Þjóðviljinn - 17.08.1984, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 17.08.1984, Blaðsíða 8
MANNLIF Garðrœkt Hugarflugið og augað hefur ráðið Garðurinn að Starhólma 2 var tilnefndur til heiðursverðlauna afFegrunarnefnd Kópavogs Garðurinn hefur mótast hjá okkur hægt og sigandi. Við höf- um látið hugarflugið og augað ráða ferðinni og gert þetta sjálf á síðustu árum, sögðu hjónin Ingi- björg Hafberg og Leifur E.N. Karlsson, Starhólma 2, sem hlutu heiðursverðlaun Kópa- vogsbæjar fyrir fegursta garðinn í bænum árið 1984. „Við fluttum hingað í Starhólm- ann sumarið 1975. Þá tyrfðum við aila lóðina. Á garðinum byrj- uðum við svo næsta sumar“, sögðu hjónin. Ingibjörg sagðist hafa haft meiri áhuga á garð- ræktinni til að byrja með, en Leifur „fékk bakteríuna síðar. Tilfellið er að þetta er smitandi", sagði hann. Þau segjast byrja garðvinnuna í mars eða apríl. „Þá förum við að taka mesta draslið“. Ingibjörg hefur þá vinnuna í gróðurhúsi sem er í garðinum. Þar sáir hún sumarblómum og ræktar auk þess tómata og fleira góðgæti. Jarðarber ræktar hún í reit undir gleri og rifsberjarunni er um- hverfís matjurtagarðinn. „Sumarblómin eru svo dýr að ekki er annað hægt en að reyna að rækta þau sjálf. Þau prýða garðinn en verst er hvað sumarið er stutt. Við erum einnig með fjölda fjölærra plantna sem við höfum ýmist fengið hjá vinum okkar og einnig höfum við keypt eitt og eitt“. Leifur lagði rafmagn um garð- inn og þegar rökkva tekur er gróðurinn upplýstur. Einnig hafa þau gert lítinn gosbrunn bak við húsið. Lóðin að Starhólma 2 er í halla, brekkan meðfram húsinu lögð hraunhellum. Ingibjörg sagði mikla vinnu við að hreinsa mosa og illgresið sem festir rætur milli hraunhellnanna og vill helst fá að yfirgnæfa blómahafið. „Við höfum sjaldan verið jafn undrandi og þegar okkur voru veitt þessi verðlaun. Áttum eng- an veginn von á þessu. Þetta er fyrst og fremst okkar áhugamál og engir sérfræðingar hafa komið nálægt garðinum nema við hleðslu á vegg meðfram götunni. Við erum vissulega ánægð og stolt“, sögðu eigendur fallegasta garðsins í Kópavogi árið 1984. -JP Ingibjörg og Leifur í garðinum sem þau byrjuðu að móta fyrir 9 árum síðan. Mynd: eik. \ 7 1 ' í i f i M \ 4,1,1 ~~ i *~**ÆrÁ WÍ../F" 1 Kópavogur Fegurstu garðarnir 1984 Garðurinn að Starhólma 2 í Kópavogi fékk heiðursverðlaun Bæjarstjórnar Kópavogs í ár. Fegrunarnefnd bæjarins veitti verðlaun og viðurkenningar fyrir garða og snyrtingu húsa í lok síð- ustu viku. Ingibjörg Hafberg og Leifur E.N. Karlsson Starhólma 2 fengu heiðursverðlaun „fyrir fegursta garðinn í Kópavogi 1984 sem ein- kennist af alúð og snyrti- mennsku“. Unnur Agnarsdóttir og Óskar H. Gunnarsson, Birki- grund 45 hlutu verðlaun „fyrir fagran garð í nýju hverfi“, Elín Jakobsdóttir og Oddur Brynj- ólfsson, Borgarholtsbraut 30 fengu einnig verðlaun „fyrir sér- staklega snyrtilegan garð“. Viðurkenningar Fegrunar- nefndar Kópavogs hlutu eftir- taldir aðilar: Sunnubraut 23, eig.: Jónas Halldór Haralz, fyrir frumlegan og hlýlegan garð. Birkigrund 71, eig.: Anna Asgeirsdóttir og Sig- urjón G. Sigurjónsson, fyrir snyrtilegan garð í nýju hverfi. Kastalagerði 9, eig.: Hólmfríður Jóhannesdóttir og Ellert Finn- bogason, fyrir steinaborg og snyrtilegan garð. Mánabraut 16, eig.: Rósa Sveinsdóttir og Jó- hannes Tómasson, fyrir frum- legan og skemmtilegan garð. Skjólbraut 12, eig.: Sigrún V. Ól- afsdóttir og Hreinn Erlendsson og Erla Erlendsdóttir og Hilmir Sigurðsson, fyrir snyrtilegan garð við tvíbýlishús. Borgarholtsbraut 19, eig.: Elísabet Jónsdóttir og Sverrir Sigþórsson, fyrir fjöl- breytni í garði. Sunnubraut 25, eig.: Hildur Þorbjarnardóttir og Agnar Tryggvason, fyrir fjöl- breytni í garði. Hlíðarvegur 8, eig.: Gríma Sveinbjarnardóttir og Stefnir Helgason, fyrir utan- húss klæðningu. Skólagerði 5, eig.: Kristjana Sigurðardóttir og Tómas B. Þórhallsson, fyrir utan- húss klæðningu. Skólagerði 7, eig.: Fríða Klara Guðmundsdótt- ir og Páll Valmundarson, fyrir utanhúss klæðningu. Hamraborg 9, eig.: Búnaðarbanki íslands, fyrir endurbætur á gömlu húsi. Nýbýlavegur 22, eig.: Guðrún Hjaltadóttir og Óskar Ingvason fyrir stétt og blómaker við fram- hlið húss. -JP 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. ápúst 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.