Þjóðviljinn - 16.08.1984, Page 11
FRETTIR
Friður
Friðarsamband
Norðurhafa
Ráðstefna á íslandi 24. -26. ágúst.
Fréttatilkynning frá undirbúnings-
hópi alþjóðlegrar friðarráðstefnu í
Reykjavík 24.-26. ágúst 1984.
Dagana 24.-26. ágúst n.k. verð-
ur haldin að Hótel Loftleiðum
ráðstefna Friðarsambands
Norðurhafa (Thc North Atiantic
Network) þar sem lagður verður
grunnur að umræðu- og sam-
starfsvettvangi mismunandi frið-
arhreyfinga í löndum Norð-
ur-Ameríku og Vestur-Evrópu.
Sérstök nefnd skipuð fulltrú-
um samtakanna Nei til atomváp-
en í Noregi, Nej til atomvaben í
Danmörku, Campaign for Nuc-
lear Disarmament og European
Nuclear Disarmament í Skotlandi
auk fulltrúa Samtaka herstöðva-
andstæðinga, hefur unnið að
undirbúningi ráðstefnunnar og
alþjóðlegri kynningu hugmynd-
arinnar um Friðarsamband
Norðurhafa. Samtök herstöðva-
andstæðinga hafa annast skipul-
agningu ráðstefnunnar hér á
landi með stuðningi og í samráði
við Friðarsamtök listamanna,
Samtök lækna gegn kjarnorkuvá,
Samtök ísl. eðlisfræðinga gegn
kjarnorkuvá, Samtök um friða-
ruppeldi, Friðarhóp fóstra,
Friðarhóp einstæðra foreldra og
Friðarhópa kvenna í Reykjavík
og nágrenni, auk ýmissa einstak-
linga og landshlutasamtaka.
Ráðstefnan hefst að morgni
24. ágúst með því að flutt verða
fjögur fræðileg erindi um vígvæð-
inguna í Norðurhöfum og valið
sem gefst milli fjandsamlegrar
eða friðsamlegrar sambúðar
þjóða. Efni erindanna verður
eftirfarandi:
1. Herstjórnarlist Bandaríkj-
anna og NATO - Herstjórnar-
list Sovétríkjanna; hernaðar-
legt mikilvægi Norðurhafa
fyrir risaveldin, staða hlut-
lausra og óháðra ríkja. Flytj-
andi er dr. Carl Gustaf Jacob-
sen professor við Miamihá-
skóla í Bandaríkjunum.
2. Herstöðvar og búnaður
tengdur þeim og hlutverk
þeirra í hugsanlegum hernað-
arátökum. Flutningsmaður er
Nils Petter Gleditch frá Friðar-
rannsóknarstofnuninni í Osló.
3. Vistfræðilegar afleiðingar
kjarnorkustyrjaldar. Páll
Bergþórsson veðurfræðingur
flytur þetta erindi.
4. Stjórnlist: leiðir til að út-
rýma kjarnorkuvopnum og
kjarnorkumengun úr Norður-
höfum. Pólitískir kostir:
Fjandskapur milli austurs og
vesturs og hugmyndir friðar-
hreyfinga. Dr. Jan Williams frá
END (European Nuclear Dis-
armament) í Bretlandi.
Fundarstjóri verður Guðrún
Agnarsdóttir. Að loknum þess-
FRA LESENDUM
RIKISUTVARPIÐ
» m
2. HÆÐ
ICELANDIC STATE
ROADCASTING SERVICE
Skeinir af
þeim skítinn
Aðalsteinn Jónsson hringdi:
Mér blöskra hreinlega vinnu-
brögð sjónvarpsins á fréttaflutn-
ingi af radarstöðinni í Stigahlíð-
inni sem verið er að undirbúa.
Þar er beinlínis sagt að radarstöð-
in sé ekki hemaðarmannvirki
heldur fyrst og fremst til að nota
fyrir íslenskar flugvélar og skip.
Það var því heldur fróðlegt að sjá
svo ráðuneytisstjóra utanríkis-
ráðuneytisins lýsa því yfir að rad-
arstöðin fyrirhugaða væri fyrst og
fremst hernaðarmannvirki.
Svona linku af hálfu sjónvarpsins
er ekki hægt að þola. Það á að
kalla hlutina sínum réttu
nöfnum, þó það henti kannski
ekki alveg ráðamönnum. Er
sjónvarpið óháður fjölmiðill eða
ekki?
Mér fannst líka heldur illt að
heyra haft eftir Geir Hallgríms-
syni að radarstöðin væri fyrst og
fremst fyrir innanlandsflug og af
ummælum ráðuneytisstjóra sést
að það er auðvitað hreint bull.
