Þjóðviljinn - 22.06.1984, Síða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
22. júní 1984 137. tölublað 49. árgangur
DJÓÐVIUINN
Fiskeldi
Nær þreföldun á eldislaxi
45 aðilar stunda fiskeldi hérlendis. Hátt verð og góðir markaðir, en lánsfé vantar til framkvœmda.
Jft síðasta ári var slátrað hér-
niendis 52 tonnum af eldislaxi og
um 36 tonnum af hafbeitarlaxi. I
ár ráðgera laxeldismenn að slátr-
að verði hátt í tvö hundrað tonn-
um af laxi en eldisstöðin í Lóni í
Kelduhverfi ráðgerðir að slátra
um 90 toniíum í ár.
45 aðilar reka í dag klak, eldis-
og/eða hafbeitarstöðvar hér-
lendis og fer þeim sífellt fjölg-
andi. Flestar stöðvarnar eru smá-
ar í sniðum og meginframleiðslan
á eldislaxi kemur enn sem komið
er frá þremur stöðvum, ISNO í
Kelduhverfi sem er í eigu norskra
og innlendra aðila, Húsatóftum
við Grindavík og Sjóeldi í
Höfnum þar sem ræktunin hefur
borið ríkulegan ávöxt í sjókvíum.
Stærstu stöðvarnar í eldi göng-
useiða eru Pólarlax, Laxalón,
Norðurlax og Laxeidisstöðin í
Kollafirði sem jafnframt er
stærsti aðili í hafbeit hérlendis.
Mjög gott verð hefur fengist
fyrir eldislax undanfarin ár og
markaðurínn virðist nokkuð
tryggur þrátt fyrir sífellt aukna
framleiðslu Norðmanna. í fyrra
fengust mest 260 kr. fyrir kg og
nú er verðið um 340 kr. fyrir kg í
heilu og 390 niðurskorið.
Reiknað er með að verðið falli
niður í um 300 kr. þegar fram-
boðið eykst síðar í sumar og
haust.
Það sem hefur staðið í vegi fyrir
frekari og markvissari uppbygg-
ingu fiskeldis hérlendis er skortur
á lánsfé til þessarar nýju atvinnu-
greinar. Bæði Fiskræktarsjóður
og stofnlánadeild landbúnaðar-
ins sem lánað hafa til uppbygg-
ingar fiskeldisstöðva eru í fjár-
svelti. Sama er að segja um fram-
leiðnisjóð landbúnaðarins en
Byggðasjóður hefur látið þó
nokkurt fjármagn til þessarar
atvinnugreinar undanfarin ár en
það hefur dugað skammt. Þá hef-
ur Seðlabankinn samþykkt að
greiða afurðalán út á 50% fram-
leiðslunnar.
Ýmsir fjársterkir aðilar hafa að
undanförnu lagt töluvert fé til
fiskeldis, m.a. Samband ísl. sam-
vinnufélaga sem stendur að Fisk-
ræktarstöð Vesturlands sem nú
er í uppbyggingu og Fljótalaxi í
Skagafirði. Þá samþykkti Sölu-
samband hraðfrystihúsanna á
síðasta aðalfundi sínum að verja
25 miljónum til uppbyggingar
fiskeldisstöðva en það er um 5
miljónum kr. meira framlag en
ríkissjóður ætlar að láta renna til
þessarar atvinnusköpunar af ný-
teknum erlendum lánum.
-lg
Námslán
Ragnhildur
ræðst að
SÍNE
Ráðherra vill
afnema skyldu-
aðild
Stéttarfálög íslensk hafa lagt
mikla áherslu á að hafa alla þá
innan sinna vébanda sem vinna á
starfssviði hvers félags. Þessu
náði SÍNE, Samband náms-
manna erlendis, fram í ráðherr-
atíð Vilhjálms Hjálmarssonar og
hefur Lánasjóður námsmanna
síðan innheimt félagsgjöld af
þeim sem fara utan til náms.
Ragnhildur Helgadóttir tilkynnti
Lánasjóðum með bréfi dagsettu
18. júní að hún hefði beytt reglu-
gerð þannig að aðild að samtök-
unum þarf nú að tilkynna sér-
staklega.
„Ég lít svo á að þetta sé enn ein
aðför menntamálaráðherra að
námsmönnum" sagði Emil Bóas-
son við Þjóðviljann í gær. „Ragn-
hildur hefur ekkert samráð haft
við okkur um þessa breytingu.
Þetta gæti haft slæm áhrif á fjár-
hag samtakanna og baráttuþrótt,
en nú reynir á samstöðu náms-
manna, hver og einn verður að
sýna hug sinn“.
Emil sagði að á síðustu tveimur
árum hefðu aðeins tveir eða þrír
kvartað yfir skylduaðildinni,
Samtök námsmanna erlendis eru
eingöngu rekin með félagsgjöld-
um. Þess má geta að velflest
skólafélög og námsmannasamtök
búa við skylduaðild og hefur rétt-
ur Stúdentaráðs H.í. til inn-
heimtu félagsgjalda stúdenta ver-
ið staðfestur fyrir dómi. -m
■■■
Félagar I Flugbjörgunarsveitinnl er þeir voru aö tygja sig til leitar i gær. Ljósm. GFr.
Flugslys
Tveggja Breta saknað
Síðdegis í gær hófst víðtæk leit að flugvél með tveimur mönnum \
innanborðs. Var leitað fram á nótt á láði og legi en án árangurs.
