Þjóðviljinn - 17.08.1984, Qupperneq 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
MOÐVIUINN
Föstudagur 17. ágúst 1984 184. tölublað 49. örgangur
Akureyri
Komu í veg fyrir kjarabætur
Sjálfstœðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn sameinuðust í bœjarstjórn Akureyrar
Synjuðu Einingarmönnum leiðréttingar álaunum
Verkfrœðingar hafa fengið 38 tíma vinnuviku fyrir norðan
Helgi Guðmundsson: Fordœmifyrir styttinguvinnuvikunnar hjá öðrum starfshópum
Framsókn og íhald sameinuð-
ust í bæjarstjórn Akureyrar
sl. þriðjudag um það að koma í
veg fyrir leiðréttingu á kjörum
starfsfólks ýmissa bæjarstofnana
í samræmi við kaup og kjör fólks
á sambærilegum vinnustöðum
annarsstaðar á Norðurlandi.
Verkalýðsfélagið Eining hafði
farið fram á það við Akureyrar-
bæ með bréfi 20. júní sl. að launa-
kjör Einingarfélaga yrðu leiðrétt í
samræmi við samning sem Al-
þýðusamband Norðurlands gerði
8. júní við sjúkrahús og ýmsar
stofnanir á Norðurlandi vestra.
Kjarasamninganefnd bæjarins
Karl
sigraði
Condie
Karl Þorsteins sigraði Condic
frá Skotlandi í 12. og næstsíðustu
umferð heimsmeistaramóts ung-
linga í Helsinki í gær.
Hann hefur því 8Vi vinning og
er einn í þriðja sæti. Daninn Curt
Hansen er með unna biðskák á
Romero frá Spáni og verður því
efstur fyrir síðustu umferð, með
9Vi vinning. Dreev frá Sovétríkj-
unum á jafnteflislega biðskák og
verður því sennilega í öðru sæti
með 8 vinninga. Eins og sjá má af
þessu er staðan mjög óljós og allt
ræðst í síðustu umferð sem tefld
verður á föstudag. Þá teflir Karl
með svörtu við Oll frá Sovétríkj-
unum. Að sögn Þórs Sandholt,
aðstoðarmanns Karls, var góður
hugur í mönnum og Karl tilbúinn
í lokaslaginn.
Lj
hafnaði þessari beiðni en meiri-
hluti bæjarráðs samþykkti hins
vegar 26. júlí að fallast á erindi
Einingar. Meirihlutann skipuðu
Helgi Guðmundsson Alþýðu-
bandalagi, Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir Framsókn, sem er ritari
Einingar, og Þorgerður
Hauksdóttir frá Kvennaframboð-
inu.
Á bæjarstjórnarfundinn sl.
þriðjudag mætti hins vegar Úlf-
hildur ekki heldur réðu nú SÍS og
KEA forstjórarnir atkvæðum
Framsóknar. Enda kom á daginn
að ekki var meirihluti fyrir fyrri
ákvörðun bæjarráðs. Talsverðar
umræður urðu um þetta mál og
var að lokum samþykkt mála-
miðlunartillaga um að vísa erindi
Einingar aftur til bæjarráðs.
Sigríður Stefánsdóttir bæjar-
fuiltrúi Alþýðubandalagsins vís-
aði á bug öllum röksemdum um
það að ekki væri hægt að ganga
að óskum Einingar í þessu máli.
Það væri hægt ef menn vildu. Það
væri hryggilegt að Eining hefði
ekki sýnt meiri hörku í upphafi
fyrir sitt fólk en það væru nú engir
hagsmunir bæjarins að halda
þessu fólki á smánarlaunum.
Sigríður benti á til samanburð-
ar nýgerðan samning verkfræð-
inga við Akureyrarbæ um 9%
kjarabætur og bókun Helga Guð-
mundssonar í bæjarráði í því sam-
bandi en hún er svohljóðandi:
„Um leið og ég fellst á þann
samning, sem gerður hefur verið
við Stéttarfélag verkfræðinga, vil
ég vekja athygli á eftirfarandi:
Með samþykkt á samningum er
bæjarstjórn að fallast á styttingu
vinnuvikunnar hjá verkfræðing-
um úr 40 í 38 stundir á viku. Eg
hlýt að fagna þessum merku tíð-
indum og hvetja önnur stéttafé-
lög til þess að veita þessum rétt-
arbótum athygli, þar sem ég tel
að með þessum samningi sé bæj-
arstjórn að gefa fordæmi um
styttingu vinnuvikunnar hjá öðr-
um starfshópum."
í sama streng tóku fulltrúar
Kvennaframboðsins og Alþýðu-
flokksins. Þeir bentu á að í af-
stöðu meirihlutans fælist dæmi-
gerð lítilsvirðing á kvennastörf-
um, en það voru fyrst og fremst
konur sem þarna urðu af kjara-
bótum fyrir tilstuðlan íhalds og
Framsóknar. Þess má geta að í
meirihlutanum sem kom í veg
fyrir leiðréttingu á kaupi þessara
kvenna voru tvær konur.
Einar Vilhjálmsson spjótkastari fékk í gær spjót að gjöf. Spjótin em af Javelin gerð og innflytjandinn Ágúst Óskarsson úr Mosfellsveit sést hór afhenda
kappanum spjótin. Nú tíðkast þau hin breiðu... (Mynd-eik)
Hrefnuveiðar
Kvótinn nær fylltur
Veiðum að Ijúka á Árskógsströnd og einungis 18 til 20
dýr eftir af kvóta Brjánslœkjar
Gott afurðaverð
Hrcfnuveiðar á Breiðafirði
hafa gengið illa að undan-
förnu, mest vegna vestanáttar
sem stendur inn fjörðinn, þar sem
mest af okkar veiði er tekin.
Þetta sagði Ólafur Halldórsson
útgerðarmaður frá ísafirði en
hann stundar hrefnuveiðar frá
Brjánslæk á Barðaströnd með
þremur bátum. Auk þess sem
hrefnan er veidd á Breiðafirði
kvað ólafur þá veiða nokkuð á
Húnaflóa en það væri hins vegar
mun óhagkvæmara því þá þyrfti
að flytja dýrin á bílum yfir á
Brjánslæk.
„Ætli við eigum ekki eftir
eitthvað átján til tuttugu dýr af
kvótanum sem við fengum á okk-
ar báta. Við seljum afurðirnar til
Japans og það er ekki hægt að
segja annað en verðið sé gott,
það hækkaði í dollurum bæði í ár
og líka í fyrra. Það er líkast til
vegna þess að framboðið á þess-
ari vöru er að minnka“.
Hrefnukvótinn sem kom í hlut
íslendinga voru 177 dýr. Auk
veiðanna á Brjánslæk er hrefna
líka veidd frá Árskógsströnd í
Eyjafirði og Ólafur Halldórsson
kvaðst halda að norðanmenn
væru búnir með sinn kvóta í ár.
-ÖS
Dalvík
Séra Jón
vann
séra Jón
í gær var talið í
prestkosningunni í Dalvíkur-
prestakalli. 1087 voru á kjörskrá,
884 eða 81,3% kusu.
Atkvæði féllu þannig að sr. Jón
Þorsteinsson á Setbergi fékk 349
atkvæði, sr. Jón Helgi Þórarins-
son prestur við Fríkirkjuna í
Hafnarfirði fékk 527 atkvæði og
er því rétt kjörinn prestur á Dal-
vík. 8 atkvæði voru auð og ógild.
-6g