Þjóðviljinn - 16.08.1984, Side 2
FRETTIR
Ludvig Hjálmtýsson
Höfum legið undir ámæli
Leiðbeiningarfremur en bönn. - Hvernig á að haga reglum
°g upplýsingum vegnaferða útlendinga um landið?
Mikil umræða á sér nú stað
meðal ferðamálaaðilja og
annarra, sem afskipti hafa af
ferðum útlendinga um landið,
vegna þeirra hörmulegu slysa sem
orðið hafa á öræfaleiðum að und-
anförnu. Margir álíta að reglum
um ferðir útlendinga sé ekki
nægjanlega fylgt, hópar fari um
landið án þess að viðurkenndur
leiðsögumaður sé með í för, eins
og krafist er í lögum. Jafnframt
finnst mönnum að reka þurfi mun
harðorðari áróður til þess að
vara við hættum þeim, sem bíða
fólks á öræfaslóðum, eins og fram
kom í máli Hannesar Hafsteins
framkvæmdastjóra Slysavarn-
arfélagsins við Þjóðviijann á
þriðjudag. Þjóðviljinn fjallar um
þessi mál í dag og ræðir við menn,
sem reynslu hafa af ferðalögum.
En í dag efnir stjórn Ferðamála-
ráðs til fundar með fulltrúum lög-
gæslu, björgunarsveita og fleiri
aðilja til þess að fjalla um þessi
aðkallandi vandamál.
Ludvig Hjálmtýsson, hjá Ferða-
málaráði, sagði að þessi mál
hefðu að sjálfsögðu verið mikið
rædd og ýmsar hugmyndir væru á
lofti, til dæmis, að setja sérstaka
varúðarmiða í hvern bíl, sem færi
upp á hálendið. „Við höfum legið
undir svolitlu ámæli“, sagði Lud-
vig, „hins vegar hefur mjög mikið
verið gert til þess að vara fólk við
vá. Þeir sem fara á bílum um
landið, koma flestir með ferjun-
um. í fyrra höfðum við starfs-
stúlkur í báðum ferjunum til þess
að afhenda fólki bækling með
viðvörunum. Slíka viðvörun fær
einmitt það fólk, sem kemur með
ferjunni til Seyðisfjarðar. Menn
eru að segja að ekki þýði að veifa
einhverjum skrautbæklingum, en
Pétur Urbancic
Misbrestur á að
reglum um farar-
stjóra sé hlítt
Eg tel að það sé nokkur mis-
brestur á því að erlendir
ferðahópar hlíti þeirri reglu að
hafa íslenskan fararstjóra með í
ferð, sagði Pétur Urbancic, sem
er í stjórn Félags leiðsögumanna.
„Við höfum gert svolítið af því að
kynna þessa reglu meðal þeirra
aðilja, sem skipuleggja ferðir
hingað og fengið misjafnar mót-
tökur. Þeir sem stunda þessa út-
gerð erlendra hópa eru misþokk-
aðir. Sumir eru samvinnuþýðir
og hlíta öllum reglum, aðrir
reyna sem mest að sigla sinn sjó,
forðast að kaupa hér vistir eða
nokkurn skapaðan hlut, eða
greiða fyrir fyrirgreiðslu. - Þessir
hópar tjalda jafnvel í grennd við
þjónustumiðstöðvar, eins og til
dæmis í Skaftafelli, njóta þar
allrar þjónustu, en komast hjá því
að greiða fyrir tjaldstæðin. Þess-
ar reglur voru settar af brýnni
þörf og af sárri nauðsyn.
Það er spurning, hvort við ætt-
um að taka upp svipaða reglu og
Grænlendingar, sem hleypa
ferðamönnum ekki upp á jökul-
inn, nema lögð sé fram trygging
fyrir björgunarkostnaði. Það er
oft mikið álag á björgunarsveitar-
mönnum, sem vinna sín störf í
sjálfboðavinnu. Það þarf ekki
JORGIÐ*
þetta er ritlingur á fjórum tungu-
málum, þar sem fólk er varað við
þeirri vá, sem kann að bíða. Um
hópana á að gilda sú regla að
þeim fylgi fararstjóri, sem hlotið
hefur viðurkenningu. Samgöngu-
ráðuneytið felur Ferðamálaráði
að veita þá viðurkenningu. Það
eru haldin námskeið fyrir farar-
stjóra og reynslan sýnir að þar
sem þetta fólk, sem þekkingu
hefur, stjórnar ferðum, gerast
ekki meiriháttar slys, þótt aldrei
sé hægt að fyrirbyggja þau algjör-
lega, slíkt er auðvitað ekki hægt.
