Þjóðviljinn - 16.08.1984, Side 10
FLOAMARKAÐURINN
ALPÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýöubandalagiö í Reykjavík
Skundum á Þingvöll
Sumarferð Alþýðubandalagsins í ár verður laugardaginn 18. ágúst. Farið
verður frá Reykjavík til Þingvalla. Valinkunnir leiðsögumenn, vönduð dag-
skrá, - Halldór Laxness mun lesa kafla úr Islandsklukkunni á Þingvöllum.
Leikir og þrautir fyrir börn á öllum aldri munu gera ferðina bráðskemmti-
lega.
Allar nánari upplýsingar verða birtar í Þjóðviljanum. Skráning farþega og
sala farmiða er á skrifstofu Alþýðuþandalagsins Hverfisgötu 105. Eru allir
hvattir til að panta sér far og eigi síðar en 15. ágúst. Síminn er 17500.
Ferðanefndin.
AB-Suöurland
Hittumst á Þingvöllum
Alþýðubandalagsfélagar og kunningjar
þeirra á Selfossi, Hveragerði og Laugarvatni
ætla að taka sig saman um að fylla í rútu/
rútur til að komast til Þingvalla laugardaginn
18. ágúst. Þau skunda á Þingvöll til að hitta
þar ferðalangana í Sumarferð Alþýðubanda-
lagsins, en frá Reykjavík verður lagt af stað
kl. 9 árdegis. Sunnlendingarnir eru beðnir að
hafa samband við Magnús í Hveragerði, eða
Sigurð Randver á Selfossi til að tilkynna þátt-
töku sína.
Suðurnesjamenn - Sumarferð
Alþýðubandalagsfélögin Suðurnesjum fara sína árlegu skemmtiferð helg-
ina 18. til 19. ágúst n.k. Farið verður um Sigöldu, Landmannalaugar og
Fjallabaksleið nyrðri í Eldgjá. Gist verður við Ófæru. Sunnudaginn 19.
verður ekið niður í Skaftártungur og Vestursveitir. Komið verður við í
Hjörleifshöfða og Vík í Mýrdal. Byggðasafnið í Skógum verður skoðað.
Einnig verður gerður stuttur stans við merka sögustaði á þessari leið.
Komið verður til Keflavíkur kl. 22.00 til 23.00 þann 19. ágúst. Þátttakendur
láti skrá sig hjá Sólveigu Þórðardóttur í síma 92-1948 og hjá Torfa
Steinssyni í síma 7214 og Elsu Kristjánsdóttur sími 7680.
Vestfirðir - Kjördæmisráðstefna
Kjördæmisráðstefna Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum verður haldin á
ísafirði dagana 25. og 26. ágúst. Nánar auglýst síðar. - Stjórnin.
411984
ÞINGVELLIR
LÝÐVELDIÐ
v 40ÁRA
Geithellnahreppur - Almennur fundur
Alþingismennimir Helgi Selj- an og Hjörleifur Guttormsson verða á almennum fundi í skólanum í Geithellnahreppi sunnudaginn 19. ágúst kl. 20.30.
Fundurinn er öllum opinn. Helgl Hjörletfur
A-Skaftafellssýsla - Mýrarhreppur
- Almennur fundur
Alþingismennirnir Helgi Seljan og Hjörleifur Guttormsson verða á al-
mennum fundi í félagsheimilinu Holti á Mýrum mánudaginn 20. ágúst kl.
20.30.
Fundurinn er öllum opinn.
Birtir-útgáfunefnd!
Fundur á hvíldardaginn kemur kl. 14.00 (tvö).
Ritstjórn
Félagar í Alþýðubandalaginu
Vinsamlegast sendið strax samningseyðublaðið um flokksgjaldið
til skrifstofunnar Hverfisgötu 105 Reykjavík. -Flokksskrifstofan.
Fjölbrautaskóli
Suðunesja
Kennara vantar aö Fjölbrautaskóla Suðurnesja í
stærðfræði og sérgreinum rafiðna.
Upplýsingar veitir skólameistari í síma 92-3100 eða
92-1857.
MOÐVIUINN
Betra blað
Amma?
Vill einhver góðhjörtuð manneskja
gæta 3ja barna í haust, hringið þá í
síma 11684.
Weaboninn minn
sem er gamall reyndur brautryðjandi I
fjallaferðum vantar nýjan eiganda
sem getur hresst upp á sálarástand
hans. Þeir sem hafa áhuga hringið í
síma 25131 á kvöldin.
