Þjóðviljinn - 03.07.1984, Page 9

Þjóðviljinn - 03.07.1984, Page 9
__________________________HEIMURINN Teikningin segir frá því, að höll bankakerfisins sé að hrynja og valdi þar mestu lán þau sem ríki þriðja heimsins hafa tekið - mest vinsamlegar hægristjórnir reyndar. Peningarnir fóru í sukk og óráðsíu Ríki Rómönsku Ameríku eru að sligast undan skuldabyrðinni - Fjármálavitringar Bandaríkj- anna og annarra auðugra ríkja hafa á undanförnum árum mjög beitt visku sinni og fjármagni til þess að fjárfesta í ríkjum Róm- önsku Ameríku. Þau ríki skulda nú um 350 miljarði dollara - og geta ekki borgað. Og fjármagn þetta hefur ekki einu sinni verið sett í framkvæmdir sem líklegar eru til að koma einhverjum til góða í framtíðinni: lygilega miklu hefur verið stolið samkvæmt því gamla og góða markaðslögmáli, að hver sé sjálfum sér næstur. Öfug aðstoð Skuldamál þessi eru orðin svo hrikaleg að sumir fréttaskýrend- ur eru farnir að tala um það, að lausn þeirra ráði úrslitum um það hvort friður helst í heiminum eða ekki. Markaðstrúarmenn hafa dælt peningum í herforingjaklík- ur og aðrar umboðslitlar stjórnir - en þeirra gróðadæmi hefur ekki gengið upp. Þaðan af síður er það talið líklegt, að hið pólitíska dæmi gangi upp nú, þegar pen- ingastofnanir setja hinum fátæku skuldunautum sínum harða skil- mála um endurgreiðslur. Stofn- anir þessar heimta, að skert laun og félagsleg þjónusta í ríkjum, sem eru fátæk fyrir, annars fæst engin fyrirgreiðsla í framtíðinni. Og dæmið er orðið svo fáránlegt, að lönd Rómönsku Ameríku eru farin að greiða Bandaríkjunum og öðrum auðugum ríkjum um þrjátíu miljarði dollara á ári í vexti og afborganir og hefur þessu ástandi verið líkt við það, jafnvel í íhaldssömu tímariti eins og Time, að þróunaraðstoð sé snúið við. Hinir fátæku gefi hin- um ríku! Ekki bætir það úr skák að stjórn Reagans heldur áfram að hækka vexti heima hjá sér af innanríkispólitískum ástæðum - nú síðast um hálft prósent. En hver hækkun útlánsvaxta í Bandaríkjunum um eitt prósent eykur greiðslubyrði hinna fátæku granna í suðri um hvorki meira né minna en 2,5 miljarði dollara. Leiðtogar Evrópuríkja og svo oddvitar skuldunautanna í suðri hafa hvað eftir annað varað Re- agan forseta við því, að hin sér- stæða viðureign hans við verð- bólgu heima fyrir, sem meðal annars gerir ráð fyrir geysilegum halla á fjárlögum, sé hin háska- legasta fyrir afganginn af heimin- um. Reagan lofar stundum bót og betrun í hálfkveðnum vísum, en það er minna um efndir. En sem fyrr segir: ríku löndin hafa lánað stjórnum, sem flestar höfðu næsta vesælt umboð frá sínu fólki - og ferðalag pening- anna hefur verið mjög eftir því. í samantekt um málið í fyrrnefnu Time er talið, að um það bil þriðj- ungur af þeim gífurlegu lánum sem lönd Rómönsku Ameríku stynja nú undir, hafi lent á leyni- reikningum í New York, Zúrich, London og Miami. Þau lán sem skynsamlegast þóttu, áttu að kosta stíflugerð, stóriðju og vegalagningar. En margar þær áætlanir hafa reynst á sandi byggðar. Til dæmis að taka bundust Brasilía og Paraguay samtökum um miklar fjárfesting- ar í Itaipu, sem verða skyldi mesta vatnsorkustöð í heiminum. Stíflan ein er næstum því átta kílómetra löng. Níu ár eru síðan framkvæmdir hófust og hafa þær kostað alls um átján miljarði doll- ara. Brasilía hefur enn ekki feng- ið eitt cinasta kflóvatt út úr virkj- un þessari og Paraguay aðeins lítið eitt af orku. Slík dæmi eru ótal mörg. Algengt er að virkjan- ir og verksmiðjur kosta miklu meira en áætlað var, og ef þær komast í gangið eru ekki til mark- aðir fyrir afurðirnar. Reikningslistir kapítalismans hafa brugðist En annað bregst aldrei: hæfi- leiki vafasamra valdamanna til að færa sér í nyt peningaflóðið. í Mexíkó streymdu peningar til olíufirmans Pemex, enda talið víst að ekki yrði peningum betur varið en að auka framleiðslu á olíu svo skammt frá bandarískum mörkuðum. En spillingin í því fyrirtæki er gegndarlaus og fyrr- verandi forstjóri fyrirtækisins, Jorge Dias Serrano, er