Þjóðviljinn - 15.07.1984, Page 4
Einu sinni fór Jón bóndi til Reykjavíkur á flokksskóla Sósíalistaflokksins. Þar kenndi hagfræöi meðal annars Jónas
Haralz, sem síðar hefur orðið kunnur af öðru en mikilli vinstri hyggju. Eftir það ævintýr fór Jón austur aftur og kom til
Reykjavíkur aldregi síðan. Ljósm: Jón Ingi
Sósíalískir
bœndur
eru
fáséðir
fuglar
Rœttvið Jón Erlendsson
bóndaíHólagerði
íFáskrúðsfirði
Það var hráslagi í lofti þegar
við renndum í hlað hjá Jóni í
Hólagerði, þar sem hann býr
ásamtÁstu systursinni.
Dumbungur uppi yfir og grá-
þokusveimur innst í botnin-
um. En kaffið hjá Jóni og Ástu
lífgaði þvælda blaðasnápa
sunnan úr landi, og fyrr en
varði var Jón farinn að segja
af högum sósíalískra bænda.
„Jú, þeir eru nú víst ekki marg-
ir bændurnir á þessum slóðum
sem lesa Þjóðviljann að stað-
aldri“ sagði hann og brosti þegar
við spurðum hvort það væri rétt
sem við höfðum heyrt á Fá-
skrúðsfirði að hann væri eini
bóndinn í firðinum sem læsi Þjóð-
viljann að staðaldri. „Og enginn
þeirra hefur að minnsta kosti ver-
ið áskrifandi frá því í stríðsbyrjun
einsog ég. Sósíalískir bændur eru
fáséðir fuglar. Halldór Kiljan
Laxness sagði víst einhverju sinni
að það væri svo sérstakt að hitta
sósíalískan bónda að vissu menn
af svoleiðis merkisgrip vildi hann
endilega fá að sjá hann. En það
voru nú samt alltaf einhverjir
bændur uppá Héraði sem meira
segja voru í flokknum blessuðum
þegar hann var og hét“.
Allir í Framsókn
„Hingað fluttist ég þriggja ára
með foreldrum mínum og ætli
mér hafi ekki bara líkað vel.
Annars væri ég líklega farinn,“
segir Jón og hlær. „Þetta voru
kreppuár og mikið fylgst með pó-
litík þegar ég komst til vits og ára.
Uppúr fermingu var ég farinn að
hugsa um stjórnmál og frá því lá
leiðin til vinstri. Unglingar á
mínu reki voru áhugasamir um
pólitík og um þau mál var mikið
rætt. Það voru náttúrlega allir
Framsóknarmenn hér um slóðir,
blessaður vertu. Helst að eitt og
eitt heimili væri lengra til hægri.
Þú færð gjaldeyrinn í utanlandsferöina hjá okkur.
Ef eitthvað er eftir þegar heim kemur er tilvaliö
aö opna gjaldeyrisreikning og geyma afganginn á vöxtum
til seinni tíma.
Iðnaðartankinn
Aðalbanki og öli útibú.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Sunnudagur 15. júlí 1984