Þjóðviljinn - 22.06.1984, Page 11
VIÐHORF
Þetta mættu strákarnir
athuga betur
eftir Þorgeir Þorgeirsson
íyfirlýsingu Þorgeirs Þorgeirssonar rithöfundar
%
sem hann sendir Reykjavíkurblöðunum til
birtingar mótmœlir hann sögusögnum um
að hann hafi sœtt harðrœði við yfirheyrslur
hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Mér berast nú til eyrna þrálátar
og rangar sögusagnir um afskipti
Rannsóknarlögreglu Ríkisins af
starfi mínu. Fullyrt er í þessum
sögum að ég muni hafa sætt harð-
ræði við yfirheyrslur hjá RLR og
krafist sé margra ára fangelsis-
dóma yfir mér vegna ritstarfa
minna. Sumir virðast jafnvel
halda að ég sitja þegar bakvið lás
og slá.
Leitt er að vita til þessara mis-
vísandi frásagna.
Mér er bæði ljúft og skylt að
votta það hérmeð að strákarnir í
Kópavoginum (RLR) sem yfir-
heyrðu mig þann 18. júní frá kl.
13.30 til 15.30 vegna ritstarfa
minna komu í alla staði fram sem
hinir mestu heiðursmenn og
sýndu í hvítvetna tillitssemi við
mig. Satt er það að vísu að ég var
þarna kvaddur sem sakborningur
að kröfu frú Thorlacius sem virð-
ist hafa beðið um það að mér yrði
lúskrað í samræmi við 108. grein
hegningalaga sem vissulega leyfir
refsingu uppá 3ja ára fangavist.
Frú Thorlacius mun vera forn í
lund þó hún sé borin og barnfædd
á vorum dögum og skildist mér á
strákunum að þessi krafa mundi
jafnvel þykja öfgasinnuð. Enda
hefur RLR haldið þessu leyndu
þegar hringt er í blöðin til að veita
upplýsingar um fund okkar þarna
í Kópavoginum.
Ég vil ítreka það að strákarnir
komu í alla staði mjög vel fram,
lásu fyrir mig alveg hreint bráð-
skondin skrif frú Thorlaciusar til
Þórðar frænda míns Björnssonar
(við erum báðir komnir útaf Jóni
biskupi Arasyni sem varð á sínum
tíma höfðinu styttri uppí Skál-
holti fyrir að rífa kjaft við kóng-
sins menn) sem nú er saksóknari
ríkisins einsog kunnugt er. Þetta
var hin besta skemmtun og léttur
andi sveif þarna yfir vötnum. Síð-
an spurðu strákarnir mig hvort
Mogginn segði ekki rétt frá þegar
nafmð mitt stæði undir greinum í
því blaði og kvað ég það beinlínis
óyggjandi. Þá spurðu þeir um
heilsufar mitt og spítalavist á
undanförnum árum. Því svaraði
ég skriflega daginn eftir, uppúr
dagbókum mínum, því ég vildi
ekki skemma þessa góðu
stemmningu með veikindatali.
Það kom líka skýrt fram að
Þórður frændi hefur enn ekki gert
neinar dómskröfur vegna starfa
minna.
Með þessum orðum vil ég fast-
lega mótmæla öllum sögusögnum
um það að ég hafi sætt hinu
minnsta harðræði af hendi RLR
né fangelsisvist enn sem komið
er. Hinu er ekki að leyna að fram
komu á þessum fundi eindregin
mótmæli mín við því að viðfangs-
efni höfundar (í þessu tilviki lög-
reglulið Reykjavíkur, Þórður
frændi og RLR) hefðu nokkurn
rétt til að setjast í dómarasætið
andspænis höfundi sínum. Það
væri beinlínis drottinsvik og brot
á mörgþúsund ára gamalli hefð
um undirgefni viðfangsefnisins
við höfund sinn.
Þessu tóku strákarnir af sömu
kurteisinni og öllu hinu.
Þá bar lögmaður minn einnig
fram athugasemdir við framgang
málsins allan. Þær athugasemdir
skildi ég minna, enda langt síðan
ég hætti allri leikhúsgagnrýni.
Svo ljóst sem það má vera af
þessum línum að bæði RLR og
Þórður eru saklaus af nokkrum
ruddaskap við mig líkamlega séð
þá er hinu ekki að leyna að ég ber
nokkrar áhyggjur af þessu lög-
lausa frumhlaupi þeirra, ef þetta
yrði nú fordæmi gagnvart öðrum
höfundum sem tækju uppá því að
segja meiningu sína opinberlega.
Hitt verð ég að segja hér í lokin
að söguburður af því tagi sem hér
er nú verið að kveða niður á sér
nokkra afsökun í allri þeirri Ieynd
sem hvílir yfir svona baktjalda-
föndri með réttvísina. Það er t.d.
sannfæring mín að þessar sögur
hefðu aldrei hleypt heimdragan-
um ef Þórir Oddsson hefði sagt
rétt frá öllu því sem fram fór okk-
ar á milli og ekkert dregið undan
þegar hann símaði í DV til að
greina frá tíðindum.
