Þjóðviljinn - 16.08.1984, Page 15
IÞROTTIR
4. deild
Léttir í
úrslitin
Léttir úr Reykjavík tryggði sér
sæti í úrslitakeppni 4. deildarinn-
ar í knattspyrnu f fyrrakvöld með
þvf að ná jafntefli gegn Hildi-
brandi f Vestmannaeyjum, 1-1.
Sigurbjörn Óskarsson skoraði
fyrir Hildibrand í fyrri hálfleik en
var rekinn útaf f þeim sfðari og þá
tókst Léttismönnum að jafna.
Þeir berjast þá við Ármann og ÍR
um eitt laust sæti í SV-riðli 3.
deUdarinnar.
Afturelding vann Hauka 5-2 í
A-riðlinum. Lárus Jónsson, Ein-
ar Guðmundsson, varnarmaður
Hauka, Gísli Bjarnason og Rfk-
harður Jónsson skoruðu fyrir
Mosfellinga en Loftur Eyjólfsson
og Páll Poulsen fyrir Hauka.
Vorboðinn tapaði 1-6 fyrir Ár-
roðanum í lokaleik E-riðilsins á
mánudagskvöldið. Rúnar Arason
2, Unnsteinn Sigurgeirsson,
Helgi Örlygsson, Garðar Hall-
grímsson og Helgi Jóhannsson
skoruðu fyrir Árroðann sem einn-
ig kryddaði leikinn með sjálfs-
marki. Lokastaðan í E-riðli varð
þessi:
Tjörnes.....8 7 0 1 20-3 21
Vaskur......8 4 2 2 21-14 14
Árroðinn.....8 4 2 2 17-12 14
Æskan.......8 1 1 6 9-19 4
Vorboðinn...8 1 1 6 13-32 4
Yngri
flokkarnir
Úrslitakeppni í 3. og 4. flokki á
íslandsmótinu í knattspyrnu hefst
í dag. Þriðji flokkur verður
leikinn í Keflavfk og hefst keppni
þar kl. 15.30 en á Selfossi verður
4. flokkur á fullri ferð og þar
verður byrjað kl. 13.30 í dag.
{ 3. flokki eru eftirtalin lið í úr-
slitum: KR, ÍA, Gróttaog Höttur
sem eru saman í riðli og ÍBK,
Fram, ÍK og Þór A.
f 4. flokki: ÍA, Stjarnan, Sel-
foss og Súlan saman í riðli og Vík-
ingur, KR, Grindavík og KA.
Leikið verður í riðlum fram á
laugardag en úrslitaleikirnir
verða á sunnudaginn. Á U-
síðunni á morgun verður sagt frá
lyktum riðlakeppninnar í þessum
flokkum í sumar.
KA vann
KA sigraði Hött 2-0 á Egils-
stöðum á sunnudaginn í síðasta
leik B-riðilsins í 1. deild kvenna.
Helga Finnsdóttir skoraði í fyrri
hálfleiknum og Hjördís Úlfars-
dóttir í þeim síðari. Lokastaðan í
B-riðli varð þessi:
ÞórA...........6 5 0 1 15-3 15
KA.............6 4 1 1 11-2 13
Súlan..........6114 3-15 4
Höttur.........6 0 2 4 3-12 2
Markahœstar:
Kolbrún Jónsdóttlr, Þór.......4
Borghlldur Freysdóttir, KA...3
Anna Einarsdóttir, Þór.......3
Þór leikur til úrslita um íslands-
meistaratitilinn við Val eða ÍA
sem mætast í kvöld á Valsvellin-
um. -VS
Lyfjanotkun
Vésteinn í banni
til 8. febrúar 1986!
„Tók lyfið samkvœmt lœknisráði“, segir Vésteinn
Vésteinn Hafsteinsson hefur
verið dæmdur í 18 mánaða
keppnisbann af Alþjóða Frjáls-
íþróttasambandinu. Vésteinn féll
á lyfjaprófi eftir kringlukast-
keppnina á Ólympíuleikunum í
Los Angeles og var honum tjáð sú
niðurstaða í þann mund sem
hann var að halda heimleiðis.
Alþjóða lyfjaeftirlitsnefnd Ól-
ympíuleikanna dæmdi Véstein í
bann frá leikunum og Alþjóða
Frjálsíþróttasambandið lét það
fara sjálfkrafa í gegn hjá sér
þannig að bannið tók gildi þann
8. ágúst sl. og gildir til 8. febrúar
1986.
