Þjóðviljinn - 22.08.1984, Blaðsíða 7
bdda Þórarinsdóttir leikkona, mun syngja „Þjóðvísu" Tómasar Uuðmunds-
sonar og „Bréf til forseta" (Mr. President") í þýð. Þorsteins Valdimarssonar.
Undirbúningsnefnd grafíksýningartnnar og aðstandendur Fnðardaga og Friðarráðstefnunnar. Ljósm. eik.
UMSJÓN: ÞÓRUNN SIGURÐARDÓTTIR
Mi&vikudagur 22. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
pau ætia ao spiia Mozart i kvold. Frá vinstri: Bryndis, Kolbeinn, Svava og Ornólfur. Ljósm. eik.
Friðardagar hefjast í
„Þvi rangsnúnari sem
heimurinn verður, þeim mun
þýðingarmeiri verður Mozart.
Stundum langar mig til að ger-
ast áróðursmaður og berjast
beint gegn óréttlæti og hern-
aðarbrölti, en þegar ég hugsa
mig betur um skil ég að falleg
tónlist er líka áróður, - áróður
fyrir lífinu. Og þessi tónlist
sem við ieikum í kvöld er ein-
hver fallegasta tónlist sem
samin hefur verið“, sagði Kol-
beinn Bjarnason flautuleikari
en hann er í N.Y. kvartettnum,
sem í kvöld leikur saman í
fyrsta sinn á Friðardögum í
Félagsstofnun.
Þau sem skipa kvartettinn hafa
öll verið við nám í New York og
eru á förum þangað aftur utan
Kolbeinn, sem verður hér í vetur.
Þau eru auk hans Örnólfur Krist-
jánsson, sellóleikari sem var við
Mannes skólann, Svava Bern-
harðsdóttir, lágfiðluleikari, var í
Julliard og Bryndís Pálsdóttir,
fiðluleikari, sem var að ljúka ein-
leikaraprófi hér við Tónlistar-
skólann. Þau hafa ekki leikið
saman áður og munu leika aðeins
í þetta eina skipti, þar sem þau
Svava og Örnólfur fara utan
næstu daga.
„En vonandi eigum við eftir að
leika saman einhvem tíma
seinna“, sagði Kolbeinn.
Af öðrum atriðum á Opnu húsi
í Félagsstofnun í kvöld í tengslum
við alþjóðlega ráðstefnu Friðar-
sambands Norðurhafa má nefna
erindi dr. Jan Williams, lífeðlis-
fræðings frá Bretlandi, ljóð Söru
Brownsberger frá Bandaríkjun-
um og söng Ingunnar Simonssen
frá Færeyjum. Þá syngur Edda
Þórarinsdóttir leikkonaviðundir-
leik Bjarna Jónatanssonar. Lög-
in sem hún syngur æfði hún fyrir
Friðarvikuna í Norræna húsinu í
vor, en veiktist þá svo lögin voru
aldrei flutt. Nú fá friðarsinnar
tækifæri til að heyra Eddu syngja
þau, en annað þeirra er „Bréf til
forseta“ (Mr. President) í þýð-
ingu Þorsteins Valdimarssonar
og hitt Þjóðvísa Tómasar Guð-
mundssonar við lag Gylfa Þ.
Gíslasonar. Kynnir á dagskránni,
sem hefst kl. 21.00, verður Viðar
Eggertsson.
Idag kl. 17.00 verður svo opn-
uð í Féiagsstofnun myndlistar-
sýning norrænna grafíklista-
manna til stuðnings baráttu gegn
kjarnorkuvopnum. Þeir sem sýna
eru Helmtrud Nyström, Nils
Stenqvist, Jordi Arkö, Leif Elg-
gren, Pentti Kaskipuro, Esa Pi-
ippa, Outi Heiskanen, Ulla
Rantanen, Marjatta Nuoreva,
Björn-Willy Morthensen og Palle
Nielsen. Þau em öll í fremstu röð
grafíklistamanna á Norður-
löndum og verk þeirra sem hér
verða sýnd hafa ekki verið á sýn-
ingu erlendis. Þrír listamannanna
eru núverandi eða fyrrverandi
prófessorar við akademíurnar í
Stokkhólmi, Helsinki og Kaup-
dag
mannahöfn, þeir Nils Stenqvist
(sænskur), Pentti Kaskipuro
(finnskur) og Palle Nielsen
(danskur).
Á morgun verður sýning á
myndbandi frá finnska sjónvarp-
inu um myndlistarsýninguna
„Flyttbara Tuonela" eftir Outi
Heiskanen og fleiri. Grafík sýn-
ingin verður opin frá kl. 14-22,
en sýningin á myndbandinu hefst
sem fyrr segir kl. 21.00. Á föstu-
dag verður svo fyrsta sýning á
„The last talk-show“ sem sænski
leikarinn Jan Bergquist flytur og
verður þessi sýning á ensku, en
seinni sýningin, á sunnudag, á
sænsku.
þs