Þjóðviljinn - 16.08.1984, Page 1
HEIMURINN
MANNLÍF
Nálgast landhelgina!
56 skip á veiðum á gráa svœðinu um helgina. Höfðu fœrtsig 60 sjómílur
nœr íslensku lögsögunni í fyrradag. Óvissaísamningum
Sama óvissan ríkir enn í land-
helgisdeilunni við Dani, Norð-
menn og Færeyinga, eftir við-
ræður Halldórs Asgrímssonar,
sjávarútvegsráðherra við þessa
aðila, sem fram fóru á sjávarút-
vegsráðstefnu í Álasundi, en
henni lauk í gær. Á sama tíma
mokar stór floti upp loðnu á veiði-
svæðinu umdeilda milli Græn-
lands og Jan Mayen. Fimmtíu og
sex skip voru að veiðum á þessum
slóðum á laugardaginn, þar af tvö
dönsk skip og tvö færeysk. Nokk-
ur skipanna hafa fyllt sig yfir
helgina, því aðeins 39 voru eftir á
svæðinu, er flugvél Landhelgis-
gæslunnar flaug þar yfir í fyrra-
dag. Að sögn Sigurjóns Hannes-
sonar, skipherra hjá Landhelgis-
gæslunni höfðu skipin hins vegar
færst um 60 sjómflur sunnar og
austar, nær landhelgi íslendinga
á þessum tíma.
Á fundi utanríkismálanefndar,
sem haldinn var nú í vikunni, var
samþykkt að taka deiluna upp á
fundi utanríkisráðherra Norður-
landa í Reykjavík í september.
Jafnframt samþykkti nefndin að
leitað skyldi samkomulags um
eftirtalin atriði: 1) Um lögsögu á
„gráa svæðinu" við Norðmenn og
Dani (en þeir fara með þessi mál
fyrir Grænlendinga og Færey-
inga). Líklegt er að lausn þessa
atriðis fáist ekki fyrr en eftir ára-
mót, en þá fyrst eru Grænlend-
ingar lausir úr viðjum Efnahags-
bandalagsins, sem fram að þeim
tíma telst formlegur samningsað-
ili um lögsögu Grænlands. Eftir
áramót geta Grænlendingar orð-
ið aðilar að samningaviðræðum.
2) Að leita samkomulags við
Norðmenn um gæslu á Jan
Mayen-svæðinu. 3) Um skiptingu
á loðnukvóta, við Norðmenn og
Dani. - Spumingin er nú, hversu
mikið skarð verður hoggið í loðn-
ustofninn, áður en samkomulag
næst og hvort veiðar þessara
þjóða skerða hlut íslendinga í
veiðunum.
JH/óg.
r
Samningarnir
Oformlegar
könnunar-
viðræður
Skyndisamningar tœpast gerðir
fyrirl. september.
Oformlegar könnunarviðræð-
ur um möguleika á kjara-
samningum kringum 1. septemb-
er hafa undanfarið átt sér stað
milli margra af helstu áhrifa-
mönnum verkalýðshreyfingar-
innar og Vinnuveitendasam-
bandsins samkvæmt traustum
heimildum Þjóðviljans. Þær hafa
hins vegar legið niðri meðan
Magnús Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri VSÍ hefur verið er-
lendis, en hann er væntanlegur
heim á mánudaginn.
Engir fundir hafa þó verið
haldnir heldur áttu þreifingarnar
sér stað gegnum síma eða per-
sónuleg tengsl einstaklinga af
báðum vængjum. Þær munu ein-
göngu hafa snúist um mögulegt
form slíkra samninga, en ekkert
hefur verið rætt um einstök atriði
þeirra. Þannig hefur Þjóðviljinn
óyggjandi heimildir fyrir því að
fregnir annarra fjölmiðla um að
rætt hafi verið um tilteknar prós-
entuhækkanir í tengslum við
kaupsamninga séu algerlega úr
lausu lofti gripnar.
Auk þess sem helstu forystu-
menn VSÍ og verkalýðshreyfing-
arinnar hafa kannað viðhorf
hvers annars til kjaramála hefur
Verslunarmannafélag Reykja-
víkur átt í viðræðum við atvinnu-
rekendur. Fregnir hafa líka borist
af því að nokkur önnur landssam-
bönd hafi átt í lauslegum, óform-
legum viðræðum við fulltrúa
vinnuveitenda og landssambönd
málm- og skipasmiða og bygging-
armanna neftid í því sambandi.
„Fréttin í NT í gær var rugl“,
sagði Benedikt Davíðsson for-
maður hjá byggingarmönnum.
„Við höfum ekki átt í neinum við-
ræðum sem tengjast nýjum kjara-
samningum, heldur höfum við
rætt við fulltrúa atvinnurekenda
um ýmis tiltekin mál einsog var
tilgreint samkvæmt samningi frá
1982.“
Guðjón Jónsson hjá málm- og
skipasmiðum sagði að það væri
rétt að þeir hefðu rætt við at-
vinnurekendur tvisvar eða þrisv-
ar í sumar en „einungis mjög
lauslega" og í rauninni hefði ekk-
ert komið út úr því. „En sumarið
er ekki búið“, bætti Guðjón við.
Af hálfu verkalýðshreyfingar-
innar er mest áhersla lögð á
endurskipan flokkakerfisins, auk
þess sem hún hefur ítrekað bent
á, að til að halda óskertum kaup-
mætti þyrfti 7 prósent kauphækk-
un þannig að ólíklegt er að ljáð
yrði máls á minni kauphækkun
kæmi til samninga á næstunni.
Auk þess er ljóst að Verka-
mannasambandið mun leggja
höfuðþunga á þær kröfur sínar að
lægstu launaflokkunum verði
hreinlega kippt út sem myndi
þýða allmikla kauphækkun og
því óvíst hvort hægt væri að leysa
þann hnút með skyndisamning-
um fyrir 1. september.
Framámenn sem rætt var við úr
verkalýðshreyfingunni og VSÍ
voru efins í gær um að nokkurt
samkomulag yrði gert fyrir þann
tíma,
-ÖS
Á ferð Þjóðviljans um Suðurnes í síðustu viku hittum við Elsu Kristjánsdóttur varaþingmann Alþýðubandalagsins önnum
kafna við að slá garðinn sinn. Við hittum fleira skemmtilegt fólk á ferð okkar og tókum viðtöl sem birtast á síðum 9-161
blaðinu í dag. Mynd: eik.
SKRÁNING I
SUMARFERDINA
r r
I SIMA 17500
18. AGUST