Þjóðviljinn - 15.07.1984, Síða 16
LEtÐARAOPNA
Bakgrunnur
Úr sögu landsölustefnunnar
Ábatavon hefur lengi verið
samtvinnuð hernámsmálum og
herstöðvamálum á íslandi, þótt
margt sé á huldu um þá sögu.
Til dæmis er það ljóst, að strax
þegar Keflavíkursamningurinn,
sem var undanfari Natóinngöngu
íslands og hingaðkomu hersins
1951, var á döfinni, þá var reynt
að gera íslendinga meðfærilegri
með því að veifa viðskiptahags-
munum framan í þá - m.a. fisk-
sölu til hernámssvæða vestur-
veldanna í Þýskalandi.
En þeir stjórnmálaforingjar
sem beittu sér fyrir því að draga
ísland í Nató og samþykktu her-
stöðina ódulbúna 1951 hafa alltaf
reynt að tala sem fæst um her-
mang allskonar og hagsmunafé.
Þeir héldu því mest á lofti, að
íslendingar þyrftu að vera í Nató
til að stöðva framrás Stalíns sem
hefði gleypt Tékkóslóvakíu og að
herinn þyrfti að koma hingað
vegna stríðs í Kóreu sem gæti
orðið að stóru báli. Og síðan þá
hafa þeir alltaf sagt að það væri of
ófriðvænlegt í heiminum, til að
menn gætu leyft sér þann munað
að láta herinn fara.
Hitt er jafnvíst, að buddunnar
lífæð hefur slegið mjög kröftug-
lega í þessu tali um hinn
rússneska háska. Það gerðist
snemma að Sjálfstæðismenn og
Framsóknaroddvitar komu sér
saman um helmingafélag um
ábatasaman verktakarekstur
fyrir herinn. Sömu flokkar út-
hlutuðu ráðningum í störf á
Keflavíkurflugvelli sem einskon-
ar kosningaslátri á þeim tíma,
þegar mikið atvinnuieysi var víða
um landið.
Mörg dæmi fleiri mætti rekja
úr þessari sögu. En það liðu samt
allmörg ár áður en menn fóru op-
inskátt að tala um beinar eða lítt
dulbúnar gjaldtökur af hernum.
Það tal, einatt kallað aronska, er
kennt við Aron Guðmundsson í
Kauphöllinni, atkvæðamann á
sviði verðbréfaviðskipta. Hann
talaði um það beinlínis að Banda-
ríkjamenn ættu að greiða fyrir
„aðstöðu" sína hér og gott ef
hann vísaði ekki til eyjarinnar
Möltu í því sambandi, en þá var
það allmikið mál í blöðum að
stjórn eyjarinnar vildi fá meira fé
af Bretum fyrir mikla flotastöð
sem þeir ráku á eynni.
Ekki urðu margir til að taka
undir við aronskuna í fyrstu á op-
inberum vettvangi. Þeim sem
höfðu tekið við „vissum efna-
hagslegum ávinningi af veru
vamarliðsins“ eins og það er orð-
að á felumáli, einnig þeim fannst
óviðkunnanlegt að efna til land-
sölu með slíkum hætti. En það
kom í ljós með ýmsum hætti, til
dæmis í svörum við spurningum
sem fyrir nokkrum árum voru ■
lagðar fyrir þátttakendur í próf-
kjöri Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, að aronskan átti mjög
mikið fylgi og þó mest hjá kjós-
endum Sjálfstæðisflokksins. For-
ingjar Sjálfstæðisflokksins hafa
að vonum verið óhressir með þá
þróun - því hún sýnir meðal ann-
ars, að hernaðarleg rök (Nató-
nauðsyn og óttinn við sovéskan
vígbúnað) hafa ekki náð til fylgis-
manna þeirra eins og þeir vildu.
Fólk hefur meira verið á þæg-
indaveiðum en að það hugsaði
um stríð og frið og vígbúnað.
En sem fyrr segir: hin opinskáa
aronska hefur ekki átt marga
formælendur meðal áhrifa-
manna. Aftur á móti hafa þeir
margir viljað færa út það her-
mangskerfi sem þegar er fyrir
hendi. Með því að Bandaríkja-
menn taki þátt í að reisa flug-
mannvirki, leggi vegi og annað
þessháttar. Sú stórn sem nú situr
er einmitt dæmigerð stjórn felu-
aronskunnar. Á þeim vettvangi
hafa menn þanið hugmyndaflug
sitt drjúgum. Ein hugmyndin var
til dæmis sú, að Bandaríkjamenn
legðu fimm akreina hraðbraut frá
Reykjavík og austur á bóginn: til
að Reykvíkingar gætu stokkið
upp í bifreiðar sínar þegar von
væri á sovéskum eldflaugum sem
einn maður í loftinu í kauphlaupi
við atómdauðann austur fyrir
fjall.