nú í fang- elsi, sakaður um fjárdrátt sem nemur hvorki meira né minna en 34 milljónum dollara! ✓ I þágu hinna ríku Einatt hafa erlend lán verið notuð til þess að halda uppi gengi gjaldmiðils einstakra ríkja. Þar með eru þeir, sem peninga eiga í landinu, hvattir til að flytja inn ýmislegan dýran neysluvarning. Herforingjastjórnin í Chile, sem hafði sér til aðstoðar lærisveina Miltons Friedmans í efna- hagsmálum, hefur stjórnað landinu á þann veg, að þriðji hver maður í landinu er atvinnulaus. Samt sem áður er ekki langt síðan að yfirstéttin í Chile sá til þess að landið varð meiriháttar innflytj- andi sjónvarpstækja, kæliskápa og bíla. Það eru líka gengiskúnstir sem leiða til þess, að það verður hag- kvæmt fyrir þá braskara í löndum Rómönsku Ameríku sem yfir peninga komast, að kaupa eignir erlendis og leggja fé sitt í banda- ríska banka eða hliðastæðar pen- ingastofnanir. Um leið og lánin streymdu inn í Rómönsku Amer- íku, fjárfestu hinir ríku í sömu löndum í Bandaríkjunum og Evr- ópu. Það er talið, að fjárflóttinn frá Rómönsku Ameríku nemi um 70 miljörðum dollara frá 1979, sem er um það bil þriðjungur af erlendum skuldum þessara ríkja. Illur fengur Ekki má heldur gleyma hern- aðarævintýrum allskonar. Til dæmis eyddi sú herforingja- stjórn, sem fór langt með að setja Argentínu á hausinn, um það bil fjórtán miljörðum dollara í vopn- akaup, þegar hún var að búa sig undir Falklandseyjastríðið við Breta. Og svo eru sérstakir vinir eins og Duvalierklíkan á Haiti, sem hefur lengi haldið uppi ein- hverju spilltasta stjórnarfari í heimi. Þar gerist það kannski, að svo sem tuttugu miljónir dollara, sem Alþjóðlegi gjaldeyrissjóður- inn veitti til að bæta upp greiðslu- halla á tilteknu ári hurfu - og hef- ur enginn séð þá peninga síðan. Líklega eru þeir á leynireikning í Sviss eins og svo margt annað illa fengið fé, sem bíður eftir því að eigendunum verði velgt undir uggum. AB tók saman. Símasamfarir færast í vöxt Braskið með kynhvötina finnur sér æ nýjar leiðir Til eru ótal leiðir til að græða á kynhvötinni bless- aðri. Ein er sú að selja ein- mana mönnum aðgang að stúlkum um síma. Þeir borga visst gjald og fá að tala í á- kveðinn mínútufjölda við stúlkur sem fara í ástaleik við þá í orðum vafasömum og fylgja einatt með stunur og hróp og annað sem ætti að gerast ef hold mætti holdi í raun og veru. Eins og margt fleira af þessu tagi er símasexið fundið upp í Bandaríkjunum og hefur breiðst þaðan út til Evrópulanda. Til dæmis var á dögunum verið að opna fyrstu „símaástaþjónust- una“ á Ítalíu, það er í borginni Torino. Þegar menn hafa lagt fram um- sókn með nokkrum skilmálum fá þeir fyrir 20 þúsund lírur (um 350 krónur) að klæmast eins og þá lystir í 10 mínútur við ungar stúlk- ur sem hafa reynt að æfa sig í því að vera freistandi og uppörvandi í röddinni. er ég að færa þig úr buxunum, og svona nú strýk ég þér, grísinn minn, og það hverfur af þér allt hik... - Sjáðu til, ég er ekki ungur lengur og svo er ég dálítið feim- inn... - Feiminn elskan, maður á ekki að vera feiminn, finndu hvað þetta er gott og ljúft, sjáðu nú færi ég þig alveg úr buxunum og sjáðu nú er ég að fara úr rauðu nærbuxunum mínum, núna er ég næstum því allsber, sjáðu nú fer ég líka úr brjóstahaldaranum svo þú sjáir fallegustu bobbinga í heimi... - Satt að segja, ég sé ekki sem best héðan..." Og svo framvegis. Þetta samtal endaði reyndar á því að blaða- maðurinn sprakk, fór að hlæja sá hundur. En er það annars ekki furðu- legt að ótti manna við aðrar manneskjur skuli vera orðinn svo magnaður að meira að segja keypt kynlíf fer fram í síma? (áb cndursagði.) Blaðamaður við ítalska viku- blaðið í I’Espresso prófaði þessa þjónustu á sjálfum sér á dögun- um og skráði vitanlega niður það sem fram fór. Meðal annars þetta: „Ég er ekkert að hika, en... (segir blaðamaðurinn) -Nei, ekkert að hika, sjáðu, nú Og nú færi ég þig úr buxunum, feimni strákur... Þriðjudagur 3. júlf 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.