Þjóðviljinn - 29.06.1984, Qupperneq 1
HEIMURINN
MENNING
Stjórnarandstaðan
Til baráttu í haust
Hrindum árásinni á kjörin, Til
baráttu í haust eru kjörorð
útifundar sem boðað hefur verið
til á Lækjartorgi mánudaginn 2.
júní kl. 17:30. Fundarboðendur
eru Alþýðubandalagið, Alþýðu-
flokkurinn, Bandalag Jafnaðar-
manna og Samtök kvenna á
vinnumarkaði.
Bretar
Vilja
íslenska
smálúðu
Breskir
vísindamenn
íhuga
að fá smálúðu
úr Faxaflóa
til að
hefja tilraunir
með lúðueldi
Mögulegt er að breskir vísinda-
menn æski leyfis til að flytja lif-
andi smálúðu frá Islandi til Bret-
lands, til að hcfja undirbúnings-
rannsóknir á lúðurækt. En smá -
lúða er torfcngin við strendur
Bretlands.
Dr. Bari Howell, sem starfar
við fiskeldisstöð breska fiskimál-
aráðuneytisins í Lowestoft í Eng-
landi hefur haft yfirumsjón með
tilraunum þess í ræktun sjávar-
fiska, tjáði Þjóðviljanum í gær að
vaxandi áhugi væri nú á ræktun
lúðu í Bretlandi, þar sem hún vex
tiltölulega hratt við lágt hitastig
og myndi því henta vel til eldis í
sjó við Bretland. En eldi sjávar-
fiska við Bretland hefur helst
staðið fyrir þrifum skortur á
ódýrri hitaorku.
Að sögn dr. Howells var fyrir
skömmu haldinn fundur í Skot-
landi þar sem mættu þeir vísinda-
menn breskir sem hafa starfað að
tilraunum með eldi sjávarfiska.
Þar var að sögn hans samþykkt að
hefja undirbúningstilraunir með
lúðueldi. Þegar rætt var hvar best
væri að leita fanga með öflun lif-
andi smálúðu varð það niðurstað-
an að líklega yrði fsland besti
staðurinn, og kvað hann Faxaflóa
einkum hafa verið nefndan í því
sambandi.
Á þessu mun helst sá hængur
að erfitt yrði að flytja lifandi
smálúðu til Bretlands frá íslandi,
en þó mun málið í athugun ytra.
-ÖS
Útifundur á Lœkjartorgi á mánudaginn:
Hrindum árásinni á kjörin
í dreifiriti frá stjórnarandstöð-
unni segir:
„Kjör launafólks í dag eru orð-
in slík að leita þarf aftur um ára-
tugi til að finna hliðstæður. Þeir
ríku verða ríkari en þeir fátæku
fátækari. Baráttan fyrir brauðinu
verður harðari með degi hverj-
um.
Augljóst er orðið að án frum-
kvæðis launafólks verður lág-
launastefnunni ekki hrundið. Við
krefjumst eðlilegrar hlutdeildar í
eigin verðmætasköpun.
Við krefjumst afnáms launa-
misréttis karla og kvenna. Við
neitum að vera ódýrt vinnuafl í
einu ríkasta landi heims.
Við verðum að hefja baráttu í
haust til að bæta kjörin. Til þess
að kjarabaráttan verði árang-
ursrík verðum við að treysta okk-
ar eigin samtakamátt. Sýnum
samstöðu. Fjölmennum á úti-
fundinn á Lækjartorgi mánudag-
inn 2. júlí kl. 17.30.“
Á fundinum verða ræðumenn
Herra Pótur biskup ásamt hluta af klerkaher sínum eftir stritsaman morgunfund á Laugarvatni í gær. Hinn geistlegi
her er í þann mund að taka tii matar síns, vitandi sem er að „það er ekkert betra til með mönnum en eta og drekka og
láta sálu sína njóta fagnaðar af striti sínu“ (Prédikarinn, 2,24). Ljósm. -eik.