Þetta mættu strákarnir athuga
betur.
Þorgeir Þorgeirsson
Bókhlöðustíg 6b Reykjavík.
LESENDUR
„Umdeild oröuveiting“
Heilt byggðarlag kvað hafa
fengið taugaáfall vegna fálka-
orðu, sem Jón Sveinsson, kennd-
ur við Lárós, hlaut á þjóðhátíðar-
daginn - og Þjóðviljinn sýnir
hluttekningu sína með því að
leggja forsíðuna undir lýsingu á
sjúkdómseinkennunum og upp-
runa þeirra.
Nú er ætið fallegt að auðsýna
sjúkum tilhlýðilega samúð og ber
ekki að lasta það í sjálfu sér.
En upphlaup Grundfirðinga og
risaletur Þjóðviljans er nýlunda
að því leyti sem verðleikar orðu-
þiggjenda hafa yfirleitt ekki verið
sjúkdómsvaldar né heldur forsíð-
uefni dagblaða. Yfirleitt hafa
menn látið nægja að hrista koll-
inn góðlátlega við hverja nýja
orðulotu - og beðið síðan rólegir
þeirrar næstu. Verður spennandi
að sjá úttekt Þjóðviljans á verð-
Ieikum hinna sautján, sem að
þessu sinni hlutu hnossið, auk
Jóns Sveinssonar, því varla lætur
blaðið hér staðar numið.
En gamanlaust:
Lárós hefur lengi verið til, og
hefðu Grundfirðingar náttúrlega
átt að verða fyrstir til að sjá
möguleikana, sem hann bauð
uppá til fiskiræktar. En „það
komu einhverjir menn að sunn-
an“ - og ræktuðu fisk í Lárósi.
Ég þekki ekki til á staðnum og
ræði því hvorki um aðstæður né
eignarrétt. Hins vegar hefi ég
fylgst nokkuð með baráttu Jóns
og ótrúlegri þrautseigju gegnum
árin, baráttu hans og annarra
brautryðjenda í fiskeldi við
fjármálavald og pólitíkusa. Og
það þori ég að staðhæfa, að hefði
Jón Sveinsson og hinir brautryðj-
endurnir fengið að ráða og notið
eðlilegrar fyrirgreiðslu, þá væri
fískirækt nú orðin stóriðja á fs-
landi.
Oft er rætt um fískeldi sem
„aukabúgreirí'. Nú bendir sitt-
hvað til þess að erlendum auðfé-
lögum eigi að hlotnast drjúgur
hluti af arðsemi slíkrar starfsemi.
Það nýjasta er frétt um að SÍS ætli
að hefja fískeldi í stórum stíl í
samvinnu við íslenska bændur -
nei, afsakið, við Norðmenn!!
En svo ég víki aftur að orðu-
veitingunni og uppslætti Þjóðvilj-
ans þá tel ég vinnubrögð blaðsins
því ekki sæmandi og hlýt sem
gamall kaupandi þess að mót-
mæla slíku frumhlaupi. Verð ég
að vona að hér hafi orðið mál-
efnalegt og siðferðilegt slys sem
blaðið sjái ástæðu til að biðjast
afsökunar á.
í þeirri von, að viðlíka smekk-
leysi verði útlægt gert úr blaðinu
- og að Grundfirðingar taki
sönsum á ný - kveð ég og þakka
birtinguna.
Kristján Gíslason.
______________________AFMÆLl____________________
Ragnar Stefánsson í Skaftafelli
sjötugur
Það var á miðju sumri 1972 að
leið mín lá í fyrsta sinn í Skaftafell
til móts við félaga mína í ný-
kjörnu Náttúruverndarráði. Eg
kom að austan landleiðina, en
þeir í flugi að sunnan í Fagur-
hólsmýri, - tvö ár þá enn í það að
lokið væri brúargerð á Skeiðar-
ársandi og engin teljandi
mannvirki risin vegna ferða-
mannaaðstöðu í Skaftafelli.
Þá hitti ég þau Ragnar og
Laufeyju í Hæðum, kvöldið áður
en aðalhópurinn kom, og það var
margt rætt áður en gengið var til
náða. Óvissa ríkti um hvað nýir
húsbændur þjóðgarðsins í Skafta-
felli hygðust fyrir, og ég fann að
undir niðri gætti nokkurs kvíða
hjá fólkinu í Hæðum. Ragnar
hafði þá samkvæmt kaupsamn-
ingi frá árinu 1966 lífstíðarábúð á
þessari föðurleifð, þar sem for-
feður hans hafa búið um aldir.