Það var um kl. 11.20 í gærmorg-
un sem síðast sást til lítiilar
breskrar flugvélar, sem þá var á
flugi í austurátt frá Reykholti i
Borgarfirði. Beindist því leit
strax að Arnarvatnsheiði, há-
lendinu upp af Borgarfirði
norðan Langjökuls og allt austur
á Eyjafjarðarhálendi. Veður til
leitar var slæmt framan af en í
gærkvöldi rofaði til.
Um borð í bresku vélinni sem
ber einkennisstafina PA 28 R og
er af Cherokee Arrow gerð, eru
tveir breskir ferðalangar sem
komu til íslands í fyrrakvöld. Var
för þeirra heitið til Grímseyjar í
gær.
Skipulögð leit að flugvélinni
hófst um kl. 19 í gærkvöldi. Illt
var að koma við flugvélum vegna
veðurs og voru því notaðar þyrlur
frá Slysavarnafélaginu, banda-
ríska hernum og Albínu Thordar-
son. Seint í gærkvöldi fóru hins
vegar flugvélar í loftið til leitar frá
Stóra Kroppi og Húsafelli auk
þess sem flugvél Flugmálastjórn-
ar hóf leit að hinni týndu vél. Þá
gengu menn frá Flugbjörgunar-
sveitinni, Slysavarnafélaginu og
Hjálparsveit skáta það svæði sem
talið er líklegast að mannanna
tveggja sé að leita.
Borgarstjórn
Skýringa
krafist
á SVR-uppsögn
Á borgarstjórnarfundi í gær
kvaddi Alfheiður Ingadóttir sér
hljóðs utan dagskrár og krafðist
þess að forstjóri SVR skýrði
Magnúsi Skarphéðinssyni skrif-
Iega frá því hvað olli uppsögn
hans nýverið. Davíð Oddsson
borgarstjóri kvaðst mundu taka
málið upp á borgarráðsfundi á
þriðjudag en taldi að Magnús ætti
ekki siðferðilegan rétt á skriflegri
skýringu þar sem hann hefði neit-
að að taka við skriflegum og
munnlegum orðsendingum frá
forráðamönnum SVR
Sigurjón Fjeldsted Sjálfstæðis-
maður og formaður stjórnar SVR
sagði ástæðumar fyrir uppsögn
Magnúsar vera að hann hefði ver-
ið óstundvís, breytt aksturs-
leiðum og skilað vögnum seint.
Þessar fullyrðingar kvað Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir Kvenn-
aframboði ósannar og vitnaði til
skýrslu SVR um strætisvagna-
stjóra þar sem fram kemur að
Magnús hefur mætt of seint 3-4
sinnum á ári og aðeins einu sinni
neitað að fara fyrirskipaða leið,
vegna snjóþyngsla í febrúar 1982.
Utandagskrárumræðumar í
gær spunnust af ræðu Júlíusar
Hafstein meirihlutamanns á síð-
asta fundi en þar var því haldið
fram að Magnús hafi ekki mætt á
boðaðan fund forstjóra SVR og
ekki sótt uppsagnarbréf sitt, en í
grein í DV á þriðjudag segir Ingi-
björg Sólrún aðra staðhæfínguna
hálfan sannleik og hina lygi.
Stigahlíð
Meðalverðið 1600 þúsund á lóð
Gróði borgarinnar 11 milljónir
umfram áœtlun og rennurbeintíborgarsjóð. Feluleikurífjárhagsáœtlun.
Krónur 34.746.040 fær borgin
fyrir 21 lóð í Stigahlíð, að með-
altali um 1655 þúsund á hverja.
Þetta kom fram á borgarstjórnar-
fundi í gær þarsem Davíð borgar-
stjóri upplýsti að við gerð fjár-
hagsáætlunar hefði verið gert ráð
fyrír 23 miljónum rúmum. Undir
liðinn gatnagerðargjöld í áætlun-
inni voru færðar rúmar ellefu
milljónir, en tólf milljónir faldar
undir liðnum „annað“.
Nokkrar umræður urðu um
ráðstöfun þess fjár sem borgin
fær fyrir sinn snúð umfram áætl-
un. Adda Bára Sigfúsdóttir taldi
að hér væri um svo háa fjárhæð
að ræða að borgarstjórn bæri að
ákveða hvert féð rynni og vísaði
til felldrar tillögu Alþýðubanda-
lags um verkefni sem njóta ætti
gróðans. Davíð kvað óvíst um
hvursu fjárhag borgarinnar
reiddi af í haust og rennur féð því
beint í borgarsjóð framhjá borg-
arstjórn. Nánari upplýsingar um
Stigahlíðarlóðirnar verða gefnar
á borgarráðsfundi á þriðjudag.
Fjórir þeirra sem hæst buðu í
lóðir féllu frá boðum sínum. Þeir
sem fengið hafa lóðir eru: Bragi
Ragnarsson, Eggert Atlason,
Elísabet Hermannsdóttir, Guð-
björg Antonsdóttir, Guðlaug
Þórarinsdóttir, Guðrún Bjöms-
dóttir, Hafsteinn Sigurðsson,
Helgi Þ. Jónsson, Hörður Jóns-
son, Hörður Þorgeirsson, Indriði
Pálsson, Jón Ólafsson, Jón Zal-
ewski, Jón G. Zoega, Jónas Sig-
urðsson, Kristín Ámadóttir,
Ólafur Björnsson, Sævar Sigur-
geirsson, Vigdís Þórarinsdóttir,
Þór Ingvarsson, Þórður Óskars-
son. Fjöldi kvenna meðal lóðar-
hafa vekur athygli og vom uppi
ýmsar getgátur í göngum borgar-
stjórnarsala á fundinum í gær.
- m