Barnapössun
óska eftir 12 til 14 ára stelpu til að
gæta 7 mánaða telpu frá kl. 13.30 til
17 tvisvar í viku. Upplýsingar í síma
27319 eða 21920.
Til sölu
segulbandstæki fyrir spólur, Grundig
TK 747 þriggja hraða. Verð kr. 20.
þús. Sími 31710
Auglýsing
Trésmiður til taks. Sími 34832.
Til sölu
vegna flutnings nýleg Candy þvotta-
vél. Sími 19772 e.kl. 18.
Óska eftir
bókbandsstól og e.t.v. fleiri bók-
bandstækjum. Upplýsingar í síma 91/
22894 á kvöldin.
Óska eftir
konu til að aðstoða gamla konu sem
býr í Seljahverfi 4 tíma á dag. Upplýs-
ingar í síma 53840.
Veiðimenn
Stangaveiðifélag Bogarness selur
veiðileyfi í Langavatni. Góð hús,
vatnssalerni. Traustir bátar. Verð
með aðstöðu kr. 300.- án aðstöðu kr.
150.- Hver stöng. Upplýsingar í síma
93-7355.
Til sölu
ísskápur 90 cm. á hæð, 55 cm á
breidd. Sími 53840.
Hansahillur
Til sölu hansahillur og borðstofuborð.
Upplýsingar í síma 30386.
Til sölu
felgur 5 stk. 15“ undir Volvo ásamt
eitthvað af slarkfærum dekkjum.
Upplýsingar í síma 621126.
Ford Cortina
árgerð 74 til sölu til niðurrifs. Sími
34323.
Hókus Pókus
Hókuspókus stóll óskast til kaups,
notaður. Upplýsingar í síma 29672
e.kl. 18.
Til sölu
(ódýrt) Olympus O.M 1 + 21 mm +
28 mm + 35 - 70 mm + 50 mm + 135
+ 200 + wender.
Einnig mamiya 220 (6x6) vél og Sum-
pack 3400 flass. Upplýsingar í síma
11611.
Til sölu
eldhúsinnrétting, handlaug, eldavél,
sturtubotn, eldhúsborð, ísskápur og
fl. Sími 21937.
Óska eftir
Hondu M.B. 50. Vel með farinni.
Staðgreiðsla kemur til greina. Upp-
lýsingar í síma 42212 e.kl. 16.
Til sölu
Crown hljómtækjasamstæða vel
með farin. 2x35 W hátalarar á ótrú-
lega góðu verði miðað við gæði. Verð
ca. 8300.-kr. Upplýsingar í síma
52941.
Til sölu
svart/hvítt sjónvarp og tveir litlir
skápar á bað. Selst mjög ódýrt. Sími
35744.
Til sölu
sjónvarp ITT 26“ í lit. 8 mánaða gam-
alt. Sími 17087.
21 ára stúlka
óskar eftir herbergi eða íbúð fyrir vet-
urinn. Reglusemi heitið. Upplýsingar
í síma 17087.
Gítarkennsla
fyrir byrjendur og þá sem lengra eru
komnir. Kenni einnig á rafmagnsgít-
ar. Upplýsingar í síma 621126 á
kvöldin.
Barnagæsla í
Smáíbúðahverfinu
9 mánaða gamlan pilt í Háagerði
vantardagmömmu. Full gæsla. Upp-
lýsingar í síma 33458.
3ja ára
stelpu vantar einhvern til að passa
sig einstöku sinnum á kvöldin. Allir
sem eru barngóðir koma til greina.
Upplýsingar í síma 621737 e.kl. 18.
Ung dönsk
stúlka sem stundar nám í Reykjavík
óskar að taka á leigu herbergi með
eldhús aðgangi frá 15. sept. Upplýs-
ingar í síma 20299.
Tuskumottur
Tek að mér að vefa tuskumottur.
Breidd 75 cm, lengd eftir pöntun. Gott
verð. Upplýsingar gefur Berglind í
síma 39536.
Nýkomið mikið úrval
af heimasaumuðum fatnaði.
Dúlla Snorrabraut 22.
Skilaboð til leigusala
Ágætis par með prýðis viðbót (8 ára
gamlan pilt),
Hann: háskólanemi.
Hún: þroskaþjálfi.
Þau eru reglusöm, skilvís og ganga
vel um eigur annarra. Óska eftir að fá
íbúð til varðveislu, gjarnan í miðborg
eða nærri henni. Gegn greiðslu,
jafnvel fyrirframgreiðslu.
Upplýsingar gefnar góðfúsum í síma
13138.
Óska eftir
að taka á leigu herbergi með aðgang
að eldhúsi eða litla íbúð. Upplýsingar
í síma 37152.
