Þjóðviljinn - 22.08.1984, Síða 16
Aðalsími: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
DiðmnuiNN
Mlðvikudagur 22. ágúst 1984 188. tölublað 49. árgangur
Verkamannasambandið
Eru 14 þúsund ofrausn?
Atvinnurekendur mega hneykslast og veifa frumskógi af prósentum
en það er eitthvað að þjóðfélagi þar sem fólk er á hröðum flótta frá
undirstöðugreinunum vegna þrœlslegra kjara, segir Guðmundur J. Guðmundsson
Altso, Vinnuveitendasamband-
ið er að óskapast útaf því sem
það kallar óheyrilegar kröfur
verkafólks og er með einhvern
frumskóg af prósentutölum því til
staðfestingar. Það breytir því
hins vegar ekki, að allt, sem við
erum að fara fram á, er að lægstu
launaflokkunum verði kippt í
burt og þeir sem minnst laun fá,
verði með 14 þúsund krónur á
mánuði. Vita menn hvað það
þýðir? Það þýðir einfaldlega 8,4
prósent hækkun hjá þeim allra
lægst launuðu!! Það eru nú öll
ósköpin sem við crum að fara
fram á. Menn geta svo sjálfir
dæmt hvort það muni ríða þjóð-
inni á slig, einsog Vinnuveitenda-
sambandið segir.
Þetta sagði Guðmundur J.
Guðmundsson formaður verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar í
viðtali við Þjóðviljann í gær.
„í dag býr verkafólk við tvöfalt
launakerfi, þannig að dagvinnan
miðast við ákveðnar lágmarks-
tekjur - dagvinnutekjutrygging-
una, en bónusinn og yfirvinnan
miðast hins vegar við launaflokka
sem eru langt fyrir neðan tekju -
trygginguna. Þetta þýðir einfald-
lega það, að stór hiuti af bónus-
álagi og yfirvinnuálagi tapast."
„Eg get nefnt dæmi sem skýrir
þetta dálítið betur. Hjá fisk-
vinnslufólki er tímakaupið 74.50
krónur samkvæmt dagvinnu-
tekjutryggingunni. Vinni það
yfirvinnu á að koma 40 prósent
álag ofan á tímakaupið þannig að
yfirvinnukaupið ætti auðvitað að
vera 104.30 á tímann. En það er
nú aldeilis eitthvað annað.
Álagið er nefnilega reiknað út frá
taxta sem er fyrir neðan hið raun-.
verulega tímakaup þannig að í
reynd verður yfirvinnukaupið
ekki nema 87.11 krónur. í reynd
er því yfirvinnuálagið ekki nema
tæp 17 prósent. Á sama hátt tap-
ast verulegur hluti af bónusnum í
fiskvinnslunni, því hann er líka
miðaður við taxta sem eru langt
fyrir neðan hið raunverulega dag-
vinnukaup.“
„Starfsaldurshækkanirnar
hverfa svo til allar á sama hátt.
Dagvinnutekjutryggingin étur
þær upp, má heita. Sá sem er bú-
inn að vinna einn mánuð fær það
sama og sá sem hefur unnið í tíu
ár!! En eitt helsta baráttumálið
hefur verið að fá einmitt starfs-
aldurshækkanir til jafns við aðra.
En þær hreinlega sökkva í þessu
vitleysislega kerfi“.
Friðardagarnir
Byrja í FS í dag
Friðardagar í Félagsstofnun
byrja í dag kl. 17.00 með
myndlistarsýningu norrænna
gr aflklis tamanna.
í kvöld kl. 21.00 verður Opið
hús með fjölbreyttri dagskrá í
Félagsstofnun, upplestri, söng og
tónlist og dr. Jan Williams líf-
eðlisfræðingur frá Bretlandi
flytur ávarp. Friðardagarnir eru í
tengslum við alþjóðlega friðar-
ráðstefnu Friðarsambands
Norðurhafa, sem sett verður að
Hótel Loftleiðum á föstu-
dagsmorgun. Sjá nánar um dag-
skrá Friðardaganna á bls. 7
Varði Norður-
landatitilinn
Skáksveit Hvassaleitisskóla
varði Norðurlandameistara-
titil sinn á Norðurlandamóti
grunnskóla sem nú er lokið í Hap-
aranda í Svíþjóð. Hvassaleitis-
skóli sigraði á mótinu eins og í
fyrra og að þessu sinni með 15
„Altso, það er verið að tala um
að verkafólk vilji einhverja verð-
bólgu. Þetta er tóm della. En
verkafólk kallar það hins vegar
verðbólgu þegar launin þess
standa í stað en það þarf þriðj-
ungi lengri tíma til að vinna fyrir
nauðsynjavörum".
„Svo eru menn að óskapast yfir
þénustunni hjá fólki í fiski. En
eru ekki látlausar auglýsingar
eftir fólki í fiskvinnslu hér á höf-
uðborgarsvæðnu. Hversvegna?
