Þjóðviljinn - 22.06.1984, Blaðsíða 15
Föstudagur 22. júní 1984 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 15
Áður en landsleikur íslands
og Noregs hófst í fyrrakvöld,
fékk Ásgeir Sigurvinsson
sérstaka viðurkenningu frá
Knattspyrnusambandi Islands
fyrir unnin afrek á sl. vetri. Eins
og menn muna, varð Ásgeir
vestur-þyskur meistari með
Stuttgart og var valinn besti
knattspyrnumaður í V.Þýska-
landi. Ásgeir var heiðursgest-
ur á landsleiknum en hann
kom beint úr erfiðri æfingaferð
um Bandaríkin. Mynd: —eil
1. deilcl kvenna:
Tvær fernur!
Senn hálfnað
í 1. deildinni
Keppni í 1. deild karla í knatt-
spyrnu verður senn hálfnuð, um
helgina verður leikin áttunda um-
ferð af 18.
í kvöld kl. 20 leika KA og
Breiðablik á Akureyri. KA er í
fimmta sæti með níu stig en
Breiðablik er þriðja neðst með 6
stig. Bilið gæti brúast með Blika-
sigri.
Víkingur og Þór leika á
Laugardalsvelli kl. 14 á morgun.
Víkingur er í fjórða sæti með 10
stig en Þór er í sj öunda með 7 stig.
Tvö lið sem geta leikið mjög
skemmtilega knattspyrnu og allt
getur gerst.
IA og Þróttur leika á Akranesi
kl. 14.30 á morgun. ÍA er efst
með 16 stig en Þróttarar þriðju
með 10 stig þannig að þetta er
leikur umferðarinnar. Þróttur
myndi lauma sér í toppbaráttuna
með sigri.
KR og ÍBK leika á Laugardals-
velli kl. 14 á sunnudag. KR-ingar
eru neðstir með 6 stig en ÍBK er
númer tvö með 15 stig. Mikið í
húfi hjá báðum og baráttuleikur í
aðsigi.
Valur-Fram á Valsvelli kl. 20 á
mánudagskvöld. Valur er
næstneðstur með 6 stig og Fram
er í sjötta sæti, aðeins stigi ofar.
Tapliðið í þessum leik verður
með slæma stöðu að 8. umferð
lokinni.
-VS
í Tékkó
í keppnisferð íslenska lands-
liðsins í handknattleik til Tékk-
óslóvakíu sem hefst á sunnudag
og sagt hefur verið frá, verður
ekki leikið þrívegis gegn Tékkum
þó fyrstu upplýsingarnar hefðu
hljóðað þannig. Landsliðið tekur
þátt í „turneringu“ og mætir
Norðmönnum, B-liði Tékka og
loks A-liði Tékka. Leikið verður
á þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag og væntanlega haldið
heim á ný á föstudag.
Héraðsmót UMSK
Héraðsmót UMSK í frjálsum
íþróttum fer fram á Kópavog-
svelli á laugardag og sunnudag.
Keppt verður í 14 greinum karla
og 11 greinum kvenna og hefst
mótið kl. 14 báða dagana. Viðbú-
ið er að Qöldi keppcnda mæti og á
mótið koma gestir víðs vegar að
af landinu.
Olympíuleikar fadaðra:
Góður árangur
íslendinganna
„Þetta var góður árangur hjá
okkur í dag“, sagði Arnór Péturs-
son um frammistöðu íslensku
keppendanna á Ólympíuleikum
fatlaðra sem hófust á Long Island
í New York í gær. Sigrún og
Oddný kræktu sér í bronsverð-
laun og Jónas varð 5. í 100 metra
bringusundi“.
Sigrún Pétursdóttir vann
bronsverðlaun f 25 metra baks-
und; og var tími hennar 0.33.99.
Oddný Óttarsdóttir varð 5. af 17
keppendum í 100 metra baks-
undi, og vann bronsverðlaun í
100 metra bringusundi en þar
mættu ekki nema þrír keppend-
ur, þar sem þreyta var í stúlkun-
um eftir baksundið.
Jónas Óskarsson vann það
ágæta afrek að verða 5. af 18
keppendum í 100 metra bringu-
sundi á 1.37.32. Snæbjöm Þórð-
arson var 11. af 18 keppendum í
100 metra skriðsundi á 1.11.20,
en komst ekki í úrslit úr sínum
riðli, en það gerði hinsvegar Jón-
as, sem síðan varð 13. af 23 í úrs-
litum 100 metra skriðsundsins á
1.13.74.