Nú, ef fólk vill ekki taka
leiðbeiningum og viðvörunum,
þá er ekkert eftir nema bann. Það
finnst mér persónulega óyndis-
úrræði. Það hefur verið talað um
að setja upp skilti á hættulegum
stöðum. Það hefur gefist vel á
hverasvæðum, en öðru máli
gegnir um vöð, sem breytast á
skömmum tíma.
Mér finnst vel koma til greina
að stjórnvöld taki upp eftirlit
með þeim bifreiðum sem koma til
landsins og gangi úr skugga um
að þær séu tryggðar á viðunandi
hátt, jafnvel að þær tryggingar
nái til hugsanlegra björgunar-
launa. _ JH.
w
Hjalti Kristgeirsson
mikið út af að bera, ekki annað
en maður villist í Dimmuborgum,
þá þarf að kalla út leitarflokk.
Sumar ferðaskrifstofur stunda
það að senda hingað hópa sem
fjölskyldur, eða klúbba. Þetta
hefur verið Iátið óátalið ef um er
að ræða 10-15 manna hópa. Þeir
koma með eigin bíl og reglan er
sú að bíllinn á þá að fylgja hópn-
um úr landi. En það hefur komið
fyrir að þessum bflum er ekið
suður á Keflavíkurvöll, fólkið
flýgur heim, en bfllinn bíður eftir
næsta hópi.
Það er átakanlegt að slys skuli
verða vegna vankunnáttu og
glannaskap, eins og raunin hefur
orðið.“
Félag leiðsögumanna hefur
sent frá sér athugasemd vegna
staðhæfingar í frétt DV 11. ágúst
um slysið á fjallgöngukonunum á
Herðubreið, en í fréttinni segir
að hinn erlendi leiðsögumaður
sem leiddi hópinn upp fjallið,
hafi fengið „grænt Ijós“ hjá fé-
laginu. JH.
Arnarflug
Samningur
við KLM
í gær tók gildi samningur milli
Arnarflugs og hollenska flugfé-
lagsins KLM um aS Arnarflug
taki við aðalumboði KLM hér á
landi, en það var áður í höndum
Flugleiða.
Fulltrúar beggja flugfélaganna
kynntu þennan samning á fundi í
gær og kom þar fram að áætluð er
stóraukin kynningarstarfsemi á
vegum þeirra. Hollenska félagið
mun vera elsta starfandi flugfélag
f heimi og allstórt á alþjóðamæli-
kvarða. Félögin hafa átt í sam-
starfi um tveggja ára skeið og
þessi samningur mun ekki breyta
miklu um það nema á sviði
markaðs- og kynningarmála.
-gat
Islandskynning
þarf að vera raunsærri
Ferðalög um ísland hafa í sér
fólgnar ýmsar hættur. Menn
verða að búa sig undir að mæta
misjöfnu, annað er óraunsætt. Til
þess að komast hjá háska þurfa
menn að hafa til að bera kunnug-
leika og geta lagt raunsætt mat á
aðstæður. Ef þetta brestur, ann-
að, eða hvort tveggja, kunnug-
leika og raunsæi, þá geta orðið
slys.
Þetta sagði Hjalti Kristgeirs-
son, hagfræðingur, en hann hefur
nokkra reynslu í þessum efnum
og hefur mörg undanfarin sumur
farið sem leiðsögumaður með
ferðahópum um óbyggðir.
Hann benti á að það þyrfti í
sjálfu sér ekki að koma mönnum
svo mjög á óvart þótt slys yrðu
tíðari með auknum ferðamanna-
straum inn í óbyggðirnar. Sú væri
raunin á vinsælum fjallaslóðum,
eins og til dæmis í Ölpunum.