Vésteinn sendi frá sér eftirfar-
andi yfirlýsingu í gær:
„Ég óska eftir að eftirfarandi
komi fram:
Fyrir fimm mánuðum síðan tók
ég lyf samkvæmt læknisráði
vegna meiðsla í öxlum. Læknir
minn tjáði mér, að það væri í lagi
að nota þetta lyf, það myndi ekki
koma fram á lyfjaprófi og væri
þar að auki notað í læknisfræði-
legum tilgangi til að flýta fyrir
uppbyggingu bandvefja.
Mistök mín eru fólgin í því að
kanna ekki til fullnustu hvort
þessar upplýsingar voru réttar
varðandi verkun lyfjanna, m.ö.o.
að þetta ætti ekki að koma fram á
lyfjaprófi Ólympíuleikanna.
Að öðru leyti get ég ekki sagt
neitt annað en að mér þykir þetta
mjög miður. Ég vil biðjast afsök-
unar ef það er hægt. Ég vil biðja
foreldra mína og fjölskyldu af-
sökunar, vinimínaog kunningja,
íþróttasamband íslands, Frjáls-
íþróttasamband íslands, Ólympí-
unefndina og íslensku þjóðina
sem styrkti mig til þátttöku í Ól-
ympíuleikunum.
Ég mun vitaskuld taka út mína
refsingu en engu að síður halda
ótrauður áfram og vona að mis-
tök mín verði öðrum til aðvörun-
ar“. -VS
1. deild
KR-ingar skárri
KR-ingar fengu KA-menn í
heimsókn í gærkvöldi í 1.
deildarkeppninni í knattspyrnu.
KR var öliu skárri aðilinn í
slökum leik og tryggðu sér sigur-
inn með tveimur mörkum sem
skoruð voru í sitt hvorum hálf-
leiknum.
Fyrsta færi leiksins kom á 26.
mínútu er Ágúst Már átti hjól-
hestaspyrnu, en Þorvaldur Jóns-
son KA markvörður náði að
verja. Fjórum mínútum seinna
sparkaði Stefán Jóhannsson bolt-
anum frá marki KR, boltinn fyr
yfir endilangan völlinn og inn í
vítateig Akureyraliðsins þar sem
hann sigldi framhjá Þorvaldi
markverði, Jón G. Bjarnason
reyndi þá skot á markið en í varn-
armann KA, boltinn barst til
Björns Rafnssonar sem hugðist
renna boltanum í markið en Þor-
valdur náði að bjarga í horn. Á
37. mínútu er dæmd vítaspyrna á
KA eftir að Bergþór Ásgrímsson
hafði handleikið boltann innan
vítateigs. Sævar Leifsson tók
spyrnuna en spyrnti yfir.
Tveimur mínútum fyrir leikhlé
tókst Vesturbæingunum loksins
að komast yfir með stórglæsilegu
marki. Einn varnarmanna KA
hreinsaði þá frá marki, boltinn
fór rétt út fýrir vítateiginn þar
sem Björn Rafnsson var á réttum
stað. Hann afgreiddi boltann
með viðstöðulausu skoti sem
hafnaði efst í markhorni Akur-
eyrarmarksins.
Það skeði síðan lítt markvert
alveg þangað til á 82. mínútu en
þá skoraði KR sitt annað mark.
Hálfdán Örlygsson átti einn veg
og vanda að því marki, hann lék á
tvo vamarmenn KA og komst inn
í vítateiginn þar sem hann sendi
stungubolta framhjá Þorvaldi
sem var illa staðsettur og í mark-
ið. Steingrímur Birgisson átti síð-
an síðasta tækifæri leiksins fyrir
norðanmenn en skot hans af
stuttu færi fór framhjá.
KR-ingar voru mun beittari
aðilinn í þessum leik og sigur
þeirravar sanngjam. Miðvörður-
inn Jósteinn Einarsson var þeirra
bestur, aðrir ieikmenn jafnir.
KA-liðið virtist hálf stefnu-
laust mestan hluta þessa leiks,
sóknarmenn liðsins voru ekki
nægjanlega hreyfanlegir auk þess
sem miðjan var ekki nógu sterk.
