Þjóðviljinn - 15.07.1984, Blaðsíða 14
BÆJARROLT
Leikskóli -
forstöðumaður - fóstrur
Sauöárkrókskaupstaöur auglýsir lausar
stööur forstöðumanns við leikskólann Furu-
kot frá 1. sept. nk.
Einnig er auglýst eftir fóstrum til starfa á
deildum.
Fóstrumenntun er áskilin í ofantalin störf.
Laun eru skv. kjarasamningi Starfsmannafé-
lags Sauðárkrókskaupstaöar.
Umsóknarfrestur er til 3. ágúst.
Umsóknum ber aö skila til félagsmálastjóra,
bæjarskrifstofu v/Faxatorg, 550 Sauðárkrók-
ur.
Nánari upplýsingar veitir undirritaöur í síma
95-5133 frá kl. 10-12 virka daga.
Félagsmálastjóri..
Laus staða
Staða ritara hjá Vita- og hafnarmálaskrifstofunni er
laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist til stofnunarinnar fyrir 23. júlí.
Vita- og hafnarmálaskrifstofan
Seljavegi 32
s. 27733.
Bóksala stúdenta
óskar aö ráöa starfsmenn til almennra af-
greiöslustarfa o.fl.
1. Framtíðarstarf. Vinnutími frá 10 til 6.
2. Hálft starf veturinn 1984-5. Vinnutími 1-6.
Viö leitum að rösku og samvinnuþýðu fólki
meö góöa tungumálakunnáttu, sem gæti
hafiö störf sem fyrst. Vinsamlegast sendiö
umsóknirtil Bóksölu stúdenta Félagsstofnun
stúdenta v/Hringbraut fyrir 21. júlí.
Lausar stöður
Á skattstofu Norðurlands vestra er laus til umsóknar
ein staða fulltrúa til starfa við skatteftirlit. Nauðsynlegt
er að umsækjendur séu endurskoðendur eða hafi
lokið prófi í lögfræði, hagfræði eða viðskiptafræði eða
hafi staðgóða þekkingu á bókhaldi og skattskilum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf, sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 10. ágúst
nk.
Fjármálaráðuneytið, 10. júlí 1984.
Lausar stöður
Á skattstofu Norðurlands eystra eru lausar til umsókn-
ar tvær stöður fulltrúa til starfa við skatteftirlit.
Nauðsynlegt er að umsækjendur séu endurskoðend-
ur eða hafi lokið prófi í lögfræði, hagfræði eða við-
skiptafræði eða hafi staðgóða þekkingu á bókhaldi og
skattskilum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf, sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 10. ágúst
nk.
Fjármálaráðuneytið, 10. júlí 1984.
Lausar stöður
Á skattstofu Suðurlands eru lausar til umsóknar tvær
stöður fulltrúa til starfa við skatteftirlit. Nauðsynlegt er
að umsækjendur séu endurskoðendur eða hafi lokið
prófi í lögfræði, hagfræði eða viðskiptafræði eða hafi
staðgóða þekkingu á bókhaldi og skattskilum.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf, sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 10. ágúst
nk.
Fjármálaráðuneytið, 10. júlí 1984.
Tíminn er ekki til
Etir því sem tíminn líöur fæ ég
stundum smáköst út af því hvað
ég nálgast óðfluga besta aldurinn
sem færist alltof ofar eftir því sem
ég verð eldri. Þegar ég var tutt-
ugu ára var besti aldurinn 23 ára,
síðan færðist hann upp í 25 ára og
þegar ég varð þrítugur fékk ég
sjokk. Síðan hef ég að mestu lok-
að augunum fyrir því hvað ég er
gamall og jafnan tahð mig jafn-
aldra fólki sem komið er yfir tví-
tugt. Og það er ég.
Mér brá dálítið um daginn þeg-
ar kunningi minn, sem er að
skrifa sögu kaupstaðar úti á
landi, sagði mér að það væri hrein
hending að rekast á fólk nú orðið
sem myndi eitthvað að ráði það
sem gerðist fyrir 1920. Ég sem
man eftir honum Sigga gamla
frænda mínum sem fæddur var
átján hundruð sextíu og eitthvað.
Svona er þá komið. Bráðum
verður komið að mér að segja frá
æskuárum til þess að bjarga frá
glötun fróðleik sem annars færi
beint í glatkistuna. Ég gæti sem
best sagt frá þeim gömlu, ljúf-
sáru, góðu tímum þegar þota var
kölluð þrýstiloftsflugvél, gang-
stétt fortov og svalir altan. Er það
ekki?
Ósköp er nú annars ömurlegt
að vera að segja frá þessum
hörmungarhugsunum á prenti.
Það liggur við að ég fari að gráta
við ritvélina. Og ég sem ekki er
orðinn fertugur og besti aldurinn
er um fimmtugt - ef ekki síðar.
Nei, þetta dugir ekki. Ég verð að
fá nýja niðurstöðu í þessa grein
áður en ég brotna saman.
Ég get t.d. aumkast yfir bless-
uð litlu bömin sem þykjast vera
fullorðin þó að þau hafi kannski
rétt skriðið yfir tvítugsaldurinn.
Það hefur aldrei heyrt talað um
Bill Haiíey, veit ekkert og skilur
ekkert. Það er munur eða við sem
erum að komast á besta aldur og
höfum öðlast þó nokkra
lífsreynslu, kátt og skemmtilegt
fólk sem hefur komið sér upp
húsi, búslóð, bíl og krökkum.
Humm! Þetta er nú sennilega
ekki nógu gott hjá mér. Enn röng
niðurstaða.