Mér hefur lengi verið í nöp við
vinnubrögð þess manns og sé
ekki betur en í Geir séu nú
Bandaríkjamenn búnir að næla
sér í mann sem í hvert sinn reynir
að skeina af þeim skítinn þegar
þeir verða uppvísir að einhverju
eins og þessari radarstöð.
um inngangi mun ráðstefnunni
skipt upp í umræðuhópa þar sem
tekin verða fyrir brýnustu mál
friðarbaráttunnar og samræming
hennar í löndunum umhverfis
Norður-Atlantshaf. Rúmlega 40
erlendir fulltrúar hafa þegar boð-
að komu sína á ráðstefnuna.
í tengslum við ráðstefnuna
munu Friðarsamtök listamanna
hafa forgöngu um norræna graf-
íksýningu í Félagsstofnun stúd-
enta. Einnig mun sænski leikar-
inn Jan Bergkvist koma þar fram
með eins manns leikþátt, efnt
verður til umræðukvölda með
nokkrum hinna erlendu ráð-
stefnugesta og innlendir lista-
menn munu troða upp.
Umræða um leiðir til að draga
úr vfgbúnaði í Norðurhöfum og
löndum umhverfis þau skiptir
miklu máli fyrir okkur íslendinga
og á ráðstefnunni munu safnast
miklar upplýsingar sem ætlunin
er að miðla áfram til fleiri. Vit-
und almennings um kjarnorkuvá
er það afl sem helst getur haldið
aftur af hernaðarhyggju misvit-
úrra valdamanna.
15. ágúst 1984.
Friðardagar í
Félagsstofnun
Dagana 22.-26. ágúst gangast
■ - ■ ■ - -
fjölmörg friðarsamtök fyrir
Friðardögum i Félagsstofnun
stúdenta við Hringbraut. Þar
verður sýning á listaverkum
nokkurra þekktustu grafíklista-
manna Finnlands, Svíþjóðar og
Danmerkur. Meðal þeirra eru
Palle Nielsen, Danmörku, Ulla
Rantanen, Finnlandi, Nils Stenq-
uist, Svfþjóð og Björn Willi Mort-
ensen, Noregi. Sýningin verður
opnuð kl. 17:00 á miðvikudaginn,
en um kvöldið eru tónleikar, dr.
Jan Williams, lífefnafræðingur
flytur erindi auk fleiri dagskrár-
liða.
Hingað til lands kemur sænski
leikarinn og grínistinn Jan Berg-
quist og sýnir leikrit sitt Síðasta
viðtalið „The last talk-show“ á
föstudagskvöld þ. 24. á ensku og
á sunnudagskvöld þ. 26 á sænsku.
Friðardagar eru í tengslum við
ráðstefnu Friðarsambands
Norðurhafa, sem hefst á Hótel
Loftleiðum 23. ágúst.
„Vildarkjör á Vesturlandi
ít
Vildarkjör á Vesturlandi er
samhciti yfir sérstök verðtil-
boð hótela, sveitaheimila, sam-
gönguaðila og eigenda söluskála
og veitingahúsa á Vesturlandi.
Tilboð þessi eru ætluð til að gefa
einstaklingum og Qölskyldum
tækifæri á að dveljast og skoða
Vesturland á vildarkjörum.
Tilboðin eru þannig uppbyggð
að keypt er 2ja nátta gisting
minnst á einhverju hóteli eða
sveitabæ á Vesturlandi, þegar
það hefur verið keypt fær við-
komandi í hendur afsláttarkort
sem veitir honum afslátt á sam-
göngum og veitingum á ýmsum
stöðum á Vesturlandi.
„Vildarkjör á Vesturlandi“
gefa möguleika á að fá ódýra 2ja,
4ra, 6 eða 8 nátta gistingu á hótel-
um og sveitabæjum með ódýrum
veitingum og ferðum. Ekki þarf
að dvelja á hverjum stað nema 2
nætur og því auðvelt að ferðast
um Vesturland og gista ýmist á
hótelum eða á sveitabæjum með-
an fegurð og kyngimáttur Vestur-
lands er skoðaður.
Volvo bátavélar
Dagana 8. til 30. ágúst stendur
yfir þjónustu- og söluferð á
VOLVO PENTA bátavélum.
Sölu- og þjónustumenn frá
Velti og VOLVO verksmiðjun-
um eru með í ferðinni. Þeir hafa
meðferðis PENTA bátavélar og
kynna meðferð þeirra.
Einnig verður kynnt merk nýj-
ung frá VOLVO PENTA, svo-
kallað DUOPROP. DUOPROP
er tveggja skrúfu drif fyrir 110 og
165 hestafla PENTA dieselvélar.
DUOPROP dáknar byltingu í
gerð drifa fyrir bátavélar. Skrúf-
ur drifsins snúast öndvert hvor
annarri, en þannig er eldsneytið
betur nýtt og jafnframt tryggður
stöðugleiki og réttstefna.
Allar nánari upplýsingar gefa
sölumenn í þjónustuferðinni.
(Fréttatilkynning)
Flmmtudagur 16. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19