Erlingur Kristjánsson átti góðan
leik í vörninni. Þá áttu þeir Ás-
björn Björnsson og Mark Duf-
field ágæta spretti. - Frosti.
Staðan
eftir leiki 1. og 2. deildar í gær-
kvöldi:
1. deild:
ÍA.............13 10 1 2 24-12 31
IBK............13 7 3 3 16-12 24
Valur..........14 5 5 4 19-13 20
Þróttur........13 4 6 3 14-12 18
KR.............14 4 6 4 1 5-20 18
Vfklngur.......12 4 4 4 21-20 16
Þór A..........14 4 3 7 19-21 15
Broióablik.....13 2 7 4 12-14 13
KA.............14 3 4 7 1 9-29 13
Fram...........14 3 3 8 1 4-20 12
í kvöld kl. 19 mætast Víkingur-
Þróttur og ÍBK-Breiðablik.
2. deild:
FH............12 8 3 1 25-10 27
Vlftlr........13 7 3 3 24-17 24
VöUungur......13 7 2 4 20-17 23
KS............13 6 4 3 18-15 22
NJarðvfk......13 6 3 4 16-12 21
Skaliagrímur ....... 1352 6 21-1917
ÍBÍ...........13 4 5 4 19-19 17
IBV...........12 4 4 4 16-18 16
Tlndastóll....13 2 2 9 1 4-29 8
ElnherJI......13 0 2 11 8-25 2
Leik FH og ÍBV var frestað.
2. dettd
Isfirðingar óheppnir
Björn Rafnsson skoraði fallegt mark
gegn KA I gærkvöldi.
Völsungur-ÍBÍ 2-0
Niðurbeygður varamaður ísflrð-
inga, Helgi Indriðason, tannsmiður
og hagyrðingur í frfstundum, bölvaði
Geir Guðsteinssyni dómara í hástert
eftir leikinn. Ástæðan skiljanleg,
mark Helga dæmt af og fsflrðingar
óheppnir og klaufskir að fá ekkert
útúr Húsavíkurferðinni.
Fyrri hálfleikur fádæma leiðinlegur
og slakur, en ísfirðingar sóuðu fjölda
færa.
Miklu betri bolti í seinni hálfleik og
uppskeran sömuleiðis. Á 23. mín.
fékk Jónas Hallgrímsson boltann á
3. deild
Einvígi Fylkis og Reynis
Fylkir vann 2-0 í Ólafsvík í gœrkvöldi
Fylkir og Reynir Sandgerði
berjast nú um sigur í SV-riðli 3.
deildarinnar í knattspyrnu. í
gærkvöldi unnu Fyikismenn afar
þýðingarmikinn sigur á Vfldngi í
Olafsvík, 2-0, og Reynir
Snæfell 4-1 í Sandgerði.
vann
Fylkismenn skomðu eitt mark
í hvomm hálfleik í Ólafsvík, Ósk-
ar Theodórsson var þar að verki í
bæði skiptin og vom bæði mörkin
glæsileg að sögn heimamanna.
Víkingar em þar með orðnir
næsta vonlausir um 2. deildarsæt-
ið, slagurinn er milli hinna
tveggja.
Snæfell hleypti miklum skrekk
í Reynismenn í fyrri hálfleiknum
og skoraði eina mark hans. Guð-
mundur Stefán Manasson var þar
að verki. Reynir tók svo öll völd í
síðari hálfleik og skoraði fjórum
sinnum. Ómar Björnsson gerði
tvö markanna og Jón Sveinsson
og Hjörtur Jóhannsson eitt hvor.
HV tryggði sæti sitt í deildinni
með því að vinna Selfyssinga 3-2
á Akranesi. Egill Ragnarsson
kom HV yfir en Heimir Bergsson
jafnaði fyrir hlé. Elís Víglunds-
son tók til sinna ráða í síðari hálf-
leik, skoraði fyrst hartnær frá
miðju og síðan beint úr auka-
spyrnu. Þórarinn Ingólfsson
minnkaði muninn fyrir Selfoss en
HV hefði getað unnið stærra, Sæ-
mundur Víglundsson þrumaði af
sínum kunna krafti langt útá
Langasand úr vítaspyrnu.