__________LElÐARi ______
Að selja land
Sú niðurstaða skoðanakönnunar um utan-
ríkismál, sem birt var fyrir skemmstu og einna
mesta athygli hefur vakið, lýtur að svörum við
spurningu um afstöðu manna til gjaldtöku af
bandaríska hernum. Það þykir að vonum saga
til næsta bæjar að 60-70% þeirra sem svara
telja sig hlynnta slíkri gjaldtöku, sem
stjórnmálaflokkar hafa lýst sig andvíga, hver
með sínum rökum. Margskonar viðbrögð við
þessari frétt endurspeglast hér á opnunni.
Kaupsýslumaðurtekurfréttinni fagnandi og er
strax farinn að verðleggja landið: hundrað milj-
ónir á ári, segir hann. Aðrir eru nokkuð tvístíg-
andi eins og þingmaðurinn sem telur líklegt, að
menn hafi lagt hver sína merkingu í svörin og
kannski sé ekki um mikið meira að ræða en
það hagsmunafé sem nú þegar kemur frá
hernum. Natóvinir hafa áhyggjur af þeirri þver-
stæðu, að þótt meirihluti landsmanna vilji hafa
herinn og taka af honum fé, telur minnihluti
nauðsynlegt að hafa hann til hervarna. En sú
sama þversögn kemur að sjálfsögðu enn verr
við herstöðvaandstæðinga íslenska: það er
lítil huggun að heyra að hernaðarröksemdir
Nató eigi takmörkuðu fylgi að fagna meðal
landsmanna ef að um leið er kallað á meira
brask með herstöðina, opinskárri landsölu-
mennsku en hingað til hefur verið stunduð.
Formælendur erlendrar hersetu hér á landi
hafa jafnan haft á oddi nauðsyn vestræns
varnarsamstarfs, röksemdir hernaðarlegs
jafnvægis og fleira þesslegt. En það er Ijóst, að
allt frá því að íslendingar voru teymdir inn á
hernámsbrautina með Keflavíkursamningn-
um 1946 hafa hagsmunir og gróði ýmissa að-
ila mjög komið við sögu mála - við sögu, sem
enn er ekki nema að litlum hluta rituð. Og þeir
sem andmæltu herstöðvum komu snemma
auga einmitt á þessa hættu. Jón Helgason
prófessor og skáld sagði í frægri ræðu 1. des-
ember 1954, að hann gæti skilið þá menn sem
beygðu sig fyrir hernámsrökum sem illum
kosti - en verstir þættu sér þeir menn sem
horfa „með fullkomnu jafnaðargeði, gott ef
ekki ánægju“ á herinn búa um sig, „horfa á
hvernig afkoma þjóðarinnar verður háðari og
háðari honum, horfa á hvernig hugirnir sljóvg-
ast smátt og smátt gagnvart honum". Það er
þessi þróun sem menn hafa haft einna mesta
ástæðu til að óttast, hernám hugarfarsins,
sem þýðir um leið uppgjöf, sem smám saman
verður altækari, uppgjöf á því að vera þjóð
með eigin tilverurökum í þessu landi. Því bæði
VL-undirskriftasöfnunin illræmda og gjald-
tökuhugmyndirnar nú eiga sér rökrétt fram-
hald í því sem Kjartan Ólafsson varar við í svari
sínu hér í dag: „Munu þá íslendingar grátbiðja
Bandaríkjaher að vera hér kyrran, þegar loks
kynni að koma boð frá Washington um að
kalla hann heim?“
Gjaldtökuviðhorfin eru herfileg staðfesting á
því sem Sigfús skáld Daðason minnir á í Ijóði
frá sjötta áratugnum, en þar segir á þá leið „að
hálsinn sem sjálfkrafa laut undir okið var
tryggilegast beygður".
Það má vel vera að skoðanakönnun þessari
beri að taka með nokkrum fyrirvara: menn hafi
ekki skilið nógu vel hverju þeir voru að svara.
En hitt er Ijóst, að niðurstaðan er alvarleg
áminning til Alþýðubandalagsmanna og ann-
arra herstöðvaandstæðinga um að aldrei má
vanrækja þau hin þjóðernislegu og siðferði-
legu rök sem beita verður gegn hugarfari
landsölunnar. Menn skulu ekki gleyma því að
þau rök eru um leið hin bestu friðarrök smárri
þjóð.
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 15. júlí 1984