Nei, tíminn er ekki til. Skarp-
héðinn stendur enn jafn nærri
mér og er jafn skemmtilegur þótt
hann hafi legið brunninn í rústum
Bergþórshvols í næstum þúsund
ár. Hann gæti þess vegna búið í
næsta húsi og verið hrifinn af
Björk litlu í Kukli, henni sem var
einu sinni í Tappa tíkarrass og
mér finnst svo skemmtileg. Þau
gætu verið ágætishjón.
Þama kom það. Rétt niður-
staða. - Guðjón
Alþýðubandalagið
Norðurlandi vestra
Sumarferð á Kjöl
og í Hvítárnes
um verslunarmannahelgina
4.-6. ágúst
Sumarferðir Alþýðubandalags-
ins á Norðurlandi vestra hafa ver-
ið mjög vinsælar. Að þessu sinni
verður farið um Kjalveg og tjald-
að í Hvítárnesi um verslunar-
mannahelgina.
Lagt verður af stað laugardag-
inn 4. ágúst, annars vegar frá
Siglufirði og farið um Hofsós og
Sauðárkrók, en hins vegar
Hvammstanga um Blönduós. All-
ur hópurinn mætist við Svartár-
brú í Langadal kl. 10.30. Síðan
liggur leiðin um Blönduvirkjunar-
svæðið og Hveravelli suður í
Hvítárnes suðaustan Langjökuls.
Daginn eftir verður sérstök ferð
farin í Kerlingarfjöll fyrir þá sem
vilja. Kvöldvaka verður í ferðinni.
Á mánudaginn verður ekið af
stað heim á leið og ýmsir mar-
kverðir staðir skoðaðir.
Ferðin kostar 1200 kr. en böm
og unglingar undir 14 ára aldri
græða hálft gjald.
Nánari upplýsingar gefa:
Sverrir Hjaltason, Hvamms-
tanga (s: 1474), Elísabet Bjarna-
dóttir Hvammstanga (s: 1435),
Eðvarð Hallgrímsson Skaga-
strönd (s: 4685), Guðmundur
Theódórsson Blönduósi (s:
4196), Hulda Sigurbjörnsdóttir
Sauðárkróki (s: 5289), Stefán
Guðmundsson Sauðárkróki (s:
5428), Gísli Kristjánsson Hofsósi
(s: 6341), Hannes Baldvinsson
Siglufirði (s: 96-71255) og Ragn-
ar Arnalds Varmahlíð (s: 6128)
og Reykjavík (s: 83695).
ALÞÝÐUBANDA LAGIÐ
Æskulýðsfylkingin
Allir í Skaftafell!
Takið helgina 28. - 29. júlí frá til að fara í hina bráðskemmtilegu
ferð Æskulýðsfylkingarinnar í Skaftafell.
Farið verður frá Hverfisgötu 105, föstudaginn 27. júlí kl. 8.30
stundvíslega. Á laugardaginn verður farið í skoðunarferðir og einn-
ig lagðir nokkrir göngustígar í Þjóðgarðinum, „allt fyrir náttúru-
vemd“. Brottför sunnudag.
Matur verður á staðnum og frábærar kvöldvökur með ótal
skemmtiatriðum. „Ótrúlega lágt verð“. Látið skrá ykkur strax í síma
17500 eða að Hverfisgötu 105 fyrir miðvikudaginn 25. júlí.
Sjáumst! Skemmtihópurinn.
Sumarferð
AB á Austurlandi
Alþýðubandalagið á Austurlandi efnir til sumarferöar að Dyrfjöllum
laugardaginn 21. júlí.
Farið frá Egilsstöðum í rútu og einkabílum kl. 9 að morgni. Rúta fer frá
Neskaupstað k. 07.30.
Gengið úr Njarðvík í Stóruurð við Dyrfjöll.
Komið til baka að kvöldi samdægurs. Athugið góðan skóbúnað og nesti til
dagsins.
Fararstjóri verður Hjörleifur Guttormsson.
Þátttaka tilkynnist til einhvers eftirtalinna sem fyrst:
Sigurjóns Bjarnasonar, Egilsstöðum, sími 1329 eða 1375.
Margrótar Oskarsdóttur, Eskifirði, sími 6299.
Stefaníu Stefánsdóttur, Neskaupstað, sími 7179 eða 7247.
Ferðin er öllum opin.
Kjördæmisráð
Sumarferð ABR 1984
Sumarferö ABR veröur sunnudaginn 19. ágúst. Að þessu sinni
munum viö fara á Þingvöll. Merkið á dagataliö viö 19. ágúst. -
Sumarferö ABR - Nánar auglýst síöar. - Ferðanefnd ABR.
Alþýðubandalagið Vesturlandi
Verslunarmannahelgin - Sumarferð
Alþýðubandalagið á Vesturlandi fer í sína árlegu sumarferð í Eyjafjörð og
Þingeyjarsýslu um verslunarmannahelgina 4. til 6. ágúst.
Farið verður frá Akranesi og Borgarnesi á laugardagsmorgun 4. ágúst.
Gist að Stóru-Tjörnum í Ljósavatnsskarði í tvær nætur. Tjaldstæði -
svefnpokapláss - hótelherbergi, eftir ósk hvers og eins. Leiðsögumaður
Erlingur Sigurðarson. í hagstæðu veðri verður farið Sprengisand aðra
leiðina. Þátttaka tilkynnist til eftirtalinna sem allra fyrst: Akranes Jóna s.
1894 - Ingunn 2698 - Guðbjörg 2251. Borgarfjörður Ríkharð s. 7072 -
Halldór 7370. Hellissandur Skúli s. 6619. Ólafsvík Jóhannes s. 6438.
Grundarfjörður Ólöf 8811. Stykkishólmur Ómar s. 8327. Dalir Kristjón s.
4175. Kjördæmaráð
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. júlí 1984