Þrenna Erlu
Breiðablik vann Víking 5-0 á
Víkingsvellinum í 1. deild kvenna
f knattspyrnu í gærkvöldi. Erla
Rafnsdóttir skoraði 3 mörk, Lára
Ásbergsdóttir og Sigrún Sævars-
dóttir eitt hvor. Þetta var loka-
leikur liðanna og í dag halda
Breiðabliksstúlkumar til
V.Þýskalands í keppnis- og
skemmtiferð. - BV.
markteig en fór að dæmi tsfirðinga og
skaut uppí skýin. En þremur mín.
seinna kom fyrra markið. Afspyrnu-
góð samvinna þjálfara Völsungs,
Helga í Grafarbakka og Begga í
Skálabrekku, endaði með því að sá
síðarnefndi var niðursparkaður innan
vítateigs og vítaspyrna dæmd sem
Jónas skoraði úr (tvítekið). Fimm
mín. síðar bættu Völsungar öðru
marki við. Feykigóð sókn þar sem
boltinn var látinn ganga kanta á milli,
stungið inná markteig þar sem
knötturinn milliienti á ristinni á Wil-
helm West Fredriksen og þaðan í net-
ið.
í lokin skoruðu Vestfjarðarbúar
mark og var þar að verki hinn geð-
prúði sómapiltur, Helgi Indriðason,
en Geir dæmdi markið af. Á síðustu
mín. varði Gunnar Straumland hreint
út sagt vel, meistaralega fast skot
Rúnars Vífilssonar. Fegnir Völsung-
ar kættust við úrslitum, ísfirðingar
sárir útí dómarann og kenndu honum
tapið.
—AB/Húsavík
Skallagrímur-KS 1-2
Siglflrðingar eru komnir á fullu í
slaginn um 1. deildarsæti en naumt
var það f Borgarnesi, jafntefli í mikl-
um baráttuleik hefði verið sann-
gjarnt.
KS tók forystuna á 24. mínútu.
Hroðaleg varnarmistök heima-
manna, Oli Agnarsson náði í kjölfar
þeirra að hirða boltann úr höndum
Kristins Amarssonar markvarðar og
skjóta í vamarmann og í netið.
Siglfirðingar björguðu á línu í fyrri
hálfleik frá Jóni Ragnarssyni.
Á 59. mín. björguðu þeir aftur á
línu, það var skammgóður vermir því
boltinn hrökk út til heimamanns sem
var felldur. Vítaspyrna, og úr henni
jafnaði Ólafur Jóhannesson.
Rétt á eftir varði Kristinn glæsilega
skalla frá Óla og hinum megin forð-
uðu gestimir enn á marklínu, nú frá
Birni Axeissyni. Á 75. mínútu náði
KS skyndisókn og fékk vítaspyrnu
sem Colin Thacker skoraði úr sigur-
markið, 1-2. Skallagrímur sótti lát-
laust eftir það og hefði átt að fá víti
undir lokin en ekkert var dæmt og
Siglfirðingar fóru norður með þrjú
stig.
-VH/Borgarnesi
Tindastóll-Víðir 0-2
Tvö mörk Vfðismanna á síðustu sex
mfnútunum á Sauðárkróki f gær-
kvöldi sáu til þess að þeir halda sig f
öðru sætinu. Eftir langvarandi hama-
gang í vítateig Tindastóls á 84. mínútu
fékk Víðir horn og uppúr því skoraði
Danfel Einarsson með fallegu skoti í
bláhomið. Á 90. mínútu var svo mik-
ill darraðardans f teig Tindastóls,
Árni Stefánsson varði hörkuskot eftir
aukaspymu en Vfðismenn náðu að
fylgja og koma boltanum yflr mark-
Ifnuna, 0-2.
Leikurinn var mjög jafn en lítið um
færi, mest vegna hinnar síbitlausu
framlínu Tindastóls. Víðismenn
björguðu á línu á 37. mín. og Gísli
Heiðarsson varði mjög vel skot Árna
Ólasonar á 59. mín. Þá skaut Björn
Sverrisson framhjá opnu Víðismark-
inu á lokasekúndunum.
Grétar Einarsson var líflegur í Víð-
isliðinu sem var langt frá því að vera
sannfærandi. Árni markvörður var
bestur Tindastólsmanna, var alls ráð-
andi í sínum vítateig og stjómaði sín-
um mönnum vel. Dómgæsla Hjálm-
ars Baldurssonar var hroðaleg og ætti
hann að snúa sér að einhverju öðru.
-PS/Sauðárkróki
Fimmtudagur 16. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23