Þjóðviljinn - 17.08.1984, Síða 9
UM HELGINA
litaandstæðum draga fram hár-
fi'nt samspil formanna. Hvert
verk er heild út af fyrir sig, en
með smátilbrigðum í mynstri flat-
anna eða litasamsetningum
myndar hvert verk einnig hluta af
hreyfingu. Þannig skapar lista-
maðurinn myndaraðir með til-
brigðum um geómetrískt
grunnform.
Herman Hebler er þekktur
víða um heim, einkum fyrir
grafíklist sína. Hann hefur haldið
fjölda einkasýninga auk þess sem
hann hefur tekið þátt í ótal sam-
sýningum og öllum alþjóðlegum
bíennölum og tríennölum sem
haldnir hafa verið frá 1967. Hann
hefur hiotið margvísleg verðlaun
og viðurkenningu og hefur átt
sæti í ýmsum alþjóðlegum dóm-
nefndum.
Heima í Noregi er Herman He-
bler ekki síður þekktur sem aðal-
hvatamaður að og driffjöður bak
við Alþjóðlega grafíkbíennalinn í
Fredrikstad. Árið 1967 átti hann
frumkvæði að því að haldin var
stór sýning á alþjóðlegri grafíklist
í Fredrikstad. Sú sýning hefur
stundum verið kölluð bíennal nr.
0, því frá 1971 hefur hann verið
haldinn reglulega og einmitt nú
stendur yfir sá sjöundi í röðinni,
þar sem sýnd eru verk fjölda lista-
manna víðs vegar að úr heimin-
um. Hermen Hebler hefur ásamt
konu sinni Ullu borið hita og
þunga af skipulagningu og fram-
kvæmd bíennalsins gegnum árin
og hefur hann verið sjálfkjörinn
forseti hans.
Sýningin í Norræna húsinu
verður opin daglega kl. 14-19 til
sunnudagsins 2. september.
Norrœna húsið
Norskur grafíklistamaður
Það er heilmikið að sjá í bæn- þess sem Listasafn íslands býður dag sýning á grafíkmyndum eftir
um þessa dagana fyrir þá sem upp á abstrakt sýningu verður norska myndlistarmanninn
hafa áhuga á abstraktlist, því auk opnuð í Norræna húsinu á laugar- Herman Hebler, en hann er einn
fremsti listamaður Norðmanna í
abstrakt málverkinu.
Herman Hebler er fæddur í
Fredrikstad árið 1911. Hann
stundaði m.a. nám í Essen árin
1937-39 auk þess sem hann hefur
farið námsferðir til ýmissa landa,
einkum í Evrópu. Eins og ýmsir
aðrir þekktir norskir listamenn
hlaut hann fyrst viðurkenningu
utan heimalandsins eftir að hafa
búið við heldur kröpp kjör heima
fýrir, en hann fékk verðlaun við
Riverside museum í New York
árin 1957 og 1958. Herman
Hebler er einkum þekktur sem
grafíklistamaður og vinnur mest í
silkiþrykk, en sú tækni hæfir
myndmáli listamannsins mjög
vel. Hann hefur þróað ákveðna
tækni í sambandi við þrykk sem
gefur uppbyggingu myndflatarins
meira líf. Á sýningunni í Norræna
húsinu eru aðeins grafíkverk, en
málverk Heblers minna um
margt á silkiþrykk hans.
Tjáningarform Hermans Hebl-
ers er afmarkað, krefjandi og al-
varlegt. Form hans eru flöt, ge-
ómetrísk og einföld, litimir fáir
og valdir af kostgæfni og stíllinn
er strangur og leitar eftir
fullkomnun. Með kringlóttum og
beinum formum og ýmiss konar
vinklum skapar hann sterkt
jafnvægi í myndfletinum. Þéttir
málmlitirnir, eða hreint svart og
hvítt sem teflt er gegn sterkum
Gallerí
borg
með nýja
sýningu
í Gallerí Borg var s.l. miðviku-
dag opnuð sýning með verkum
fimm myndlistarmanna. Er hér
um að ræða krítar- og tússteikn-
ingar eftir Alfreð Flóka, vatns-
litamyndir eftir Gunnlaug St.
Gíslason, litkrítarmyndir eftir Jó-
hannes Geir, þrjú verk eftir Sig-
urð Örlygsson unnin með bland-
aðri tækni og kolateikningar eftir
Snorra Svein Friðriksson, en alls
eru verkin 37. Auk þessa eru svo
uppivið ýmis verk, glerskúlptúr,
keramik og vefnaður. Sýningin er
opin virka daga 10-18 og 14-18
laugardaga og sunnudaga.
Allar 'b
T vörur
á markaðsverði
OPIÐ í KVÖLD TIL KL. 22
í ÖLLUM DEILDUM
lokafl laugardaga i sumar.
• •••••
GLÆSILEGT ÚRVAL
HÚSGAGNA
TVEIMUR HÆÐUM
RAFTÆKI - RAFLJÓS
og rafbúnaöur.
Raftækjadeild ||. hæð
NÝTT Á 2. HÆÐ
3 nýjar verslanir
Hárgreidslustofa
Gunnþórunnar
g Jónsdóttur Sími 22500
Js Leikfangahúsið
^ Stjörnusnyrting.
Sn yrtivöruverslun.
Snyrtistofa.
y JL-GRILLIÐ Grillréttir allan daginn
Munið okkar hagstæðu
greiðsluskilmála
V7S4 Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121 Simi 10600
Fjöldamargir gullfallegir munir eru til sýnis á kínversku sýningunni I Listasafni
ASf sem opnar á morgun. Ljósm Atli.
Kínverskir munir
í Listasafni ASÍ
Hinn 1. október á þessu ári eru
35 ár liðin frá stofnun Kínverska
alþýðulýðveldisins. Af því tilefni
efna Sendiráð Kínverska alþýðu-
lýðveldisins og Kínversk-íslenska
menningarfélagið (KÍM) til sýn-
ingar á kínverskum munum og
verður hún opnuð á morgun í
Listasafni ASÍ.
Á sýningunni er að finna dæmi
um kínverska listsköpun eins og
hún birtist m.a. í málverkum. Þar
eru einnig dæmi um nytjalist svo
sem vefnað og tágakörfur. Auk
þess eru þar listmunir úr postu-
líni, fflabeini, jáðe, skeljum og
lakki. Kínverskir flugdrekar eru
á sýningunni og listilega gerðar
klippimyndir svo að fátt eitt sé
talið.
ÚTBOÐ
Steinullarverksmiöjan h/f á Sauðárkróki óskar eftir
tilboðum í smíði færibanda og skúffulyfta. Hér er um
að ræða 9 stk. færibönd og 3 stk. lyftur til að flytja sand
utan og innan verksmiðjubyggingarinnar.
Útboðsgögn fást afhent hjá Verkfræðistofunni Fjarhit-
un h/f, Borgartúni 17, Reykjavík, og í vinnubúðum
Steinullarverksmiðjunnar á Sauðárkróki frá og með
17. ágúst 1984.
Tilboðum skal skilað til Verkfræðistofunnar Fjarhitun-
ar h/f, Borgartúni 17, 105 Reykjavík, eigi síðar en kl.
14.00, 17. september 1984.
Föstudagur 17. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9