Þjóðviljinn - 22.08.1984, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 22.08.1984, Blaðsíða 4
LEIÐARI Launin verða að hækka! Samningslotan er hafin og kröfur Verka- mannasambandsins hafa þegar veriö lagðar fram. Einsog vænta mátti hafa atvinnurekend- ur strax rekiö upp ramakvein, lýst yfir aö þeir hafi ekki nokkur efni á neinum kauphækkun- um og hafnað kröfum Verkamannasam- bandsins algerlega. Framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins, Magnús Gunn- arsson, hefur ennfremur lýst því yfir að kröf- umar þýði í reynd 40 til 50 prósent kauphækk- un, sem myndi sliga til að mynda fiskvinnsluna að hans dómi. Þetta er hins vegar alrangt. Hinar „óhóf- legu“ kröfur Verkamannasambandsins ganga í höfuðdráttum út á það að lægstu laun verði ekki lægri en 14 þúsund krónur. Þetta jafngildir því, að þeir allra lægst launuðu myndu hækka um 8.4 prósent. Og óhófið er ekki meira en svo, að jafnvel þótt Vinnu- veitendasambandið gengi orðalaust að kröf- um Verkamannasambandsins, þáyrðu hæstu mánaðarlaun verkamanns fyrir dagvinnu samt sem áður ekki meiri en rúmar 19 þúsund krónur! Til að menn geti skoðað kröfur Verka- mannasambandsins í réttu Ijósi skal bent á það, að samkvæmt útreikningum Hagstofunn- ar er framfærslukostnaður vísitölufjölskyld- unnar nú kominn vel yfir 50 þúsund. Þó gengið verði að öllum kröfum Verkamannasam- bandsins þarf samt sem áður næstum þrenn mánaðarlaun hæstlaunaða verkamannsins til að afla þessa fjár. Jafnframt er rétt að benda á, að tiltölulega nýleg könnun Hagvangs sýndi að laun stjórnenda í fyrirtækjum hafa hækkað svo nemur tugum prósenta og standa nú í milli 70 og 100 þúsund krónum á mánuði. Er þá óhóf að fara fram á að kaup lægst launaða verkafólksins hækki um 8.4 prósent og verði 14 þúsund krónur á mánuði?! Fiskverkunarfólk hefur einkum borið skarðan hlut frá borði og kröfur um leiðréttingu á kjörum þess verið háværar allt frá því að febrúarsamningarnir voru gerðir. Ekki einasta er dagvinnukaup í fiskvinnslu vel fyrir neðan það sem þarf til að lifa mannsæmandi lífi, held- ur eru bónus og yfirvinna miðuð við launataxta sem eru langt fyrir neðan dagvinnutekjutrygg- inguna. Verulegur partur af álagi vegna yfirtíð- ar og bónuss tapast því. Þetta er þeim mun nöturlegra þegar haft er í huga að kannanir sem nú er verið að gera á vegum Norrænu Ráðherranefndarinnar sýna að líkamlegt slit íslenskra fiskvinnslukvenna er svo gífurlegt útaf álaginu sem fylgir bónus- vinnunni, að hvorki meira né minna en 71 prósent kvennanna þarf að leita sér læknis- hjálpar árlega af þeim sökum. Samt sem áður er stórum hluta af bónusálaginu stolið af þeim! Harmkvælum aðila sem reka útgerð og fisk- vinnslu um að kaupkröfur láglaunafólks í fisk- vinnslu séu að sliga atvinnugreinina er best svarað með því að benda á þetta: Vinnulaun hafa yfirleitt verið í kringum fjórð- ungur af kostnaði frystihúsanna. í fyrsta skipti í sögunni er nú ástandið þannig að kostnaður vegna launa starfsfólks í fiskvinnslu er orðinn minni en fimmtungur af heildargjöldum þeirra, enda er það staðreynd að fólk er á hröðum flótta úr fiskvinnslu sökum þrælslegra kjara. í Ijósi þessara staðreynda er það einfaldlega hrein ósvífni að ætla að standa gegn því að hækka lægst launaða fólkið um 8.4 prósent og gera 14 þúsund krónur að lágmarkslaunum! Atvinnurekendur sem ekki geta borgað slíka kauphækkun eru einfaldlega ekki hæfir til að reka fyrirtæki!! KLIPPT OG SKORIÐ ERU ÞESSI LAUN ÓEÐLILEGA MIKIL? /UXíUi.l L)SI JJt-WXiK. t.Lll. Mll>\SALA/t>JÓÐU:iKliOS. 