Til sölu
sófi frá Vörumarkaðnum, selst ódýrt.
Sími 26846.
Að gefnu tilefni
Flóamarkaðurinn er ókeypis þjón-
usta við áskrifendur okkar ágæta
blaðs. Aðrir þeir sem hafa hug á að
auglýsa í „Fló" eru beðnir að koma
hingað í Síðumúla 6 þar sem blaðið er
til húsa og staögreiða auglýsinguna.
Kveðja auglýsingadeildin.
Einstakt tækifæri
Sem nýr Iwama bassi með tösku til
sölu á aðeins 6900,-kr. ef staðgreitt
er eða 7900.-kr. ef borgað er í tvennu
lagi. Upplýsingar í síma 76145 á
kvöldin.
Felgur
Til sölu 4 velútlítandi felgur með
sumardekkjum á undir Mazda 626.
Seljast ódýrt. Upplýsingar í síma
22752.
Vantar
svart/hvítt sjónvarpstæki á slikk. Sími
31278 á kvöldin.
Til sölu
vegna flutnings:
barnabílsæti KL Jeenay verð kr.
1100.- handlaug með blöndunar-
krana hvítt 46x32 verð kr. 1000.-
handlaug frekar gömul 50x38 með
krana verð kr. 500,- Vasatölva-Casio
Alio verð kr 500.- Kíkir „Kobica"
12x50 verð kr. 1000.- Rafmagnsmót-
or 1425 snúningar á mínútu, 4ra hes-
tafla, 1 fasa verð kr. 300,-
Linsa Nikkor-P Auto 1:2,5 f = 105 mm
verð kr. 2000.- Linsa fyrir Canon, Hi-
denon Wide Angle 28 mm 2,8, verð
kr. 600.-
Á sama stað óskast litasjónvarp á
góðu verði. Upplýsingar í síma
73990.
Vefstóll
til sölu með 1m skeið. Verð kr. 7000.-
sími 621737.
Get geymt píanó
Píanó óskast til geymslu á gott heimili
í vetur. Upplýsingar gefur Valgerður í
síma 39104.
Handofnar mottur
Hef til sölu handofnar mottur úr tusk-
um á vinnustofu minni Hafnarstræti
15, II. hæð. Vef líka eftir pöntunum.
Upplýsingar í síma 19244 og 13297.
Óska eftir
að kaupa skólaritvél ekki rafmagns,
helst svarta. Á sanngjömu verði.
Upplýsingar í síma 91/53522.
7 KR. Kílóið
Viljið þið losa ykkur við gömul slitin
sængurver eða föt, ég get nýtt allt
þvílíkt í vefnað og borga 7 kr. fyrir
kílóið. Upplýsingar í síma 19244 og
13297.
Til sölu
splunkunýtt kínverskt reiðhjól 26",
skipti koma til greina. Sími 21604.
Konur - Konur
Óskum eftir konu til að gæta 2ja
barna (8 mán, og 4ra ára) árdegis I
vetur. Búum í Heimahverfi. Sími
685423.
Girðingastaurar
Til sölu 58 stk. galvaniseraðir girð-
ingastaurar rúmlega meter á lengd.
Seljast í einu lagi á kr. 3500. Einnig
hamstursbúr á kr. 500. Sími 52633.
Verðtryggðir lántakendur
finnst ykkur óþægilegt að borga
sama lánið mörgum sinnum, ætlið
þið möglunarlaust að borga fyrir frí-
lánakynslóðina, er ekki tími kominn til
aðgerða? Þá er að hringja í síma
31710 á kvöldin.
Til sölu
lítill ísskápur, í góður lagi. Sími 72276.
KR0SSGÁTAN
Lárétt:
1 viðarkurl 4 styrkja 6 grænmeti 7
erfiða 9 uppspretta 12 stirð 14 fljótið
15 ávana 16 toga 19 tjón 20 kvæði
21 foraði.
Lóðrétt:
2 stilli 3 kveikur 4 æviskeið 5 mjúk 7
uppstökkur 8 fugla 10 fæði 11 svart-
ari 14 þögla 17 bók 18 væn.
Lausn á síðustu krossgátu
Lárétt:
1 vætu 4 rösk 6 mey 7 basl 9 klók 12
viska 14 óra 15 nýt 16 róleg 19 iðka
20 funi 21 arkar.
Lóðrétt:
2 æra 3 umli 4 rykk 5 skó 7 brókin 8
svarka 110 langur 11 kýttir 13 sól 17
óar 18 efa.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. ágúst 1984