Þjóðviljinn - 17.08.1984, Page 11
LÝÐVELDI í40 ÁR
Á MNG VÖLL
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Þingvöll verður laugardaginn 18. ágúst.
Brottför úr Reykjavík verður kl. 9.00 árdegis frá Umferðarmiðstöðinni.
Aðaláningarstaður ferðarinnar verður á Efrivöllum. Þaðan verða skipulagðar
gönguferðir og þar verðurfluttfjölbreyttdagskrá.
Kynnir: Ásdís Þórhallsdóttir
Meðal dagskráratriða í sumarferð
Alþýðubandalagsins má nefna:
1. Séra Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður
ávarparfarþega.
2. Þytur-lítiðeinleiksverkfyrirtrompet
eftir Atla Heimi Sveinsson tónskáld.
Frumf lutningur: Ásgeir Steingrímsson.
3. Halldór Laxness rithöfundur les kafla úr
íslandsklukkunni.
4. Svavar Gestsson formaður
Alþýðubandalagsins f lytur ávarp.
5. Kórsöngur, blandaður kór undir stjórn
Sigursveins Magnússonar.
6. Fjöldasöngur
7. Vinningsnúmer ferðahappdrættisins kynnt.
Dagskrá og leikir fyrir börn á öllum aldri
verður í umsjá félaga í Alþýðubandalaginu í
Hafnarfirði.
Heimferð verður kl. 18.00 en einnig geta þeir sem þess óska komist heim kl. 16.00.
Aðalfararstjóri verður Jón Böðvarsson.
Honum til aðstoðar verða að vanda valinkunnir leiðsögumenn í hverjum bíl.
Forsala farmiða og skráning farþega fer fram á skrifstofu Alþýðubandalagsins
að Hverfisgötu 105. Síminn er 17500.
Verð farmiða er kr. 300.- fyrir fullorðna og kr. 150.- fyrir börn sem taka sæti.
Takið helgina strax frá, merkið við á aimanakinu og skráið ykkur
í síma 17500. _ , . .
Ferðanefnd