Þjóðviljinn - 17.08.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Háski á hálendinu
Tíð banaslys á öræfum hafa vakið fólk til
umhugsunar um skipulag hálendisferða á ís-
landi. Það þarf í sjálfu sér ekki að vera undrun-
arefni að vaxandi ferðamannastraumi fylgi tíð-
ari slys á fjöllum. Það hafa menn fengið að
reyna t.d. í svissnesku Ölpunum og í fjalllendi
á Norðurlöndum se'm verður æ vinsælla til
skíða- og gönguferða. Það er heldur ekki hægt
að horfa fram hjá því að íslendingar fara marg-
ir óvarlega á hálendinu, lítt útbúnir og án þess
að hafa reynt og staðkunnugt fólk með í för. Af
slíkri óvarkárni hafa mörg slys hlotist og þurft
að kosta til miklu björgunarumstangi er fólk
hefur villst á fjöllum.
Ljóst er að á mörgum sviðum má gera betur
en nú er gert í því að leiðbeina fólki um há-
lendið. Þegar til lengri tíma er litið verður að
gæta þess að hafa landkynningu á þann veg
að hún villi ekki um fyrir erlendu ferðafólki. Að
kynna (sland sem góðviðrisland þar sem allir
vegir eru færir er ekki heillavænlegur áróður. Á
hinn bóginn er heldur ekki sérlega fýsilegt að
kynna landið sem gósenland fyrir þá sem vilja
leggja ásig glæfraleg ferðalög. Áherslu verður
að leggja á að þeir sem til íslands koma séu
við misjöfnu búnir og geti lent í háska.
Til þess að komast hjá háska þurfa menn að
hafa til að bera kunnugleika og geta lagt raun-
sætt mat á aðstæður, eins og kunnur
leiðsögumaður kemst að orði í samtali við
Þjóðviljann. Það þarf því að finna leiðir til þess
að framfylgja lögum um að menntaðir
leiðsögumenn séu í för með ferðamannahóp-
um. Á þessu hefur greinilega verið einhver
misbrestur og ferðaskrifstofur þurfa aðhald í,
þessum efnum. Því hefur verið haldið fram að'
sumar ferðaskrifstofur hér séu ekki ráðhollar
erlendum samstarfsaðilum og hlaupi á eftir
ýmsum óskynsamlegum hugdettum þeirra.
Þannig er t.d. í tíma og ótíma verið að senda
hópa á fræg fjöll eins og Herðubreið og Heklu,
enda þótt uppganga á þessi skriðrunnu fjöll
sé engin skemmtiganga og geti verið stór-
varasöm, sérstaklega óvönu fólki.
Það þarf greinilega að reka harðari áróður til
þess að vara við háska á hálendinu er útlend-
ingar koma til landsins, meðan á dvöl þeirra
stendur og sömuleiðis gagnvart okkur sjálfum.
í þessum efnum hafa komið fram margar til-
lögurhéríÞjóðviljanum.Hættulega staði á há-
lendinu, þar sem sérstakrar aðgæslu er þörf,
ætti að merkja sérstaklega með viðvörunum.
Hugsanlega væri hægt að koma upp viðvör-
unarkerfi þar sem sérstakir eftirlitsmenn og
landverðir létu vita af síbreytilegum aðstæðum
áfjallaslóðum. Þeim upplýsingum mætti síðan
koma áleiðis um ríkisútvarpið á íslensku og
erlendum málum. Slíkar viðvaranir eru al-
gengar í erlendum útvarpsstöðvum. Þá hefur
verið nefnt að ferðahópum og fólki sem
augljóslega kemur hingað til þess að leggja í
fjallaferðir á stórum bílum sé gert skylt að
leggja fram sérstaka björgunartryggingu áður
en haldið er af stað. Það væri þá bæði hugsað
sem viðvörun og til þess að standa straum af
kostnaðarsömum leitar- og björgunaraðgerð-
um.
