Þjóðviljinn - 03.07.1984, Síða 2
KarnivaI á Akureyri
örn Ingi og samstarfsfólk hans í Laxdalshúsi á Akureyri efndu til skemmtilegrar
„karnival" uppákomu sl. föstudag meö aðstoð danska leikhópsins Ragnarrök.
Fengu menn þar smjörþefinn af því sem ef til vill koma skal, nefnilega
sannkallaðri „karnival“-sumarhátíð á Akureyri. (Ljósmynd Kristján).
FRÉTTIR
Sovéskir
bankamenn
heimsækja
Landsbank-
ann
í gær kom sendinefnd frá So-
vétríkjunum í heimsókn til
Landsbankans og í boði hans.
Sendinefndarmenn eru frá Ríkis-
banka Sovétríkjanna, sem fer
með um 90% lánastarfsemi í
landinu, og Utanríksviðskipta-
banka Sovétríkjanna.
!TORGIÐ!
Það hefðu einhvern tíma þótt tíðindi
að Jón Baldvin og Svavar Gestsson
væru sömu skoðunar um samstöðu.
Schliiter í
opinberri
heimsókn hér
Poul Schliiter forsætisráðherra
Danmerkur og kona hans hafa
verið í opinberri heimsókn á Is-
landi sem lýkur í dag. Á laugar-
dag var farið til Þingvalla, á
sunnudag fóru fram pólitískar
viðræður við íslenska ráðamenn
og í gær var farið til Mývatns.
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra hélt gestunum
veislu á laugardagskvöld. Forsæt-
isráðherramir fóru góðum orð-
um um hin sérstæðu og miklu
samskipti þjóðanna fyrr og síðar
og vildu hlúa að þeim sem best.
Schluter vitnaði töluvert í Háva-
mál og var hrifinn af hlutverki
sem Island gegndi í Nató.
Steingrímur sagði á þá leið að
„Við erum að vísu eins og
heimurinn allur, háðir því hvern-
ig risaveldunum tveimur semst,
en við teljum þó ekki alls kostar
rétt að sitja hjá sem aðgerða-
lausir áhorfendur“.
Ættarmót
í Skagafirði
Ættarmót niðja Soffíu Zop-
haníasdóttur, sem bjó á
Brekku í Svarfaðardal og síð-
ar á Sauðárkróki, verður
haldið um næstu helgi. Ættar-
mótið verður haldið í
Steinstaðaskóla Skagafirði
I dagana 5. til 8. júlí.
Kalskemmdir
Mikið kal
í Mývatnssveit
Vonir bundnar við Beringspuntinn
Veruleg brögð eru að kali sums-
staðar á Norð-austurlandi,
einkum í hásveitum. Fréttir hafa
borist um það frá Hólsfjallabæj-
unum og er útlitið ekki glæsilegt
þar. Svipaða sögu er að segja úr
Mývatnssveit og frá sumum bæj-
um í Bárðardal. Spretta í Mý-
vatnssveit er mun skemmra á veg
komin en í lágsveitum Þingeyjar-
sýslu og er talið að þar muni
jafnvel allt að þremur vikum.
Þegar á heildina er litið eru þó
heyskaparhorfur í héraðinu eng-
an veginn slæmar og margir búa
að fyrningum. Búnaðarsamband-
ið hyggst taka á leigu eyfirska
kögglavél til þess að köggla fyrn-
ingar svo að hlöðurými aukist.
Trúlega grípa margir bændur til
þess ráðs að brjóta upp kalsvæðin
og sá í þau grænfóðri. Ug svo
binda menn vonir við Berings-
puntinn, harðgerða jurt frá Kan-
ada. Hann hefur reynst hér með
afbrigðum vel en verið torfeng-
inn til þessa. Talið er að úr því
muni rætast að vori. Vonandi fá
bændur þá þann „bandamann“ í
baráttunni við kalið, sem um
munar.
-mhg
Borgarspítalinn
Öldruð ræstingakona beitt harðræði
s
A Borgarspítalanum var 75 ára konu sagt upp og síðan niðurlœgð
þegar hún véfengdi uppsögnina. Hún hefur unnið yfir 30 ár hjá Reykjavíkurborg
Eg er búin að vinna hér í sextán ár og var
sagt upp vafalaust bara af því ég verð 75
ára á þessu ári. En ég er hress og hefði
gjarnan viljað vera áfram og í samningum
Sóknar er ekkert aldurstakmark. Þar er
líka sagt að einungis sé hægt að segja mann-
eskju upp ef starfið er lagt niður. En ég var
sú eina sem rekin var úr mínu holli, og mér
var líka sagt að það yrði stúlka ráðin í minn
stað“.
Þetta er frásögn ræstingakonunnar á
Borgarspítalanum, sem, eins og sagt er frá á
forsíðu Þjóðviljans í dag, lenti í heldur
óskemmtilegri viðureign við framkvæmda-
stjóra Borgarspítalans.
Spott
Forsaga málsins er sú, að fyrir fáum mán-
uðum var konunni afhent bréf af tveimur
verkstjórum með þeim ummælum, að þar
færi „ástarbréf frá fbrstjóranum“. Konan
kvaðst ekki taka slíkum sendingum og henti
bréfinu í ruslið. Hið raunverulega efni
bréfsins mun hafa verið uppsögn.
í lok apríl kallar svo ræstingastjórinn á
konuna, og segir að búið sé að segja henni
upp. Sóknarkonan segir sem er, að eina
bréfið sem hún hafí fengið frá yfirstjórn
spítalans hafí verið það sem verkstjórarnir
báru henni með flimti, og engri manneskju
sé skylt að þola slíkt að ósekju. Hún liti því
svo á að sér hefði ekki borist nein uppsögn,
og myndi vinna að minnsta kosti út maí,
eftir það færi hún í sumarfrí en myndi að
líkindum ekki koma aftur. í samtali við
Þjóðviljann í gær sagði hún að sér hefði
skilist að ræstingastjórinn hefði gengið að
því.
Hendur skiptu
Þegar hin aldraða ræstingakona kom svo
í vinnu í maíbyrjun kom ræstingastjórinn og
heimtaði af henni lyklana að skáp, þar sem
vinnuföt og áhöld voru geymd. Hún féllst
ekki á það en fylgdi henni hins vegar á fund
framkvæmdastjóra Borgarspítalans.
Þeim fundi lyktaði svo með því að for-
stjórinn reif af henni barmmerki sem nafn
hennar stóð á með þeim ummælum að það
væri eign spítalans. Síðan flaug hann á kon-
una og hélt höndum hennar og skipaði
ræstingastjóranum, sem var áhorfandi að
þessu, að taka skáplyklana úr vösum kon-
unnar. Þvínæst krafðist hann þess að hún
færi úr kjólnum því hann vaéri eign spítal-
ans.
Eins og fyrr er sagt er ræstingakonan búin
að vinna í næstum 16 ár hjá Borgarspítalan-
um og yfir þrjátíu ár samtals hjá Reykjavík-
urborg. Skýringar á uppsögninni og hinum
hörkulegu aðförum fékk hún að eigin sögn
engar.
-ÖS
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 3. júlí 1984