Þjóðviljinn - 15.07.1984, Side 3
voru auglýsingamyndir af
landsliðshópnum skreyttum í
bak og fyrir með Visa miðum
og merkjum. Þá auglýsti fyrir-
tækið nýafstaðna leiki lands-
liðsins við V-Þjóðverja. Að-
eins einn varnagli var í
kaupum með styrknum.
Hvaða fyrirtæki sem er má
kaupa auglýsingar á búning-
um landsliðsins fram að Ol-
ympíuleikum nema Kreditkort
h/f eini og aðalkeppinautur
Visa. ■
Barlyftan
í bankanum
Hótel ísafjörður er handhafi
eina vínveitingaleyfis í kaup-
staðnum. Það er nú rekið af
Ferðaskrifstofu ríkisins, en
eigendur munu kvellisjúkir
nokkuð í peningalíffærinu.
Áfengi er selt á kvöldin ímat-
sal hússinsá neðstu hæð og
sitja þar þyrstir síðkvöldin
löng og glápa inn fjörðinn. Á
efstu hæðinni er reyndar
glæsilegur bar, en hann er
ekki hægt að nota því að lyft-
una vantar. Lausafregnir
herma að lyftan sé ekki langt
undan, raunar í vörslu Lands-
bankans hinummegin götu-
nnar og bíður uppsetning eftir
að rofi til á fjármálahimni hót-
elsins. Á meðan stendur bar-
inn ónotaður. ■
Þrælkunarvinnan
í Tékkó
Forystumenn í handknatt-
leiknum munu ekki vera sér-
lega hressir með mynd-
skreytta uppsláttarfrétt um
þrælkunarvinnu í Tókkósló-
vakíu sem birtist á baksíðu NT
fyrir nokkru. Einhverjir úr
landsliðshópnum höfðu náð
að smygla filmu með sér úr
förinni til Tókkóslóvakíu í lok
júní og á myndunum mátti sjá
fanga í hjólböruakstri undir
eftirliti vopnaðra varða. Nú
óttast menn að þetta leiði til
þess að íslenska landsliðinu
verði ekki oftar boðið til Tékk-
óslóvakíu, og jafnvel ekki til
annarra Austur-Evrópulanda,
og slíkt yrði talsvert áfall fyrir
hérlendan handknattleik. ■
5% fylgi í kosningunum,
munu ekki sitja nema hálft
kjörtímabil hver - síðan tekur
næsti frambjóðandi á lista
þeirra við.
Petra Kelly hafði sótt um
undanþágu og hefði fengið
hana ef að 70% þátttakenda
á landsfundi Græningja hefðu
stutt þá bón. En hún fékk ekki
nema 60% stuðning og verð-
ur því að hverfa af þingi.
Það þykir mörgum Græn-
ingjunum slæmt að missa
eina helstu baráttukonu sína
af þingi. Petru Kelly finnst það
líka - og hefur hún, þegar
þetta er skrifað, ekki gert það
upp við sig hvort hún hlýðir
fyrirmælum landsfundar eða
situr áfram á þingi. Ef hún ger-
ir það verður hún að ganga úr
þingflokki Græningja og sitja
sem óháður þingmaður.
