Þjóðviljinn - 15.07.1984, Blaðsíða 9
Við göngustígagerð
í góðum félagsskap
Þjóðgarðurinn í Skaftafelli heimsóttur
Þegar ekið er í hlað í Skafta-
felli er súld og komið undir
kvöld. Mig hálfhryllir við að
fara að tjalda, sem ég hef ekki
gertsíðan hvítasunnuhelgina
1962, þegarég vartáningur
og hélt að lífið væri að mestu
fólgið í helgarútilegum. Þessa
umræddu hvítasunnu rigndi
stanslaust og tjaldið fauk af
okkurstelpunum. Síðan hef
ég haft megnustu óbeit á
öllum vistarverum með stöng-
um og stögum. Þar að auki
hefur móðir mín, sem á tjaldið
að þessu sinni, lýst því yfir að
hún hafi aldrei tjaldað þessu
nýja tjaldi og viti eiginlega
ekkert hvernig eigi að fara að
því. Ég er þar að auki búin að
aka samfleytt í 7 klukkustund-
ir og býsna þreytt í handleggj-
unum. Þegar við höfum
heilsað upp á landverðina í
þjónustumiðstöðinni í Skafta-
felli og fengið allar nauðsyn-
legar upplýsingar, berum við
draslið upp í hornið á tjald-
svæðinu, þarsem okkur lang-
araðtjalda. í Ijós kemurað
framfarir hafa verið miklar í
tjaldagerð á þessum rúmlega
tuttugu árum sem ég hef ekki
fylgstmeð. Viðtjöldum „eftir
eyranu“ og komum upp
myndarlegu hýsi áörfáum
mínútum. Áður en farið er að
sofafáum við okkur göngu-
ferð inn í þjóðgarðinn og
skoðum hinaótrúlegu náttúru
í Skaftafelli. Talið er að um
210 tegundir blómplantna og
byrkinga vaxi villtar í Skafta-
felli og eru suðlægartegundir
hér meira áberandi en í flest-
um öðrum landshlutum.
Við finnum tvær plöntur sem
hér eru alfriðaðar, svartburkni,
sem vex hvergi nema hér (fannst
áður einnig á Búðum á Snæfells-
nesi) og klettafrú, sem líkist kín-
verskri postulínsstyttu, þar sem
hún teygir sig fíngerð og beinvax-
in beint út úr klettunum. Blóm-
skrúðið í þjóðgarðinum er
ólýsanlegt. Við reynum að átta
okkur á því hversu margar teg-
undir við þekkjum, en stöndum æ
ofan í æ á gati.
Við erum býsna þreyttar þegar
farið er að sofa, en Unnur móðir
mín reynir að fræða Unni dóttur-
dóttur sína um staðinn upp úr Ár-
bók Ferðafélagsins, en sú stutta
er með vasadiskóið á fullu og
heyrnartólin koma í veg fyrir að
Sunnudagur 15. júli 1984 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 9