Þjóðviljinn - 29.06.1984, Qupperneq 3
FRETTIR
4. júlí
Útihátíðarhöld
við Árbæjarsafn
Grillaðar pylsur
og karlmenn í gallabuxum
á þjóðhátíðardegi
Bandaríkjanna
Herra Pétur Sigurgeirsson biskup yfir íslandi ásamt Ólafi Skúlasyni vígslubiskup og dómprófasti.sá, sem þjónar
húsbónda sínum með virktum, mun heiður hljóta". Ljósm. -eik.
Prestastefna
Tómlæti á Alþingi
Vígslubiskup segir að Alþingi afgreiði
fá mál sem snerta kirkjuna.
Óánœgja meðal presta yfir áhugaleysi þingmanna.
Það er rétt, að það er við ram-
man reip að draga þar sem er
afskiptaleysi Alþingis af þeim
málum sem kirkjuþing hefur
samþykkt, sagði sr. Ólafur
Skúlason vígslubiskup þegar
Þjóðviljinn innti hann eftir hvort
rétt væri að prestar væri óá-
nægðir með afgrciðslu Alþingis á
málefnum þeirra.
„Það eru afskaplega fá mál sem
snertá presta og kirkju sem fá af-
greiðslu frá Alþingi, og í rauninni
fá mál sem jafnvel komast úr
nefnd. Kirkjan getur ekki unað
þessu öllu lengur“.
„Við bundum miklar vonir við
samstarfsnefnd kirkju og þings
sem skipuð var fyrir nokkrum
árum. í henni eiga sæti einn full-
trúi frá hverjum stjórnmálaflokki
auk kirkjuráðs. En því miður
höfum við orðið fyrir vonbrigð-
um með hana. Tómlæti Alþingis
er okkur satt að segja mikið á-
hyggjuefni".
Vígslubiskup var að öðru leyti
hress og taldi Prestastefnu hafa
gengið mæta vel. „Við höfum
verið afskaplega heppnir með
veður og mikil eining um mál.
Það getur nú brugðið til beggja
vona með það á svona fundum“,
sagði séra Ólafur og brosti kank-
víslega, „því prestar eru menn
með fastar skoðanir og hika ekki
við að mæla sterklega fyrir
þeim.“
Að sögn hans voru einkum tvö
mál sem bar hæst, í fyrsta lagi ár
Biblíunnar og svo starfsmanna-
frumvarp sem lagt var til umsagn-
ar fyrir þingið. „Starfsmannafr-
umvarpið er okkur afskaplega
mikilvægt, það má segja að það
skiptist í þrennt, málefni sóknar-
presta, prófasta og svo biskupa,
en það eru uppi tillögur um að
fjölga biskupum í þrjá. Mér sýn-
ist nú lítil óeining um þá
breytingu, enda vissulega tíma-
bær“.
Vígslubiskup gat þess jafn-
framt að kvöldinu áður hefðu
klerkar samþykkt yfir málsverði í
Skálholti að láta taka upp á
myndband úrslitaleikinn í Evróp-
ukeppninni í knattspyrnu og sam-
þykkt að banna að láta segja
þeim úrslitin fyrirfram. „Þannig
að við höfum nú gert ýmislegt
okkur til gamans“, sagði sr.
Ólafur en bætti svo við kankvís-
lega: „Þó sumir hefðu nú vafa-
laust frekar gengið í vatnið en
fara að horfa á fótbolta!"
-ÖS
Safnstjóri og borgaryfirvöld
hafa lánað okkur svæðið,
sagði Friðrik Brekkan blaðafull-
trúi Menningarstofnunar Banda-
ríkjanna, cn sendiráðið hefur
boðað til fagnaðar á túninu við
minjasafn Reykvíkinga á þjóð-
hátíðardegi Bandaríkjanna 4. júlí
næstkomandi.
Dagskráin hefst kl. 18.00 með
því að trjám verður plantað við
jaðar svæðisins. Þá verður
grillveisla og hljómsveit spilar
kántrílög. „Við reiknum með 400
til 500 manns“, sagði Friðrik.
„Ætlast er til að menn komi í gall-
abuxum og með konur og börn“.
Gestirnir fá send boðskort.
Friðrik kvað húsnæðið hjá
Menningarstofnun löngu hafa
sprengt af sér allan þann mann-
fjölda sem kemur til að samfagna
á þjóðhátíðardegi Bandaríkj-
anna og því væri brugðið á þetta
ráð og treyst á velvild veðurguð-
anna. „Þetta verður áreiðanlega
skemmtilegt“, sagði Nanna Her-
mannsson safnvörður í Árbæjar-
Hagstofan
Klemens hættir
Klemens Tryggvason hag-
stofustjóri hefur fengið lausn frá
embætti 1. janúar á næsta ári.