7.1fl. MÓJkióaiTaiui: 11. ‘174 ÍRrata LiSKU: 15.560 I HITVIÍJ'JSLA. 11. lfl. Mimóarlaui: 13.008 Uraia ik>KB: 17.0‘X) SlMAVÖRÐUR/SlORT UORÐ. 9. lfl. MYNUMtLINGARMAÐUR. 15. lfl. MíiucaiTaui: 12.787 Máiuóarlaun: 15.843 Krala USH13: 10.023 Krafa liSHLi: 20.590 FótíTRA. 13. lfl. Krafa liSHii: iv.odj Eru kröfur BSRB óeðlilega háar? Forsætisráðherra hefur viður- kennt að laun opinberra starfs- manna hafi dregist aftur úr launum á almennum vinnumark- aði. Fjármálaráðherra viður- kenndi í vor með samningi sínum við Dagsbrún að eðlilegt væri að kjör Dagsbrúnarmanna væru samræmd þeim kjörum sem verkamenn hafa hjá ríkinu. Þeg- ar svo þessir aðilar leggja fram kröfur til þess að draga úr mis- réttinu sem ráðherrunum finnst ekki nema sjálfsagt að leiðrétta hrópar Vinnuveitendasamband- ið upp fyrir sig: Þessar kauphækkanir þýða 80% verð- bólgu - þessar kauphækkanir þýða 100% verðbólgu. Undan- sícilið er eða sagt lágum rómi að þetta muni þýða 100% verðbólgu ef þessar kauphækkanir ná til allra. Vinnuveitendasambandið talar um 40-50% kauphækkanir og öllum finnst það voða mikið og fæstir vilja óðaverðbólgu. Verkalýðshreyfingin á ekki ann- að svar við þessu en að benda á hvaða upphæðir hér er um að tefla. Þær eru ekki stórar í mán- aðarlaunum talið eins og vel kemur fram í félagstíðindum Starfsmannafélags ríkisstofnana frá 16. þessa mánaðar. Þar er spurt: Eru þessi laun óeðliiega mikil? og birtur myndalisti með núverandi launum og kröfum BSRB fyrir nokkur starfsheiti. Eftir þann lestur á maður erfitt með að trúa því að það sé þetta fólk sem spennir upp verðbólgu með kröfuhörku. -ekh T®u\lITLIKN/iRI. 10. lfl. Mánaóariaun: 13.o72 Krafa BSRB: 10.993 mm ^x..PIT BIFRLIÐALFITRLITSMIIIN. 12. lfl. VERÐI7LGSEFTIRLIT. 14. lfl. Mónaóarlaun: 14.141 ítínaóarlaun: 15.311 Krafa 18.383 Krafa BSldi: 19. mm IVóaiillSMAÐUR. 0. lfl. MiivtoaiTaun: ll. jol Kraia BSRB: 15.053 UÚÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans. Rltstjórar: Ámi Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fréttastjórar: Óskar Guðmundsson, Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Guðjón Friðrikssson Halldóra Sigur- dórsdóttir Jóna Pálsdóttir Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Ámason, Súsanna Svavarsdóttir, Víðir Sigurðsson (íþróttir), össur Skarp- héðinsson. Ljósmyndir: Atli Arason, Einar Karlsson. Útlit og hönnun: Bjöm Brynjúlfur Björnsson Svava Sveinsdóttir, Þröstur Haraidsson. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrlfstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir. Auglýsingastjóri: Ólafur Þ. Jónsson. Auglýsingar: Margrót Guðmundsdóttir, Ragnheiður Óladóttir, Anna Guðjónsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgrelðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir. Símavarala: Ásdís Kristinsdóttir, Sigrfður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bílstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumaður: Brynjólfur Vilhjólmsson, ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Sfðumúla 6, Reykjavík, aimi 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lauaasölu: 22 kr. Sunnudagsverð: 25 kr. Áskriftarverð á mánuði: 275 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Ml&vikudagur 22. ágúst 1984

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.