Þá var landsliðskeppni í borð-
tennis og mætu þrjú iið til leiks.
Hafdís Ásgeirsdóttir og Hafdís
Gunnarsdóttir kepptu fyrir fs-
lands hönd og töpuðu þær naum-
lega fyrir Englendingum með 2-
3, og náðu því aðeins bronsinu.
Um 2000 keppendur frá 54
þjóðum eru á Ölympíuleikum
fatlaðra í New York.
-ekh
Laufey og Ragnhildur með 4 hvor Í9-1
sigri ÍA á Víkingi
fór í stöng, boltinn rúllaði eftir
línunni í hina stöngina og út.
í síðari hálfleik byrjaði KR
betur og tókst Kristrúnu Heimis-
dóttur að skora með skoti af
löngu færi. Eftir markið sóttu
Valsstúlkur án afláts, áttu nokk-
ur færi en tókst ekki að skora í
þessum annars jafna og spenn-
andi leik.
Á Akranesi unnu heimastúlk-
ur yfirburðasigur á Víkingi, 9-1.
í A tók strax völdin og var komið í
4-0 fyrir hlé. Landsliðskonurnar
Laufey Sigurðardóttir og Ragn-
hildur Jónasdóttir skoruðu sín 4
mörkin hvor og Pálína Þórðar-
dóttir gerði eitt en Jóna skoraði
mark Víkings.
í A hefur þar með tekið foryst-
una, hefur 7 stig, Valur 6, KR 6,
Breiðablik 4, Víkingur og ÍBÍ
ekkert. ÍBÍ og Breiðablik leika
síðasta leik þriðju umferðar á ísa-
firði í kvöld.
-BV
Leikið við
Norðmenn
Kr sigraði Val 1-0 á KR-
vellinum í gærkvöld er félögin
mættust þar í A-riðli 1. deildar
kvenna.
Fyrri hálfleikur var jafn en
Valsstúlkur áttu þó fleiri færi.
Það besta átti Ragnhildur Sigurð-
ardóttir er hún átti gott skot sem
Mark Gylfa
fallegast
Knattspyrnudómarar hafa
komist að þeirri niðurstöðu að
sigurmark Gylfa Rútssonar fyrir
Víking gegn Fram sl. laugardag
hafi verið það fegursta í 7. um-
ferð 1. deildarinnar. Gylfi fær
viðurkenningu fyrir það áður en
leikur Víkings og Þórs hefst á
Laugardalsvellinum kl. 14 á
morgun.
IR vann
19 af 27
Frjálsíþróttafólkið úr ÍR hirti
sigurlaunin í 19 greinum af 27 á
Reykjavíkurmótinu sem fram fór
sl. fimmtudag og föstudag. Ár-
menningar unnu fimm greinar og
KR þrjár.
Stefán Þ. Stefánsson, ÍR, sigr-
aði í þremur greinum, hástökki,
100 m hlaupi og 110 m grinda-
hlaupi karla. Gunnar Páll Jóa-
kimsson, ÍR, vann tvær, 400 og
800 m hlaup karla. Helga Hall-
dórsdóttir, KR, var sigursælust
kvenna. Hún sigraði í 100 m
grindahlaupi og 200 m hlaupi og
var eina konan til að vinna tvær
greinar.
Helgar-
sportið
Knattspyrna
1. deild karla- sjá annars stað-
ar. Tveir leikir eru í B-riðli 1.
deildar kvenna kl. 14 á sunnudag,
Þór-KA á Þórsvelli á Akureyri og
Höttur-Súlan á Egilsstöðum.
2. deild karla - fimm leikir kl. 14
á morgun: Völsungur-DS, ÍBÍ—
Einherji, FH-Víðir, Njarðvík-
Skallagrímur og Tindastóll-IBV.
3. deildí kvöld kl. 20: Grindavík-
Stjarnan. 3. deild á morgun kl. 14:
Fylkir-Víkingur Ó., Selfoss-HV,
Snæfell-Reynir S., HSÞ.b-
Magni, Þróttur N.-Leiftur og
Huginn-Valur Rf.
Tennis
Opið tennismót verður haldið á
völlum TBR við hús félagsins við
Gnoðarvog í Reykjavík. Keppni
hefst I dag kl. 17 og síðan verður
leikið allan morguninn frá 9-22.
Úrslit hefjast kl. 10 á sunnudag.
