Þjóðviljinn - 16.08.1984, Qupperneq 3
FRETTIR
Vestfirðir:
Aflahrotan endar með
atvinnuleysi
Kvótinn sums staðar uppurinn í október. „Það liggur
enginn bóndi inní bœli í brakandi þerri. “
að liggur enginn bóndi inní
bæli í brakandi þerri sagði
Guðmundur Guðmundsson, út-
gerðarmaður aflaskipsins Guð-
bjargar, sem mokfiskað hefur á
Vestfjarðamiðum að undan-
förnu, hefur nú fengið 3.616 tonn
frá áramótum, er langt komin
með kvóta sinn, en um 900 tonna
kvóta réttindi hafa verið keypt
handa skipinu frá öðrum bátum.
Mikil aflahrota hefur staðið hátt í
mánuð á Vestfjarðamiðum og
atvinna mikil í verstöðum vestra
við vinnslu aflans. Þetta er þó
skammgóður vermir, því mörg
skipanna eru langt komin með
afla sinn og hætt við að þeim verði
að leggja þegar líður á haustið, en
þá blasir við atvinnuleysi.
Nær allur togarafloti lands-
manna er nú á fiskislóðum úti
fyrir Vestfjörðum og veiðist vel,
allt frá Hala austur á Stranda-
grunn. „Það er ekki svo gott að
hægja á“ sagði Guðmundur.„Það
var alltaf vitað, þegar þessi
kvótaskipting var sett á, að ekki
yrði legið í landi, ef vel veiddist.
En það blasir auðvitað ekkert við
nema stöðvun, ef skipin klára
kvótann með haustinu.
Hjá Hraðfrystihúsinu í Hnífs-
dal, þar sem 90-100 manns eru á
launaskrá, má búast við stöðvun í
október, að sögn Konráðs Jak-
obssonar, framkvæmdastjóra
hússins. Togarinn Páll Pálsson,
sem sér Hnífsdælingum fyrir hrá-
efni, á aðeins eftir um 50 tonn af
þorskkvóta sínum, en skipin
mega skipta á veiðikvóta annarra
fisktegunda fyrir þorsk, þannig
að skipið á ef til vill eftir þrjá túra
eða svo. Skipið kom með 130
tonn að landi á mánudag eftir 3 Vi
dags veiði. En að sögn Jakobs
hefur verið reynt að draga úr
sókn og skipið stöðvað nokkra
daga á milli ferða.
Kvótinn nýtur takmarkaðra
vinsælda á Vestfjörðum þessa
dagana og þeir útvegsmenn, sem
blaðið hafði samband við efuðust
um að hann leysti þann vanda,
sem honum var ætlað, skrap-
dagakerfið væri ef til vill sköm-
minni til skárra. J.H.
Verslun-
arhús á
Dalvík
Kea færir enn út kvíarnar: nú
stendur yfir hjá þeim bygging 640
fermetra verslunarhúss á Dalvík
og á að taka það í notkun fyrir
næsta vor. Við þetta verður öll
verslunarstarfsemi Kea á Dalvík
færð undir eitt þak og um leið sjá
Dalvíkingar á bak gömlu kjör-
búðinni við Skíðabraut.
-gat
Söngur
Hallbjörn
suður
Kántrí-kóngurinn Hallbjörn
Hjartarson heimsækir suðvestur-
hornið um næstu helgi. Hann
skemmtir í félagsheimilinu Stapa
á föstudagskvöld, Skiphóli Hafn-
arfirði föstudags- og laugardags-
kvöld. Hallbjörn er Skagstrend-
ingur og hefur sungið inná fjórar
hljómplötur. -óg
Ólympíuhappdrœttið
Drætti
frestað
Ólympíunefnd íslands hefur
frestað drætti í happdrætti sínu til
8. september. 14 bflar eru í vinn-
ing í þessu happdrætti og hefur
fjöldi manna fengið miða senda
heim. Tekið er fram í fréttatil-
kynningu að drætti verði ekki
frestað aftur. -ós
Vel
heppnaðar
sumar-
búðir
Landsamband íslenskra sam-
vinnumanna stóð fyrir sumar-
búðum barna að Bifröst nú í sum-
ar og dvöldust þar tveir hópar
barna í júní, samanlagt 46 börn.
Öll ku þau ætla að koma aftur
næsta sumar. Hjónin Hulda Frið-
riksdóttir og Sigurbjarni Guðna-
son stýrðu sumarbúðunum en
undirbúninginn annaðist Ann
Marí Hansen. -gat
Aðstandendur og nokkrir keppenda í væntanlegu Reykjavíkurmara- mánudag. Meðal keppenda eru fjölmargirerlendir Maraþonhlauparar.
þoni sem haldi ð verður 26. ágúst í borginni á vegum ferðaskrifstof- Um 100 erlendir hlauparar hafa þegar látið skrá sig. Myndin var tekin i
unnar Úrval og Frjálsíþróttasambandsins. Skráningu í hlaupið lýkur á gær á Austurvelli. (Mynd-Atli).
Bjartsýnir á sam-
starf við Flugleiðir
Eg er ánægð með að þeir hafí
þessa trú á fyrirtækinu og
vonast eftir góðu samstarfí, sagði
Anna Sverrisdóttir einn starfs-
manna Arnarflugs um þá ákvörð-
un Flugleiða að kaupa nýtt hlut-
afé í Arnarflugi að upphæð 40
miljónir króna, en starfsmenn
Arnarflugs höfðu sjálfír ráðgert
að kaupa hluta fjárins.
Anna var spurð hvort hún teldi
ekki óæskilegt að samkeppnisað-
ili hefði svo sterk ítök í félaginu
og tók hún undir það en sagðist
þó vera bjartsýn á samstarfið;
Flugleiðamenn hlytu að hafa öðl-
ast trú á fyrirtækið úr því þeir
leggðu þetta fé í það.
A sínum tíma afskrifuðu Flug-
leiðamenn hlutafé sitt í Arnar-
flugi því þeir töldu að verðbréf
þar væru verðlaus. Arnarflug á-
kváðu fyrir þremur vikum að
auka hlutafé félagsins um rúmar
Idag fimmtudaginn 16. ágúst
flyturTomas S. Popkewitz pró-
fessor við „School of Education,
University of Wisconsin-
Madison“ opinberan fyrirlestur í
Kennaraháskóla íslands, stofu
40 miljónir króna og hugðust
starfsmenn félagsins auka hlut
sinn í félaginu. Það hefur vakið
nokkra furðu í ljósi fyrri tíðinda
að Flugleiðir ákváðu nú að nýta
forkaupsrétt sinn og kaupa upp
þetta fé. -gat
301. Fyrirlesturinn nefnist Um-
bætur í menntamálum - goðsögn
eða veruleiki? Thomas Popkew-
itz er þekktur vísindamaður á
þessu sviði.
Sjávarútvegs-
ráðherra
Bannað
að
skaka
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands er sýnt, að afli
báta undir 10 brl. fer nokkuð yfir
þau viðmiðunarmörk, sem á-
kveðin voru fyrir tímabilið 1. jan-
úar til 31. ágúst 1984.
Ráðuneytið hefur því í dag gef-
ið út reglugerð, sem bannar
þorskveiðar báta undir 10. brl.
frá og með 25. ágúst til og með 31.
ágúst 1984.
-óg
Fimmtudagur 16. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Fyrirlestur í dag