Þjóðviljinn - 17.08.1984, Blaðsíða 7
MANNLIF
Til vinstri er Halla Margrét Árnadóttir fimleikakona úr Gerplu. Ásamt því að taka þátt í dansatriðum og sýna leikfimi syngur hún „Móðir mín í kví kví“ við undirleik Sigurðar Rúnars og Sighvats Sveinssonar
íþróttamanns. Bryndís Kristjánsdóttir er með Höllu á myndinni. mynd - eik
R HÓPUR FRÁ UPPHAFI
„Ég hef aldrei lent í öðru eins
púli“, sagði Ágústa Sigfúsdóttir
úr Kópavogi við Þjóðviljann.
„Við höfum æft þrisvar í viku og
alla laugardaga síðan í vor. Þetta
var töluvert sundurleitur hópur í
upphafi. Ég datt til dæmis bara
inn í þetta fyrir tilviljun. Var þátt-
takandi í trimmprógrammi hjá
Gerplu og einhver stakk upp á
því að ég kæmi inn í Brasilíuhóp-
inn. Þetta hefur verið ofsalega
skemmtilegt. Það er með ólíkind-
um hvað Diddi fiðla getur fengið
okkur til að gera. Öll syngjum við
og það meira að segja raddað. Ég
spila meira að segja smávegis á
píanó, án þess að geta á nokkurn
hátt talið mig kunna slíkt.“ Ág-
ústa er sjúkraþjálfi og sér um
leikfimi fyrir verðandi mæður í
Kópavogi.
Margrét Bjamadóttir þjálfari
fimleikadeildar Gerplu hefur
haft veg og vanda að undirbún-
ingi fararinnar ásamt þjálfurun-
um Heimi Gunnarssyni og Jódísi
Pétursdóttur. Hún sagði hópinn
allan hafa unnið mjög vel saman.
Sigurður Rúnar Jónsson samdi
tónlist við sýningaratriðin sem
samanstanda af leikfimi og dansi.
Spilaði hann inn á segulband
ásamt Pétri Hjaltested. Stór-
skemmtileg tónlist fannst okkur
Þjóðviljamönnum þegar við vor-
um við lokaæfinguna. Sigurður
Rúnar æfði einnig söng hópsins
en fæstir kórfélaga hafa áður
tekið lagið utan heimilis.
-JP
Þjóðdansar eru meðal dagskráratriða. Hefðbundin landkynning en gefur ekki endilega mynd af því hvernig við dönsum nú til dags. mynd - eik.
Föstudagur 17. ágúst 1984 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 7