Frjálsar íþróttir
Álafosshlaupið, hið árlega, fer
fram á sunnudaginn, 24. júní. Það
hefst kl. 10 við Kaupfélagið í Mos-
fellssveit. Hlaupið ertil Reykjavík-
ur, Höfðabakka, Bíldshöfða, Árt-
únsbrekku, Elliðavog, Holtaveg,
Engjaveg og endað á Laugardal-
svelli. Vegalengdin er um 13,5
km.
Golf
Opna Johnny Walker golfmótið
verður haldið á Nesvelli á morg-
un, 23. júní. Þetta er þriðja stiga-
mótið í ár á vegum GSÍ og er því
aðeins fyrir meistaraflokka karla
og kvenna. Keppni hefst kl. 8 um
morguninn, leiknar verða 36 hol-
ur. Vangur hf. gefur öll verðlaun.
Jónsmessumót verða haldin
hjá öllum golfklúbbum annað
kvöld og hefjast yfirleitt kl. 20.
Sund
Sumarmót ÍBV verður haldið í
sundlaug Vestmannaeyja um
helgina.
4. deild F:
Leiknir og
Súlan í
banaformi!
Leiknir Fáskrúðsfirði náði
tveggja stiga forystu í F-riðli 4.
dcildarinnar í knattspyrnu í fyrr-
akvöld með glæsisigri á Borgar-
firði, 5-0. Oskar Tómasson 2,
Svanur Kárason, Jón Ingi Tóm-
asson og Jón Jónasson skoruðu
mörkin. Heimamenn hefðu þó
getað komist á blað, Þorbjörn
Björnsson skaut í stöng úr víta-
spyrnu er staðan var orðin 3-0.
Súlan brá sér í Breiðdalinn og
vann stórsigur á Hrafnkeli, 4-0.
Doktor Óttar Ármannsson, Ein-
ar Björnsson, Jónas Ólafsson og
Helgi Jensson gerðu mörkin.
Sindri og Höttur gerðu 2-2
jafntefli á Hornafirði. Omar Ingi
Bragason kom Sindra yfir, Björg-
vin Guðmundsson (víti) og Hall-
dór Halldórsson færðu Hetti for-
ystuna en Guðmundur Óskars-
son náði að jafna fyrir Sindra.
Neisti frá Djúpavogi vann Egil
rauða 3-1 í Neskaupstað. Ragnar
Bogason, Snæbjörn Vilhjálms-
son/Ágúst Bogason (í samein-
ingu!) og Þorvaldur Hreinsson
skoruðu fyrir Neista en Þórarinn
Traustason fyrir Egil, jafnaði þá
1-1.
Staðan í F-riðli:
Leiknir F......5 4 1 0 13- 1 13
Sindri.........6 3 2 1 12- 9 11
Höttur.........5 3 1 1 11- 6 10
Súlan..........6 3 1 2 12-10 10
Neisti.........6 3 0 3 14-13 9
Borgarfjörður..6 2 0 4 9-15 6
Hrafnkell......6 2 0 4 8-14 6
Egill rauði....6 0 1 5 6-17 1
-vs
Sigur og
tap gegn
Kentucky
Islenska unglingalandsliðið í
körfuknattleik lék við úrvalslið
leikmanna úr „Highschool" í
Kentucky-fylki í Bandaríkjunum
hér á landi um síðustu helgi.
Bandarísku piltarnir unnu fyrri
leikinn, sem háður var í Selja-
skóla í Reykjavík 17. júní, 92-89.
Guðni Guðnason skoraði þá 23
stig fyrir íslenska liðið og Jóhann-
es Kristbjörnsson 18. Liðin mætt-
ust í Keflavík kvöldið eftir og þá
unnu íslensku strákarnir 114-110
eftir framlengingu. Axel Nikulás-
son lék með sem gestur og
skoraði 30 stig en Guðni gerði 27
stig.
Völsungur
vann KS í
hörkuleik
Völsungur frá Húsavík vann
góðan sigur á KS, 2-1, er félögin
mættust í bikarkeppni KSI á
Siglufirði í gærkvöldi. Völsungar
eru þar með komnir í 16-liða úr-
slit keppninnar.
Þetta var grimmdarleikur eins
og svo oft hjá þessum liðum. Ekk-
ert var skorað í fyrri hálfleik en
Völsungar náðu forystunni er
þeir skoruðu uppúr hornspyrnu á
55. mfnútu. Korteri fyrir leikslok
jafnaði Björn Ingimarsson fyrir
KS er hann fylgdi stangarskoti
Amars Óiafssonar. Sfðan var
framlengt og strax í upphafi við-
aukans skoraði miðherji
Völsungs geysilaglegt mark sem
dugði Húsvíkingum til sigurs.
-RB/Siglufirði