin
Sjóðurinn
enn í mótun
og alls óvíst
um framhald
málsins
verða að bíða um sinn, sagði
Halldór Reynisson forsetarit-
ari.
Miklar umræður urðu um
þetta áhugamál Vigdísar
Finnbogadóttur forseta ís-
lands í fyrra, og skiptust menn
í tvo hópa; þá sem töldu hér
um veglegan stuðning við
bókmenntir þjóðarinnar að
ræða - og þá sem töldu að
formlega hefði ekki verið
staðið rétt að málum. Svo
virðist sem ótti þeirra síðar-
nefndu hafi verið ástæðulaus.
En hinir tyrrnefndu hafa enn
ekki fengið sitt fram, bók-
menntaverðlaun Jóns Sig-
urðssonar. _óg
Úlfar og Edda í Gallerí Borg: hér á að vera auðvelt að nálgast list sem flestra íslenskra listamanna. Ljósm. Atli.
BORG
Tilgangur þessa gallerís er að
miðla list til sem flestra og
auðvelda fólki greiðan aðgang að
verkum sem flestra listamanna. Á
þessum stað í hjarta borgarinnar
á að vera hægt að finna ýtarlegt
yfirlit myndlistar á hverjum tíma,
sögðu Edda Óskarsdóttir og Úlfar
Þórmóðsson starfsmenn Gallerí
Borgar sem opnaði í glæsilegum
húsakynnum við Austurvöll í síð-
ustu viku.
Uppistaðan í Gallerí Borg nú
er sýning úr íslenskri grafík og
mun hún standa fram yfir næstu
helgi. Auk þess er að finna fjöl-
breytt úrval gler- og keramik-
verka eftir ýmsa höfunda. Þá er
boðið upp á listaverkabækur af
ýmsu tagi.
Þau Ulfar og Edda sögðu að
Gallerí Borg hefði ýmislegt á
prjónunum, sem of snemmt væri
að segja frá á þessu stigi. Þau
minntu hins vegar á að galleríið
hefði heimild til að standa fyrir
listaverkauppboðum og væri ekki
að vita nema verk gömlu meistar-
anna í íslenskri myndlist yrðu föl
innan tíðar.
Eigendur Gallerí Borgar eru
Arnmundur Bachmann, Gísli
B.Björnsson, Ragnar Árnason,
Sigurmar Albertsson, Þóður Vig-
fússon og Úlfar Þormóðsson.
-v.
Föstudagur 22. júní 1984 ÞJÖÐVILJINN - SlÐA 5