Það er ánægjuefni að þeir aðilar sem fást
við slysavarnir og björgunarstörf skuli nú ræða
það í sínum hópi hvað hægt sé í sameiningu
að gera til þess að bæta öryggi í ferðalögum
um íslenskar fjallaslóðir. Hinsvegar hljóta hin
tíðu slys undanfarið einnig að vera áminning til
þeirra sem efla vilja ferðamannaiðnað á ís-
landi um að best sé að fara að öllu með gát og
kalla ekki yfir sig fleiri ferðamenn en landið og
skipulagið þolir.
KUPPT OG SKORIB
Staða ríkissjóðs
Albert Guðmundsson fjár-
málaráðherra hefur nú tilkynnt
með lúðraþyt og söng að staða
ríkissjóðs sé afskaplega góð.
Eiginlega sé hún um það bil milj-
arði króna skárri en á sama tíma
í fyrra - og gekk þá allt býsna vel.
Albert er að sjálfsögðu nokkuð
kotroskinn yfir þessari nýju - og
óvæntu stöðu ríkissjóðs enda Iak-
ara að vera fjárskylft í haust þeg-
ar þarf að íeiðrétta launin hjá
BSRB.
Mogginn fúll
Morgunblaðið er ekkert yfir
sig ánægt með hina góðu stöðu
ríkissjóðs - en bendir á, að tekju-
öflun ríkissjóðs sé að jafnaði
meiri á síðari hluta ársins en þeim
fyrri. Morgunblaðið gerir sér
enda vel grein fyrir að batnandi
staða ríkissjóðs er pólitískt útspil
í komandi samningum.
Þorsteinn líka
Og það eru fleiri en Morgun-
blaðið sem telja að illa gangi hjá
Albert - og nauðsynlegt sé að
taka af honum völdin í fjármála-
ráðuneytinu. Þannig klifar Þor-
steinn Pálsson á því í síbylju, að
nauðsynlegt sé að taka ríkis-
fjármálin föstum tökum, eitthvað
verði aðgera... Steingrímur Her-
mannsson lætur að því sama
liggja í viðtali við NT í gær: „Það
þarf að fara af miklum krafti í það
núna að ná fjárlögum saman."
Og þá er undanskilið, að taka eigi
stjórn fjárlagagerðarinnar úr
höndunum á fjármálaráðherran-
um.
Meiri þensla
í leiðara Morgunblaðsins var
vitnað í Ragnar Arnalds fyrrver-
andi fjármálaráðherra: „Ragnar
benti á að afkoma ríkissjóðs í ár
bæri þess glögg merki að þeir
þættir sem ríkissjóður hefur
mestar tekjur, söluskattur og
tollar, hefðu hækkað meira en
tvöfalt meira í ár en hæsti
útgjaldaliðurinn, launin“. Með
öðrum orðum, launin liggja enn
eftir og þyrftu að hækka um
helming til að ná í skottið á öðr-
um útgjaldahækkunum ríkis-
sjóðs.
Býr sig undir
að borga
Það er greinilegt að fjármála-
ráðherra hefur búið sig undir að
þurfa að taka stórar ákvarðanir í
samningum við BSRB. Ríkis-
sjóður hefur verið á höttunum
eftir hverri smákrónu
skattborgaranna til að vera betur
í stakk búinn til að mæta óvænt-
um útgjöldum - mikilli launa-
hækkun í haust. Að vísu segir Al-
bert, rétt til að fela tilganginn, að
hin góða staða ríkissjóðs sé til
komin vegna þess hve hann hafi
veitt mikið aðhald. En það er nú
bara til að stríða flokksbræðrun-
um sem fjármálaráðherra tekur
svo til orða.Víst er að ráðherr-
ann býr sig undir að borga starfs-
mönnum ríkisins betur í haust
heldur en hingað til.