Vegna þess að fólkið er að flýja
greinina! Víða úti á landi eru
langir biðlistar eftir störfum og
stór hluti af þessu er fólk sem er
að reyna að koma sér úr fiskvinn-
unni. Hvers konar þjóðfélag er
það eiginlega þar sem fólkið
hrekst undan á flótta úr undir-
stöðugreinunum af því það fær
ekki mannsæmandi laun?“
„í gegnum tíðina hefur
kaupliðurinn í rekstri frystihús-
anna verið reiknaður um það bil
25 prósent af útgjöldunum. Nú
bregður svo við í fyrsta skipti í
sögunni að launaliðurinn er kom-
inn niður fyrir 20 prósent. Þetta
sýnir það eitt, að það er bersýni-
lega eitthvað annað en of há laun
verkafólks sem hrjáir frystihús-
in“.
„Atvinnurekendur hafa verið
að hneykslast á launakröfum
okkar. Það er allt í lagi, og þeir
skulu bara útausa sinni hneykslan
yfir alþjóð. Menn skulu hins veg-
ar ekki gleyma því, að okkar fólk
vinnur langan og strangan vinnu-
dag, það býr við meira öryggis-
leysi um vinnu en flestir aðrir
hópar, það býr við bónuskerfi
sem atvinnurekandinn græðir
miklu meira á en það sjálft, og
þar að auki þjást meir en 70 prós-
ent af fiskvinnslufólkinu af at-
vinnusjúkdómum. Mig langar
þessvegna til að spyrja þessa
menn:
Er þessu fólki virkilega of gott
að fá 14 þúsund krónur I lág-
markslaun?“.
-ÖS
Sjá leiðara bls. 4
Alþýðubandalagið
Miðstjórnarfundur
á Akureyri
Miðstjórnarfundur Alþýðubandalagsins verður haldinn 31. ágúst til
2. september á Akureyri.
Megin viðfangsefni fundarins verður leið Alþýðubandalagsins í atvinnu- og
efnahagsmálum. f tengslum við það verður rætt um kjaramálin. Auk þess
verður stefnuumræða bandalagsins til umfjöllunar á fundinum. Fundurinn
hefst kl. 20.30 á föstudagskvöldið með framsöguræðum. Úm sömu helgi verða
haldnir nokkrir almennir fundir í Norðurlandskjördæmi eystra.
-óg
Hvassaleitisskóli
Þeir eru búnir að byggja heilt einbýlishús tii að sýna fólki á Heimilissýningunni í Laugardal - hún hefst núna á föstudag og
unnið er af fullum krafti við undirbúning. Ljósm.-eik.
Skuldbreytingalánin
Framkvæmdastofnun
setur fyrirvara
Byggðasjóður á að ábyrgjast 100% ábyrgð
fyrir fyrirtœki í sjávarútvegi, sem ekki geta
sjálf sett fram nœgjanlegar tryggingar
vinningum af 20 mögulegum.
Skáksveitina skipuðu Þröstur
Þórhallsson á 1. borði, Tómas
Björnsson á 2., Snorri G. Bergs-
son á 2. og Helgi Hjartarson á 4.
Varamaður var Héðinn Stein-
grímsson. _ekh
Talsverðar efasemdir munu
hafa komið fram á fundi
stjórnar Framkvæmdastofnunar
um það, hvernig framkvæma eigi
breytingar þær á lausaskuldum
útgerðar og flskvinnslu, sem
ríkisstjórnin samþykkti, til þess
að ráða bót á erflðleikum sjávar-
útvegsins. Sjávarútvegsráðuneyt-
ið sendi Framkvæmdastofnun og
Byggðasjóði tillögur, eða drög,
um framkvæmd þessara skuld-
breytinga.
Það er einkum 5. liður þessara
tillagna, sem stóð í stjórn stofn-
unarinnar, en þar er gert ráð fyrir
því, að þar sem svo stendur á, að
fyrirtæki geti ekki sett nægilegar
tryggingar, geti Byggðasjóður
ábyrgst skuldbreytingalánin með
sjálfskuldarábyrgð, allt að 100%!
Þau skilyrði eru að vísu sett í til-
lögunum fyrir slíkri ábyrgð, að
fram fari endurskoðun og endur-
skipulagning á rekstri og fjárhag
viðkomandi fyrirtækis, sem
fullnægjandi megi teljast að dómi
hlutaðeigandi lánastofnana.
Stjórn framkvæmdastofnunar
var ekki einhuga um að Byggða-
sjóður tæki á sig slíka ábyrgð,
enda augljóst að þarna er hætt við
að um yrði að ræða gjafabréf og
augljóst að Byggðasjóður hefur
ekki fé til að reiða fram slíkar
gjafir og fé yrði að koma af fjár-
lögum til þess ama.
Stjórn stofnunarinnar sam-
þykkti því tillögur ríkisstjórnar-
innar þannig að hvert mál verði
lagt fyrir stjórnina til samþykkt-
ar, enda fari fram víðræður við
ríkisstjórnina um 5. tölulið sam-
komulagsins. Þær viðræður eiga
eftir að fara fram.
óg/JH