Þjóðviljinn - 28.10.1984, Qupperneq 3
Sími 93-7370. Kvöld- og helgarsími: 93-7355.
Afhendum vörur á
byggingarstað á Stór-
Reykjavíkursvæðinu
kaupanda að kostnaðar-
lausu.
Framleiðsluvörur:
EINANGRUNARPLAST
OG PÍPUEINANGRUN
SELUR
AUK
ÞESS:
Glerull Þakpappa
Steinull Útloftunarpappa
Pipueinangrun Álfóliu
Söluaðili í Reykjavík:
Plastfólíu Múrhúðunarnet
Spónaplötur Nethald
Plaströr og tengi, PVC
Borgarplast, Vesturvör 27. Sími 46966
Þarfekki
aðsjá
eftir bví
Spjallað við Ingimund á Hnappavöllum
Ég þarf ekki að sjá eftir því að
hafa fylgt þessum flokki sem
bóndi, þetta hafa verið miklir
öndvegismenn, þessir þingmenn
Sósíalistaflokksins og Alþýðu-
bandalagsins hér í kjördæminu.
Þetta voru orð Ingimundar
Gíslasonar bónda á Hnappa-
völlum í Öræfum þegar blaða-
maður Þjóðviljans heimsótti
hann á dögunum. Ingimundur
hefur verið einlægur sósíalisti og
ötull baráttumaður um langan
aldur, oft á tíðum einn á báti
innan um harðsnúið Framsókn-
arlið.
- Við spyrjum Ingimund um
baráttu fyrri ára.
- Ásmundur (Sigurðsson,
þingmaður sósíalista) kom hér
alltaf á veturna. Það var mikið
fjör hér þegar þeir Páll (Þor-
steinsson þingmaður Framsókn-
arflokksins) héldu hér saman
leiðarþing. Páll var fæddur og
uppalinn hér í Öræfum og átti
mikið fylgi, en Ásmundur átti fá
atkvæði. Allir komu á fundinn og
mikið líf í tuskunum get ég sagt
þér. - Ingimundur hlær dátt við
tilhugsunina. - Ásmundur gisti
alltaf hjá mér, hver varð að vera á
sínum bæ, þar sem hann átti fylgi.
- Mér er minnistætt þegar ver-
ið var að ræða um áburðarverk-
smiðjuna, þá sagði Einar Olgeirs-
son í útvarpinu að ríkið ætti að
eiga meiri hlutann, annars
myndu auðmenn Reykjavíkur
kaupa upp öll bréfin. Það væri
undirstöðuatriði fyrir bænda-
stéttina að fá sem ódýrastan
áburð. Ásmundur ræddi þessi
mál hér á fundi og sagði að eftir
því sem áburðurinn væri dýrari
því dýrari yrðu afurðirnar. Verð-
inu þyrfti að halda niðri. Páll vildi
þá eitthvað malda í móinn.
Hvernig voru
undirtektir
fundarmanna?
- Það var ekkert hægt að taka
mark á undirtektunum því allir
voru þeir kjósendur Páls. Og nú
hlær Ingimundur aftur dátt. - Ég
man líka þegar Einar beitti sér
fyrir því að kaupa togarana fyrir
stríðsgróðann, hann sagði vera
um að gera að kaupa tækin með-
an þau væru ekki á hærra verði.
Hinir vildu auðvitað helst geyma
peningana, hafa þá svo fyrir sig
og láta almenning aldrei fá neitt.
- Fylgið jókst nú eftir að Al-
þýðubandalagið var stofnað.
Lúðvík var alltaf svo opinskár.
Hann sagði sko hvað ætti að gera
til þess að koma lagi á hlutina.
Helgi og Hjörleifur eru líka prýð-
ismenn, þeir komu báðir á árs-
hátíð Alþýðubandalagsins á Mýr-
um í fyrra, þar var fullt hús og
alveg rosalega gaman.
Hörmungastjórn
í alla staði
- Hvað flnnst þér um núver-
andi ríkisstjórn?
- Allir bændur, að minnsta
kosti, hljóta að vera sammála um
að þetta sé hörmungastjórn í alla
staði. Það hefði nú aldeilis ekki
verið peningalaust núna ef Al-
bert hefði haft vit á að halda
áfram stefnu Ragnars Arnalds.
Við eigum auðvitað að selja
okkar framleiðslu hér innan-
lands. Það er svo vitlaust að flytja
kjötið út handa útlendingum,
nær væri að greiða niður verðið
handa íslendingum sjálfum. Þá
þyrfti að minnsta kosti ekki að
greiða flutningskostnað. Og svo
er étið útlent kjöt á hótelunum.
Það verður gaman að sjá hvort
Geir lætur Kanann éta íslenska
kjötið.
Bœndur fö ekkert
nema skammir
- Annars er fólk farið að
skammast sín fyrir að vera í þess-
ari atvinnugrein. Fólk leggur sig
fram og reynir að hafa afurðirnar
sem bestar og mestar og fær svo
ekkert nema skammir fyrir. Ef
bændur væru nú aumingjar og
framleiddu ekki nóg fyrir landið,
hvað þá? Bændafólk ætti frekar
að vera stolt af framleiðslu sinni, í
stað þess að skammast sín. Sagði
Ingimundur Gíslason að lokum
um leið og hann bauð undirrit-
aðri í herlegar kræsingar í eldhús-
inu hjá konu sinni Guðrúnu
Bergsdóttui.
-GGÓ
Pú ákveður hvort, eða hvenær Bónusreikningur er
verðtryggður eða óverðtryggður. Slíkt skiptir máli.
Bónusreikning færðu bara hjá Iðnaðarbankanum.
Iðnaðarbankinn
Sunnudagur 28. október 1984 ÞJÖÐVILJINN — SÍÐA 3