Eltir hvern eyri
í þessum tilgangi hefur fjár-
málaráðherrann elt uppi hvern
eyri. Þannig erfarið að innheimta
tolla af erlendum bókum sem ein-
staklingar og bókasöfn kaupa af
og til inn til landsins - og er einkar
smásmugulegt og ómerkilegt að
byrja skyndilega auka gjaldtöku
af bókum. Morgunblaðjð segir
enda í leiðara á dögunum um það
mál: „Það er til vansæmdar að
leggja söluskatt á slíka þekking-
aröflun einstaklinga". Undir það
sjónarmið skal hér tekið um leið
og bent er á að ýmis bókasöfn
verða einnig fyrir barðinu á þess-
ari smásmygli fjármálaráðherr-
ans. í rauninni furðulegt að sama
ráðuneyti og veitir hlutafélögum
margháttuð skattafríðindi og
ívilnanir, gefur sumum
skemmtifyrirtækjum eftir sölu-
skatt og fleira, - skuli vera á
höttunum eftir peningum af
bókum og gera þannig menning-
arstarfsemi erfitt fyrir. Hitt skal
ekki útilokað, að Albert sé að
safna uppí BSRB kröfurnar, en
hann hefur svo sannarlega í
önnur hús að venda til að afla fjár
heldur en í vasa bókakaupenda.
Nokkrar leiðir
Fjármálaráðherra gæti sem
hægast staðið fyrir breytingum á
skattalöggjöfinni í það form að
fyrirtækin og hlutafélögin skili
aftur meiri fjárupphæðum í ríkis-
kassann. Hann gæti auðveldlega
tekið upp lúxusskatta á dýra bfla,
bruðlfjárfestingar verslunarinnar
og svo framvegis. En jafnvel þótt
hann geri ekkert slíkt, verður rík-
issjóður nú aflögufær í komandi
samningum við BSRB. Einsog
Morgunblaðið bendir einnig á,
þá eiga tekjur ríkissjóðs sam-
kvæmt hefðinni enn eftir að vaxa
seinni hluta ársins.
Ný staða?
Einsog kunnugt er vilja ýmsir
sjálfstæðismenn og framsóknar-
menn hressa uppá ríkisstjórnina
með því að fá Þorstein Pálsson
inní hana. Eitt afbrigðið af
mannabreytingunum er, að Geir
Hallgrímsson hætti, Matthías Á.
Mathiesen verði utanríkisráð-
herra, Albert Guðmundsson
verði viðskiptaráðherra og Þor-
steinn Pálsson fjármálaráðherra.
Albert Guðmundssyni og hans
mönnum finnst hann vera kom-
inn nógu langt útí hornið þó að
slíkar hrókeringar komi ekki til.
Albert þarf á einhverri lyftistöng
að halda til að verða aftur maður
með mönnum í opinberri um-
ræðu og innan ríkisstjórnarinnar.
Veglegir samningar fjármálaráð-
herrans við BSRB gætu sett hann
í slíka óskastöðu, inná við og útá-
við, „Maðurinn sem þorði“, -
yrði þá „maðurinn sem þorir“.
-óg.
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis
og verkalýöshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjórar: Óskar Guðmundsson, Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðrikssson Halldóra Sigur-
dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður
Ámason, Súsanna Svavarsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Össur Skarp-
héðinsson.
Ljó8myndir: Atli Arason, Einar Karlsson.
Utlit og hönnun: Bjöm Brynjúlfur Björnsson Svava Sveinsdóttir, Þröstur
Haraldsson.
Framkvœmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir.
Auglýsingastjóri: ólafur Þ. Jónsson.
Auglýsingar: Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir,
Anna Guðjónsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Símavarsla: Ásdís Kristinsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Husmóöir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bflstjóri: Ólöf Sigurðardóttir.
Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Sfðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verö í lausasölu: 22 kr.
Sunnudagsverð: 25 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 275 kr.
4 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudaqur 17. ágúst 1984