Hann verður sjötugur á næsta
hausti. Hefur embætti hagstofu-
stjóra verið auglýst laust til um-
sóknar og er umsóknarfrestur til
20. júlí n.k.
Pjóðleikhúsið
Ríkharður III
á jólum
Leikári Þjóðleikhússins lauk í gær-
kvöldi með 45. sýningu á söng-
leiknum Gæjum og píum.
Fyrsta verkefni Þjóðleikhússins í
haust verður hið nýja leikrit Ólafs
Hauks Símonarsonar Milli skinns og
hörunds, síðan Gæjar og píur,
Skugga-Sveinn, tvær ballettsýningar
og fyrir börnin væntanlega nokkrar
sýningar á Ömmu þó, en barnaleikrit
vetrarins verður Kardemommubær-
inn.
Jólaleikrit Þjóðleikhússins verður
Ríkharður III. eftir Shakespeare.
Sýningar Þjóðleikhússins á þessu
leikári urðu 275 og sýningagestir rétt
innan við hundrað þúsund.
Öryggi sjómanna
Tekin verði upp
skyndiskoðun
skipa
Sjómannafélag Reykjavíkur varar við
því alvarlega ástandi
sem skapast hefur á flotanum
með fœkkun áhafna, tíðari mannaskiptum
og undanþágum til skipsstjórnar
Afarskipum jafnt sem fískiskipum er nú krafíst
meiri hraða og afkasta en áður og er allur
tækja- og vélabúnaður miðaður við það. Sam-
fara þessu er fækkað í áhöfn, mannaskipti eru
miklu tíðari vegna lélegra launa miðað við álag
og fjarveru og fleiri undanþágur eru vcittar
mönnum til stjórnunar skipum en áður hefur
þekkst.
Þetta alvarlega ástand sem skapast hefur á
flotanum hefur m.a. þær alvarlegu afleiðingar í
för með sér að mati Sjómannafélags Reykjavík-
ur að áhöfnum gefst minni tími en áður til að
kynna sér ástand skipa enda vantar oft vana
leiðbeinendur.
Á aðalfundi Sjómannafélagsins fyrr í þessari
viku var m.a. samþykkt ályktun um öryggismál
þar sem lögð er áhersla á að ráðnir verði sérstak-
ir menn til skyndiskoðunar skipa og búnaðar og
jafnframt verði áhöfnum landhelgisgæslunnar
falið að framkvæma slíkar skoðanir í höfnum
inni. Tilkynningaskyldan verði efld og sektará-
kvæði hert ef útaf er brugðið.
Þá leggur Sjómannafélag Reykjavíkur áherslu
á að verkleg menntun og þjálfun allra sjómanna
verði stóraukin. Settur verði á stofn farskóli sem
sjái um námskeið í helstu verstöðvum landsins
og þar verði m.a. kennd meðferð öryggistækja
og fleira sem að góðri sjómennsku lýtur. Öllum
lögskráðum sjómönnum sé skylt að sækja slík
námskeið.
-•g-
safni og leist vel á að fleiri not-
færðu sér aðstöðuna sem svæði
Árbæjarsafnsins hefur upp á að
bjóða.
-óg
HJÁLMAR
ÓLAFSS0N
LÁTINN
Hjálmar Ólafsson, formað-
ur Norræna félagsins á ís-
landi, varð bráðkvaddur í
gær, tæplega sextugur að
aldri.
Hjálmar var fæddur í
Reykjavík 25. ágúst 1924 og
voru foreldrar hans Ólafur
Einarsson og kona hans Dór-
othea Árnadóttir. Hann varð
stúdent 1943, lauk BA prófi í
ensku og dönsku við Háskóla
íslands 1950. Hjálmarstarfaði
bæði að kennslu og var mikil-
virkur í stjórnmálum og fé-
lagsmálum. Hann var bæjar-
stjóri i Kópavogi á árunum
1962-1970 og konrektor við
Menntaskólann í Hamrahlíð
1972-1979. En einkum og sér í
lagi var Hjálmar atkvæða-
mikill á sviði norræns menn-
ingarsamstarfs og var hann
formaður Norræna félagsins
fráárinu 1975. Hannfékkstog.
við ritstörf og þýðingar. m.a.
þýddi hann Dýrmæta líf eftir
færeyska rithöfundinn Jörgen
Frantz Jacobsen. Eftirlifandi
kona hans er Nanna Björns-
dóttir.
Málað í
Látravík
Um s.l. helgi var hafist handa
við að mála klakhús laxeldis-
stöðvarinnar við Lárós að Vík í
Eyrarsveit. En að undanförnu
hefur talsvert verið fjallað um
umgengni forráðamanna laxeld-
isstöðvarinnar um jarðir fyrir-
tækisins vegna orðuveitingar til
Jóns Sveinssonar forstjóra lax-
eldisstöðvarinnar.
IH
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3