Prestastefnan
Biskupum fjölgað í þrjá?
fremur að styrkja með að gera því kleift að njóta
ýmis konar sérfræðiaðstoðar og minnka þannig
hið daglega amstur biskups af veraldlega taginu,
og auka honum þannig tíma til að gegna hirðis-
starfinu betur.
Þess má geta að Jón Forni (Þorkelsson) lagði á
Alþingi fram tillögu árið 1909 um þrjá biskups-
stóla. Þá var sæst á þá málamiðlun að landið
skyldi vera eitt biskupsdæmi, en búin yrðu til tvö
embætti vígslubiskupa. Vígslubiskuparnir eru
því séríslenskt fyrirbæri sem mun ekki eiga sér
fyrirmynd með erlendum þjóðum.
-ÖS
Sjá bls. 2.
Á Prestastefnunni sem lauk í gærkvöldi á
Laugarvatni var eitt höfuðmálanna svokallað
starfsmannafrumvarp, þar sem lagt var til að
biskupsstólum verði fjölgað í þrjá, en jafnframt
vcrði embætti vígslubiskupa lagt af. Með þessu
er fyrirhugað að lctta starf biskupsembættisins
og auka tengsl þess við grunneiningu kirkjunnar,
söfnuðina. Stuðningsályktun við fjölgunina var
samþykkt á Prestastefnunni í gær.
Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson, sem tók við
áliti umræðuhópa sem meðal annars ræddu
fjölgun biskupa sagði Þjóðviljanum á Laugar-
vatni í gær að ekki væri einhugur um málið meðal
klerka. Teldu ýmsir að embætti biskups bæri
þau: Ásdís Leifsdóttir verka-
kona, Birna Þórðardóttir lækna-
ritari, Jón Baldvin Hannibalsson
þingmaður, Ragnheiður Rík-
harðsdóttir kennari, Sigurbjörg
Sveinsdóttir iðnverkakona, Stef-
án Benediktsson þingmaður og
Svavar Gestsson þingmaður.
-óg
Hamarshúsið
Harðorð
mótmæli
Harðorð mótmæli sökum
hinna óleyfilegu breytinga á
Hamarshúsinu voru samþykkt
einróma á fundi Bygginganefndar
Reykjavíkur í gær. En eins og
Þjóðviljinn greindi frá fyrr í vik-
unni er nú búið að auglýsa til sölu
íbúðir í Hamarshúsinu án þess að
Byggingarnefnd hafi gefið sam-
þykki sitt fyrir þeim, en slíkt er
bundið í lög og reglugerðir.
í bókuninni er samþykkt var
einróma á fundi nefndarinnr er
eigandi og byggingarmeistari
Hamarshússins átalinn harðlega
fyrir að gera íbúðirnar og auglýsa
síðan til sölu án þess að endanlegí
samþykki Byggingarnefndar liggi
fyrir, og er vísaðtil greina í lögum
og reglugerðum sem kveða á um
nauðsyn þessa.
Þjóðviljinn hefur einn fjöl-
miðla vakið athygli á lögleysunni
sem fram hefur farið í Hamars-
húsinu.
-ÖS
Togaraafgreiðslan
Viðræður
Dagsbrúnar
og BÚR
í gærkvöldi var haft samband
við Guðmund J. Guðmundsson
formann Dagsbrúnar út af þeim
breytingum sem verða á Togara-
afgreiðslunni en eins og greint er
frá á baksíðu Þjóðviljans í dag
verður hún lögð niður um helg-
ina.
Guðmundur staðfesti að öllum
starfsmönnum Togaraafgreiðsl-
unnar hefði verið sagt upp með
þriggja mánaða uppsagnarfresti.
Ekki hefði ennþá verið gengið frá
samkomulagi um ráðningu starfs-
manna til BÚR og það mál væri
ennþá til umræðu milli Dagsb-
rúnar og BÚR.
-ÖS
Sjá baksíðu.