Þjóðviljinn - 16.08.1984, Síða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Flmmtudagur 16. ógúsi 1984 183. tðlublað 49. árgangur
DJÓÐVIUINN
í Sundahöfn er kominn gagnmerkur ísbrjótur, frá-Ameríku og fékk almenningur aö skoða hann í gær. Blaðamenn voru leiddir um skipið, upp og niður stiga
og inn í allar kompur og var ekki annað að sjá en að ísbrjóturinn væri vel búinn. Héðan mun hann fara til rannsóknarstárfa á Grænlandshafi. (Mynd: Atli).
Samningarnir
Fyrsti fundur á mánudag
Islend-
ingar
fengu
verð-
Amánudaginn klukkan tvö
verður fyrsti fundur miili
Verkamannasambandsins og
Vinnuveitendasambandsins, og
VMSÍ mun þá leggja fram kröfu-
gerð sína á formlegan hátt, að
sögn Guðmundar J. Guðmunds-
sonar. Upphaflega var fundurinn
fyrirhugaður fyrr, en var frestað
sökum utanfarar Magnúsar
Gunnarssonar framkvæmda-
stjóra VSÍ, „af ástæðum sem við
sættum okkur fullkomlega við“,
sagði Guðmundur J.
Formlegar kröfugerðir hafa
enn ekki verið lagðar fram af
landssamböndunum, og form-
legir fundir milli atvinnurekenda
og verkalýðshreyfingarinnar
munu því ekki hefjast fyrr en í
næstu viku með fundi VMSÍ og
VSÍ.
í gær var stjórn Landssam-
bands iðnverkafólks á fundi við
að leggja síðustu hönd á kröfu-
gerð sína.
-ÖS.
Álsamningar
Grikkir óánœgðir
með20.
Ríkisstjórn Grikklands sœttir sig ekki við niðurstöðu gerðardóms í
Lauzanne og vill leggja deiluna við Pechiney-hringinnfyrirgrískan dóm
Ákveðinn
í Þíng-
vallaferð
Jú, það er rétt, ég er ákveðinn í
að halda á Þingvöll á laugardag-
inn með Alþýðubandalaginu,
sagði Gunnlaugur Haraldsson
safnvörður á Akranesi í viðtali
við Þjóðviljann í gær.
Gunnlaugur sagði að hann vissi
um fleiri Skagamenn sem hygð-
ust skunda með á Þingvöll. „Það
er ekki of oft á lífsleiðinni sem
manni gefst kostur á að hlýða á
Halldór Laxness lesa kafla úr ís-
landsklukkunni á hinum forn-
helga stað“, sagði Gunnlaugur
Haraldsson safnvörður að lok-
um.
-óg.
Glerlist
Akranes
nægju með niðurstöðu gerðar-
dómsins. I Metal Bulletin er frá
því skýrt að Kouloubis hafi látið
hafa eftir sér að hann sé enn á
höttunum eftir hærra orkuverði
og ríkisstjórnin vilji nú vísa
deilunni við Pechiney fyrir
grískan dómstól.
Mat gerðardómsins í Lauzanne
á því hvað sé viðunandi verð til
álbræðslna á raforku er athyglis-
vert. Pechiney hefur greitt 15
mills fyrir kílówattstundina, en
gerðardómurinn úrskurðaði að
fyrir árið 1983 skyldi hringurinn
greiða afturvirkt 18.6 mills, 19.5
mills árið 1984 og 20.5 mills á
næsta ári, 1985. Forráðamenn
Pechiney hringsins eru langt frá
því óánægðir með niðurstöðuna
en gríska stjórnin sættir sig ekki
við hana eins og áður sagði. Al-
uminium de Grece notar um 10%
af raforkuframleiðslu Grikkja.
(Mills er verðeining sem stendur
fyrir 1/1000 úr Bandaríkjadoll-
ar). - ekh.
Gunnlaugur Haraldsson: Ekki of oft á
lífsleiðinni, sem manni gefst kostur á
að hlýða á Halldór Laxness lesa kafla
úr íslandsklukkunni á Þingvöllum.
Gerðardómur í Lauzanne í
Sviss hefur kveðið upp þann
úrskurð að verð á raforku til Al-1
uminium de Grece, dótturfyrir-
tækis franska hringsins Pechiney
í Grikklandi, skuli vera 20.5 mills
á kflówattstundina árið 1985. M.
Kouloubis, orkumálaráðherra
Grikklands hefur lýst megnri óá-
Siglufjörður
Minningarstofa um séra
laun
Sigrún Einarsdóttir og Sören
Larsen glerlistamenn á Kjalar-
nesi fengu heiðursverðlaun í ár
frá Axel Lind-listasjóðnum í Dan-
mörku.
Verðlaunin voru afhent af Osc-
ar Bernadotte greifa 12. ágúst sl.
Meðal þeirra sem hlutu verðlaun
var William Heinesen frá Fær-
eyjum. Alls var úthlutað til ein-
staklinga og stofnana 100 þúsund
dönskum krónum. - óg.
Alaugardaginn verður opnað
Héraðsskjalasafn og minning-
arstofa um séra Bjarna Þorsteins-
son í Bókasafni Siglufjarðar. Af
því tilefni verður athöfn í Hvann-
eyrarkirkjugarði kl. 14,. og í
Bókasafninu kl. 15. Þá er öllum
bæjarbúum og aðkomumönnum
boðið i kaffi á Hótel Höfn milli kl.
16 og 18.
Séra Bjarni Þorsteinsson tón-
skáld og þjóðlagasafnari var
sóknarprestur á Siglufirði í 47 ár
og var sæmdur prófessorsnafnbót
og riddarakrossi 1930 fyrir þjóð-
lagasöfnun sína og störf að opin-
berum málum fyrir Siglufjörð. í
minningarstofunni sem geymir
ýmsa muni úr eigu séra Bjarna og
konu hans verður tónlistarhorn.
Þar verða hljómflutningstæki og
áhersla lögð á að koma upp safni
af þjóðlegri tónlist, bæði íslenskri
og erlendri.
Héraðsskjalasafn Siglufjarðar
tekur nú formlega til starfa en
þegar hefur verið safnað þangað
allmiklu af skjölum er varða sfld-
artímabilið auk ýmislegra gagna
um sögu og menningu Siglu-
fjarðar og Hvanneýrarhrepps
hins foma.
Við athöfnina í kirkjugarðin-
um mun séra Vigfús Þór Árnason
flytja minningarorð og Bogi Sig-
urbjörnsson forseti bæjarstjórnar
Bjarna
leggja biómsveig á leiði prests-
hjónanna. Við athöfnina í bóka-
safninu flytja Óttarr Proppé bæj-
arstjóri og Óli J. Blöndal bóka-
vörður ræður. Sigurjón
Sæmundsson syngur við undir-
leik Silke Óskarsson og Hlynur
Óskarsson leikur á trompet. Þá
flytur Kristín Pétursdóttir bóka-
fulltrúi ríkisins ávarp. Kirkjukór-
inn undir stjórn Páls Helgasonar
mun syngja lög eftir séra Bjarna.