Hann stundaði hefðbundinn bú-
skap í Skaftafelli, og það var ekki
ýkja margt sem minnti á að stofn-
að hefði verið til þjóðgarðs á
jörðinni 5 árum áður. Fyrir um-
sjón með þjóðgarðinum hafði
Ragnar aðeins lítilsháttar þókn-
un og hugmyndir um framtíðar-
skipulag voru lítt mótaðar. Ferð-
amannastraumur fór vaxandi og
ljóst að hann myndi margfaldast
við lúkningu vegarins yfir
Skeiðarársand. Hvernig átti að
bregðast við þeirri þróun? Hvaða
áhrif hefði hún á náttúruvernd í
Skaftafelli og mannlíf í Öræfum?
Þessar spurningar voru áleitnar
og fyrir fáa skiptu svörin meira
máli en fólkið sem búsett var á
býlunum tveimur í Skaftafelli,
Hæðum og Bölta.
Það varð viðfangsefni mitt
næstu árin að leita svara við þess-
um spurningum sem trúnaðar-
maður Náttúruverndarráðs í
samvinnu við heimamenn. Þar
mæddi mest á Ragnari Stef-
ánssyni, sem settur var í tvöfalt
hlutverk heimamanns og bónda
annars vegar og þjóðgarðsvarðar
hins vegar. Það var við þessar að-
stæður sem ég kynntist Ragnari
og hans fólki, og þau kynni urðu
náin og treystust með hverju ári.
Þeir urðu margir dagarnir sem
ég dvaldi í Skaftafelli og gekk
með Ragnari og samverka-
mönnum um þjóðgarðslandið,
mörg kvöldin sem setið var í stof-
unni á Hæðum yfir teikningum,
uppdráttum og hugmyndum um
skipulag þjóðgarðsins, allt frá
þjónustumiðstöð niðri á sandi til
gönguleiða inn um Skaftafells-
heiði og Morsárdal. Önnur við-
fangsefni enn nákomnari heima-
fólki voru líka á dagskrá:
Breytingar á búskaparháttum,
nýr samningur um réttindi og
skyldur þjóðgarðsvarðar, hvað
ætti að standa af húsum og girð-
ingum, hvað að hverfa eða
breytast í samræmi við nýtt hlut-
verk Skaftafells.
Ég hygg að á fáa íslenska bænd-
ur hafi í seinni tíð verið lagt að
svara jafn mörgum spurningum á
skömmum tíma og Ragnar í
Skaftafelli og aðlagast stórfelld-
um breytingum heima fyrir. Þetta
próf stóðst hann af mikilli prýði
til ómetanlegs ávinnings fyrir
þjóðgarðshugmyndina, en án
þess að missa sjónar á hag sinna
nánustu og sveitarinnar. Þar kom
honum að haldi ágæt greind og
yfirsýn, samhliða ríkum tilfinn-
ingum og næmleika fyrir því,
hvaða leiðir séu helst færar.
Reynsla vatnamannsins sem oft
þurfti að þræða yfir Skeiðará eða
sneiða fyrir hana á jökli hefur
komið Ragnari að góðu haldi,
einnig við aðrar aðstæður.
Hann átti milli þess að velja að
halda sínu striki sem bóndi á ætt-
arsetri og láta óskir náttúru-
verndarmanna lönd og leið, eða
taka undir kvaðningu þeirra.
Ragnar valdi síðari kostinn, og ég
vona að hann telji sig ekki þurfa
að sjá eftir því þegar á heildina er
litið.
Skaftafell er nú fremst í röð ís-
lenskra þjóðgarða og á hvergi
sinn líka. Ferðamenn innlendir
og erlendir róma staðinn og þá
aðstöðu sem þeim hefur verið
sköpuð til að njóta náttúru svæð-
isins. Svör hafa verið veitt við
mörgu af því sem í óvissu var fyrir
10-15 árum og fáir hafa lagt meira
af mörkum við að móta þau og
núverandi svipmót þjóðgarðsins
en Ragnar í Skaftafelli.
Ég hef margt að þakka Ragnari
og hans fólki nú þegar hann
stendurásjötugu. Fátt hefurveitt
mér meiri ánægju en að vinna
með honum að málefnum þjóð-
garðsins um 6 ára skeið. Gestrisni
og glaðværð á heimilinu í Hæðum
líður þeim ekki úr minni sem not-
ið hefur. Frásagnir bóndans og
þekking á liðinni tíð ber vott um
glöggskyggni og tengsl manns
sem á djúpar rætur í Skaftafelli.
Bestu hamingjuóskir og kveðj-
ur frá okkur Kristínu fylgja þess-
um línum til ykkar Ragnars og
Laufeyjar og augasteinsins Önnu
á merkisdegi í lífí bóndans. Megi
framtíðin verða ykkur gjöful og
björt eins og vormorgunn, þegar
horft er út yfir grænar brekkur og
svartan sand frá Hæðum.
Hjörleifur Guttormsson
Föstudagur 22. júní 1984 ÞJOÐVIUINN - SÍÐA 11