Reyndar hefur þriðjungur
kjörinna þingmanna Græn-
ingja þegar lýst því yfir, að þeir
muni ekki hverfa af þingi þótt
skiptireglan sem á að gi Ida
um öll störf á vegum flokksins
nái til þeirra. Ekki er gott að
spá um það, hvaða afleiðing-
ar þetta hefur fyrir framtíð
Græningjanna, en hitt er vitað
að þeir fengu góða útkomu í
Evrópukosningunum á dög-
unum. ■
Listahátíð
svíkur
samninga
Mikið hefur verið fjallað um
fyrirsjáanlegt stórtap af Lista-
hátíð sem haldin var í vor og
nefndar þar stórar tölur. Nú
virðast forráðamenn hátíðar-
innar ætla að snyrta örlítið til í
bókhaldinu hjá sér með því að
brjóta gerða samninga á
götuleikhúsinu Svörtu og syk-
urlausu. Götuleikararnir áttu
marga góða leiki víðsvegar í
borginni og að flestra dómi
mun betri en þeir útlendu
leikhópar sem sóttir voru
langt aö. Fyrir hátíðina hafði
leikhópurinn gert samning við
forráðamenn Listahátíðar um
greiðslur fyrir þátt sinn í hátíð-
inni. Var hluti þeirra reiddur af
hendi fyrirfram en afgangur-
inn átti að koma strax að
Listahátíð lokinni. Nú er liðin
hartnær mánuður síðan hátíð-
inni lauk en ekkert bólar á
greiðslunni sem nemur um
100 þúsund krónum. Aðrir
þátttakendur í hátíðinni munu
hins vegar hafa fengið allar
sínar greiðslur. Félagar
Svarts og sykurlauss hafa
Grautarát
í Degi
Blaðið Dagur á Akureyri hefur
að sjálfsögðu galla marga og
stóra. Eins og aðrir. En blaðið
heldur þó við þeim ágæta sið
að tengja saman gamlan tíma
og nýjan með birtingu vísna
sem koma af ýmsu tilefni. í
síðasta Helgardegi er til að
mynda að finna þessa póli-
tísku vísu hér, og er höfð eftir
Þórði á Dagverðará:
örbirgðin þungum áhyggjum
veldur.
Erfið er hungursins langvinna
þraut.
Albert og Steingrímur haldast
íhendur
og hafa ei annað að éta en
graut. ■
Græningjar í
vandræðum með
þingmenn sína
Petra Kelly, einhver helsti
talsmaður Græningjanna
vestur-þýsku á þinginu í
Bonn, verður að fara af þingi í
haust.
Græningjamir settu sér
það, að frambjóðendur þeirra
skyldu skiptast a um að sitja á
þingi. Þetta þýðir, að þeir 27
þingmenn Græningja sem
kosnir voru á þing þegar flokk-
urinn komst í fyrsta sinn yfir
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
reynt að reka á eftir greiðslum
en lítið stoðað, enda er for-
maðurinn erlendis og fram-
kvæmdastjórinn á leiðinni í
sumarfrí. Hjá Reykjavíkur-
borg hafa þau svör ein fengist
að leikhópurinn geti kannski
átt von á einhverjum
greiðslum í september. Kem-
ur þetta sér mjög illa fyrir hóp-
inn því hann hafði lagt í heil-
mikinn kostnað vegna sýning-
anna á Listahátíð og slegið
lán sem greiðast áttu strax að
hátíðinni lokinni. Félagar
leikhússins þiggja engin laun
fyrir vinnu sína í sýningunum
svo hér er einungis um að
ræða beinan útlagðan kostn-
að við búninga, leikmuni
o.þ.h. Hefur hópurinn orðið að
breyta öllum starfsáætlunum
sínum vegna þessarar ráða-
breytni forráðamanna Lista-
hátíðar. ■
Varahlutir I allar
vélar
(næstum því)
I Varahlutir keyptir beint frá framleiðendum.
J Varahlutir í flestar gerðir bensín- og díselvéla.
J Varahlutir frá stærstu framleiðendum Evópu.
T 35 ára reynsla í vali á varahlutum.
J Ábyrgðarskírteini í 1 ár fylgir uppgerðum vélum.
Hvaða vél átt þú? Ford Taunus Cortina Transit Mustang Opel Perkins Subaru Suzuki
AMC Chevrolet Fiesta Escort Comet Honda Peugeot Rambler Toyota Vauxhal!
Audi Chrysler Trader Lada Range Rover Volvo
Austin Datsun Disel Landrover Renault V.W.
Bedford Dodge Econoline Mazda Saab Willys
BMW Ferguson Bronco Mercedes Benz Scania Zetor
Buick Fiat Fairmo ít Mitsubishi Simca 0,fl.
ÍGerðul verð TsamanTí burð
Þ. Jónsson & Co
Skeifunni 17 - Símar 84515 84516
Sérfræöingur í
vélum í 35 ár