Mörg slysin hafa hent íslendinga í
öræfaferðum á undanfömum
árum og engin ástæða til að loka
augum fyrir því. Hins vegar vekja
hörmulegar slysfarir erlendra
ferðamanna að undanfömu
spumingar um, hvort nógu vel sé
staðið að kynningu og skipulagi
hópferða útlendinga um landið.
„Mér finnst landkynning opin-
berra aðilja og fyrirtækja, sem
standa fyrir Islandsferðum,
stundum vera svoh'tið villandi“
Háskólinn
Eitur lak út
Ifyrradag var slökkviliðið kali-
að á vettvang upp í Háskóla ís-
lands þar sem stórhættulegt eitur-
efni hafði lekið út á einni
rannsóknarstofunni þar - efnið
getur haft skaðvænleg áhrif á
hörund, lungu og augu auk þess
sem það er afar eldfimt. Tveim
mönnum úr slukk viliðinu tókst að
hreinsa efnið upp, enda vel búnir
í þartilgerðum göllum og með
reykköfunartæki.
Að sögn eins starfsmanna
rannsóknarstofunnar koma slík
slys ekki oft fyrir, enda efni af
þessu tagi geymd í sérstökum
hólfum. Um þetta tilfelli sagði
hann að efnið væri geymt á flösk-
um sem hefðu komið frá Banda-
ríkjunum og sennilega orðið fyrir
hnjaski á leiðinni. Hann sagði að
engin slys hefðu orðið á mönnum
enda gerði efnið strax vart við sig
með ógurlegum fnyk og allir því
forðað sér í tæka tíð.
í fréttatilkynningu frá slökkvi-
liðinu segir að notkun eiturefna
færist nú mjög í vöxt og sé full
þörf á að þjálfa menn í að eiga við
þau. ~ gat
sagði Hjalti. „Ljósmyndir, kvik-
myndir og texti eru oft með þeim
hætti eins og verið sé að kynna
góðviðrisland, þar sem allir vegir
eru færir. Þetta er mikill misskiln-
ingur. Ég held að borgarfólk Evr-
ópu sæktist engu að síður eftir
ferðum hingað, þótt fslands-
kynningin yrði svolítið raunhæf-
ari. Þetta fólk, sem vanist hefur
sléttum strætum og meiri veður-
sæld en hér er, yrði þá raunsærra
á þær aðstæður, sem bíða þess.
íslenskar ferðaskrifstofur eru
ekki alltaf ráðhollar sínum við-
skiptavinum og hlaupa fullmikið
eftir hugdettum erlendra ferða-
aðilja, sem eru ekki heppilegar
hér.
Ég hef til dæmis í huga tvö fjöll,
sem fólk er sent á í hópum, Hekla
og Herðubreið. Fyrirgreiðsluað-
iljar eiga ekki að senda ferða-
hópa uppá þessi fjöll. Það er
ósköp einfalt mál. - Hekla er
virkt eldfjall, sem hefur gosið
tvisvar á síðustu fjórum árum,
þrisvar á sl. 14 árum og fjórum
sinnum undangengin 40 ár. Það
hafa myndast stórar auðar skellur
utaní fjallinu í sumar. Þarna var
lftill hiti snemma sumars, en hef-
ur verið að aukast, og núna um
miðjan júlí hélt maður ekki hendi
niðri í jarðveginum fyrir hita. Það
væru sjálfsagt ekki allir leiðsögu-
menn fúsir til að vera þarna uppi
með hópa nú í aflíðandi ágúst. -
Nú, utaní Herðubreið má alls
staðar eiga von á grjóthruni, líka í
svokallaðri Herðubreiðarupp-
göngu, þar sem venja er að fara
upp*“
Hjalti sagði að erlendir ferða-
menn, sem teymdir væru uppá
þessi fjöll væru oft gramir á eftir.
Þessar ferðir væru ekki eftir
þeirra vilja. „Þetta eru skrið-
runnin fjöll og fólki er við fátt
verr en brattar skriður. Þessi fjöll
eru bara til að horfa á“, sagði
HÍalti- JH.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. ágúst 1984